Þjóðviljinn - 16.04.1986, Side 1
16 djmuinn
85. tölublað 51. órgangur 1 ; - .- - - 1 L -■ ' - ' ■ . — . .
ÞJÓÐMÁL
MENNING
HÚSAVÍK
Vekja
Loftárásirnar
reiði
Loftárásir Bandaríkjahers á Líbýu vekja mikla andúð víða um heim. Einungis ríkisstjórnir Bretlands
og ísraels lýsayfir stuðningi. Sovétríkin aflýsa utanríkisráðherrafundi. Árásin fordœmd á alþingi.
Margir óttast að komi til gagnárása Líbýu íEvrópu. Blaðafulltrúi bandaríska hersins: Engin
viðbúnaður íKeflavík. Mótmælaaðgerðir almennings víða um Evrópu. Mótmœlt við bandaríska
sendiráðið í gær, á Áusturvelli í dag
r
Arásir Bandaríkjahers á Líbýu
-,r ■
hafa vakið ótta og reiði víðs
vegar um heiminn og nær allar
ríkisstjórnir heimsins hafa for-
dæmt árásina. Einungis ríkis-
stjórnir tveggja ríkja, Bretlands
og ísraels hafa lýst yfir stuðningi
við árásirnar. Ríkisstjórn íslands
harmaði árásina í yfirlýsingu í
gær og var harkalega gagnrýnd á
alþingi fyrir linkuleg viðbrögð.
Viðbrögðin í Evrópu hafa ver-
ið mjög harkaleg í garð Banda-
ríkjastjórnar. Á breska þinginu
var Margaret Thatcher fyrir
hörðum ámælum. Pingmenn
hrópuðu á hana og kölluðu hana
geðveika, margir þingmenn
gengu út úr þingsalnum í mót-
mælaskyni við þá ákvörðun
hennar að leyfa Bandaríkjunum
að fara í árásarferðirnar frá Ox-
ford. Meðal þeirra sem
gagnrýndu hana voru einnig
þingmenn íhaldsflokksins. Hún
var sökuð um að efla til andúðar
annarra Evrópulanda gegn Bret-
landi. Þingmenn kváðu árásirnar
einnig verða til að snúa almenn-
ingsálitinu gegn Nató og Banda-
ríkjunum.
„Það er búið að gera bæinn
okkar að fremstu víglínu í stríði
Bandaríkjanna og Líbýu,“ sagði
óbreyttur borgari í Oxford.
í árásunum varð gífurlegt tjón,
m.a. var skotið á þéttbýlt íbúða-
hverfi þarsem sendiráðsbygging-
ar urðu einnig fyrir tjóni. Ovíst er
um fjölda fallinna en fréttamenn
vissu um nær'100 manns, þar á
meðal börn og gamalmenni.
Bandarísk yfirvöld segja hins
vegar að árásin hafi verið „vel
heppnuð“.
Á íslandi urðu viðbrögð á svip-
aða lund. „Allir vita að hernaður
Húsavík
Valgerður
í öðru sæti
Valgerður Gunnarsdóttir sem
skipar 2. sætið á lista Alþýðu-
bandalagsins og óháðra á Húsa-
vík segir frá því í viðtali í Þjóðvilj-
anum í dag, að á Húsavík hafi
verið starfandi hópur kvenna sl.
þrjú ár sem hafi fylgt kvennalista
að málum. Þær töldu ekki grund-
völl til sérframboðs í bænum og
tvær þeirra Valgerður og Regína
Sigurðardóttir gáfu kost á sér til
prófkjörs hjá G-listanum.
Niðurstaða prófkjörsins kom
þeim þægilega á óvart, því Reg-
ína varð í 5. sæti. Valgerður
kveður ástæðuna fyrir þátttöku
þeirra í prófkjöri hafa m.a. verið
þá að framboð Alþýðubanda-
lagsins og óháðra í bænum hafi
verið opnara en annars staðar og
mörg stefnumál G-listans hafi
samrýmst skoðunum þeirra.
Sjú viðtöl og frásagnir frá
Húsavík bls. 9.
og ofbeldi bitnar í æ ríkari mæli
að saklausum borgurum og er
ekki leiðin til að leysa neinn
vanda,“ segir í ályktun frá Friðar-
hreyfingu íslensicra kvenna. Kl.
18.00 í gær var mótmælastaða við
sendiráðið bandaríska, - og í dag
hafa ýmis friðar- og stjórnmála-
samtök boðað til mótmælaað-
gerða á Austurvelli kl. 18. Þar
tala Steingrímur J. Sigfússon og
Steinunn Harðardóttir.
