Þjóðviljinn - 27.05.1986, Qupperneq 4
LEJÐARI
Félagshyggja eða frjálshyggja
í sjónvarpskynningu framboöslistanna í Kóp-
avogi var einkar fróðlegt aö fylgjast með því
regindjúpi sem er á milli félagshyggjusjónar-
miöa annars vegar og frjálshyggju Sjálfstæöis-
flokksins hins vegar. í Kópavogi hefur verið
meirihluti Alþýöubandalags, Framsóknarflokks
og Alþýðuflokksins. Skeleggur málflutningur
Heimis Pálssonar í þættinum varpaöi skýru Ijósi
á þær andstæður sem eru í bæjarfélaginu.
í Kópavogi hefur Sjálfstæðisflokkurinn grímu-
laust mundað brand frjálshyggjunnar við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar bæjarins. Flokkurinn
hefur þar lagt til stórfelldan niðurskurð á útgjöld-
um til félagsmála, til unglingastarfs, málefna
aldraðra, - hann hefur meiraðsegja lagt til að
dagvistarheimilum yrði fækkað. Þess utan hef-
ur Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi lagt til að
fetað yrði í fótspor Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík og þjónustugjöld hækkuð. í staðinn
fyrir þennan niðurskurð og auknar álögur á Kóp-
avogsbúa býður Sjálfstæðisflokkurinn bæjar-
búum uppá meira malbik.
Félagshyggjuflokkarnir benda hins vegar á
nauðsyn þess að áfram sé haldið á braut fé-
lagslegrar samábyrgðar, sem þegar er til fyrir-
myndar í Kópavogi, - og þeir lýsa því allir yfir að
þeir muni vilja starfa áfram saman, fái þeir
traust kjósenda þar til. Alþýðuflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn í Kópavogi fara þannig
ekki í launkofa með stefnu sína en til saman-
burðar má geta þess að enginn flokkur í Reykja-
vík nema Alþýðubandalagið hefur lýst því yfir að
hann muni ekki styðja Sjálfstæðisflokkinn í
borgarstjórn. Æ fleiri gera sér nú grein fyrir því
að Alþýðubandalagið er ótvírætt meginand-
stæðingur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. En í
höfuðborginni einsog í Kópavogi takast á
tvenns konar meginöfl; félagshyggja og frjáls-
hyggja. Þjóðviljinn skorar á kjósendur að efla
viðspyrnu gegn markaðskreddum frjálshyggj-
unnar. í Kópavogi, Reykjavík og um land allt.
Ölfusvatnið -
í óþökk fólksins
í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins kvartar
Sjálfstæðisflokkurinn undan skrifum Þjóðviljans
um kaup Davíðs borgarstjóra á Ölfusvatns-
landi. Morgunblaðið segir að telja megi fullvíst
að fáir kjósendur hefðu haft hugmynd um kaup
þessa svæðis ef Þjóðviljinn og Alþýðubanda-
lagið hefðu ekki tekið málið upp.
I skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar nú
um helgina, sem framkvæmd var fyrir Þjóðvilj-
ann, voru kjósendur í Reykjavík spurðir um af-
stöðuna til Ólfusvatnsmálsins. Vert er að vekja
athygli á því að könnunin fer fram eftir að meint
málsvörn Davíðs borgarstjóra er komin fram í
Morgunblaðinu. Niðurstöðurnar eru mikið áfall
fyrir meirihluta Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
í Ijós kemur að 65,3% þeirra sem taka af-
stöðu eru mótfallnir kaupum Reykjavíkurborgar
á jörðinni Ölfusvatn fyrir 60 miljónir króna. Ein-
ungis 34,7% borgarbúa sem taka afstöðu eru
hlynntir kaupum borgarinnar á Ölfusvatnslandi.
ilnnan við þriðjungur kjósenda í Reykjavík er
blendinn eða óviss í afstöðu til þessa máls, sem
Sjálfstæðisflokkurinn reyndi svo mjög að þagga
niður.
í könnuninni var leitað til 800 manna í Reykja-
vík á aldrinum 18 til 80 ára og voru heimtur
góðar eða um 77%. Yfirgnæfandi meirihluti
allra aldurshópa og beggja kynja er andvígur
kaupum Sjálfstæðisflokksins á jörðinni Ölfus-
vatnsland.
