Þjóðviljinn - 16.04.1986, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
----------------------------------------------------!
EMIKörfubolti
s
Irar náðu íframlengingu og voru hársbreiddfrá sigri,
Island vann 73-72
Þær voru hreint ótrúlega
spennandi lokasekúndurnar í leik
íslands gegn írlandi í gær. Eftir
að leikurinn hafði verið fram-
lengdur úr 69-69 náðu Islending-
ar þriggja stiga forskoti 73-70
þegar 2 mínútur voru til leiks-
loka. írar minnkuðu muninn í 1
stig. íslendingar fengu svo bolt-
ann þegar 40 sekúndur voru eftir.
Þeir léku út 30 sekúndurnar, en
þá reyndi Torfi skot. Mistök
tímavarðar leiddu til uppkasts
sem írar unnu. Þeir fengu svo
bónusskot þegar 3 sekúndur voru
eftir, en Butler hitti ekki og ís-
lendingar héldu boltanum það
sem eftir var, naumur sigur í
höfn, 73-72.
Barcelona
Venables
um kyrrt
Spænska knattspyrnustórveld-
ið Barceiona tilkynnti í gær að
Englendingurinn Terry Venables
myndi halda áfram störfum hjá
félaginu og stjórna því næsta
keppnistímabil.
Venables hafði verið sterklega
orðaður við Lundúnaliðin Arse-
nal og Tottenham en hann er
samningsbundinn Barcelona til
ársins 1988.
—VS/Reutcr
Kvennaknattspyrna
Gunnlaugur
þjálfar Þór
Gunnlaugur Björnsson, gamal-
gróinn KA-maður, hefur verið
ráðinn þjálfari kvennaliðs Þórs í
knattspyrnu. Hann tekur við af
Guðmundi Svanssyni sem hefur
þjálfað liðið undanfarið ár. Þór
leikur í 1. deild og varð í 5. sæti sl.
sumar en í 2. sæti þar á undan.
—K&H/Akureyri
„Þetta datt niður hjá okkur í
lokin þegar þeir tóku tvo úr um-
ferð, við áttum alls ekki von á
því,“ sagði Einar Bollason lands-
liðsþjálfari. „Taugarnar klikk-
uðu hjá okkur. íslenska liðið get-
ur langtum betur en þetta. Við
tökum einn leik í einu og ætlum
að vinna Skotana á morgun."
íslenska liðið byrjaði leikinn
mjög vel. Liðið lék hratt og opn-
aði írsku vörnina hvað eftir ann-
að. íslendingar héldu góðu for-
skoti allan fyrri hálfleikinn og
léku oft mjög góðan körfubolta.
í síðari hálfleik dró aðeins úr
hraðanum og leikurinn jafnaðist
um tíma. Þegar um 5 mínútur
voru til loka venjulegs leiktíma
var staðan þó orðin 68-55. Þá
tóku írarnir við sér og náðu að
jafna 69-69.
íslendingar byrjuðu framleng-
inguna vel og náðu þríggja stiga
forskoti 73-70, en lokamínútun-
um er lýst hér að ofan.
Þrátt fyrir að ísland hafi sigrað
í þessum leik þarf liðið að laga
margt fyrir leikinn gegn Skotum á
morgun. Hittnin var ekki nógu
góð lengst af og sóknarleikurinn
ekki nógu beittur. Vörnin var
ágæt, en þó getur liðið betur.
Síðustu mínúturnar fyrir fram-
lengingu voru slæmar. Liðið hitti
þá mjög illa og var að öllu leyti
einstaklega óheppið. Það tók lið-
ið Iangan tíma að finna svar viö
þessari vörn íranna og það kost-
aði næstum því sigurinn.
EM/körfubolti
Skotar
sigruðu
Skotar sigruðu Portúgali
67-65 í tvísýnum opnunarleik
Evrópukeppninnar í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöldi. Stað-
an í hálfleik var 31-27 Skotum
í hag.
Miðað við leik liðanna á ís-
land alls kostar við þau bæði í
kvöld og annað kvöld. Morri-
son skoraði 15 stig fyrir Skota
og Way 13. Silva skoraði 15
stig fyrir Portúgali og Seica
14.
-VS
Kvennakarfa
Kolbrún velur
England
Everton á toppinn
Chelsea í 3.sœti eftir sigur á West Ham
Everton tók í gær forystuna í 1.
deild ensku knattspyrnunnar
með góðum útisigri í Watford, 2-
0. Gary Lineker skoraði á loka-
mínútu fyrri hálfleiks, 25. mark
sitt í 1. deild og það var 34. í vetur, en
meiddist í leiðinni og lék ekki
seinni hálfleikinn. Graeme Sharp
skoraði seinna markið.
Meistaravonir West Ham dvínuðu
verulega þégar liðið tapaði í fyrsta
sinn á heimavelli síðan í ágúst, 1-2
gegn Chelsea. Tony Cottee kom
West Ham yfir á 51. mínútu. Nigel
Spackman jafnaði fimm mínútum
síðar og Pat Nevin tryggði síðan
Chelsea sigur með marki 12 mínútum
fyrir leikslok. Chelsea komst í þriðja
sætið við þetta og getur enn látið sig
dreyma um meistaratitilinn.
