Þjóðviljinn - 16.04.1986, Page 2
FRETTIR
Arnarflug
TORGIÐ
Verður Magnús Gunn
stjómarformaður?
Mikillþrýstingur á Magnús að taka stöðuna. Axel Gíslason og mögulega
Hörður Einarsson aðrir ínýrri þriggja manna stjórn.
Ameðal hinna nýju tilvonandi
hluthafa í Arnarflugi er mikill
þrýstingur á Magnús Gunnars-
son, forstjóra SIF og fyrrum
framkvæmdastjóra VSI, að taka
að sér stöðu stjórnarformanns
Arnarflugs, verði af inngöngu ný-
liðanna. Rætt er um að fækka
stjórninni úr fimm niður í þrjá,
og telja heimildir Þjóðviljans
mjög líklegt að Axel Gíslason
verði áfram í stjórninni. Meiri
óvissa ríkir um þriðja manninn,
en í gær virtist sem ýmsir litu til
Harðar Einarssonar, fram-
kvæmda- og útgáfustjóra Frjáls-
ar fjölmiðlunar (DV).
Astæöan fyrir því aö hluthaf-
arnir vilja Magnús er fyrst og
fremst aö hann var áöur forstjóri
Arnarflugs fyrstu fimm árin í lífi
þess og átti meðal annars í við-
skiptum við sömu viöskiptaaðila í
Arabalöndunum og Arnarflug
hefur nú gert samninga við. Taliö
er að þaö þurfi harðan mann nieð
þekkingu til að stjórna víðskipt-
unum við þá og því vilja menn
Magnús. En samkvæmt mjög
traustum heimildum Pjóðviljans
er Magnús tregur til starfans. þar
sem hann telur sig hafa meir en
nóg að gera fyrir SÍF.
Grindavík
Piltur týndur
Aköf leit stendur nú yfir í
Grindavík að 18 ára gömlum
pilti, Hermanni Guðmundssyni,
en síðast sást til fcrða hans við
unglingaskemmtistaðinn Gjána
kl. 01.15 aðfararnótt sl. sunnu-
dags. Leit hefur ekki árangur
borið, en hún hófst strax á sunnu-
dag.
Að sögn lögreglunnar í
Grindavík hafa liðsmenn björg-
unarsveitarinnar Þorbjörns þar
syðra og köfunardeild lögregl-
unnar úr Reykjavík fengist við
leitina. Höfnin hefur verið slædd
og svæðið umhverfis Grindavík
gengið.
Hermann Guðmundsson er frá
Sjónarhóli við Grindavík. Hann
er klæddur gráum buxum, gráum
rúskinnsjakka, í drapplitri
skyrtu, bláu vesti og á svörtum
skóm. Allir þeir sem geta veitt
upplýsingar um ferðir Hermanns
eftir kl. 01.15 á sunnudagsnótt
eru beðnir um að hafa samband
við lögregluna í Grindavík, s. 92-
8444. -v.
I kvöld
Islenskur
forseti og
norskt skáld
í kvöld kl. 20.30 heldur dr. Per
Amdam fyrirlestur í Norræna
húsinu um samband Björnstjerne
Björnsons og Jóns Sigurðssonar
forseta. vIslands Politikk - norsk
poesi“. A sunnudaginn, 20. apríl
verður dagskrá í Norræna húsinu
um Björnson, þarsem Per
Amdam segir frá ljóðmælum
skáldsins og sýnir litskyggnur frá
heimabyggð Björnstjerne Björn-
sons og Hjörtur Pálsson les úr
ljóðaþýðingum sínum.
Sá möguleiki er einnig ræddur,
að stjórnin verði stækkuð úr
fimm og þá jafnvel í tíu manns, en
þriggja manna framkvæmda-
stjórn verði mynduð og þá með
þeim nöfnum sem ofan eru talin.
Ýmsir hafa viljað fá Helga Jó-
hannsson hjá Samvinnuferðum-
Landsýn inn í þriggja manna
stjórnina.
Óráðið er með framkvæmda-
stjóra Arnarflugs. Uppsögn Agn-
ars Friðrikssonar er enn formlega
í gildi, hins vegar munu ýmsir á
meðal nýju hluthafanna þess fýs-
andi að hann verði áfram fram-
kvæmdastjóri.
