Þjóðviljinn - 16.04.1986, Side 14
7. þing Landssambands iðnverkafólks
i
Stóraukinnar fræðsiu er
Ljóst er að krafan um stór-
aukna iðnfræðslu og verk-
menntakennslu fyrir starfsfólk í
verksmiðjuiðnaði er eitt brýnasta
hagsmunamál iðnverkafólks í
dag. Framvindan í þessum mál-
um á næstu misserum og árum
mun án efa hafa afgerandi þýð-
ingu í baráttu okkar fyrir því, að
skapa almennan skilning og
viðurkenningu á mikilvægi og
þýðingu þeirra starfa sem iðn-
verkafólk hefur með höndum.
Um leið hlýtur aukin verk-
menntakennsla að verða mikil-
vægt tæki í baráttu iðnverkafólks
fyrir stórbættum kjörum þeirra
sem við iðnað starfa.
Við uppbyggingu verk-
menntunar í verksmiðjuiðnaði
verður að leggja til grundvallar,
að hún verði bæði aðgengileg og
eftirsóknarverð fyrir iðnverka-
fólk. Til að svo megi verða er
ljóst að námsframboð, námstími
og öll tilhögun námsins verður
öðru fremur að einkennast af
sveigjanleika. Þannig er ljóst að
námsframboðið verður að taka
tillit til þeirrar þróunar sem orðið
hefur í verksmiðjuiðnaði og
þeirra starfa sem þar eru unnin í
dag. Þá er ekki síður mikilvægt,
að skipulag verkmenntunarinnar
verði með þeim hætti, að það
samræmist sem best félagslegum
og fjárhagslegum aðstæðum
þeirra sem þegar eru starfandi í
iðnaði. Lögð verði áhersla á að
námið verði byggt upp þannig, að
það standi saman af tiltölulega
stuttum og afmörkuðum áföng-
um, sem hver um sig Ijúki með
hæfnismati. Hæfnismati sem not-
að verði til grundvallar við
ákvörðun launa. Þá verður að
gera þá kröfu, að sú verk-
menntun sem skipulögð verður,
verði beint tengd og eðlilegur
hluti af iðnfræðslukerfinu í
landinu. Þannig verði tryggt að
verkmenntun iðnverkafólks nýt-
ist sem hluti af frekara iðn- og
tækninámi. Til að svo megi verða
er nauðsynlegt að gera mjög rót-
tæka breytingu á núverandi iðn-
fræðslukerfi.
Jafnframt því sem unnið verð-
ur að uppbyggingu iðnfræðslu og
verkmenntunar fyrir iðnverka-
fólk innan verkmenntakerfisins
er brýnt að teknar verði upp við-
ræður við iðnrekendur þar sem
mótaðar verði meginreglur um
7. þing Landssambands iðnverkafólks_
Stefnumótun vantar í
atvinnumálum
f íslenskum iðnaði starfa nú
nærri sex þúsund manns, sem
svarar til þess að sjöundi hver
vinnandi maður sæki atvinnu sína
til þessarar næst stærstu atvínnu-
greinar landsmanna. íslenskur
iðnaður sinnir mikilvægum þörf-
um neytenda og fyrirtækja, og
reynslan sýnir að verðlag er al-
mennt lægra á þeim sviðum sem
íslenskur iðnaður hefur náð að
sýna styrk sinn.
í yfirlýsingum um atvinnumál,
er iðnaði oftast ætlað stórt hlut-
verk. en sjaldnast er skilgreint
með hvaða hætti iðnaðurinn geti
búið sig í stakk til þess að taka á
móti þeim þúsundum manna sem
streyma munu út á vinnumarkað-
inn á næstu árum.
I reynd skortir skýra stefnu-
mótun í málefnum íslensks iðn-
aðar. Áform um uppbyggingu
eru næsta óljós og á stundum er
gengið út frá því að vöxturinn
gerist sjálfkrafa og án undirbún-
ings.
Islensk verkaiýðshreyfing hef-
ur verið frumkvæðislítil í atvinnu-
málum og starfsfólk flestra fyrir-
tækja sýnir takmarkaðan áhuga á
því sem framundan er í fyrirtæk-
inu sem það starfar hjá, enda er
því ekki gefinn kostur á, að hafa
áhrif á mótun og stefnu þess. Á
þessu þarf að verða breyting og
verkalýðshreyfingin verður að
láta atvinnumálin meira til sín
taka en verið hefur.