Urslit í ensku knattspyrnunni í gær-
kvöldi "urðu þessi:
t.deild:
Wattord-Everton....................0-2
West Ham-Chelsea...................1-2
2. deild:
Blackburn-Huddersfield.............0-1
Charlton-Millwall..................3-3
3. deild:
Chesterfield-Bristol R.............2-0
Doncaster-Rotherham................0-0
NottsCounty-Bournemouth............3-1
Walsall-Wigan......................3-3
4. deild:
Aldershot-Tranmere.................3-1
Burnley-Crewe......................0-1
Hartlepool-Torquay.................1-0
Northampton-Orient.................2-3
Scunthorpe-Colchester..............1-1
Southend-Mansfield.................3-1
Swindon-Peterborough...............3-0
Charlton mistókst að ryðja Wim-
bledon úr 3. sæti 2. deildar en allt
stefnir í einvígi liðanna um 1. deildar-
sæti. Staða efstu liða í 1. deild er nú
þessi:
Everton.......37 23 7 7 77-38 76
Liverpool.....37 21 10 6 78-36 73
Chelsea.......37 20 10 7 54-44 70
Man.Utd.......38 20 8 10 61-33 68
WestHam.......35 20 6 9 56-33 66
—VS/Reuter
Knattspyrna
Víkingur
í úrslit?
Víkingar sigruðu Ármann 2-0 í
tilþrifalitlum leik Reykjavíkur-
mótsins á gervigrasinu í gærkvöldi.
Kuldi og strekkingur höfðu sín
áhrif á ieikinn. Víkingar voru ívið
íslenska liðið lék þó ekki illa
allan leikinn. Fyrri hálfleikur og
meiriparturinn af þeim síðari var
ágætlega leikinn. Þeir Guðni,
Pálmar og Páll voru góðir í sókn-
inni og Torfi og Símon voru
sterkir í vörninni. Það munaði
mikið um það þegar fjórir leik-
menn fengu sína fjórðu viliu á
stuttum tíma í miðjum si'ðari hálf-
leik, þeir Guðni, Torfi, Símon og
Matthías. Matthías fór reyndar
útaf með 5 villur stuttu síðar.
Þetta dró úr liðinu og gátu þeir
ekki beitt sér nógu mikið í varn-
arleiknum.
Stig islands: Valur Ingimundarson 25,
Pálmar Sigurðsson 16, Guðni Guðnason
16, Torfi Magnússon 6, Páll Kolbeinsson 4,
Simon Ólafssbn 4 og Matthías Matthías-
son 2.
Stigahæstir Irana voru Butler 17, Boylan
16, O'Sullivan 14 stig.
-Logi
EM/körfubolti
Gegn Skotum
í kvöld
Önnur umferð Evrópukeppn-
innar verður leikin í Laugardals-
höllinni í kvöld. Kl. 19.30 leikur
hið sterka lið Norðmanna sinn
fyrsta leik, gegn írum, og kl. 21
hefst viðureign Islands og Skot-
lands. Portúgalir sitja hjá í kvöld.
Guðni Guðnason sýndi góð tilþrif í landsleiknum við íra í gærkvöldi og hér er
hann í þann veginn að skora. Mynd: E.ÓI.
Otrúleg spenna
á lokasekúndunum
tíu stúlkur
NM í Svíþjóð í lok apríl
Kolbrún Jónsdóttir landsliðs-
þjálfari kvenna valdi í fyrradag
lið sitt fyrir Norðurlandamótið
sem fram fer í Svíþjóð síðar í
þessum mánuði. Það er skipað 10
stúlkum og eru þær eftirtaldar:
Auður Rafnsdóttir, IBK
Björg Hafsteinsdóttir, ÍBK
Guðlaug Sveinsdóttir, ÍBK
Kolbrún Leifsdóttir, ÍS
Helga Friðriksdóttir, ÍS
Hafdís Helgadóttir, ÍS
Guðrún Gunnarsdóttir, ÍR
Póra Gunnarsdóttir, ÍR
Vala Úlfljótsdóttir, IR
Þórunn Magnúsdóttir, UMFN
Kolbrún Leifsdóttir er fyrirliði
en Guðrún varafyrirliði. Leik-
menn íslandsmeistara KR gáfu
ekki kost á sér í liðið. —VS
Bikarúrslit
Fram-Stjaman
Stúlkurnar leika í Seljaskólanum
Fram og Stjarnan leika til úrslita í bikarkeppni kvenna í
handknattleik í kvöld. Leikið verður í Seljaskóla í Reykjavík og
byrjað kl. 20.
Fram cr íslandsmeistari og vann alla sína 12 leiki í 1. deildinni
í vetur. Stjarnan lék í fyrsta skipti í 1. deild og hafnaði í öðru
sæti, 8 stigum á eftir Fram. Framstúlkurnar unnu leiki liðanna
23-17 og 26-21 og eru því sigurstranglegri í kvöld.
Sagt verður frá leiknum á rás 2 og hefst útscnding þar kl. 20.
sterkari aðilinn og þeir Andri
Marteinsson og Jón Bjarni Guð-
mundsson skoruðu mörkin með
stuttu millibili í fyrri hálfleik.
Ármenningar sóttu í sig veðrið
eftir það en fóru illa með gott færi
þegar þeir létu Jón Otta Jónsson
markvörð Víkings verja frá sér
vítaspyrnu. Víkingar eru nú sama
og komnir í undanúrslit mótsins,
þeir mega tapa fyrir ÍR með
tveimur mörkum í lokaleik sínum
í riðlinum. Fyrir lokaumferðina
er Víkingur með 4 stig, Valur 2,
ÍR 1 og Ármann 1.
—VS
—vs
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19