Þjóðviljinn - 12.01.1986, Qupperneq 10
framundan er blómaskeið. Síðan
er Þjóðleikhúsið stofnað 1950 og
margir bestu starfskraftarnir fara
þar til starfa. Var Þjóðleikhúsið
raunar reist til að hýsa Leikfélag
Reykjavíkur þótt önnur yrði
raunin.
f Iðnó bera menn merkið á
lofti, vinna langan vinnudag í
„hefðbundinni” vinnu en fara á
kvöldin til að æfa og sýna. Og það
sýnir sig að það er rúm fyrir tvö
leikhús í Reykjavík.
Skömmu eftir 1960 voru gerðar
lagfæringar á húsinu, - og veitti
ekki af. Einnig voru gerðar skip-
ulagsbreytingar á rekstri L.R.
1963, nokkrir leikarar fastráðnir
og leikhússtjóri tók til starfa.
Atvinnuleikhús var orðið til og
var það mikið framfaraspor.
Það gefur auga leið að til að ná
sem bestum árangri í list sinni,
þarf leikari að geta helgað sig
henni að fullu og þarf að geta haft
framfæri af henni. Það sama á við
um þá starfsmenn aðra sem
leggja hönd á plóginn, leikmynd-
ateiknarar, smiðir, saumakonur
og margir fleiri höfðu unnið jafn
fómfúst starf og leikararnir, - og
verið jafn nauðsynlegir.
Með þessum breytingum var
Leikfélagi Reykjavíkur fyrst
skapaður raunvemlegur starfs-
grundvöliur. Og árangurinn
skilaði sér, aðsókn jafnt sem sýn-
ingafjöldi stóróx, sætanýting
helst áfram um 80-90%, sem er
með því besta sem gerist. Jafn-
framt tekur starfsemin sífellt
meir að færast út úr húsinu.
Gamla Iðnó var löngu orðið allt
of lítið og sýningar voru út um
allan bæ t.a.m. í Tjarnarbæ og
Austurbæjarbíói. Draumur
Leikfélagsfólks um Borgar-
leikhús var gamall, en nú fór að
komast skriður á málið.
Búið þröngt
Þrengslin í Iðnó eru enn ótrú-
leg, til viðbótar við þá litlu bún-
ingsklefa sem eru undir sviðinu,
hefur verið komið upp búnings-
aðstöðu í leikmunageymslu og í
lítilli skonsu uppi á lofti. Oft má
sjá leikara á hlaupum með föt til
skiptanna undir höndunum út um
allt hús. Leikfélagið er nú með
starfsemi út um allan bæ, skrif-
stofan er á þrem stöðum, verk-
stæði og saumastöfa á tveim öðr-
um. Iðulega eru æfingar í Iáns-
húsnæði og sýningar eru oft flutt-
ar í Austurbæjarbíó vegna
þrengsla í Iðnó. Þar að auki er
salurinn í húsinu allt of lítill til að
vera arðbær fyrir nútímaleikhús.
Öll aðstaða fyrir leikhúsgesti er
löngu úrelt.
Iðnó hefur þjónað Leikfé-
laginu í tæp 90 ár, en það var
byggt fyrir 5.000 manna bæ, -
ekki 120.000 manna borg. Margir
munu sakna Gamla Iðnó, en senn
mun félagið flytja starfsemi sína í
sitt draumahús, leikhús þar sem
allt það er sem nútímaleikhús
þarf. Eftir 90 ár sem leigjandi,
verður Leikfélagið loks í eigin
húsnæði, sem hæfir starfseminni.
