Þjóðviljinn - 01.05.1986, Side 1

Þjóðviljinn - 01.05.1986, Side 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA Imaí 1986 fimmtu- dagur 97. tölublað 51. örgangur DJÖÐVIUINN MANNLIF HEIMURINN 1. MAI Skipafélögin Olíulækkun skilar sér ekki Farmgjöld lœkka ekki þráttfyrir verulega olíulœkkun og betri nýtingu kaupskipa við gjaldþrot Hafskips. 200 milljón króna hagnaður hjá Eimskip vegna lœkkandi olíuverðs? Þórður Sverrisson: Ofáœtlað. Erum að vinna upp tap undanfarinna ára. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri: Þarf að kanna farmgjöldin Heimildamenn Þjóðviljans í viðskiptaheiminum telja mjög óeðlilegt að farmgjöld skipafélag- anna hafi ekki lækkað það sem af er þessu ári einkum sé tekið mið af því að olía hefur lækkað um meira en helming á árinu og eftir gjaldþrot Hafskips hefur nýting kaupskipanna orðið miklu betri. Samkvæmt útreikningu sem fagmaður hefur gert fyrir Þjóð- viljann ætti olíuverðlækkunin að skila Eimskipafélaginu rúmum 200 milljónum í hagnað á þessu ári, miðað við verð á Rotterdam- markaði 15. apríl 1986. Er þá gengið út frá reikningum um olí- unotkun skipafélagsins 1985. Þá voru notuð um 36 þúsund tonn af brennsluolíu og kostuðu þau um 330 milljónir króna. Samkvæmt verðlagi 15. apríl sl. myndi þessi olía kosta um 124 milljónir. Þessar tölur voru bornar undir Þórð Sverrisson hjá Eimskipafé- laginu. Sagði hann að þetta verð sem þarna væri miðað við væri mun lægra en það sem Eimskip hefur gefið fyrir olíuna, enda væri bara hluti af henni keyptur í Rott- erdam en töluvert magn væri keypt annarsstaðar í heiminum. Hann sagðist samt ekki geta komið með nákvæmar tölur um hversu mikil lækkunin væri. Sagði hann að olíukostnaður væri ekki nema um 10% af rekstrarút- gjöldum Eimskipafélagsins, og þó hún lækkaði verulega mikið þá lækkuðu rekstrarútgjöldin tæpast um meira en 2-3%. Benti hann á að verulegt tap hefði verið á skipafélögunum undanfarin ár og væri Eimskip nú nú mál að koma rekstrinum í jafnvægi. Georg Ólafsson, verðlags- stjóri, telur fulla ástæðu að at- huga farmgjöld skipafélaganna vegna fjölda ábendinga um þau. —Sáf Sjá bls. 2 Ólöf Briem fyrir framan skrifstofur borgarstjórnar í Austurstræti: Við vonum að borgaryfirvöld muni taka við sér og greiða styrkinn. Mynd: Sig. Kvennaathvarfið Fjártiagsstaðan er slæm Borgin neitar enn að greiða styrk sem samþykktur var við gerð fjárhagsáœtlunar. Ólöf Briem Samtökum um kvennaathvarf: Höfum ekkifengið svarfrá borginni. Skjólstœðingum hefurfjölgað gífurlega Kjarnorkuslysið Meiri skemmdir? London — Sovétmenn sem nú eru undir miklum alþjóðlegum þrýstingi vegna kjarnorku- siyssins í Tsjernóbíl neituðu í gær að þúsundir hefðu látið lífið í slysinu. í tilkynningu frá Sovétstjórn- inni sagði að aðeins tveir hefðu látist og 197 manns hefðu þurft að fara á spítala. Frá Svíþjóð bárust hins vegar þær fréttir að myndir sem teknar hefðu verið í banda- rísku gervitungli virtust gefa til kynna að tveir kjarnakljúfar hefðu bráðnað í kjarnorkuver- inu. Sovéska sjónvarpið sýndi hins vegar ljósmynd í fréttatíma sínum í gær sem sýndi að efsti hluti byggingar utan um kjarn- akljúf hefði eyðilagst. Fréttir um stórfellt tjón væru því ýktar. Sjá bls. 9. IH/Reuter 1. maíblað Að venju fylgir sérstakt 1. maí blað Þjóðviljanum í dag, baráttu- degi launafólksins. Það er að þessu sinni að mestu leyti helgað baráttu kvenna. Sjá einnig leiðara bls. 4 Bandaríkin KrókódíU í öskutunnu Ibúum San Fransiskó borgar í Bandaríkjunum býðst nú að leggja krókódíla sína, banvæna snáka og önnur „skemmtileg“ húsdýr, inn hjá borgaryfirvöld- um ef þeir skyldu vera orðnir leiðir á þeim. Astæðan er sú að sorphreins- unarmenn í borginni hafa lent í hálfgerðum hremningum við vinnu sína. Fólk í borginni á það til að henda „gæludýrum" sínum í ruslafötuna. Einn maður sagðist hafa hent ástralskri tígurslöngu, eiturkóbraslöngu og ýmsum snákum í ruslatunnuna eftir að hafa fryst þær. Hann var hins veg- ar enn með nokkra fimm metra langa krókódfla og sex metra langa Bóa slöngu. Og ætlar ekki að henda þeim strax í ruslið. - IH/Reuter Við gerum okkur auðvitað von- ir um að borgaryfirvöld taki við sér og greiði þennan styrk út innan tíðar. Nú eru liðnar um 3 vikur síðan við fórum fram á að styrkurinn yrði greiddur, en við höfum ekki fengið svar við þeirri beiðni. Það er hins vegar mjög brýnt að við fáum þennan styrk núna og okkur liggur á, sagði Ólöf Briem í fjármálahóp Samtaka um kvennaathvarf í samtali við Þjóð- viljann í gær. Borgarstjórn samþykkti við af- greiðslu fjárhagsáætlunar að veita kvennaathvarfinu 625 þús- und króna styrk á þessu ári, en hann hefur enn ekki verið greiddur, þrátt fýrir að farið hafi verið fram á það við borgaryfir- völd. Á fundi borgarráðs í vik- unni lagði Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Abl. til að styrkur- inn yrði greiddur, en þá var mál- -inu frestað. Ólöf sagði í gær að fjárhags- staða athvarfsins væri mjög slæm, enda hafi skjólstæðingum þess fjölgað verulega. „í fyrra voru að meðaltali 8 konur og börn í at- hvarfinu á dag, en síðan um ára- mót hafa þetta verið 15-20. Núna eru til að mynda 19 konur og börn í athvarfinu,“ sagði Ólöf í gær. -gg-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.