Þjóðviljinn - 12.01.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 12.01.1986, Blaðsíða 16
Verkmenntaskóli Austurlands. Rúmgott bókasafn nemenda. á Menntabylting Austurlandi Nú um áramótin tók formlega til starfa Verkmenntaskóli Austurlands í Neskaupstað, sem sveitarfélög á Austurlandi standa að ásamt ríkinu. Skólinn leysir af hólmi Framhaldsskólann í Nes- kaupstað sem þar hefur starfað af miklum myndarskap síðan 1981 þegarGagnfræðaskólinní Neskaupstað og Iðnskóli Austur- lands voru sameinaðir í eina stofnun. Þarhefuraðaláhersla verið lögð á iðn- og tækni- menntun en auk þess boðið upp á tveggja ára framhaldsnám í bóklegumgreinum. Skólanum hefur f rá upphafi verið ætlað það meginhlutverk að vera miðstöð verklegrar menntunar á Austur- landi, og sú breyting sem varð á rekstri hans nú um áramótin staðfestir þann ásetning. Allt frá árinu 1979 hefur verið boðið upp á framhaldsmenntun á Austurlandi samkvæmt eininga- og áfangakerfi framhaldsskóla og sinna sex skólar í fjórðungnum kennslu á því skólastigi. Höfuð- skóli bóknáms er auðvitað Menntaskólinn á Egilstöðum, og verknámið fær nú sinn örugga sess í Neskaupstað. En Alþýðu- skólinn á Eiðum, Heppuskóli á Höfn, Hússtjórnarskólinn á Hall- ormsstað og Seyðisfjarðarskóli hafa líka að bjóða mismunandi nám á ýmsum brautum fram- haldsskólastigs. Nokkru fyrir jól var blaðamað- ur á ferð í Neskaupstað og heim- sótti skólann og tók tali Smára Geirsson skólameistara til að inna hann nánar eftir atburðum á framhaldsskólastigi á Austur- landi og fræðast um starfsemi Verkmenntaskólans. Fyrst var farin skoðunarferð um nýbyggt skólahús sem er áfast gamla gagnfræðaskólanum, ásamt Smára.skólameistara, og verður ekki annað sagt en að vinnuað- staða nemenda og kennara sé upp á það besta sem þekkist. Þó sagði Smári knýjandi þörf á að koma upp húsi fyrir verklega kennslu í málm- og tréiðnum sem færi fram við ófullnægjandi að- stæður í leiguhúsnæði. I nýja hús- inu er auk kennsluaðstöðu til bóklegrar fræðslu, skrifstofa skólans og rúmgóð kennarastofa, kennslustofa þar sem fer fram verkleg kennsla í rafiðngreinum, vel búin tækjum, tölvuver þar sem eru tólf kennslutölvur <(Smári sagði að ólíkt því sem sums staðar væri byggju þeir vel að kennurum á því sviði) og myndarlegt skólabókasafn ásamt lesstofu sem skólinn getur verið stoltur af. í skólanum fer ennþá fram kennsla þriggja efstu bekkja grunnskóla í Neskaupstað, og boðið er upp á fornám fyrir þá sem ekki hafa staðist próf til að hefja nám á framhaldsskólastigi. Eftir að skoðunarferðinni lauk og Smári Geirsson hafði upplýst að hann væri eini skólameistarinn á landinu sem spilaði í popphljóm- sveit (Bumburnar spiluðu í Egils- búð helgina áður; af fimm hljóm- sveitarlimum eru þrír kennarar) var hann spurður um fjölda nem- Frá málmsmíðaverkstæðinu. enda og beðinn um að skýra frá starfsemi skólans. - Við Verkmenntaskóla Aust- urlands eru 140 nemendur í fram- haldsnámi. Auk þeirra eru um 60 manns sem sækja mismunandi námskeið innan skólans, þannig að alls eru um 200 nemendur við einhvers konar nám á framhalds- skólastigi hér. Nemendur á grunnskólastigi eru 100 talsins. Við stöndum frammi fyrir gífur- legum vanda vegna þeirrar miklu fjölgunar sem orðið hefur á fram- haldsskólastiginu. Ekki síst vegna þess að við eigum að þjóna heilum landsfjórðungi, og heima- vist skólans rúmar ekki nema 17 nemendur af þeim 50-60 aðkom- unemendum sem við þurfum að koma fyrir hér. Við leysum það með því að taka á leigu húsnæði og koma þeim fyrir hér og hvar um bæinn. Þessir aðkomunem- endur koma frá 20 sveitarfélög- um hér í fjórðungnum. Ný heimavist er því algjört forgangs- verkefni. Þar á eftir kemur nýtt verknámshús fyrir kennslu í málm- og tréiðnaði. Við erum ekki illa settir hvað varðar hús- næði til bóklegrar kennslu. - Hvernig eru samskipti við aðra skóla sem bjóða upp á nám á