Á alþingi gagnrýndu þingmenn
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar,
þ. á m. þingflokksformaður
Framsóknarflokksins. Hjörleifur
Guttormsson benti á að þessir
viðburðir minntu óhugnanlega á
mögulegan upphafskafla þriðju
heimsstyrjaldarinnar og kvað
áhyggjuefni hvernig komið væri
fyrir forystusveit Nató. „Við
erum líka ábyrg, sem aðilar að
þessu hernaðarbandalagi,“ sagði
Fljörleifur. „Árásin er sannar-
lega fordæmanleg og þetta eru
sorgleg tíðindi sem ég fordæmi,"
sagði Kjartan Jóhannsson.
„Þetta er fólskuleg árás, það er
siðferðislegur háski að ganga til
samstarfs við þjóð sem grípur til
slíkra örþrifaráða, við verðum að
treysta varlega á leiðsögn Banda-
ríkjamanna," sagði Páll Péturs-
son. „Við eigum ekki bara að
harma, heldur gagnrýna og for-
dæma,“ sagði Guðrún Agnars-
dóttir. „Gaddafi hefur veitt al-
þjóðlegum hryðjuverkamönnum
hæli og stuðning," sagði Matthías
Á. Mathiesen utanríkisráðherra.
Bandarískir sendiráðsmenn voru
í þinghúsinu meðan umræðan fór
fram á alþingi í gærdag.
Sovétmenn aflýstu fyrirhuguð-
um fundi Schewarnadse utan-
ríkisráðherra með Schultz utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
vegna árásanna.
I gær bárust óljósar fregnir af
að 15 mánaða gömul dóttir
Gaddafis hcfði farist í árásunum
og tveir synir hans hefðu særst.
Um kl. 19.00 í gærkveldi bárust
fregnir af nýrri árás á Trípóli.
Gaddafi hefur hótað gagnað-
gerðum m.a. gegn herstöðvum
Nató í Evrópu. „Hér er enginn
sérstakur viðbúnaður," sagði
Friðþór Eydal blaðafulltrúi
bandaríska hersins í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Reuter IH,/-lg./óg.
Sjá Pjóðmál bls. 5,
leiðara bls. 4, erlendar
fréttirbls. 13.
„Við minnum á að ísland er hlekkur í hernaðarkeðju Bandaríkjamanna og því
hugsanlega eitt af þeim skotmörkum sem Líbýustjórn hefur hótað að beina
hefnd sinni gegn", segir í ályktun sem samþykkt var á mótmælafundi við
bandaríska sendiráðið í gær. Töluverður fjöldi var við mótmælastöðuna, - en í
dag hefur einnig verið boðað til aðgerða sem hefjast við Austurvöll kl. 18.00.
Mynd við mótmælastöðuna í gær við bandaríska sendiráðið. Sig.Mar.
Hella
Eiturgufa í sláturhúsi
15 starfsmenn kjúklingasláturhússins á Hellu fluttir á Borgarspítalann eftir að eiturgufa steig
um allt húsið. Enginn talinn alvarlega veikur, þó voru 6 hafðir á sjúkrahúsinu ínótt.
Nœrri 2 þúsund kjúklingar drápust afgufunni
Það óhapp vildi til í gær í kjúkl-
ingasláturhúsinu á Hellu þeg-
ar verið var að blanda klór saman
við vatn að upp steig eiturgufa,
sem lagði um húsið og 15 starfs-
menn veiktust. Fengu þeir ógleði,
uppköst og svima. Voru þeir allir
fluttir til Rcykjavíkur, þar sem
gerðar voru ráðstafanir til að
koma þeim öllum á gjörgæslu-
deildir sjúkrahúsanna, því cfni
þetta er banvænt. Sem betur fór
reyndist fólkið ekki alvarlega
veikt, að sögn Guðmundar Odds-
sonar læknis á Borgarspítalan-
um.
Guðmundur sagði að 2 hefðu
verið lagðir inná gjörgæsludeild
og 4 á gæsludeild til öryggis því
svona eitrun getur haft eftirköst.
Aðrir máttu fara af sjúkrahúsinu
en voru beðnir að vera áfram í
borginni ef einhver eftirköst
kæmu fram. Guðmundur taldi þó
að fólkið væri úr allri hættu.
í gær höfðu 2 þúsund kjúk-
lingar verið fluttir til slátrunar í
sláturhúsið og drápust þeir nær
allir.
Klórefnið sem olli eiturgufunni
er notað til að sótthreinsa kjúkl-
inga eftir slátrun. Ef það er sett í
litlum mæli út í vatn er það skað-
laust, eins og sundlaugagestir
vita, en sé það sett í of miklum
mæli stígur upp eiturgufa frá efn-
inu.
í gær var Vinnueftirlit ríkisins
að rannsaka hvernig þetta óhapp
vildi til.
Mjög sterk lykt er af eiturgufu
þessari og mun það einmitt hafa
bjargað fólkinu frá því að
veikjast alvarlega, því það gat
forðað sér í tíma.
-S.dór