Þjóðviljinn - 20.02.1986, Side 5
DJOÐVIIJI
Frummælandi M.Í., Jakob Falur Garðarsson, ráðfærir sig við liðsstjórann Rúnar Jónatansson.
Helgi Hjörvar, ræðumaður M.H.: „Ég á mór fagran draum djúpt í sálu minni um betri tíð og betri
vímugjafa!"
Undanúrslit í mælsku- og
ræðukeppni framhaldsskólanna
fóru fram síðastliðinn föstudag á
tveimur stöðum: í Keflavík, þar
sem Menntaskólinn í Reykjavík
sigraði Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, og í húsnæði Mennta-
skólans við Hamrahlíð í Reykja-
vík, þar sem MH-ingar fóru með
sigurorð af menntskælingum frá
ísafirði eftir mjög spennandi
keppni. Það verða sem sagt MR
og MH sem keppa um stóra vinn-
inginn í Háskólabíói fljótlega.
Blaðamaður leit við í Hamra-
hlíðinni og fylgdist með því
hvernig svona keppni fer fram.
Mikil stemming var í loftinu og
áður en ræðumenn birtust höfðu
stuðningsmenn MH hitað upp og
spennt raddböndin tii hins ýtrasta
og greinilegt var að klappliðið var
vel æft. „Kannabis og kynhvöt!“,
„Hass fyrir hetjur“ og fleiri álíka
slagorð heyrðust hrópuð af mikl-
um krafti hægra megin í áhorf-
endasalnum en vinstra megin
sátu Vestfirðingar og virtust ekki
vita hvaðan á sig stóð veðrið. Þeir
veifuðu þó heimatilbúnum
veifum sem á voru letraðar stuðn-
ingsyfirlýsingar við Emmí
Björns, og á einni slíkri gat á að
líta haglega teiknaða mynd af
skólameistara þeirra, Birni
Teitssyni.
„Rotnandi
siðapostular“
Umræðuefni kvöldsins var til-
laga sem MH bar fram þess efnis
að neysla og ræktun kannabis-
efna yrði leyfð á íslandi. Frum-
mælandi MH var Katrín Sigurð-
ardóttir og hún hóf ræðu sína á
því að lýsa því hve honum bróður
sínum þættu rjómatertur og ham-
pur góðar neysluvörur. Hún vildi
þó að hann kynni sér magamál en
var algerlega á móti því að banna
honum að prófa sig áfram í
neyslunni. Slíkt bann væri ekki á
rökum reist og „rotnandi siðapo-
stulum sem héldu á hanastéls-
glasinu í annarri hendi en síga-
Spennandi
mœlskukeppni
í Hamrahlíðinni
rettu í hinni“ færi ekki vel að
banna fólki að fara með „jurtir“.
Eftir að Katrínu hafði verið
klappað lof í lófa tók Jakob
Garðarsson frá ísafirði við og
andmælti tillögunni harðlega.
Hann rakti ýmsar staðreyndir um
afleiðingar hassneyslu og tók
mun alvarlegar á málinu en fyrri
ræðumaður.
Þrír ræðumenn voru í hvoru
liði og töluðu á víxl. Húmor og
skemmtilegar samlíkingar ein-
kenndu mál Hamrahlíðinga en
ísfirðingarnir voru alvarlegir og
harðorðir um „sölumenn
dauðans" og þá sem vildu „steypa
þjóðinni í glötun“. Báðir aðilar
vitnuðu stíft í erlendar stofnanir
um heilbrigðismál og aðrar heim-
ildir, svo sem fíkniefnadeild lög-
reglunnar. Eftir að allir ræðu-
menn höfðu tekið til máls einu
sinni var gert hlé og þá tóku
klappliðin við. Vestifirðingarnir
höfðu þá eitthvað tekið við sér og
tóku að slá trommur á milli þess
sem hóparnir skiptust á að öskra
sig hása um ágæti eigin liðs.
Limrur og rímur
Þegar seinni hluta keppninnar
var lokið var orðið gefið laust út í
sal á meðan dómarar þinguðu og
báru sig saman. Fjöldinn allur af
skemmtilegum krökkum fór í
pontu og greinilegt var að ljóð-
listin átti marga aðdáendur í
Hamrahlíðinni. Limrur, „fimm-
skeytlur“ og rímur voru kveðnar
af miklum krafti á meðan beðið
var. Fyrripartar og botnar voru
samdir á staðnum, og jafnvel ým-
islegt miður sæmilegt látið fjúka.
Eftir langa bið, sem varð vegna
þess að beðið var eftir úrslitum í
Keflavík, birtust dómarar á svið-
inu. Andrúmsloftið var hlaðið
spennu og loks voru úrslit gerð
kunn: Hamrahlíð vann með 105
stiga mun og ræðumaður kvölds-
ins var kjörinn Helgi Hjörvar úr
MH. Gífurleg fagnaðarlæti brut-
ust út meðal MH-inga og ræðu-
liðið var hyllt með miklum há-
vaða.
„Það er engin skömm að tapa
fyrir svona góðu liði“, sagði Jak-
ob Garðarsson frá MÍ, en því
miður komst blaðamaður ekki að
sigurvegurunum, þar sem þeir
voru í ákföum faðmlögum við
stuðningsmenn sína. Og
Vestfirðingar mega reyndar vel
við una, það er góður árangur að
ná í fjögurra liða úrslit í þessari
keppni, en þetta var í annað
skiptið sem þeir tóku þátt í henni.
Og að lokum: Til hamingju MH-
ingar, þið áttuð sigurinn skilinn.
-vd.
„Hass fyrir hetjur!" hrópuðu Hamrahlíðingar en ísfirðingar veifuðu spjöldum: „MH.
Étið ykkar eigið kál!“ Mynd Sig.
Rjómatertur og hampur
Flmmtudagur 20. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5