Þjóðviljinn - 31.01.1986, Blaðsíða 13
VETRARBLAÐ
- SKIÐI
Sportmarkaðurinn
Grensásvegi50.
Sími31290
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. janúar 1986
Föstudagur 31. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
„Margur er knár þó hann sé smár“, segir máltækiö og þaö á svo sannarlega við
um hann Leó Júlíusson, 9 ára, einn yngsta meölim Skautafélags Akureyrar.
Mynd. Sig.
þessari ástæöu. Ég get nefnt sem
dæmi að við ætluðum að fá hing-
að þýskt listhlaupapar á Vetrar-
hátíð fyrir nokkrum árum en af
því gat ekki orðið vegna þess að
aðstæður voru ekki boðlegar hér í
bænum.“
- En hraðhlaupið, hefur það
ekki verið æft að undanförnu?
„Nei, það var síðast fyrir
tveimur árum sem það var. Málið
með það er að það þarf svo stórt
svæði og það þarf svo góðan ís.
Hraðhlaupið hefur verið reynt á
tjörninni en það hefur verið erfitt
að koma tækjurn á hana til að
gera svellið gott. Mig minnir að
það hafi verið í fyrra eða hitti-
fyrra sem við misstum tæki niður
um ísinn og það er dýrt spaug. Og
það er sorglegt að missa þetta
niður því hér í bænum hafa alltaf
verið mjög efnilegir ungir
hlauparar sem síðan hefur ekkert
orðið úr vegna aðstöðuleysis."
Skautakennsla
í skólum
- Er mikill áhugi hjá ungu kyn-
slóðinni fyrir skautaíþróttinni?
„Já, já, áhuginn er fyrir hendi.
Skautasvæðið hérna uppi á
brekkunum og eins inni í bænum
eru mikið notað af krökkum. En
mér finnst að íþróttakennarar
mættu fara með krakkana á
skauta í frjálsu tímunum í
skólum, eins og farið er með þá á
skíði. Annars finnst mér að það
hafi orðið geysileg afturför varð-
andi aðstöðuna við skautasvellin
frá því fyrr á árum. Það var t.d.
hér fyrir allmörgum árum, þegar
Skautafélagið var með þetta svell
hér inni í bænum, þá var það
stærra, við vorum með skúr þar
sem fólk hafði aðstöðu, við vor-
um með tónlist sem ómaði um
svæðið og þá voru hér stundum
nokkur hundruð manns á kvöld-
in. Þetta var mikill þáttur í bæjar-
lífinu, virkilega skemmtilegt.
Þessi stemmning var í hápunkti í
kringum ’50.
Hlíðarfjallið
tók fjöldann
Svo dalaði þetta nokkuð þegar
Hlíðarfjall komst í gagnið og með
árunum hefur síðan svo margt
komið til sem tekur tíma fólks.
Nú sér bærinn um skautasvellin
og mér finnst að hann mætti gera
mun meira af því að láta fólk vita
af þessum svæðum, að þau eru
fyrir hendi. Og aðstaðan er eng-
in, ekki einu sinni bekkir til að
fólk geti sett á sig skautana.
Menn myndu t.d. ekki bjóða
skíðafólki upp á það að hafa ekki
hús til að klæða sig í. Krakka-
greyin koma á skautunum
heiman frá sér og þeir eru algjör-
lega bitlausir.
Mér finnst að æskulýðsráð og
íþróttaráð ættu að hafa forgöngu
um að drífa þessa íþrótt upp.
Skautafélagið hefur alveg nóg
með sig. En við erum auðvitað
tilbúnir að hjálpa til við það starf
þegar við verðum komnir með
okkar aðstöðu."
Og Guðmundur er bjartsýnn
með framtíðina þrátt fyrir að
meðal almennings sé ekki sá
áhugi sem áður var.
„Það þarf í raun og veru svo
lítið til að vekja aftur áhuga. En
það þarf samhent átak og ég er
viss um að það verður á næstu
árum,“ sagði Guðmundur að lok-
um. IH
í pásu. Hún var stutt. Mynd. Sig.
