Þjóðviljinn - 16.04.1986, Side 8
Án titils, eftir Rögnu; Manillareipi og hör.
Loft og
joró
Vorvindar, eftir Sigurlaugu; hrosshár og plast
Sýning Sigur-
laugar
Jóhannesdóttur og
Rögnu Róberts-
dóttur
í Nýlistasafninu
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg
halda tveir veflistamenn samsýn-
ingu og stendur hún fram til 20.
apríl. Þetta eru þær Ragna Ró-
bertsdóttir og Sigurlaug Jóhann-
esdóttir, eða Silla. Samanlagt
sýna þær 14 verk, flest nýleg.
Þeim er þannig raðað að þau
mynda ákveðna og sterka heild,
nokkurs konar samstillingu, eða
installasjón, enda eru verkin þess
eðlis að þau verða ekki numin
samhengislaust með góðu móti.
Þær Ragna og Silla fást við aö
víkka út merkingu vefjarlistar-
innar og við það skarast mengi
verka þeirra við þau mengi sem
tilheyra höggmyndalistinni. Vef-
ir þeirra eru m.ö.o. höggmyndir,
ólíkt þeim vefjum.sem festiræru
upp á vegg og eiga ýmislegt sam-
merkt með málverkum.
Silla notar hrosshár og norskt
akrýlplast í verkum sínum, sem
öll hafa náttúruna að inntaki.
Hún kallar sinn hluta sýningar-
innar „Sólarflaut", eftir fyrsta og
síðasta verkinu í skránni. Annars
vegar er um plastdiska að ræða
Rokk
Fats Domino
í Broadway
Gamlarokkkempan Fats
Domino mætir annað kvöld í
veitingahúsiö Broadway og
leikur þar og syngur með fjórtán
manna hljómsveit á hverju kvöldi
frammá þriðjudag.
Antoine „Fats“ Domino er frá
New Orleans, tæplega sextugur,
og er ein skærasta stjarnan frá
fyrstu rokktímum um og eftir
1950, ásamt Chuck Berry, Little
Richard, Elvis o.s.frv.. í fylgdar-
liði Fats Domino hingað er meðal
annars Dave Bartholomew, einn
helsti lagasmiður hans, nú orðinn
67 ára.
sem hengdir eru í röð niður úr
loftinu. A þá eru límd hrosshár.
Sólarflaut eru einnig hrosshárs-
knippi sem mynda spíral á vegg.
Plastdiskar með hrosshárum eru
einnfg uppistaða í verkinu „Him-
inbogar“. f „Sveipir" og „Vind-
harpa" er plastið orðið að sívaln-
ingum sem hrosshárin flæða út
úr. „Flóð og fjara'* byggir liins
vegar á hrosshársknippum sem
fest eru í misjafnri hæð á veggi
sýningarsalarins.
Verk Sillu eru öll loftkennd,
enda fjalla þau um höfuðskepnu
þá sem stjórnar himinhvolfinu. í
orðsins fyllstu merkingu eru verk
hennar gegnsæ og rými þeirra er
að vissu marki órætt eins og
skýjafarið og vindurinn sem
ræður því. Raunar gefur það
auga leið að verk sem gerð eru úr
gagnsæju plasti og hrosshárum
hafa takmarkaða rýmiskennd,
eða jafnvel ótakmarkaða ef
þannig er litið á málin, og massi
slíkra verka er ekki mikill né
þungur.
Það er engu líkara en Silla vilji
gera út af við efnið í verkum sín-
um. Að minnsta kosti vinnur hún
á mörkum hins óefniskennda,
þar sem allt getur horfið út í
veðurog vind á næsta augnabliki.
Ragna er hin fullkomna and-
stæða hennar. Verk hennar til-
heyra jörðinni og hafa til að bera
þunga sem minnir á móköggla í
gömlum hleðsluveggjum. Að
vísu er efniviður hennar ekki mór
heldur hör sem ofinn er saman og
bundinn með Manillareipi. Hör-
inn er engu að síður jarðargróður
og vafningar Rögnu og teppi
liggja kirfilega á gólfinu þar sem
þau mynda staðfast og massíft
form í rýminu.
