Þjóðviljinn - 12.01.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 12.01.1986, Blaðsíða 15
Allir aðrir í bráðri hœttu BirgirBjörn Sigurjónsson, framkvœmdo- stjóriBHM: Nauðsynlegt að málið fari fyrir dóm „Nei, það koma ekki mörg mál af þessu tagi til okkar kasta,“ sagði Birgir Björn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Bandalags há- skólamanna. „Ég þori ekki að segja um hvort þar er um að ræða ókunnugleika fólks um réttindi sín og skyldur, en það er óhætt að fullyrða að það er mjög sjaldgæft að mönnum sé vikið fyrirvara- laust úr starfi án þess að lagaá- kvæðum um réttan aðdraganda uppsagnar sé fylgt.“ - Þekkið þið dœmi þess að ráð- herra sem handhafi framkvœmd- avalds reki menn með þessum hœtti? „Slíkt fordæmi er bara eitt eftir því sem ég veit best, og það var þegar Jónas frá Hriflu rak yfir- lækninn á Kleppi í upphafi fjórða áratugarins. Það þótti yfirgengi- leg valdníðsla á sínum tíma og varð af mikið mál.“ Sem kunnugt er hefur BHM mótmælt uppsögn Sigurjóns Valdimarssonar harðlega og sagði Birgir Björn það einróma mat manna að ólöglega hefði ver- ið að henni staðið. „Við höfum ráðið Guðríði Þorsteinsdóttur Birgir Björn Sigurjónsson. lögfræðing og fyrrverandi fram- kvæmdastjóra BHM til að fara ofaní þetta mál og veita Sigurjóni alla þá aðstoð sem mögulegt er,“ sagði hann. „Við teljum að allir sem hafa ráðningarsamning hjá ríkinu séu í bráðri hættu ef þessi uppsögn verður ekki dæmd ólögmæt og því teljum við nauðsynlegt að málið fari fyrir dóm, þó auðvitað stýrum við ekki þeirri ferð. Okk- ar markmið hlýtur að vera að tryggja réttarstöðu ríkisstarfs- manna með dómi á grundvelli gildandi laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna en það mun ekki nást nema sem þáttur í málshöfðun Sigurjóns sjálfs". - Attu von á að ráðherra verði þá stefnt? „Já, ég geri ráð fyrir dómstefnu vegna þessa einhvern næstu daga,“ sagði Birgir Bjöm að lok- um. _ ÁI. Kallar á málshöfðun Arnmundur Backman. Arnmundur Backman, hrl.: Aðdragandi uppsagnarinnar þvertá lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna „Það er grundvallarregla í öllum vinnurétti, lögfest hvað op- inbera starfsmenn varðar og margdæmt í Hæstarétti að mönnum skal fyrst veitt áminning og þeim gefið tækifæri til að bæta ráð sitt áður en þeim er vcitt lausn og þá aðeins til bráðabirgða. Síð- an skal málið rannsakað fyrir dómi eða af kunnugum mönnum og það fer eftir niðurstöðum þeirrar rannsóknar hvort við- komandi starfsmaður endur- heimtir starf sitt eða ekki,“ sagði Arnmundur S. Backman, hæst- aréttarlögmaður og annar tveggja höfunda bókarinnar „Vinnuréttur“. „í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna frá 1954 eru skýr og afdráttarlaus ákvæði um réttarstöðu þeirra hvað brottvikningu varðar,“ sagði Ammundur. „Þar er gert ráð fyrir að mönnum sé veitt lausn um stundarsakir ef þeir ger- ast brotlegir t.d. með óstundvísi, vanrækslu, óhlýðni, vankunn- áttu, óvandvirkni eða ölvun í starfi. Þó skal ávallt veita áminn- ingu áður en til þessarar bráða- birgðalausnar kemur og gefa mönnum kost á að bæta ráð sitt nema um bókhaldara sé að ræða, eðli málsins samkvæmt.“ „Menn sem vikið er úr starfi um stundarsakir eiga rétt á hálf- um launum meðan rannsókn kunnáttumanna eða dóms fer fram og endurheimti þeir starfið að henni lokinni fær hann launamuninn greiddan, annars ekki. Þetta er grundvallarregla í öllum vinnurétti: áminning, lausn um stundarsakir og rann- sókn sakargifta. Lögin um rétt og skyldur opinberra starfsmanna hafa verið lögð til grundvallar á almennum vinnumarkaði hvað þetta varðar og margdæmt í sam- ræmi við það í Hæstarétti," sagði hann. „Þegar hins vegar búið er að víkja manni úr starfi eins og Sverrir Hermannsson gerði ný- lega með ólögmætum hætti að því er ég tel, á viðkomandi samt ekki rétt á að endurheimta starfið aft- ur. Hann getur aðeins leitað rétt- ar síns og fengið uppsögnina dæmda ólögmæta og fengið skað- abætur úr ríkissjóði. Þær geta verið allháar sérstaklega ef um æviráðningu er að ræða og ef við- komandi starfsmaður hefur verið borinn ásökunum opinberlega sem ekki standast. Ef uppsögn sem hefur þennan aðdraganda er ekki dregin til baka kallar hún á slíkt bótamál vegna réttarstöðu alls vinnandi fólks í landinu,“ sagði Arnmundur Backman að lokum. _ ÁI. Sunnudagur 12. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 LAJUSAR STÖÐURHJÁ REYKJAVÍKURBORG • Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtal- inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamning- um. Sumarstarfsmenn óskast á Slökkvistöðina í Reykjavík á sumri komandi. Skilyröi er að viö- komandi sé á aldrinum 20-28 ára og hafi meira bifreiðapróf. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá Tryggva Ólafssyni á Slökkvistöðinni í Reykja- vík, sími: 22040. Umsóknareyðublöðum þarf að skila fyrir 1. mars n.k. £91 LAUSAR S7ÖÐUR HJÁ W REYKJAVIKURBORG • Reykjavíkurborg vill ráða starfsmann til eftirta- lins starfs. Starfskjör samkvæmt kjarasamning- um. Læknafulltrúi óskast í 50% starf við Heilsu- gæslustöð miðbæjar, eftir hádegi. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsu- gæslustöðva í síma 22400, kl. 9:00-10:00 alla virka daga. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 20. janúar 1986. LAUSAR STOÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG • Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með uppeld- ismenntun óskast til að aðstoða og örva seinþroska börn á dagvistarheimilum í Reykjavík. Starfið er unnið í samvinnu við fóst- rur á viðkomandi dagvistarheimili og í samráði við Sálfræði- og sérkennsludeild Dagvistar barna. Upplýsingar veitir Garðar Vilborg, sálfræðing- ur í síma 27277. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 27. janúar 1986. Laus staða hjá Reykjavíkurborg Reykjavíkurborg vill ráða starfsmann til eftirtalins starfs. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. • Deildarfulltrúa á hverfaskrifstofu í fjölskyldu- deild Félagsmálastofnunar. Félagsráðgjafamenntun og a.m.k. 3ja ára starfsreynsla áskilin. Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar í síma 25500. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 27.1. 1986. Sálfræðingar Sálfræðingur óskast til starfa á sálfræðideild Fræðslu- skrifstofu Norðurlands eystra, Furuvöllum 13, Akur- eyri, sem fyrst. Upplýsingar veita fræðslustjóri eða deildarstjóri sál- fræðideildar í síma 96-24655.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.