Þjóðviljinn - 12.01.1986, Page 5
Spjallað við Helenu
Óskarsdóttur, sem
lœrði svœðameð-
ferð íDanmörku,
eftir að hafa unnið í
3 árá krabbameins-
stofnun
„Ég er menntaður sjúkraliði og
vann hérásjúkrahúsi, en langaði
alltaf til að læra meira. Ég fór til
Danmerkur og vann á krabba-
meinsstofnuninni Finsens Instit-
ut í 3 ár og lærði þar krabbam-
einsfræði. Þá vaknaði áhuginn á
að læra meira og kynna mér „alt-
ernativar" lækningar, sem hafa
verið mjög ofarlega á baugi í
Danmörku undanfarin ár. Ég
komst að á heilsuskólanum í So-
borg og var þar ein af 10 ne-
mendum í svæðameðferð. Nám-
ið allt tekur rúmt ár og má segja
að við lærum allt sem viðkemur
svæðameðferð nema sjálfa nál-
astunguna," sagði Helena Ósk-
arsdóttir, svæðanuddari, en hún
kom til landsins fyrir ári og hefur
síðan starfrækt stofu með svæð-
ameðferð í Garðabænum.
Svæðameðferð byggir sem
kunnugt er á nuddi á ákveðnum
orkupunktum í líkamanum eink-
um iljunum. Er hér um að ræða
aldagömul vísindi, sem talin eru
upphaflega kínversk, enda hafa
kínverjar náð hvað lengst í þess-
um lækningum. Einnig er talið að
Indíánar hafi haft mikla þekk-
ingu á svæðameðferð og nála-
stunguaðferðum og raunar kom
þessi lækningaaðferð hér á Vest-
urlöndum fyrst fram í Bandaríkj-
unum fyrir um 100 árum. í>að er
svo ekki fyrr en á síðasta áratug
að hún vakti verulega athygli í
Evrópu og t.d. hafa Danirnú við-
urkennt hana að hluta sem lækn-
isaðferð. Læknar hafa stundað
rannsóknir á lækningamætti
svæðameðferðar og nálastungu-
aðferðar í Danmörku og liggja
fyrir ýmsar athyglisverðar vís-
indalegar niðurstöður. En í
hverju er svæðameðferð fólgin?
Helena svarar:
„Hún byggir á orkusvæðum í
líkamanum, sem tengjast
ákveðnum líkamshlutum og líf-
færum. Sjúkdómar í þessum ork-
usvæðum þurfa ekki endilega að
tengjast líffærasiúkdómum, þótt
það sé algengt. I orkusvæðunum
eru ákveðnir orkupunktar, sem
oft tengjast tauga- eða blóðrás-
arkerfi, en geta þó verið án sýni-
legra tengsla við taugaendana.
Þess vegna er mjög erfitt að segja
nákvæmlega hvað orkusvæðin
eru í raun og veru. Hins vegar
vitum við að það er hægt að
mynda þau með sérstakri mynda-
vél, og Rússar kalla þetta Kirlian-
myndir. Þar sjást greinilega þessi
orkusvæði og margir telja að þau
séu einskonar rafeindablóðrás
sem gengur um allan líkamann og
tengist á mismunandi stöðum.
Orkusvæðin tengjast ýmsum ó-
líkum líffærum og hafa áhrif á
þau. Sem dæmi má nefna að líf-
færi sem liggja saman geta haft
áhrif hvert á annað, t.d. móðurlíf
Hvorki kukl
né kraftaverka
lœkningar
Helenameð
Kínverjann hann
Friðrik.Áþessu
líkani, sem gert er i
Kína, má sjá
orkusvæðispunkt-
ana og hvernig
þeirtengjast
hinumýmsu
svæðum á
líkamanum. Útfrá
þessu kerfi hafa
svæðameðferðog
nálastungurverið
þróaðarígegnum
aldirnar.
Ljósm.: E.ÓI.
1111
og milta, eða líkamshlutar sem
ekki liggja saman, t.d. ristill og
axlavöðvar."
Lofa ekki
lœkningu
„Getið þið læknað sjúk-
dóma?“
„Nei, í raun og veru getum við
ekki sjúkdómsgreint fólk eða
læknað sjúkdóma í líffærum þess.