Til að tengja verk sín enn frek-
ar jörðinni leggur Ragna gjarnan
steinflögur ofan á þau. Að
minnsta kosti vill hún tryggja það
að þau fari ekki á flakk um sýn-
ingarsalinn eins og teppin Harúns
al-Rasjíds, sem gjarnan sáust
svífa ofar mínarettum Bagdad-
borgar forðum daga.
Þrátt fyrir ákveðinn léttleika
efnisins og ótakmarkaða mögu-
leika til breytilegrar uppsetning-
ar, virka vefir Rögnu sem kyrr-
stæðir og óhagganlegir. Einungis
þar sem teppum hennar er rúllað
upp skynjar maður ákveðinn
hreyfanleika í forminu.
Þær andstæður, sem fólgnar
eru í efnis- og formhugsun þess-
ara tveggja vefara, gera sýningu
þeirra heillandi. Uppsetningin er
vel af hendi leyst og vart þarf að
taka það fram að Silla er með
verk sín á loftinu, meðan Ragna
ræður ríkjum í neðri salnum.
Framan við inngöngudyrnar
mætast svo loft og jörð í
fullkomnu samræmi.
HBR
STÖKUR
Sérkennilegir hagyrðingar
hafa alltaf verið til. Einn sá fræg-
asti í hópi furðuhagyrðinga er
Æri-Tobbi. Hann var uppi á 17.
öld og er talið að hann hati látist í
kringum 1660, en heimildir munu
ekki vera til um hvenær hann
fæddist, né nákvæmar heimildir
um hvenær hann dó. Margir
kunna vísur eftir Tobba, en þæir
hafa margar afbakast. Hér fara á
eftir nokkrar stökur eftir hann.
Sagt er að Tobbi hafi ort þessa
vísu um mann sem hét Valdimar
og orti erfiljóð fyrir greiðslu:
Dauður maður dauður var.
Sendimaður sendur var
uppí séra Valdimar
til að yrkja Ijóðin þar.
Næsta vísa er fræg, en hún varð
til þess að þeir sem eftir henni
fóru létust, en hún var svar
Tobba við spurningu ferðamanns
um fært vað á fljóti, en Tobbi
sagði rangt til:
Veit ég víst hvar vaðið er
vil þó ekki segja þér:
Fram af eyraroddanum
undan svarta bakkanum.
Svona orti Tobbi um konu
sína:
Þambara vambara Þorbjörg mín
þarna er kúlna fatan þín,
ambara rambara exin lín
illa trú’ eg hún bíti.
Tobbi gæti hafa verið við skál
þegar hann orti þessa vísu:
Urnis dregur ilja salt
einninn veltir mér um svig.
Gólfið er nokkuð heldur hallt
og hallar öllu fram í mig.
Við mann með alskegg orti
Tobbi:
Það er mikið frugga frum
fríarí og bríarum.
Þusslega mikið júðaskegg
þér hafið á kjálkunum.
Um mælgi orti Tobbi:
Öglara göglara inni ég veg
út af mærðar raftinum.
Sá er sjaldan magur mjeg
sem rauður er f kjaftinum.
Svo orti Tobbi um bóndann á
Hvítárvöllum:
Hér getur cnginn komist í kór
fyrir kæsidöllum
þambara rambara þeytings-
sköllum,
Þórarinn bóndi á Hvítárvöllum.
Um síldarstúlku orti Tobbi:
Aldan skjaldan galdra grær
græfra ræfra russu.
Sæfra tæfra sfldarmær
sussu sussu sussu.
í miklu roki orti Tobbi þessa
vísu:
Inna vildi ég með orðum frá
en ekki spé.
Hæsings vindur og hæsings hlé
æstu maður og he he.
