Þjóðviljinn - 27.05.1986, Side 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
AKRANES
BORGARNES
VOPNAFJÖRÐUR
ESKIFJÖRÐUR
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
Auður stóll Sjálfstæðisflokksins vakti mikla athygli og Össur Skarphéðinsson,
sem hélt þrumandi barátturæðu á fundinum, notfærði sér fjarveru flokksins
óspart í gagnrýninni. Mynd -E.ÓIason
Ölfusvatnslandið
65,3% á móti
kaupunum
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunarfyrir
Þjóðviljann ieiðir í Ijós: 65,3% þeirrasemtaka
afstöðu eru mótfallnir kaupum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á jörðinni
Ölfusvatnslandi. Einungis34,7% hlynntur
kaupunum. Innan við þriðjungur blendinn eða
óviss í afstöðu sinni
Iskoðanakönnun Féjagsvísinda-
stofnunar Háskóla íslands, sem
framkvæmd var fyrir Þjóðviljann
nú um helgina reyndist yfirgnæf-
andi meirihluta kjósenda í
Reykjavík vera andvígir kaupum
borgarinnar á jörðinni Ölfus-
vatn, - eða 65,3%, en einungis
34,7% voru hlynnt eða fremur
hlynnt þessum kaupum.
Könnunin var framkvæmd
þann 23. til 25. maí og var leitað
til 800 manna á aldrinum 18 til 80
ára. Upplýsinga var aflað um ým-
iss atriði sem varða borgarstjórn-
arkosningarnar og var spurt fyrir
Þjóðviljann, Morgunblaðið og
fleiri aðilja. Nettó-svörun var 615
manns eða 83%
Spurt var: „í fyrra keypti
Reykjavíkurborg jörðina Ölfus-
vatnsland vegna Hitaveitu
Reykjavíkur fyrir 60 miljónir
króna. Ertu hlynnt(ur) eða
mótfallin(n) þessum kaupum?“.
Niðurstaðan varð eftirfarandi:
Sjálfstœðisflokkurinn
Féll á prófi
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja-
vík hefur fallið á prófi lýðræð-
isins, sögðu flestir frummælenda
listanna, sem bjóða fram til borg-
arstjórnar á fundi DV í gær, þar-
sem auður stóll Sjálfstæðisflokks-
ins stakk í augu. -Karlar stjórna
ekki í þágu kvenna, - reynsla og
menning kvenna verður að ráða
för í stefnumótun þjóðfélagsins,
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, sem talaði fyrir hönd V-list-
ans.
Össur Skarphéðinsson, frá
G-listanum líkti upphafi fundar-
ins við jarðarför, þarsem líkið
vantaði, -en bað Bryndísi afsök-
unar á að hafa fengið að láni jarð-
arfararsögu. Sigrún Magnúsdótt-
ir B-listanum kvað flokk sinn
stefna á miðbæ í Mjóddinni og að
hann hefði ávallt hafnað öfgum
til hægri og vinstri. Bryndís
Schram af A-lista kvað flokk sinn
vilja komast í oddaaðstöðu í
borgarstjórn, en Áshildur Jóns-
dóttir af M-lista kvað Reykvík-
inga ekkert hafa að gera með
stjórnendur sem sæktu fyrir-
myndir sínar austan járntjalds.
Frambjóðendurnir gerðu ítarlega
grein fýrir stefnu lista sinna.
Sæmileg mæting var á fundi
DV, sem fékk klapp fyrir að hafa
haldið fast við lýðræðislegan fund
í Háskólabíói og fjölmargar fyrir-
spurnir bárust.
-óg
Fjöldi Hlutföll Þeir sem taka afstöðu
Mjög hlynnt(ir) 57 9,3 13,3
Fremur hlynnt(ir) 92 15,0 21,4
Fremur mótfallin(n) 105 17,1 24,4
Mjög mótfallin(n) 176 28,6 40,9
Neita að svara 7 1,1
Blendnir, óvissír 178 28,9
Samtals 615 100% 100%
I Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins er fjallað um skrif Þjóð-
viljans um Ölfusvatnsmálið og
sagt: „Má telja fullvíst að fáir
kjósendur hefðu hagt hugmynd
um kaup þessa orkusvæðis, ef
Þjóðviljinn og Alþýðubandalagið
hefðu ekki tekið málið upp á sína
arma.“ Þjóðviljinn hafi skrifað
svo oft og mikið um Ölfusvatn og
Nesjavelli, „frambjóðendur Al-
þýðubandalagsins hafa verið með
málið í tíma og ótíma. Síðan hafa
frambjóðendur Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks farið að kyrja
svipaðan söng...“ Morgunblaðið
segir að með grein borgarstjóra
sl. föstudag hafi málflutningur
andstæðinganna hrunið og allir
„skynsamir menn“ hafi komist að
þeirri niðurstöðu að kaupin hafi
verið nauðsynleg. Samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar-
innar, sem framkvæmd var á
föstudag, laugardag og sunnu-
dag, er meirihluti kjósenda í
Reykjavík ekki skynsamur, - að
mati Morgunblaðsins.
Mun stærri hópur kvenna en
karla er mótfallinn þessum
kaupum og einungis 15,3%
kvenna eru kaupunum hlynnt en
33,7% karla. Einungis 14,6% í
yngsta kjósendahópnum eru
hlynntir kaupunum.
-óg
Sjá bls. 4
Afríkuhlaupið
Framar öllum vonum
Guðmundur Einarsson: Útlitfyrir að 5 miljónir hafi safnast hér á
landi. 15-20 þúsund manns hlupu á landinu
Við höfum ekki nákvæmar
tölur um fjölda þátttakenda,
en gerum ráð fyrir að 15-20 þús-
und manns hafi hlaupið á sunnu-
daginn, sagði Guðmundur Ein-
arsson framkvæmdastjóri Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar þegar
Þjóðviljinn leitaði hjá honum
upplýsinga um Afríkuhlaupið á
sunnudaginn.
„Markmið okkar var að safna
um 3 miljónum króna, en það er
útlit fyrir að alls komi inn 5 milj-
ónir og það er auðvitað framar
öllum vonum. Annars var ekki
þarna um að ræða söfnun fyrst og
fremst, þetta snerist um að sýna
samstöðu. Við vildum sýna
stjórnmálamönnum hér og ann-
ars staðar vilja almennings í þess-
um efnum," sagði Guðmundur.
Söfnunarféð rennur til reksturs
barnaheimilis sem hjálparstofn-
unin mun byggja og reka í Eþíóp-
íu.
Talið er að um 20 miljónir
manna hafi tekið þátt í Afríku-
hlaupinu unr allan heim og að
einn og hálfur miljarður manna
hafi fylgst með í sjónvarpi. Menn
gera sér vonir um að 150 miljónir
dollara hafi safnast.
-gg
Sjá bls. 7
Talið er að 20 þúsund fslendingar hafi hlaupið í Afríkuhlaupinu. Mynd E.ÓI