Nýju hluthafarnir eru Hörður
Einarsson og Sveinn R. hjá
Frjálsri fjölmiðlun, Guðlaugur í
Karnabæ, Pctur Björnsson í Kók,
Samvinnuferðir-Landsýn, ferða-
skrifstofan Atlantik, Hótcl Holt
og Saga, ásamt Magnúsi Gunn-
arssyni. Að auki munu Hagvirki
og Sjóvá vera að íhuga inngöngu í
fyrirtækið. ös
Hörður þarna líka! Já, víða
slettir flórkýrin hala sínum.
Hildur Kjartansdóttir: Það væri skynsamlegra að borgin keypti þetta húsnæði undir þjónustu viðaldraðaeðaunglinga.Slíkaþjónustu vantaríþettahverfi.
Verslunarskólahúsnœðið
Háskólinn gerir tilboð
Háskóli íslands hefurgert tilboð í byggingu Verslunarskólans við
Þingholtsstrœti. Hildur Kjartansdóttir: Hverfið þolir ekki aukinn umferðarþunga
^jj áskóli íslands hefur gert til-
boð í nýbyggingu Verslunar-
skólans við Þingholtsstræti, en ef
af kaupunum vcrður mun skólinn
nota húsnæðið fyrir kennslu.
Hildur Kjartansdóttir formað-
ur íbúasamtaka Þingholtanna
sagði að staðsetning háskóla-
deildar í húsnæðinu myndi hafa
mjög slæmar afleiðingar fyrir
hverfið. „Umferðin í hverfinu
kemur til með að aukast veruiega
en umferðarþunginn er nú þegar
vandamál. Það hefði verið öllu
skynsamlegra að borgin keypti
húsið og kæmi þar upp aðstöðu
fyrir aldraða eða unglinga en slík
aðstaða er ekki fyrir hendi í þessu
hverfi en mikil þörf er á henni,
sagði Hildur. Þá sagði Hildur að
verið væri að skipuleggja fund
með íbúum hverfisins þar sem
þessi mál verði rædd.
—K.ÓI.
SVESI
Uppfinningar vemdaðar
Samtökstofnuð. Fundur í kvöld
Það hefur viljað brenna við, að
uppflnningamenn, hönnuðir
og framleiðendur njóti ekki
fyllstu verndar á hugsmíðum sín-
um og verkum, bæði hér á landi
og erlendis. Til að bæta úr þessu
er nú búið að stofna félag hér-
lendis, um vernd eignarréttinda á
sviði iðnaðar. Samtökin nefnast
SVESI.
Stofnendur eru Félag íslenskra
iðnrekenda, íslenska einkaleyfa-
og vörumerkjastofan ásamt Fakt-
or Company. Þau hyggjast beita
sér fyrir lagasetningu á íslandi ti!
verndar uppfinningum og
eignarréttindum á sviði iðnaðar.
Þar má nefna einkaleyfislöggjöf,
vörumerkjalöggjöf, og löggjöf
um verndun útlits og hönnunar.
Samtökin ætla að efna til
fræðslufunda um einstaka þætti á
þessu sviði og sá fyrsti verður í
Eiríksbúð á Hótel Loftleiðum í
kvöld miðvikudag, kl. 17. Þor-
geir Örlygsson, dósent við laga-
deildina mun þar kynna drög að
nýju frumvarpi um mynsturlög-
gjöf-
Formaður samtakanna er Árni
Vilhjálmsson, héraðsdómslög-
maður.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 16. apríl 1986
Háskólatónleikar
Selló og píanó
Á háskólatónleikum í Norræna
húsinu í hádeginu í dag leika
Carmel Russel á selló og Stephen
J. Yates á píanó verk eftir Beetho-
ven og Stephen Yates.
Þetta eru áttundu og síðustu
háskólatónleikarnir á vormisseri.
Þeir hefjast 12.30 og standa í um
hálftíma.
ÆFAB
Dregið í
happdrætti
Dregið hefur verið í Kína-
happdrætti Æskulýðsfylkingar
Alþýðubandalagsins. Aðalvinn-
ingurinn, Kínaferð, kom á miða
nr. 4391. Aðrir vinningar, bókin
Kína eftir Ragnar Baldursson,
kom á miða nr. 4689, 4286,1425,
802,753,2314,3359,1853,150 og
36.