Næsta vísa var ort um mann
sem féll um koll:
Loppu hroppu lyppu ver
lastara klastara styður.
Hoppu goppu hippu ver
hann féll þarna niður.
Á ferðalagi orti Tobbi þessa:
Umbrum bumbrum hrævra hross
hér eru menn á eftir oss.
Umbrum bumbrum hrævra hre
hverjir ætli þetta sé?
8 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Miðvikudagur 16. april 1986
Listamenn
Starfs-
launum
úthlutað
Starfslaunum listamanna hcfur
nú verið úthlutað af nefnd á veg-
um mcnntamálaráðuncytis, og
sitja í henni Knútur Hallsson for-
maður, Bolli Gústavsson og Birg-
ir Sigurðsson. AIIs var veitt
4.692.000 krónum til starfslauna
á fjárlögum. Starfslaun hlutu:
(12 mánaða laun) Haukur J.
Gunnarsson, Jóhanna Kristín
Yngvadóttir, (6 mánaða laun)
Nína Gautadóttir, Sigurlaug Jó-
hannesdóttir, Sóley Eiríksdóttir,
Steingrímur E. Kristmundsson,
Jóhannes Helgi, Stefanía Þor-
grímsdóttir, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, (3 mánaða laun)
Ásdís Sigurþórsdóttir, Ásgerður
Búadóttir, Guðmundur Thor-
oddsen, Guðrún Svava Svavars-
dóttir, Halldór Ásgeirsson,
Hallgrímur Helgason, Haraldur
Ingi Haraldsson, Haukur Dór,
Helgi Þorgils Friðjónsson, Jón-
ína Guðnadóttir, Kristján Guð-
mundsson, Kristján Steingrímur
Jónsson, Lísbet Sveinsdóttir, Sig-
rún Eidjárn, Sigurður Þórir Sig-
urðsson, Svala Sigurleifsdóttir,
Sverrir Ólafsson, Þór Vigfússon,
Þórður Hall, Þuríður Fannberg
(Rúrí), Örn Þorsteinsson, Glúm-
ur Gylfason, Gunnar R. Sveins-
son, Hörður Torfason, Mist
Þorkelsdóttir, Páll Eyjólfsson,
Þórir Baldursson, Elísabet Þor-
geirsdóttir, Valdís Óskarsdóttir,
Viðar Eggertsson, Viðar Gunn-
arsson.
Salí á Borginni
Ég vil elska
mitt land
í kvöld stendur Salí fyrir kvöldi á
Borginni og skemmta menn sér
þar undir einkunnaroröunum Ég
vilelskamittland.
„Salí“ er félagsskapur lista-
skólanema og heldur þeim og
öðrum borgarbúum skemmtanir
og dansleiki með fjölbreyttri dag-
skrá. I kvöld verða Salímenn
þjóðlegir, flytja nýtt dansverk við
íslenska tónlist, leika úr íslensku
leikriti, láta ljóðlíða um salinn og
fylla Borgina íslenskum tónum.
Áð lokum verður stigið fast á fjöl
við rammþjóðlega hrynjandi.
Kynnir kvöldsins er svo hinn alís-
lenski Valgeir Skagfjörð.
Sinfónían
Verk eftir
Pál P. og
bandarískur
sópran
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Islands annað kvöld í
Háskólabíói er fyrst á dagskrá
verkið Hendur eftir
stjórnandann, Pál P. Pálsson,
fyrirstrengjasveit.
Einsöngvari kvöldsins er Ellen
Lang, bandarískur sópran, ættuð
frá Noregi, og þykir hafa mikla
og glæsilega rödd og heillandi
sviðsframkomu. Hún syngur tvær
aríur úr Brúðkaupi Fígarós eftir
Mozart, Ah perfido eftir Beetho-
ven og nokkur velþekkt sönglög
eftir Sibelius.
Sibelius lýkur svo tónleikunum
með 5. sinfóníunni.