íslenskir iðnrekendur hafa á
mörgum sviðum staðið vel að
verki, en mikið vantar þó á að
nægilega skipulega hafi verið
unnið að markvissri uppbyggingu
fyrirtækja, fjárfestingu, vöruþró-
un, markaðsmálum og ný-
sköpun. Á þessu verður að verða
breyting.
Það öryggisleysi sem stórir
hópar iðnverkafólks búa við er
með öllu óviðunandi. Fjöldaupp-
sagnir starfsfólks sem unnið hef-
ur í ullar- og fataiðnaði sýnir það
best. Flóttann frá innlendri fram-
leiðslu yfir í innflutning verður að
stöðva og tryggja iðnverkafólki
atvinnu með öllum tiltækum
ráðum.
Með markvissum aðgerðum á
iðnaðurinn að geta sótt fram á
mörgum vígstöðvum, dregið úr
tilkostnaði, treyst atvinnuöryggi
og séð vaxandi mannafla fyrir
lífsafkomu. jafnframt því sem
laun hækki til jafns við það sem
best gerist í nálægum löndum. Til
þess að svo megi verða þurfa allir
að taka höndum saman.
Stjórnvöld verða að búa iðnaði
bestu aðstæður, iðnrekendur að
nýta sér möguleika hvar sem þeir
gefast og starfsfólk að fá viðun-
andi aðstöðu til starfs- og eftir-
menntunar og til áhrifa og íhlut-
unar í málefni eigin vinnustaðar.
þörf
það, með hvaða hætti þátttaka í
námskeiðum og aukin verk-
menntum starfsmanna verði
viðurkennd til launa. Jafnframt
þarf að tryggja rétt iðnverkafólks
til að njóta þeirrar verk-
menntunar sem í boði verður, án
þess að það feli í sér umtalsverða
röskun á högum þess. Gera verð-
ur kröfu til þess, að aukin verk-
menntun leiði til umtalsverðra
launahækkana, og jafnframt að
samið verði um rétt starfsmanna
til töku námsleyfa á launum.
Innflutningi
mótmælt
Sjöunda þing Landssambands
iðnverkafólks haldið í Reykjavík
11.-12. apríl 1986 mótmælir harð-
lega þeim geigvænlega innflutn-
ingi á fatnaði og öðrum iðnvarn-
ingi framleiddum í Asíulöndum,
þar sem lág laun og barnaþrælk-
un eru forsendur fyrir lágu verði.
Þingið fordæmir nt.a. aðgerðir
Sambands íslenskra Samvinnufé-
laga sem flytur inn fatnað frá
Austurlöndum fjær til sölu hér-
lendis í stað þeirrar framleiðslu
sem Fataverksmiðjan Hekla á
Akureyri framleiddi áður.
Slíkt er niöurlægjandi.
Þingið bendir á að hin Norður-
löndin hafa sett takmarkanir á
innflutning iðnaðarframleiðslu
frá Asíulöndum og telur þingið
eðlilegt að Islendingar geri slíkt
hið satna til verndar íslenskum
iðnaði og því fólki sem þar starf-
ar.
HVAÐ ER AÐ GERAST í ALÞÝDUBANDALAGINU?
AB-Garðabæ
Félagsfundur
verður haldinn í Alþýðubandalagsfélagi Bessastaðahrepps og
Garöabæjar laugardaginn 19. apríl kl. 13.30 í Safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli.
Dagskrá:
1. Bæjarmálin
2. Kosningastarfið
3. Önnur mál
Framkvæmdastjórn
AB Borgarnesi
Aðalfundur
verður haldinn föstudaginn 18. apríl í félagsheimilinu Röðli kl.
20.00. Dagskrá: 1) venjuleg aðalfundarstörf, 2) önnur mál.
Stjórnin
AB Hafnarfirði
Fundur um húsnæðismál
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði heldur félagsfund um húsnæðis-
mál í Skálanum Strandgötu 33, þriðjudaginn 22. apríl kl. 20.30.
