Þjóðviljinn - 16.04.1986, Qupperneq 3
FRÉTTIR
Húsnœðisfrumvarpið
Veltur á lífeyrissjóðunum
Veruleg hœkkun húsnœðislána eflífeyrissjóður viðkomandi kaupir skuldabréf áf Húsnœðisstofnun
fyrir55% af ráðstöfunarfé sínu. Kaupi lífeyrissjóður ekkiskuldabréffyrir 20% af ráðstöfunarfé sínu
fœr sjóðsfélagi ekki húsnœðismálalán. Ríkisstjórnin neitar að lögbinda 3,5% vexti aflánunum
Igær kynntu forráðamenn ASI
og VSI hið nýja húsnæðisfrum-
varp, sem var eitt af lykilmálum
síðustu kjarasamninga og ríkis-
stjórnin mun nú leggja fram á Al-
þingi. Helstu atriði þessa frum-
varps eru þau að húsnæðislán
munu hækka verulega tii þess
fólks sem er í lífeyrissjóðum, sem
kaupa skuldabréf af Húsnæðis-
stofnun fyrir 55% af ráðstöfun-
arfé sínu. Lánsupphæð fólks
skerðist síðan eftir því sem skuld-
abréfakaup lífeyrissjóðanna
lækkar frá þessari tölu. Félagar í
þeim lífeyrissjóðum sem kaupa
skuldabréf fyrir minna en 20% fá
ekki húsnæðismálalán.
Sem dæmi um lánshækkun er
að þeir sem eru að byggja í fyrsta
sinn og fá full lánsréttindi, fá lán
sem nemur 2,1 miljón króna en
þeir sem kaupa notaða íbúð fá
1470 þúsund króna lán. Þeir sem
eiga fbúð fyrir en byggja nýja fá
allt að 1470 þúsund krónur en
kaupi þeir notaða íbúð fá þeir
1029 þúsund krónur. Þeir sem
eru að byggja eða kaupa í fyrsta
sinn hafa forgang að lánum. Lán-
in eru verðtryggð með 3,5%
vöxtum til 40 ára.
Þess má geta að ríkisstjórnin
hafnaði í gær að lögbinda þessa
vexti, en lofar að þeir hækki ekki
á þessu kjörtímabili.
Lánsréttur hjóna eða sambýlis-
fólks ræðst af meðaltali skulda-
bréfakaupa lífeyrissjóða þeirra.
Ef annar aðilinn vinnur heimilis-
störf ræðst lánaréttur þeirra af
rétti þess sem úti vinnur.
Þá er gert ráð fyrir því í frum-
varpinu að áður en gengið verður
frá lánssamningi skal ganga frá
greiðslu og kostnaðaráætlun og
umsækjanda kynnt greiðslubyrð-
in. Heimilt er að synja um lán ef
umsækjandi ræður augljóslega
ekki við framkvæmdina. -S.dór
Dekkin
misdýr
Verðkönnun
Alltað 64% munurá
nýjum hjólbörðum en
sólaðir barðar á sama
verði
Verðmunur á nýjuni sumar-
hjólbörðum er allmikill, cða
allt að 64% ef miðað er við ólík
vörumerki. Barðar af stærðinni
165x13“ af gcrðinni Dunlop kosta
2.080 kr. en af gerðinni Bridge-
stone hcldur meira eða 3.410 kr.
Þetta kemur fram í verðkönnun
sem Verðlagsstofnun gerði á nýj-
um og sóluðum hjólbörðum 3.
apríl sí. og var verðið kannað hjá
flestum sölustöðum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Könnunin leiddi í ljós að verð-
munur á sama vörumerki hjá hin-
um ýmsu seljendum var lítill sem
enginn. Þá kom og í ljós að 8-
10% verðmunur er á sóluðum
hjólbörðum, eða aðeins 1-200 kr.