Skautar
ísknattleikur á
4. áratugnum
Litiö viö á æfingu hjá Skautafélagi Akureyrar og rætt við
formann félagsins, Guðmund Pétursson.
Á Akureyri er starfrækt
skautafélag sem auðvitað heitir
Skautafélag Akureyrar. Þetta
félag verður hálfrar aldar gamalt
á næsta nýársdag. „Mér finnst
þaö nokkuð athyglisvert að þetta
félag var stofnað til þess að vinna
að framgangi ísknattleiks á Akur-
eyri,“ sagði Guðmundur Péturs-
son, formaður félagsins, okkur
þegar við spurðum hann um
þetta fornfræga félag.
„Maður hefði kannski haldið
að í fyrstu hefði málið snúist um
listhlaup,“ sagði Guðmundur.
„Þannig að hér í bæ hafa menn
verið farnir að stunda ísknattleik
strax á 4. áratugnum. Auðvitað
voru það mjög frumstæð áhöld
sem notuð voru á þeim tíma. Og
það er nú ansi hart að enn í dag
skulum við vera í algjörum vand-
ræðum með að fá áhöld til þess að
iðka þessa íþrótt sem á sér þó svo
merkilegan sess í sögu bæjarins."
Það er greinilegt að Guðmund-
ur er með allan hugann við ástand
þessara mála í dag. Kannski ekki
að furða.
Seldist upp
„Við höfum gert mikið af því
að láta panta þetta inn fyrir okk-
ur. Kaupfélagið ætlaði að vera
með sölu á þessum áhöldum en
það sem þeir lögðu fram í versl-
unum seldist upp á augabragði.
Nú höfum við verið að brasa í því
að láta mann sem á leið til New
York, kaupa inn fyrir okkur og
við eigum von á þeirri sendingu í
næstu viku. Þetta eru auðvitað
nokkuð óeðlileg starfsskilyrði.“
- Þú segir að starfið hafi gengið
nokkuð í bylgjum.
„Já, það hafa náttúrlega komið
hérna vetur sem hafa verið al-
gjörlega ónýtir, þá vegna veður-
fars. Jafnvel tveir í röð og þá dett-
ur starfið nokkuð niður og verður
erfitt að ná aftur krafti í það.
Svo erum við því miður búnir
að missa niður hraðhlaupið sem
var aðaluppistaðan í félaginu um
tíma. Upp úr ’50 t .d., þá gekk
starfið fyrst og fremst út á hrað-
hlaupið. Þá vorum við með
brautir á flæðunum frammi í
Eyjafjarðarhólmunum. Svo gjör-
breyttist þetta allt þegar flugvöll-
urinn'kom hérna. Þá var áin flutt
austur fyrir flugvöllinn og það
gjörbreytti ísnum í innbænum.
Þar með versnuðu svellin með
fram landinu svo mikið.
Endurreisn
Svo er það svo mikið fyrirtæki
að koma upp svona hlaupahring
og halda honum við, að menn
gefa sér ekki tíma til þess í dag.
Svona hringur þarf auðvitað að
vera á föstu landi, ekki á Pollin-
um. Og við í Skautafélaginu
erum með nýja hugmynd um
endurreisn þessarar íþróttar. Og
það er reyndar meira en hug-
mynd því við erum komnir með
hana á teikningu. Það er tillaga
um malbikaðan hring sem er
lagður ís. Og Garðræktin í bæn-
um sem hefur með svellagerðina
að gera hefur fengið nýtt tæki
sem auðveldar mjög viðhald á
skautasvellum, þannig að þetta
horfir allt til bóta.“
Ekki notað
nógu mikið
- Nú eru ein fjögur skauta-
svæði í bænum. Hvernig eru þau
notuð?
