Þjóðviljinn - 16.04.1986, Qupperneq 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Miðvikudagur 16. gpríi 1986 85. tölublað 51. árgangur
DJOÐVIUINN
Samrœmdu prófin
Borgarráð
Bankastræti
verði
Bakarabrekka
Bakaraincistarafclagið hefur
lagt það til við borgarráð að
Bankastræti fái aftur sitt gamla
hciti, Bakarabrekka.
Bréf félagsins var lagt fyrir
fund borgarráðs í gær og hefur
ráðið falið söguriturum borgar-
ar að kanna sögulegan bak-
grunn þessa máls. - gg.
r
Akvörðun fyrrverandi mcnnta-
málaráðhcrra Ragnhildar
Helgadóttur þcss cfnis að minnka
vægi samræmdu prófanna og
auka vald skólanna í einkunnar-
gjöf fyrir lokapróf í grunnskólum
hefur haft þau áhrif að fjöldi
nemenda sem öðlast rcttindi til
beinnar inngöngu í framhalds-
skólana hefur aukist.
Fyrir breytinguna sem var inn-
leidd á sl. vori náðu að meðaltali
70% grunnskólanema þeirri lág-
markseinkunn sem þarf til þess
að fá beina inngöngu í framhalds-
skóla. Síðastliðið vor var þetta
hlutfall komið upp í 80%.
Breytingin sem um er að ræða
felst í því að skólarnir hafa nú
helmingsáhrif á niðurstöður sam-
ræmdu prófanna en auk þess hafa
aðrar greinar en þær sem prófað
var í í samræmdu prófunum verið
gerðar jafnréttháar.
Að sögn Hrólfs Kjartanssonar
deildarstjóra skólaþróunar-
deildar menntamálaráðuneytis-
ins, er nærtækasta skýringin á
fjölgun nemenda sem öðlast rétt-
indi til beinnar inngöngu í fram-
haldsskóla sú, að skólarnir hafi í
sínu mati tekið mið af fleiri þátt-
um en einungis hinum bóklega
þætti, s.s. verklegum þáttum og
frammistöðu í tímum.
Hrólfur sagði jafnframt að
verulegur munur væri á milli
skóla hvað varðaði niðurstöður
samræmdu prófanna og munur-
inn væri töluverður á skólum
höfuðborgarsvæðisins og lands-
byggöarinnar en þar kæmi lands-
byggðin ver út úr samanburðin-
um. Ástæðurnar fyrir þessu sagði
Hrólfur margar en þar gæti e.t.v.
komið til verri aðstæður, færri
nemendur, verri kennarar eða
verri nemendur, eða hugsanlega
að samræmdu prófin væru meira
sniðin að stærri skólunum á höf-
uðborgarsvæðinu en minni
skólum landsbyggðarinnar.
-K.Ól.
10% fleiri ná prófi
Breyting á samrœmdu prófunum sl. vor hafðiíför með sérfjölgun á þeim
sem öðlast réttindi til framhaldsskólanáms. Aður 70% nemenda, nú 80%.
Landsbyggðin fer áfram illa úr samanburðinum
Hafnarfjörður
Skarphéðinn við gryfjuna í gær: Verður hyldjúpt þegar flæðir að. Mynd. E.ÓI.
Jafnvel
8 listar
Slys
Slysagildra í
Holtagörðum
Skarphéðinn Lýðsson matreiðslumaður: Stórhœttulegt börnum sem komaþarna
mikið. Parfaðfylla uppíeða girða af
Þetta er stórhættuleg gildra
fyrir börn. Þau sækja mikið í
þetta svæði og ég hef margsinnis
þurft að reka þau þaðan frá,
sagði Skarphéðinn Lýðsson mat-
reiðslumaður hjá skipadeild
Sambandsins í Holtagörðum í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Andspænis mötuneytinu í
Holtagörðum er djúp gryfja.
