Þjóðviljinn - 20.02.1986, Side 7
DJÚÐVIUINN
Umsjón:
Sígurdór Sigurdórsson
Árið 1984 komu 6060 vinnuslysatilfelli til meðferðar á Slysadeild Borgarspítalans, en aðeins 347 voru tilkynnt Vinnueftirlitinu. (Ljósm.: Sig.)
Vinnuslysum leynt
Á árinu 1984 voru 347 vinnuslys tilkynnt til Vinnueftirlits ríkisins en 6060 vinnuslys
komu til meðferðar á slysadeild Borgarspítalans
Á árinu 1984 voru skráð 6060
vinnuslys, sem komu til meðferð-
ar á slysadeild Borgarsjúkrahúss-
ins í Reykjavík. Það eru vinnuslys
sem áttu sér stað á Reykjavíkur-
svæðinu. En tilkynnt vinnuslys af
öllu landinu til Vinnueftirlits
ríkisins sama ár voru aðeins 347
eða 5,7%. Hvers vegna eru vinn-
uslys ekki tilkynnt? Er vísvitandi
verið að reyna að fela þau?
„Það er alveg ljóst af þessum
tölum að tilkynningarskylda
vinnuslysa er vanrækt. En ég vil
þó taka fram, að öll alvarlegri
vinnuslys eru tilkynnt til okkar.
Þetta er óviðunandi og því höfum
við gert ráðstafanir til stórátaks í
málinu. Við ætlum að ná upp
samstarfi, bæði atvinnurekenda
og vinnandi fólks í málinu. Við
þóttumst vita að ástandið væri
svona og því lögðum við í þann
kostnað að rannsaka skýrslur
slysadeildar síðan 1981 að Vinnu-
eftirlitið tók til starfa og útkoman
fyrstu 3 árin varð einsog þessar
töflur bera með sér,“ sagði Eyj-
ólfur Sæmundsson forstöðumað-
ur Vinnueftirlits ríkisins í samtali
við Þjóðviljann, en lítum þá á
töflurnar.
Tafla 8.1'ilkynnt vinnuslys eftir atvinnugreinum.
Atvinnugrein 1981 1982 1983
1 I-iskiðnaður 20 30 37
11 Matvæla og fóðurvöruiðn 14 20 28
III Vefnaður og fataiönaður 19 15 17
IV Prentiönaður 1 2 0
V Trésmíðaiðnaöur 29 21 22
VI Skinnaiðnaður 1 0 3
VII Stein-. leit oggleriðn *) 9 3
VIII Málmiönaður 41 37 64
IX Efnaiönaður 1 1 7
X Bvggingariðn og verkl.fr. 36 33 47
XI l-'lutninga- og birgðastörf 47 58 57
XII Rafmagnsiönaöur 5 7 14
XIII Þjónustu^reinar 9 9 31
XIV Landbúnaður 4 5 4
XV Aörar atvinnugreinar 5 4 6
Samtals . 235 254 340
Tafla 10. Fjöldi slasaðra sem komu til meðferðar á slvsadeild Borgar-
spitalans vegna slysa sem flokkuð voru sem vinnuslys, annarra en
slvsa á sjó.
1981 1982 1983
Allar atvinnugreinar . 5654 6145 5763
Nýjar reglur
Eyjólfur sagði að stefnt væri að
því að öll vinnuslys, þar sem við-
komandi er frá vinnu slysdaginn
og einn dag til viðbótar, verði tií-
kynnt til Vinnueftirlitsins. Hann
sagði það vitað að menn færu af
öryggisástæðum á slysadeild útaf
smávægilegum óhöppum, sem
væri alveg rétt að gera, en ekki
ástæða til að tilkynna. Hann
sagðist telja að ef nýju reglurnar
sem verið er að setja í þessu efni
hefðu gilt fyrir árið 1984 þegar
6060 vinnuslys komu til meðferð-
ar á slysadeild, hefðu á milli 3 og 4
þúsund þeirra verið tilkynnt til
Vinnueftirlitsins.
Vinnueftirlitið hefur nú verið
tölvuvætt og sagði Eyjólfur það
markmiðið að ná að tölvuskrá öll
vinnuslys, þar sem viðkomandi er
frá slysdaginn og annan dag til.
En erfitt að fá fyrirtæki og
starfsfólk til að sinna öryggis- og
hollustuháttum á vinnustað?
Eyjólfur Sæmundsson sagði að
fyrst eftir að Vinnueftirlitið tók
til starfa á árunum 1980 til 1981
hefði orðið vakning í þessum
málum. Á eftir hefði svo fylgt
lægð. Nú væru menn aftur að
vakna til meðvitundar um nauð-
syn þess að efla þessa þætti. Hann
sagði að á mörgum stórum vinnu-
stöðum væru þessi mál í góðu
lagi. Þar væru starfandi öryggis-
nefndir sem hittast reglulega og
fara yfir hlutina. Öryggisnefnd-
irnar væru skipaðar fulltrúum frá
fyrirtækinu og starfsmönnum.
Eins væru bæði öryggistrúnaðar-
menn og öryggisverðir á þessum
vinnustöðum. En mjög víða væri
pottur brotinn í þessum málum.
Trassaskapur
í skýrslu sem kom út í haust er
leið og heitir „Vinnueftirlit ríkis-
ins. Skýrsla um starfsemina 1981-
1983“ kemur m.a. fram að í árs-
lok 1983 hafi fjöldi öryggistrún-
aðarmanna, öryggisvarða og
öryggisnefnda, hjá fyrirtækjum
með 10 starfsmenn eða fleiri ver-
ið sem hér segir:
Öryggistrúnaðarmenn 350.
Öryggisverðir 255.
Öryggisnefndir 100.
Samkvæmt vinnuverndarlög-
unum ber atvinnurekanda að til-
nefna öryggisvörð og starfs-
mönnum að tilnefna öryggistrún-
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 71