„Alls ekki nógu vel. Það er
ekkert gert af því að auglýsa þessi
svæði, eins og gert var í Reykja-
yík meðan þeirra naut við. Þetta
er sjálfsagt ein ástæðan fyrir því
hvað þau eru lítið notuð. Ég er
viss um að fólk myndi taka við sér
ef það væri minnt á að þessi að-
staða er fyrir hendi. Skautafé-
lagið er með mann í starfi við að
þjálfa unglinga í ísknattleik. Við
ætlum að fara í það á næstu
dögum að bjóða skólunum krafta
þessa manns til að kenna
krökkum á skauta."
- Nú eruð þið komnir með
teikningu að nýju skautasvæði,
hvernig standa þau mál?
„Já, í núverandi bæjarskipu-
lagi er skautasvæðinu ætlaður
staður norðan við bensínstöðina
á Krókeyri. Á svæðinu verður
30 x 60 m völlur og það er gert ráð
fyrir yfirbyggingu á hann og
áhorfendastæði. Auk þessa er
gert ráð fyrir hlaupabraut, 400 m
hring.
Nýtt skautasvæði
Það er sem sagt komið
allnokkurt skrið á þessi mál, loks-
ins, má segja. Það hefur verið
óttalegur seinagangur á þessu í
gegnum árin. Við höfum t.d.
þrisvar fengið úthlutað svæði en
alltaf hefur það gengið aftur. En
nú er áætlunin sú að á næsta
hausti getum við verið farnir að
æfa á þessu svæði. Svæðið verður
auðvitað ekki fullgert, það er gert
ráð fyrir vélfrystingu sem er hálf-
gert skilyrði þess að hægt sé að
stunda þessa íþrótt af einhverju
viti. Við höfum t.d. aldrei getað
boðið hingað erlendum gestum af
Guðmundur Pétursson, formaður Skautafélags
Akureyrar. Mynd Sig.
HVAÐ ER POLAR-RAY?
Polar-Ray ersólgler
sem stangveiöi-, siglinga- og skíðafólk og allir sem gaman
hafa af útiveru, hafa beöið eftir.
Polarized glerfáanlegt i mörgum litum, t.d. gráu, gulu,
grænu, brúnu og bláu. Einnig sams konar gler, meö eöa án
styrkleika, sem dökkna í sól.
Gleraugnamióstöóin
Laugavegi 5 Símar 20800 22702
Gleraugnadeildin
Austurstræti 20
Simi 14566.
Bón- og þvottastöðin hf.
Sigtúni 3
AUGLYSIR: ^
Bifreiðaeigendur, vitið þið að það tekur aðeins 15 mínútur að
fá bílinn þveginn og bónaðan, ótrúlegt en satt.
Ath. eftirfarandi:
Móttakan er í austurenda hússins, þar er
bíllinn settur á færiband og leggur síðan af
stað í ferð sína gegnum húsið. Eigendur
fylgjast með honum.
Fyrst fer bíllinn í hinn ómissandi há-
þrýstiþvott, þar sem öll lausleg óhrein-
indi, sandur og því um líkt, eru skoluð
af honum, um leið fer hann í undir-
vagnsþvott. Viðskiptavinir eru mjög
ánægðir með þá þjónustu, því óhrein-
indi safnast mikið fyrir undir brettum
og síisum.
Síðan er hann þveginn með mjúkum burst-
um (vélþvottur), þar á eftir kemur hand-
þvotturinn (svampar og sápa). Hægt er að
sleppa burstum og fá bílinn eingöngu
handþveginn.
Næst fer billinn í bónvélina og er þar
sprautað yfir hann bóni og síðan herði.
Að þessu loknu er þurrkun og snyrt-
ing.
8 bílar eða fleiri geta verið í húsinu I einu,
t.d. einn í móttöku, annar í háþrýstiþvotti,
þriðji í handþvotti o.s.frv.
Bíll, sem þveginn er oft og reglulega,
endist lengur, endursöluverð er hærra
og ökumaður ekur ánægðari og
öruggari á hreinum bíl.
Tíma þarf ekki að panta.
Þeir sem koma með bílinn sinn í fyrsta
skipti til okkar undrast hvað margt
skeður á stuttum tíma (15 mínútum).
Bón- og þvottastöðin hf.
Sigtúni 3,
Sími 14820.