Þegar flóð er fyllist þessi gryfja af
vatni og verður þá hafdjúp og
stórhættulegt leiksvæði eins og
Skarphéðinn sagði. Mikið er um
það að sögn Skarphéðins að börn
komi þarna niður eftir á reiðhjól-
um og leiki sér þarna. „Nú þegar
vorið er að koma og skólarnir að
verða búnir má búast við að
krakkar á aldrinum 6-10 ára komi
hingað í enn meira mæli.“
Skarphéðinn sagði að lokum
að hann teldi að fylla þyrfti uppí
gryfjuna eða girða hana af. „Það
er betra að byrja þetta áður en
alvarlegt slys hlýst af,“ sagði
Skarphéðinn í gær. -gg
Kvótakerfið
„Gula ýsan“
Sjómenn spyrja nú hverjir aðra: Voruðþið að landaþorski eða „gulri
ýsu“? Löndunarskýrslur orðnar marídausar vegna kvótakerfisins
EinarP. Mathiesen: Pað
er mikið leitað eftirþví að
ég farifram með lista og
það eru allir möguleikar
opnir með það. Pegar eru
komnir fram 7 listartil
bœjarstjórnar-
kosninganna í vor
að er aldrei að vita nema
framboðslistarnir í Hafnar-
firði verði 8 við bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor. Það er mjög
mikið leitað til mín með að koma
fram með lista. Eg hef enn ekki
tekið neina ákvörðun í málinu en
tel alla möguleika opna. Eg viður-
kenni að það er stór ákvörðun að
fara fram með iista, en ég tcl mig
hafa mikla reynslu og þekkingu í
bæjarmálunum og einmitt þess
vegna er ég að íhuga þetta mál
mjög vandlega.
Þetta sagði Einar Þ. Mathiesen
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
í Hafnarfirði, en honum var bol-
að af lista flokksins í prófkjöri í
vetur og er hann nú að íhuga sér-
framboð.
Ef Einar býður fram verða
framboðslistar við bæjarstjórn-
arkosningarnar í Hafnarfirði 8 í
vor. Þegar eru ákveðin framboð
Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks, Sjálf-
stæðisflokks, listi óháðra borg-
ara, kvennalisti, og Flokkur
mannsins hyggst líka bjóða fram.
Það væri því synd að segja að
Hafnfirðingar hafi ekki úr nógu
að velja við kosningarnar í vor.
_________________________-S.dór
Sjómenn sem tíðindamaður
Þjóðviljans ræddi við á Snæ-
fellsnesi um síðustu helgi fullyrða
að ekkert sé lengur að marka þær
löndunarskýrslur sem gerðar
eru. Nú spyrja menn hverjir aðra
í verstöðum landsins hvort þcir
hafí verið að landa þorski eða
„gulri ýsu“ eins og þeir nefna það.
„Gula ýsan“ er auðvitað þorsk-
ur sem gefinn er upp sem ýsa til
að treina þorskkvótann og menn
fara ekkert leynt með að þessi
aðferð sé notuð í stórum stíl.
Ýmsar aðrar fisktegundir hafa
einnig tekið á sig gulan lit í munni
sjómanna.
Þá viðurkenna sjómenn einnig
að í stórum stíl sé farið fram hjá
vigt. Það er lítið sem ekkert eftir-
lit með þessum málum og því er
þetta notað í stórum stíl. Sjó-
menn við Breiðafjörð hafa ekki
þurft að nota aðferðina að kasta
vondum fiski í vetur sökum þess
hve gæftir hafa verið með ein-
dæmum góðar.
Sjómenn viðurkenna við hvern
sem er að allar þessar aðferðir
séu notaðar til að komast framhjá
hinu rangláta kvótakerfi, sem
þeir eru mjög mótfallnir.
-S.dór
Þuríður
ísafjörður
Framboðslisti
AB samþykktur
Framboðslisti Aiþýðubandalagsins
á ísafírði við bæjarstjórnarkosning-
arnar 31. maí hefur verið ákveðinn.
Listann skipa eftirtaldir félagar:
1. Þuríður Pétursdóttir, kennari og
bæjarfulltrúi, 2. Smári Haraldsson,
kennari, 3. Gísli Skarphéðinsson,
skipstjóri, 4. Svanhildur Þórðardótt-
ir, skrifstofumaður, 5. Herdís M. Hú-
bner, kennari, 6. Tryggvi Guðmunds-
son, lögfræðingur, 7. Ragnhildur Sig-
mundsdóttir, forstöðumaður, 8.
Bryndís Friðgeirsdóttir, kennari, 9.
Elín Magnfreðsdóttir, bókavörður,
10. Lárus Már Björnsson, fé-
lagsmáalstjóri, 11. Jón Baldvin
Hannesson, skólastjóri, 12. Tryggvi
Guðmundsson, skipstjóri, 13. Élísa-
bet Gunnlaugsdóttir, húsmóðir, 14.
Védís Guðjónsdóttir, nemi, 15. Sig-
múndur Amórsson, verkamaður, 16.
Áslaug Jóhannsdóttir, fóstra, 17.
Eiríkur Guðjónsson, verkamaður,
18. Pétur Pétursson, netagerðarmað-
ur.