Þjóðviljinn - 12.01.1986, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.01.1986, Blaðsíða 3
Herdís hættir Ritstjóri tímaritsins Mannlífs, Herdís Þorgeirsdóttir hefur sagt upp störfum ásamt rit- stjórnarfulltrúanum Auði Styrkársdóttur og auglýs- ingastjóra Mannlífs. Samkvæmt heimildum slúörara Þjóðviljans mun hafa komið upp missætti milli Her- dísar og Anders Hansen sem á Fjölnisútgáfuna, sem meðal annars gefur út Mannlíf auk fleiri tímarita. Herdís mun hafa í hyggju að stofna hlutafélag um út- gáfu nýs tímarits í stíl við Mannlíf, þegar hún nær sam- komulagi við útgefandann um lausn frá ritstjórastarfinu. Mannlíf hefur á undanförn- um misserum náð mikilli út- breiðslu og samkvæmt heim- ildum vorum hefur talsverður hagnaður verið af blaðinu. Sama verður ekki sagt um önnur tímarit sem Anders Hansen gefur út, og mun út- gáfufyrirtæki hans vera illa statt samkvæmt traustum heimildum.B Ekki kvennalisti á Akureyri Litlar líkur eru taldar á að kon- ur bjóði fram sérstakan lista við bæjarstjórnarkosningarn- ar á Akureyri í vor. Valgerður Bjarnadóttir fyrrum forseti bæjarstjórnar og forystumað- ur Kvennaframboðsins á staðnum hefur lýst því yfir að hún ætli ekki fram að nýju og er sagður lítill áhugi hjá kon- um fyrir endurteknu framboði. Frá Reykjavík heyrast þær fréttir úr herbúðum Kvenna- framboðsins að skiptar skoð- Valgerður ekki í framboð. anir séu um hvort bjóða eigi fram í vor. Þó er talið öllu lík- legra að listi komi fram og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi sem nú er í barnsburðarfríi verði þar í efsta sæti, en listinn verði ekki boðinn fram á vegum Kvenn- aframboðsins heldur Kvenna- listans sem bauð fram til síð- ustu þingkosninga. Þá herma sögur að auk Ingibjargar muni skipa eitt af efstu sætunum Magdalena Schram sem hefur starfað ötullega í kvennabaráttunni.B Geir vili á toppinn Nú styttist óðum í að Hösk- uldur Jónsson ráðuneytis- stjóri og nýskipaður forstjóri ÁTVR taki við lyklavöldunum í ríkinu. Þáereftirað skipaeftir- mann Höskuldar í ráðuneyt- inu en sterkar líkur hafa bent til þess að Sigurður Þórðar- son deildarstjóri í ráðuneytinu sé sá útvaldi. En það eru fleiri um hituna. Geir Haarde fyrrum aðstoðarmaður Al- berts sem var síðan látinn fylgja með í stólaskiptunum til Þorsteins vill gjarnan hreiðra um sig til frambúðar í ráðu- neytinu og þá dugar ekki nema toppstaða að mati aðstoðarráðherrans. ■ Geir vill á toppinn. Blaðamanni á Þjóðviljanum er vant húsnæðis til leigu, tveggja til þriggja herbergja. Vænir hús- eigendur hafi samband í síma 27064 (h.) eða 681333 (v.). PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða LOFTSKEYTAMENN/SÍMRITARA til starfa á loftskeytastöðvarnar í Neskaup- stað og á Höfn í Hornafirði. Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfs- mannadeild Reykjavík og hjá stöðvarstjórum Neskaupstað og Höfn. KONUR - Það eru lausir samningar. Sitjum ekki þegjandi. SAMTÖK KVENNA Á VINNUMARKAÐIN- UM halda fund um kjaramálin að Hótel Borg laugardaginn 11. janúar kl. 15.00. Frummælendur verða Bjarnfríður Leósdóttir og Birna Þórðardóttir. Fundarstjóri verður Elín G. Ólafsdóttir. Konur - sýnum vilja okkar til öflugrar kjarabar- áttu í verki - mætum allar. Tengihópur Eftirtaldar greinar eru í boði á vorönn 1986, ef þátttaka leyfir: TUNGUMÁL: íslensk málfræði og stafsetn- ing. íslenska fyrir útlendinga (1. einu sinni í viku í 80 mín., 2. tvisvar í viku 60 mín., 3. tvisvar í viku 80 mín. 4. framhaldsflokkur). Danska 1 .-4. flokkur. Norska 1 .-4. fl. Sænska 1.-4. fl. Enska 1.-6. fl. Þýska 1.-3. fl. Þýska samtalsfl. ítalska 1 .-4. fl. Italskarbókmenntir. Spænska 1.-4. fl. Spænskar bókmenntir. Spænska samtalsfl. Franska 1 .-4. fl. Portúg- alska. Hebreska. Gríska. VERSLUNARGREINAR: Vélritun. Bók- færsla. Tölvunámskeið. Stærðfræði (grunnskóla- og framhaldsskólastig). VERKLEGAR GREINAR: Mónóþrykk. Sníð- ar og saumar. Myndmennt. Formskrift. Post- ulínsmálun. Myndvefnaður. Leikfimi. NÝTT NÁMSKEIÐ í MYNDBANDAGERÐ (video). Danska, sænska og norska fyrir 7-10 ára börn, til að viðhalda kunnáttu þeirra barna sem kunna eitthvað fyrir í málunum. í almennri deild er kennt einu sinni eða tvisv- ar í viku, ýmist 2, 3 eða 4 kennslustundir í senn í 11 vikur. Kennsla fer fram í Miðbæjar- skóla, Laugalækjarskóla, Gerðubergi og Ár- seli. Námskeiðsgjald fer eftir kennslustunda- fjölda og greiðist við innritun. ATHUGIÐ: Félög og hópar sem óska eftir kennslu í einhverri grein geta farið þess á leit að Námsflokkarnir haldi námskeið um efnið og verður það gert svo fremi sem hægt er. INNRITUN fer fram 14. og 15. janúar kl. 17- 20. Kennsla hefst 20. jan. Bæit kjor með SÉRSTAKRI VAXTAVIÐBÓT, AUK VAXTA OG VERÐBÓTA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.