Þjóðviljinn - 31.01.1986, Qupperneq 1
VIÐHORF
VETRARBLAÐ
GLÆTAN
Umdeilda öndvegissúlan í Kópavogi.
Ekki leitað til æðri máttarvalda, segja
bréfritarar. Ljósm.: E.ÓIason.
Borgarstjórinn
Öndvegissúla
í vitlausu
kjördæmi?
Ráðamenn í Reykjavík hafa
lengi verið grunaðir um
græsku í þessum efnum, segja
tveir íbúar í bréfi til bæjarstjórn-
ar í Kópavogi, - og vitna til þess
að Steinunn gamla hafi ekki vilj-
að þiggja Romshvalanes að gjöf
frá Ingólfi, heldur gaf hún fyrir
„heklu flekkótta og vildi kaup
kalla; henni þótti það óhættara
við riftingum“. Heimildir Þjóð-
viljans herma að önnur öndveg-
issúlan sé amk. 10 metrum innan
bæjarmarka Kópavogs.
í bréfi þeirra Ásmundar Ás-
mundarsonar og Vilhjálms Ein-
arssonar segir m.a.:
„Undirritaðir íbúar í Kópavogi
hafa ástæðu til að halda að önd-
vegissúlur þær reykvískar, sem
ætlað hafði verið að standa við
mörk lögsagnarumdæma
JLeykjavíkur og Kópavogs við
Kringlumýrarbraut í Reykjavík,
séu (a.m.k. önnur) við Hafnar-
fjarðarveg í Kópavogi. Eigi þetta
við rök að styðjast skal á það
minnt að leita verður heimildar
a.m.k. byggingarnefndar, svo
ekki sé minnst á æðri máttarvöld í
Kópavogi, til að reisa mannvirki
af þessu tagi.
Áður hafa skapast fordæmi
fyrir því að Reykjavík hafi seilst
innfyrir bæjarmörk Kópavogs og
náð landvinningum sér til handa.
Hefur fólki hér í bæ stundum virst
sem um markvissa útþenslu-
stefnu hinnar göfugu höfuðborg-
ar væri að ræða. Á það skal og
bent að ráðamenn í Reykjavík
hafa lengi verið grunaðir um
græsku í þessum efnum og skal
hér minnt á atvik frá í árdaga nor-
rænnar byggðar hér á landi. Svo
segir í hinni merku bók Land-
námu: „Steinunn hin gamla,
frændkona íngólfs, fór til Islands
og var með Ingólfi hinn fyrsta
vetur; hann bauð að gefa henni
Romshvalanes allt fyrir utan
Hvassahraun, en hún gaf fyrir
heklu flekkótta og vildi kaup
kalla; henni þótti það óhættara
við riftingum."
Lausleg athugun á aðstæðum á
grundvelli landamerkjalýsinga
bendir til þess að það sem nú er
haft í flimtingum í Kópavogi um
mál þetta geti átt við rök að styðj-
ast.“ - óg.
Lánasjóðurinn
GönuhlaupSverris
Vinnubrögð og stefna menntamálaráðherra harðlega fordæmd á þingi ígœr.
Steingrímur J. Sigfússon: Forkastanlegframkomaráðherrans. Ráðherrarverða
að búa yfir meiru en vera liðugir íkjaftinum. Sverrir: Vængjabusl í
Alþýðubandalaginu. Tönnur Davíðs glamra vegna sveitastjórnakosninga.
Gífurleg spenna var í þing-
sölum þarsem Alþýðubandalagið
hafði farið fram á utan dagskrár-
umræðu um málefni lánasjóðs-
ins. Námsmenn fjölmenntu á
pallana. Steingrímur kvað óhjá-
kvæmilegt að meiri kröfur væru
gerðar til ráðherra en að þeir
væru sæmilega liðugir í kjaftin-
um.
Sverrir Hermannsson kvað
þingmanninn fara með rugl og
kallaði málafylgju Alþýðubanda-
Steingrímur J. Sigfússon var í miklum ham þegar hann skammaði Sverri fyrir aðför hans að námsmönnum. Mynd E.ÓI.
lagsins vængjabusl. Honum væru
gerðar upp sakir, - nýja frum-
varpið væri einungis frumhug-
mynd sem hann hefði ekki rætt
við neinn. Um gagnrýni Davíðs
Oddssonar borgarstjóra sagði
Sverrir, að hann hefði ekki leitað
ráða hjá borgarstjóranum og gæti
ekki gert að því að tönnurnar
tækju að glamra í borgarstjóran-
um vegna yfirstandandi kosn-
inga.
Kennarar
Ingvar Gíslason talaði um buslu-
bæn Sverris Hermannssonar og
kvað Framsóknarflokkinn ekki
mundu fallast á hugmyndir
menntamálaráðherra um
breytingar á lögum um lánasjóð-
inn, hvað þá vinnubrögð ráðherr-
ans.