framhaldsskólastigi? Er togstreita á milli eða samkeppni um nem- endur? - Það hefur nú ekki verið. Sam- starf skólanna hérna fyrir austan var nokkurn veginn fullmótað í kringum 1979. Einmitt á því ári hefst starfræksla Menntaskólans á Egilstöðum. Og síðan þá hefur þetta samstarf gengið einkar ljúf- lega fyrir sig; það má orða það svo. Það hefur t.d. verið mikill einhugur um að við þennan skóla ætti fyrst og fremst að sinna iðn- og verkmenntun. Það er okkur nægilegt verkefni að okkar mati. Ef við ættum að fara að keppa við Menntaskólann á Egilsstöðum um seinnihluta náms á bóklegum brautum væri bókstaflega rangt að farið. Þá værum við að dreifa kröftum okkar og farin að vinna að hlutum sem að mínu mati væru nánast óþarfir, miðað við það nám sem nú stendur til boða á þessu skólastigi hér í fjórðungn- um. Mér finnst það bera þess vott hvað samstarfið hefur í raun ver- ið gott hvað viðbrögð voru já- kvæð varðandi samstarf sveitarfélaga hér fyrir austan um Verkmenntaskóla Austurlands. Það hefur verið unnið að því í tæp tvö ár að koma á þessu samstarfi um uppbyggingu og rekstur verk- og tæknimenntunarskóla hér í fjórðungnum. Þessi skóli hefur verið til staðar þar sem verið hef- ur Framhaldsskólinn í Neskaup- stað, en bæjarfélagið hér hefur eitt og sér allra sveitarfélaga í fjórðungnum staðið straum af kostnaði við rekstur skólans ásamt ríkissjóði. Bóknámið ódýrara Smári Geirsson sagðist nýverið hafa átt viðræður við fulltrúa allra þéttbýlissveitarfélaga á Austurlandi og hafa á þriðja tug sveitarstjórna þegar ákveðið að ganga til samstarfs innan þess ramma sem lagður var á aðal- fundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sl. haust. Kvað hann ljóst að öll þéttbýlissveitarfélög yrðu aðilar að þessu samstarfi, auk þess kvaðst hann vita um þó nokkrar hreppsnefndir sveita- hreppa sem ætluðu að vera með og aðrir væru að hugsa sig um. En verður skipting kostnaðarhlut- falls vegna reksturs og uppbygg- ingar skólans eingöngu miðuð við íbúafjölda á hverjum stað, eða verður farið eftir einhverjum öðrum reglum? -Þarna er um tiltölulega flókn- ar reglur að ræða. í fyrsta lagi er hlutur Neskaupstaðar hlutfalls- lega stærri en annarra, vegna þess að skólinn er hér staðsettur. Síð- an skipta sveitarfélögin upp sín- um kostnaðarhluta með tilliti til útsvarstekjustofns, og líka er tekið tillit til fjölda nemenda úr hverri byggð sem nám stunda við skólann. Það eru þessir þrír þættir sem ráða kostnaðaraðild hvers sveitarfélags. Menn verða að átta sig á því að kostnaður við að koma upp iðnskóla er gríðar- lega mikill, einkum ef þarf að byggja upp alla aðstöðu til verk- náms; það er miklu ódýrara að byggja upp bóklega fræðslu. Hins vegar er þetta dálítið öfugsnúið, þar sem hið opinbera greiðir að- eins 60% af stofnkostnaði við fjölbrautaskóla og þá skóla sem sinna verklegu námi, og tekur þátt í helmingi rekstarkostnaðar, meðan ríkið stendur að öllu leyti undir stofnkostnaði og rekstri hreinræktaðra bóknámsskóla. Auk þess er það reyndin þar sem ég þekki til að ríkissjóður stendur alls ekki við sinn hluta af greiðslum til þeirra skóla sem reknir eru sameiginlega af ríki og sveitarfélögum. Sá hluti skilar sér jafnan bæði seint og illa, og það kemur illa við sveitarfélögin sem verða þá að standa skil á hærri upphæðum en þeim ber hlutfalls- lega samkvæmt samningum. Að mínu mati sýnir þetta best hvaða mun stjórnvöld gera á bóklegu námi og verknámi. Það sýnir sig að verknám á undir högg að sækja meðan bóknámi er gert æ hærra undir höfði. Á sama tíma eru menn, þar sem við þykir eiga, endalaust að hjala um að nauðsynlegt sé að byggja upp iðnað og leggja aukna áherslu á verkmenntun og fjölbreytni í atvinnulífi. Það verður hins vegar ekki séð, hvar sem á er litið, að 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. janúar 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.