Þjóðviljinn - 16.04.1986, Síða 6
Innilegar þakkir
til allra sem glöddu mig með heillaóskum og gjöfum á 90 ára
afmæli mínu 5. apríl sl.
Lifið heil.
Júlíana Einarsdóttir
Fremri-Langey.
Kennarar!
ORLOFSFERÐIR
Vegna seinkunar sem varö á útsendingu sérrits
K.í. þar sem kynnt voru tilboð um utanferðir á
vegum félagsins, tilkynnist hér með að hægt
verður að senda inn umsóknir út þessa viku, til
19. apríl.
Orlofsnefnd kennarasambands íslands
I Fargjaldastyrkur
^■^■^“^Bæjarsjóður Hafnarfjarðar tekur þátt í fargjalda-
kostnaði nemenda úr Hafnarfirði, sem stunda
nám í framhalds- og sérskólum á höfuðborgar-
svæðinu, utan Hafnarfjarðar og Garðabæjar.
Rétt á fargjaldastyrk eiga þeir sem stunda nám í
framhalds- og sérskólum, þar sem námið stend-
ur yfir a.m.k. eitt skólaár og lýkur með prófi. Mið-
að er við fullt nám.
Nemendum er bent á að snúa sér til bæjarskrif-
stofunnar Strandgötu 6 og fá þar umsóknareyðu-
blöð, sem fylla þarf út og fá staðfest hjá viðkom-
andi skóla.
Umsóknum um fargjaldastyrk fyrir vorönn skal
skila eigi síðar en 5. maí 1986.
Sérstök athygli er vakin á breyttum úthlutun-
arreglum. Nýjar reglur liggja frammi á bæjar-
skrifstofunni, Strandgötu 6, 2. hæð.
Bæjarritarinn í Hafnarfirði.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
ORLOFSHÚS- 1986
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur auglýsir eftir
umsóknum um dvöl í orlofshúsum félagsins í
sumar. Umsóknarfresturertil 18. apríl n.k.. Frek-
ari upplýsingar eru í VR-blaðinu og á skrifstofu
félagsins í Húsi verzlunarinnar sími 687100.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Forval
Gert er ráð fyrir því að niðurstöður viðræðna
samninganefndar iðnaðarráðherra og RTZ Met-
als um byggingu kísilmálmverksmiðju á Reyðar-
firði liggi fyrir nú í haust. Verði niðurstöður við-
ræðnanna jákvæðar er stefnt að því að Kísil-
málmvinnslan semji við einn aðila, aðalverktaka,
er beri ábyrgð á byggirigu og verkhönnun verk-
smiðjunnar, skipuleggi allar framkvæmdir, skipti
verkinu í verkþætti og bjóði út til undirverktaka.
Ákveðið hefur verið að efna til forvals meðal ís-
lenskra verktaka til að finna þá aðila, er til greina
kæmu sem þátttakendur í samsteypu, er tæki að
sér hlutverk aðalverktakans.
Forvalsgögn verða afhent á Almennu verkfræði-
stofunni h.f., Fellsmúla26, Reykjavík, fráog með
miðvikudeginum 16. apríl nk. gegn 5.000 kr.
greiðslu.
Gögnum skal skila á skrifstofu Kísilmálmvinnsl-
unnar h.f. Höfðabakka 9,112 Reykjavík, eigi síð-
ar en föstudaginn 2. maí nk.
Kísilmálmverksmiðjan h.f.
ÞJÓÐMÁL
Útflutningsráðið
Deilt um stjómarmenn
Ragnar Arnalds: Ekki sjálfskipaðir frá stórfyrirtœkjum heldur kjörmr
afráðinu. Ráðherrarslást umfulltrúa stjórnarinnar
Mikill slagur hefur verið milli
ráðherra viðskipta, utanríkis,
iðnaðar og sjávarútvegsmála um
hverjir þeirra eigi að tilnefna tvo
af aðalmönnum stjórnarinnar í 8
manna stjórn Útflutningsráðs.
Samkvæmt tillögum Fjárhags
og viðskiptanefndar efri deildar
sem hefur haft frumvarpið til
meðferðar leggur meirihluti
nefndarinnar til að viðskiptaráð-
herra og utanríkisráðherra til-
nefni sinn hvorn aðalmanninn en
iðnaðar-ög sjávarútvegsráðherra
skipi varamenn þessara aðal-
manna. Þetta fyrirkomulag hefur
Albert Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra illilega getað sætt sig
við.
Þegar nefndarálit var lagt fram
í vikunni bar Ragnar Arnalds
fram breytingartillögu þess efnis
að viðskiptaráðherra skipaði 8
menn í ráðið til 2ja ára í senn og 8
Gullfoss og Geysir
AUsherjarnefnd Sameinaðs
þings hefur lagt til að Alþingi feli
ríkisstjórninni að láta skipuleggja
svæðið umhverfis Gullfoss og
Geysi í samræmi við ákvæði
skipulagslaga. Verði Skipulagi
ríkisins falin framkvæmd málsins
í samvinnu við viðkomandi
sveitarstjórnir, Náttúruverndar-
ráð og Geysisnefnd.
Skipulag svæðisins skal miðast
við það að tryggja að umhverfi
Gullfoss og Geysis verði ekki
raskað með mannvirkjagerð, að
nauðsynleg ferðamannaþjónusta
verði byggð upp á einum stað á
svæðinu og að byggingar og sam-
gönguleiðir falli sem best að um-
hverfinu.
