Þjóðviljinn - 12.01.1986, Síða 20
ÞU KAUPIR
SPARISKÍRTEINI
FLEIRI EN
ÞÚ SJÁLFUR
GOH FÓLK / SfA
Spariskírteini ríkissjóðs eru góð
fjárfesting og skila þér miklum
arði. Þú getur valið á milli þriggja
möguleika á ríkulegri ávöxtun spari-
fjár þíns, þú tekur enga áhættu og
ert tryggður gegn hvers konar spá-
kaupmennsku.
Fleiri njóta góðs af en þú.
En það eru fleiri en þú sjálfur sem
hagnast á viðskiptunum. Afkomend-
ur þínir - æskufólkið sem erfa á
landið - nýtur einnig góðs af sparn-
aði þínum.
Tryggjum framtíð barna okkar.
Við þekkjum öll mikilvægi þess að
búa vel í haginn fyrir komandi kyn-
slóðir. Börnum okkar viljum við
tryggja velferð og sem áhyggju-
minnsta ævi. Okkur er að sjálfsögðu
bæði ljúft og skylt að stuðla að
þessu. Ein leiðin til þess er að kaupa
spariskírteini og halda með því
lánsfé og vöxtum innanlands; hefta
erlendar lántökur.
Með kaupum á spariskírteinum
ríkissjóðs leggur þú lóð á þessa vog-
arskál, sjálfum þér, börnum þínum
og barnabörnum til farsældar um
ókomin ár.
Sölustaðir spariskírteina
ríkissjóðs eru:
Seðlabanki íslands, viðskiptabank-
arnir, sparisjóðir, nokkrir verðbréfa-
salar og pósthús um land allt.
Á
RIKISSJÓÐUR ISLANDS