Svavar Gestsson og Guöni Jóhannesson koma á fundinn. Fé-
lagar, mætið vel og stundvíslega!
ABH
Svavar Guðni
Alþýðubandalagið Norðuriandi eystra
Vorfundur kjördæmisráðs
veröur haldinn í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18 Akureyri laugar-
daginn 19. apríl n.k. kl. 14.00. Formenn félaga og frambjóðendur
til sveitarstjórna eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Á dagskrá m.a. 1) sveitarstjórnarkosningarnar, 2) útgáfumál, 3)
forvalsreglur, 4) flokksstarfið framundan (sumarmót o.fl). 5) erind-
rekstur þingmanns, 6) önnur mál.
Stjórnin
AB Húsavík
Árshátíð
Alþýðubandalagsins á Húsavík verður haldin laugardaginn 19.
apríl og hefst hún kl. 20.00.
Árshátíðargestir eru hvattir til að tilkynna þátttöku sem allra
fyrst til Leifs s. 41761, Hönnu Möggu s. 41998 eða Kristjönu s.
41934.
Nefndin
AB Selfoss
Opið hús
Hittumst laugardaginn 19. apríl kl. 14.00 að Kirkjuvegi 7. og
ræðum bæjarmálin. Kaffi og meðlæti. Mætum og undirbúum bar-
áttuna.
Apríinefndin
Alþýðubandalag Akureyrar - dagskrá
Fundur í bæjarmálaráði, í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 kl. 20.30.
Starfað verður í eftirtöldum málefnahópum.
Fimmtudaginn 17. apríl kl. 20.30:
a) Skólamál
b) íþrótta- og æskulýðsmál
c) Umhverfis- og skipulagsmál.
Alþýðubandalagsfélagar og stuðningsfólk mætið vel og dyggi-
lega og hafið með því áhrif á stefnuna.
Stjórn bæjarmálaráðs
AB Kópavogur
Kosningaskrifstofa
hefur verið opnuð í Þinghóli, Hamraborg 11. Opið fyrst um sinn frá
kl. 15-19. Síminn nú er45715. Kosningastjóri erÁsgeir Matthías-
son.
ABK
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Fáið frambjóðendur á fund!
Hafið samband sem allra fyrst og fáið frambjóðendur Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík á vinnustaðafundi því oft reynist erfitt að
verða við áskorun um fundi síðustu vikurnar fyrir kjördag.
Hringið í síma 17500 og ræðiö við Gísla Þór.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Utankjörstaða-kosningaskrifstofa
Alþýðubandalagsins
• Kærufrestur vegna kjörskrár rennur út 16. maí.
• Kjörskrá liggur frammi fyrir allt landið.
• Kjósendur eru hvattir til að athuga hvar og hvort þeir eru á
kjörskrá.
• Að láta skrifstofuna vita af þeim sem verða líklega ekki heima á
kjördag 31. maí n.k. (vegna náms, atvinnu, sumarleyfa, ferða-
laga o.s.frv.).
• Kosningaskrifstofan er i Miðgarði Hverfisgötu 105, risi.
Símarnir eru 91-12665 og 12571.
Umsjónarmaður skrifstofu er Sævar Geirdal.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Aðalfundur 2. deildar
verður fimmtudaginn 17. apríl kl. 20.30 í Miðgarði. Deildin spann-
ar Austurbæ (kjördeildir Austurbæjarskóla og Sjómannaskóla).
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Aðalfundur 3. deildar
verður miðvikudagínn 16. apríl kl. 20.30 í Miðgarði. Deildin nær
yfir Sundin (kjördeildir Langholtsskóla og Laugarnesskóla).
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN ~
Verkalýðsmálanefnd ÆFAB
heldur fund fimmtudaginn 17. apríl kl. 20.30 í Miðgarði Hverfis-
götu 105. Dagskrá: 1) Aðgerðir 1. maí. 2) Önnur mál.
Stjórnin
ÆFAB félagarathugið
SSUN-námstefna
verður haldin dagana 18.-20. apríl. Æskulýðsfylkingarfélagar fjöl-
mennið. Dagskrá nánar auglýst síðar.
Utanríkismálanefnd
ÆFRfélagar
Félagsfundureftirfund verkalýðsmálanefndarfimmtudaginn 17.
apríl.