—lg-
Heimilisstörf
Maft til starfs-
reynslu kannað
Eftir harðar umrœður og erfiða fœðingu náðist
málamiðlun. Ríkisstjórn kanni hvernig meta megi
heimilsstörf til starfsreynslu
Alþingi ályktar að meta skuli til
starfsreynslu heimilis- og um-
önnunarstörf, sem unnin eru
launalaust, þegar um hliðstæð
störf er að ræða. Jafnframt felur
Alþingi ríkisstjórn að láta athuga
með hvaða hætti megi meta slíka
starfsreynslu þegar um óskyld
eða sérhæfð störf er að tefla. Svo
hljóðar sameinginleg breytinga-
tillaga allsherjarnefndar Samein-
aðs þings við 4 áður framkomnar
tillögur um mat heimilsstarfa til
starfsreynslu.
Eins og áður hefur verið skýrt
ítarlega frá á Þjóðmálasíðunni
urðu miklar umræður fyrr í vetur
um tillögu Kvennalistans um mat
heimilsstarfa. Meirihluti allsherj-
arnefndar lagði til að tillögunni
yrði vísað frá og upphófust þá
harðar umræður í deildinni þar
sem hver breytingatillagan kom
fram á fætur annari. Varð að ráði
að vísa málinu og öllum fram-
komnum tillögum um efnið til
allsherjarnefndar á ný og freista
þess að ná sameiginlegri niður-
stöðu sem og tókst.
—Ig-
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. apríl 1986
varamenn. 5 aðalmanna skyldu
tilnefndir af ráðinu sjálfu og ríkis-
stjórnin tilnefndi þá þrjá menn í
stað 2ja áður. Jafnframt kom
fram í máli Ragnars að hann var
mótfallinn því að einstök stórfyr-
irtæki tilnefndu menn í stjórn Út-
flutningsráðs, heldur ætti ráðið
sjálft að tilnefna aðra stjórnar-
menn en fulltrúa ríkisins.
—>8-
Lagt til...
Úrbætur fyrir
þá efnaminnstu
Þingmenn Kvennalistans
leggja til að félagsmálaráðherra
setji á stofn starfshóp til að móta
ákveðnar tilögur til úrbóta á
högum hinna efnaminnstu í
þjóðfélaginu. í starfshópnum eigi
sæti fulltrúar allra þingflokka,
Félags einstæðra foreldra, Sam-
taka aldraðra, Öryrkjabanda-
lagsins, Samtaka ísl. félagsmála-
stjóra og fulltrúi Þjóðhagsstofn-
unar.
Lagt er til að starfshópurinn
fjalli um hvernig fella megi skatt-
akerfið að launakerfinu, hækkun
mæðralauna, verðlækkun mat-
væla og húsaleiguaðstoð.
RL til Hvanneyrar
Þingmennirnir Davíð Aðal-
steinsson, Jón Kristjánsson F, og
Ragnar Arnalds Ab, leggja til að
Rannsóknarstofnun landbúnað-
arins verði flutt til Hvanneyrar.
Er gert ráð fyrir í tillögu þeirra
að flutningi stofnunarinnar ljúki
á 6 árum. Benda flutningsmenn á
að RL hafi tilhneigingu til að
verða einangruð vísindastofnun.
Tengsl við Háskólann séu góðra
gjalda verð en tengsl við land-
búnaðinn sjálfan og fræðslustarf-
semi hans sé mun mikilvægari og
Hvanneyri því mun eðlilegra um-
hverfi fyrir vísindastofnun land-
búnaðarins en malarhólar ofan
Reykjavíkur.
6000
kaupleiguíbúðir
Þingmenn Alþýðuflokksins
leggja til að félagsmálaráðherra
hefji undirbúning að löggjöf
framkvæmdaáætlun um byggingu
eða kaup 600 íbúða á hverju ári í
10 ár til leigu með kaupleigufyr-
irkomulagi í samráði við
sveitarfélög eða félagasamtök.
Lánað verði til framkvæmd-
anna úr byggingarsjóði verka-
manna 80% af kostnaði íbúða
fyrir láglaunafólki og einnig 80%
úr byggingarsjóði ríkisins en
framlag sveitarfélaga og eða fé-
lagasamtaka verði 20%. Miðað
við þessa fjármögnup yrði fram-
lag sveitarfélaganna um 276 milj-
ónir á ári og framlag úr bygging-
arsjóði verkamanna um 552 milj-
ónir.
Heilbrigðisfræðsluráð
Guðrún Agnarsdóttir og
Kristín Halldórsdóttir Kl, leggja
til að sett verði á laggirnar stofn-
un er nefnist heilbrigðisráð.
Ráðið skal annast heilbrigðisf-
ræðslu sem miðar að því að koma
í veg fyrir sjúkdóma og slys og
samræma og skipuleggja heil-
brigðisfræðslu fyrir almenning í
landinu í samvinnu við stjórnend-
ur heilbrigðis-, skóla- og félags-
mála.
Lagt er til að í heilbrigðisráði
sitji 21 fulltrúi frá hinum ýmsu
félögum og stofnunum er tengj-
ast heilbrigðismálum og skuli
ráðið funda minnst 4 sinnum á
ári.