Borgarleikhús
Það hefur tæpast farið fram hjá
fólki að í hinum svokallaða nýja
miðbæ er risið stórt og mikið hús
undir starfsemi Leikfélags
Reykjavíkur. í dag leggur borg-
arstjóri hornstein að Borgarleik-
húsi og það er merkur áfangi í
sögu L.R. Vonir standa til að
hægt verði að taka húsið í notkun
eftir tvö til þrjú ár. Húsið er með
tveim sölum, sá stærri tekur um
540 manns í sæti, en sá minni 170-
270. Jafnframt verður þar öll
starfsemi félagsins t.a.m. verk-
stæði (málm, tré og málningar),
saumastofur, búninga- og leik-
munageymsla, hljóðstúdíó,
teiknistofur og eins og fyrr sagði
allt sem leikhús þarfnast og er
nauðsynlegt til leikhúsreksturs.
HEIMILDIR:
LR 50 ára, Leiftur 1947.
Sveinn Einarsson: LR 70 ára, LR
1967.
Sveinn Einarsson: Leikhúsið við
tjörnina, AB 1972.
Hornsteinn að nýju leikhúsi Reykvfkingq og Leikfélagsins, Borgarleikhúsi, lagðurfdag
Nírœður leigjandi á
förum í eigið húsnœði
Þann / /. janúar fyrir 89 árum stofnuðu 19 menn og konur Leikfélag Reykjavíkur,
sem œ síðan hefur verið leigjandi í gamla Iðnaðarmannahúsinu við Tjörnina
Árið 1897 var Reykjavík um
5.000 manna bær þar sem kýr
gengu lausar um moldargötur og
vatnsberar roguðust með byrðar
sínar frá vatnspóstunum í hús. í
þá daga rann lækurinn úr Tjörn-
inni og þjóðsagnapersónan
Þóröur Malakoff þreytti drykkju
daglangt ( Svínastíunni.
æfingu stóð, þótt ofninn væri
rauðglóandi kyntur, og voru það
oftast nær gagnslitlar æfingar.
Svona var nú aðbúnaðurinn í
Iðnó fyrstu starfsár Leikfélags-
ins, og er það undrunarefni, að
þeir menn, sem þar hafa starfað
lengst, skyldu halda heilsu.”
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður
kunnu áhorfendur vel að meta
sýningar Leikfélagsins. Sætanýt-
ing var ótrúlega góð, um aldamót
á milli 80-90%. Þá voru Reykvík-
ingar tæplega 6.000, en 1904 veru
leikhúsgestir um 5.000. Þá þegar
hafði L.R. náð þeirri hylli áhorf-
enda sem það hefur haldið æ síð-
an.
Næstu áratugi tekur leiklist á
íslandi stórstígum framförum. í
upphafi aldarinnar hefjast sýn-
ingar á íslenskum verkum, þar á
meðal leikrit eftir Matthías Joc-
humson, Jóhann Sigurjónsson,
Gamla Iðnó hefur lítið breyst frá því um aldamótin, þótt umhvefið sé nánast óþekkjanlegt.
Myndin er frá því um aldamótin og Vonarstrætið aðeins moldartroðningur.
dag leggur borgarstjóri hornstein að Borgarleikhúsinu við Listabraut, sem mun rúma á
áttunda hundrað manns í tveimur sölum.
Einar H. Kvaran og Guðmund
Kamban. Sýningafjöldi vex jafnt
og þétt, bæði sýningafjöldi á
hverju stykki fyrir sig og á fjölda
sýndra verka. Gömlu frumherj-
arnir heltast úr lestinni einn af
öðrum, en nýtt fólk tekur við.
Undir 1930 koma fyrstu lærðu
leikararnir til starfa og verkefnin
verða sífellt metnaðarfyllri:
Shakespeare, Shaw og Strind-
berg koma fram og slegið er á
léttari strengi með Arnold og
Bach. Húsið var einnig bætt,
byggt yfir fatageymslu og raf-
magn leitt í húsið, en áður hafði
það verið lýst upp með gasi og
olíulömpum.
Uppúr ’30 skellur kreppan á
með fullum þunga, jafnt í
leikhúsinu sem annarsstaðar í
þjóðlífinu. Sýningum fækkar og
fjárhagur þrengist um tíma, en úr
rætist og á stríðsárunum réttir
Leikfélagið úr kútnum á ný,
eppnin er skammt undan ?