-gg/óg
■ ■
011 vinnubrögð Sverris Her-
'mannssonar og þær hug-
myndir sem hann hefur komið
fram með um breytingar á nú-
gildandi lánakerfi eru svo lítt
grundaðar að það er með end-
emum, - framkoma hans við
framkvæmdastjóra Lánasjóðsins
var forkastanleg og reyndar
dæmigert gönuhlaup ráðhcrrans,
sagði Steingrímur J. Sigfússon
m.a. í afar harðorðri ræðu sinni
yfir Sverri Hermannssyni
menntamálaráðherra í utandag-
skrárumræðu á alþingi í gær.
Bréfið loðið
Mismunandi túlkanir áillskiljanlegu bréfifjármálaráðherra til
Bandalags kennarafélaga. IndriðiH. Porláksson: Á við að samið sé
fyriralla kennara. Þorsteinn Pálsson: Loka engum dyrum. Valgeir
Gestsson: Skilningur Geirs Haarde annaren Indriða. Kristján
Thorlacius: Okkurstill upp við vegg
Menn greinir mjög á um
hvernig túlka beri bréf það
sem kennurum barst frá fjár-
málaráðherra á fundinn í Súlna-
salnum sl. miðvikudag. Túlkuðu
viðmælendur Þjóðviljans þetta
hver með sínum hætti; að Banda-
lag kcnnarafélaga geti samið sér
fyrir Kennarasambandið, - eða
að BK fái bara samningsréttinn
svo fremi þeir fari með umboð
allra kennara, bæði innan HIK og
KÍ, sem þýddi í raun að launa-
málaráð BHM væri sprungið.
„f bréfinu segir aö fjármála-
ráðuneytið sé tilbúið að veita BK
viðurkenningu sem heildar-
samtökum kennara á grundvelli
3. gr. laga frá 1973 og að BK
semji fyrir sína meðlimi. Og þar
er átt við að BK semji fyrir alla
kennara“, sagði Indriði H. Þor-
láksson, jkrifstofustjóri launa-
deildar, en hann undirritaði
bréfið ásamt Þorsteini Pálssyni,
fjármálaráðherra. „í þessum
lögum er jafnframt ákvæði um að
enginn ríkisstarfsmaður geti ver-
ið innan fleiri en einna heildar-
samtaka, sem hafa fengið viður-
kenningu til samninga".
Indriði sagði jafnframt að
gengið væri út frá því að full al-
vara byggi að baki sameiningar-
tali félaganna, auk þess sem ekki
verði komið á launajöfnun nema
einn aðili semji fyrir allan hóp-
inn.
Þorsteinn Pálsson sagði að
þetta væri eini möguleikinn án
lagabreytinga, til að viðurkenna
sérstakan samningsrétt fyrir
kennara. Sagðist hann ekki vilja
loka dyrunum á þann möguleika
að BK semdi sérstaklega fyrir KÍ,
þó þarna væri gengið út frá því að
BK semdi fyrir alla kennara.
Sagðist hann gera sér grein fyrir
sérstöðu HÍK sem nú á í við-
ræðum í launamálaráði um samn-
inga.
Valgeir Gestsson, formaður
KÍ, sagði eftir stjórnarfund KÍ í
gær að það væri sinn skilningur og
skilningur Geirs Haarde, sem af-
henti kennurunum bréfið á fund-
inum, að BK gæti samið sér fyrir
KÍ. Sagði hann að það þyrfti að fá
skýr svör við þessu.
HÍK hélt einnig stjórnarfund í
gær vegna þessa bréfs og sagði
Kristján Thorlacius, formaður,
eftir fundinn, að bréfið væri mjög
loðið og erfitt að átta sig á því. Er
ekki laust við að stjórn HÍK finn-
ist fjármálaráðherra vera að stilla
sér upp við vegg með þessu.
BK mun halda fund í dag vegna
þessa bréfs og verður líklega farið
á fund fjármálaráðherra í fram-
haldi af því.
-Sáf
Sjá bls. 3
Kvennaframboðið
Segi mig
úr
nefndinni
Hanna María
Lárusdóttir: Einræði
í nefndinni
Hanna María Lárusdóttir full-
trúi Kvennaframboðsins í af-
mælisnefnd Reykjavíkurborgar,
sagði sig úr nefndinni í gær.
Ástæðan fyrir því er að sögn
Hönnu Maríu sú, að tillögur
Kvennaframboðsins í nefndinni
hafa verið hafðar að engu og að
Davíð Oddsson formaður nefnd-
arinnar vill vera einráður um til-
högun hátíðarinnar. Telur hún
að þeim miklu fjármunum sem
eytt er í hátíðina hefði verið betur
varið með því að láta þá í eitthvað
sem skildi eftir sig varanleg verð-
mæti.
^Sáf