í frétt Verðlagsstofnunar segir
að athygli veki hinn litli verð-
munur á sömu vörumerkjum og
gefi það ákveðna vísbendingu um
að seljendur hafi samráð sín í
milli um verðlagninguna. Minnt
er á að slíkt samráð sé ólöglegt
samkvæmt lögum um verðlag,
samkeppnishætti og óréttmæta
viðskiptahætti. Mun stofnunin
kanna það mál betur.
-v.
Kaffibaunamálið
Þingfest og
frestað til
haustsins
Fimmforráðamenn
Sambandsins ákærðir í
málinu
Fimm af forráðamönnum Sam-
bandsins ísl. samvinnufélaga hafa
verið ákærðir í kafTibaunamál-
inu. Málið var þingfest fyrir síð-
ustu helgi en síðan hefur því verið
frestað fram í septcmbcr.
Þeir sem ákærðir eru í málinu
eru Erlendur Einarsson forstjóri
SÍS, Hjalti Pálsson framkvæmda-
stjóri innflutningsdeildar, Sig-
urður Árni Sigurðsson forstöðu-
maður skrifstofu SÍS í London,
Gísli Theódórsson fyrrverandi
forstöðumaður skrifstofunnar í
London, og Arnór Valgeirsson
deildarstjóri fóðurvörudeildar.
-S.dór
Hafrannsóknastofnunin
Þorskstofninn stækkar
Bœði veiðistofn og hrygningarstofn þorsksins hefur stœkkað. Von erá
sterkum þorskárgangifrá 1983. Gert er ráðfyrir að stofninn vaxi
hraðar 1987 og 1988 en áður var reiknað með
I' skýrslu frá Hafrannsókna-
stofnuninni uni endurskoðun á
ástandi þorskstofnsins, sem fram
fór fyrir nokkru kemur í Ijós, að
bæði veiðistofn og hrygningar-
stofn hafa stækkað frá því sem
áður var áætlað. Þannig er talið
að veiðistofninn sé nú 890 þúsund
lestir en var áætlaður í septcmber
sl. 850 þúsund lestir. Ástæðan cr
talin örari vöxtur vegna hagstæð-
ari skilyrða í hafinu. Sömuleiðis
er hrygningarstofninn nú talinn
70 þúsund lestum meiri en var í
haust.
Samkvæmt þessu er talið að
þorskstofninn vaxi hraðar en gert
var ráð fyrir árin 1987 og 1988.
Þetta er þó sagt háð því að ár-
gangarnirfrá 1983 og 1984reynist
báðir sterkir en það er enn háð
óvissuþáttum.
Árgangurinn frá 1983 er talinn
mjög sterkur, mun sterkari en
áætlað hafði verið og er talið að
nýliðunin sé 300 miljónir. Aftur á
móti er árgangur frá 1982, 1984
og 1985 svipaðir og talið var í
haust.
-S.dór
Raufarhöfn
Listi AB
samþykktur
Framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins á Raufarhöfn vegna
sveitastjórnarkosninganna í vor
hefur verið samþykktur á félags-
fundi. Listann skipa þessir fé-
lagar:
1. Hlynur Þór Ingólfsson sjó-
maður, 2. Líney Helgadóttir
kennari, 3. Angantýr Einarsson
kennari, 4. Sigurveig Björnsdótt-
ir skrifstofumaður, 5. Gissur
Jónsson verkamaður, 6. Aðal-
steinn Sigvaldason sjómaður, 7.
Guðmundur Björnsson verka-
maður, 8. Björg Eiríksdóttir
skrifstofumaður, 9. Auður Ás-
grímsdóttir formaður Verka-
lýðsfélags Raufarhafnar, 10. Þor-
steinn Hallsson verkamaður.
-v.
Dimmisjón
var hjá 6. bekkingum Menntaskólans í Reykjavík í gærmorgun. Fylktu þeir liði Þessum tveimur yngismeyjum hafði naumlega verið bjargað frá bráðri hættu af
um borg og bý og nutu frelsisins áður en annir upplestrarleyfisins byrja. snöfurlegum björgunarmanni, líklega af márísku kyni. Ljósm. E.ÓI.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3