Menningarstofnanir voru þá
ekki margar, skólar voru helstir
Menntaskólinn, Prestaskólinn og
Lagaskólinn. Þau blöð sem út
komu voru ísafold og Þjóðólfur
og skemmtanalíf var í lágmarki,
ef frá skal telja drykkjubúllurnar
og skemmtanir skóladrengja úr
M.R.
Það var því ekki í lítið ráðist hjá
þeim fámenna hópi sem kom
saman vetrardag einn í byrjun árs
til að stofna leikhús. Um nokk-
urn tíma höfðu starfað í borginni
tveir leikhópar, annar í Góð-
templarahúsinu, hinn í Fjalakett-
inum. Það voru þessir tveir hópar
sem sameinuðust í Leikfélagi
Reykjavíkur.
Sameiningin var gerð m.a.
fyrir tilstuðlan nokkurra iðnaðar-
manna, en þeir höfðu áhuga á að
nýta sitt nýbyggða hús til
leikstarfsemi. Húsið hafði verið
byggt á árunum 1896-97 og var á
þeirra tíma mælikvarða hið glæsi-
legasta í alla staði.
Leikféiagið kaus sér stjórn og
varð fyrsti formaður hennar Þor-
varður Þorvarðarson prentari.
Iðnaðarmenn tóku virkan þátt í
starfsemi félagsins og má segja að
þeir hafi haldið því uppi fyrstu
árin. Það er því ljóst að L.R. á
iðnaðarmönnum í Reykjavík
mikið að þakka.
Sama ár og Þorvarður varð for-
maður Leikfélagsins var hann
kjörinn formaður hins nýstofn-
aða íslenska prentarafélags.
Upphafið
Fyrsta sýning Leikfélagsins var
síðla þetta sama ár, eða laugar-
daginn 18. desember. Þá voru
sýnd Ferðaævintýri eftir Arnsen
og Ævintýri í Rósenborgargarði
eftir Heiberg. Bæði þessi verk
voru það sem kallað var danskir
„söngvasmámunir”, en það sama
átti við um flest verkefni mörg
fyrstu árin. Um aldamótin hefjast
síðan sýningar á raunsæjum verk-
um eftir höfunda eins og Björn-
son og Ibsen.
Sýningar voru í upphafi fáar,
en þeim fjölgaði smátt og smátt
og eru t.d. orðnar 40 veturinn
1904-5. Á þessum árum í upphafi
aldarinnar var miðaverð frá 50
aurum upp í 1,75 krónu og
leikarakaupið var eftir því: 1-5
krónur fyrir kvöldið.
Leikfélagið var knúið áfram á
þessum erfiðu upphafsárum af
áhuga og eldmóði dugandi fólks.
Aðstæður allar voru hinar frum-
stæðustu á okkar mælikvarða
a.m.k. Flóð úr Tjörninni voru tíð
í kjallara og búningsherbergjum
og munað eins og klósett, mið-
stöð og rafmagn þekkti fólk ekki.
í afmælisritinu Leikfélag Reykja-
víkur 50 ára segir Friðfinnur
Guðjónsson,-einn af stofnendum
félagsins, svo frá:
„Uppi á leiksviðinu var einn
heljarstór kolaofn, sem oftastnær
var kyntur, þegar æfingar fóru
fram. En svo var húsið kalt, að í
miklum frosthörkum fóru
leikendur ekki úr yfirhöfnum eða
tóku niður vettlinga, meðan á
Vinningar í H.H.Í. 1986: 9 á kr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 216 á kr. 100.000; 2.160 á kr. 20.000; 10.071 ákr. 10.000;
122.202 á kr. 5.000; 234 aukavinningar á kr. 20.000. Samtals 135.000 vinningar á kr. 907.200.000.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ISLANDS
vænlegast til vinnings
.
Vmnmgsmirtinn l‘>:
ingsmióinn Wi
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 11