Ég lofa engum slíku. Við getum
hins vegar fundið þegar eitthvað
er að þessum líkamshlutum eða
líffærum. Það er talsvert um að
fólk vilji að maður geri krafta-
verk. Þetta eru ekki yfirnáttúru-
legar læknisaðferðir og lækning
er alltaf samtvinnuð lífsháttum
einstaklingsins. Ég vísa fólki oft á
lækna og bendi því á atriði í sam-
bandi við mataræði, hreyfingu og ■
lífshætti. Öndunin er mjög mikil-
væg og ég enda alltaf meðferð á
góðri slökun með tónlist og
slökunaræfingum. Með svæða-
meðferðinni er oftast hægt að ná
verulegum árangri t.d. með
vöðvagigt, höfuðverk, bakverk,
svima, meltingartruflanir og fleiri
sjúkdóma, sem ekki stafa
beinlínis af sjúkum líffærum. Þar
sem ég hef unnið við stofnun sem
fæst við alvarlega sjúkt fólk, þ.e.
krabbameinssjúklinga, geri ég
skýran greinarmun á þessu
tvennu. Þessir „minniháttar"
sjúkdómar geta hinsvegar verið
mjög hvimleiðir og með svæða-
meðferð, sem stunduð er reglu-
lega ákveðinn tíma, er hægt að ná
miklum og góðum árangri. Auk
þess kenni ég fólki að nudda sjálft
ákveðna punkta sem tengjast
veikleika þess og þá getur það
linað mjög sársauka og einkenni
sjúkdómsins. Til dæmis er hægt
að lina mjög sársauka í axlavöðv-
um með því að nudda punktinn á
utanverðri hendinni, neðan við
litlafingurinn.“
Vill lœra meira
„Hvernig líta læknar hér á
landi á starfsemi af þessu tagi?“
„Það er auðvitað ýmiss konar
misskilningur í gangi um svæð-
ameðferðina, en almennt held ég
að læknar séu ekki beinlínis mót-
fallnir henni. Hins vegar segir
það sig sjálft að menn taka ekki
mjög alvarlega tveggja daga
námskeið í svæðameðferð.
Margir virðast halda að þetta
séu einhvers konar yfirnáttúru-
legar lækningar sem tengist trúar-
brögðum og dulspeki. Svo er alls
ekki og þótt það sé gott að vera
næmur á fólk, þarf maður ekki að
vera skyggn, til að stunda svæð-
ameðferð, eins og margir virðast
halda. Ég held að menn séu farnir
að gera sér betur grein fyrir því
hér að þetta eru vísindi, sem
byggja á langri hefð, og því meira
sem maður veit um líffærafræði
og sjúkdómadræði, þeim mun
betra. Læknar hafa fengið aukinn
áhuga á nálastunguaðferðinni og
ég held að þeir viðurkenni al-
mennt að svæðameðferð eykur
blóðstreymi, örvar taugaboð og
ýmsa starfsemi í líkamanum.
Þetta eru hins vegar hvorki kraft-
averkalækningar né kukl,“ sagði
Helena að lokum. Hún bætti því
svo við að draumurinn væri að
læra meira, auka við þekkinguna.
Helst vildi hún komast til Kína,
en þar er miðstöð þekkingarinnar
í þessum fræðum.
þs
1
V
cun ;
K8.6 (Neigu'.n)
M.36 (Zusanli)
B.4o (Weizhong)
MP.6 (Sanyinjiao)
Orkusvæðispunktar sem tengjast ýmsum líffærum og likamshlutum:
Lu.7 (Lieque) Afturhluti höfuðs og háls, lungnasvæði, efri hluti hryggjarins.
Co.4 (Hegu) Andlit, framhluti höfuðs og háls. Ristilorkusvæði (slæm melting og
vöðvabólga tengist þessum punkti). Einnig á fólk að geta losað sig við frunsu
sem er að myndast með því að nudda þennan punkt. Ks.6 (Neiguan) Brjóstið
niður að nafla og líffæri I brjóstholi. Blóðrásarorkusvæði. Punkturinn finnst með
því að mæla tvær fingurbreiddir frá úlnlið innanverðum. M.36 (Zusanli) Maga-
orkusvæði. Líffæri í kviðarholi. Með því að nudda þennan þunkt linast krampi
t.d. í maga. B.40 (Weizhong) Blöðruorkusvæði, mjaðmagrind, mjóbak. M.6
(Sanyinjiao) Milta, bris, kynfæri, móðurlíf. Punkturinn erum3fingurbreiddirfrá
ökklabeininu. Þetta eru nokkrir helstu punktarnir, en miklu fleiri punktar em t.d.
á fótum, iljum og höndum.
Sunnudagur 12. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5