Þessi niðurstaða nákvæmrar skoðanakönn-
unar er alvarleg áminning til Davíðs Oddssonar
og mikill álitshnekkir fyrir meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík. Hún sýnir að meirihluti
kjósenda í Reykjavík lætur sér ekki nægja þögn
Morgunblaðsins, meirihlutinn sættirsig ekki við
stjórnarháttu Sjálfstæðisflokksins. í þessu tilfelli
hafa fjármálaumsvif meirihlutans í borgarstjórn-
inni verið í þágu lítils minnihluta - í óþökk meiri-
hlutakjósenda. -óg
KUPPT OG SKORHE)
Helstu
andstæðingarnir
Morgunblaðiö fjallar í Reykja-
víkurbréfi um kosningabaráttuna
í höfuðboginni. Tvennt er einkar
athyglisvert í þessu bréfi; annars
vegar hræðsla og óöryggi Sjálf-
stæðisflokksins og hins vegar
hvernig Sjálfstæðisflokkurinn
lítur á Þjóðviljann og Alþýðu-
bandalagið sem helstu andstæð-
inga sína. í þessu klippi birtum
við nokkur sýnishorn:
„Alþýðubandalagið eða rétt-
ara sagt málgagn þess, Þjóðvilj-
inn, hefur sótt fram af mestu
kappi gegn Sjálfstæðisflokknum í
kosningabaráttunni í Reykjavík.
Hafa Alþýðubandalagsmenn
greinilega ákveðið fyrir mörgum
vikum að haldið skyldi þannig á
málum, að spillingar-,
ofstjórnar- og óstjórnarorði
skyldi komið á Sjálfstæðisflokk-
inn, meirihluta hans í borgarst-
jórninni og Ðavíð Oddsson borg-
arstjóra. Hver uppákoman rak
aðra í flennistórum forsíðufrétt-
um Þjóðviljans...“
Pögn
Morgunblaðsins
í Reykjavíkurbréfinu má sjá á,
að þögninni hefur verið aflétt af
Ölfusvatnsmálinu: „Má telja
fullvíst, að fáir kjósendur hefðu
haft hugmynd um kaup þessa
orkusvæðis, ef Þjóðviljinn og Al-
þýðubandalagið hefðu ekki tekið
málið upp á sína arma.
Fyrir áhugamenn um kosning-
aáróður væri athugandi að gera
úttekt á því hve lengi og oft Þjóð-
viljinn hefur skrifað um Ölfus-
vatn og Nesjavelli á undanförnum
vikum. Frambjóðendur Alþýðu-
bandalagsins hafa verið með mál-
ið á vörunum í tíma og ótíma.
Síðan hafa frambjóðendur Al-
þýðuflokks og Framsóknarflokks
farið að kyrja svipaðan söng.
Kjósendur komust ekki hjá því að
álykta sem svo, að hér væri um
mikilsverða og umdeilanlega
ákvörðun að ræða.
Látið var að því liggja að borg-
arstjóri treysti sér ekki til að ræða
málið og til þess að setja punktinn
yfir i-ið og taka af öll tvímæli um
að þctta væri allt hið versta
hneyksli bentu Alþýðubandalags-
menn á, að Morgunblaðið hefði
reynt að þegja málið í hel“.
Síðan vilja þeir að sjálfsögðu
meina að Mogginn og Davíð
hafði bitið af sér gagnrýnina með
afskaplega málefnalegum rök-
semdaflutningi.
Gorgeirinn
í Þjóðviljanum
Morgunblaðinu finnst náttúr-
lega að enginn framboðslisti til
borgarstjórnar, nema Sjálfstæð-
isflokkurinn sem vann síðustu
kosningar á uppdiktuðum
sprungum við Rauðavatn,- hafi
heildstæða stefnu í borgarmál-
um. Þá segir:
„Raunar eiga Alþýðubanda-
lag, Kvennalisti og Flokkur
Mannsins það sameiginlegt, að
allir flokkarnir þrír vilja að kosn-
ingarnar snúist um launamálin.
Alþýðubandalagsmenn eru þó í
vanda vegna þessa málaflokks,
þar sem þeir eru að ráðast á for-
vígismenn eigin flokks í verka-
lýðshreyfingunni, þegar þeir
gagnrýna síðustu kjarasamninga.
Er grunnt á því góða innan
flokksins vegna þessa máls og
rimma milli frambjóðenda. Bíða
verkalýðsforingjar þögulir eftir
úrslitum kosninganna, fari Al-
þýðubandalagið ver út úr þeim en
gorgeirinn í Þjóðviljanum bendir
til munu þeir gera nýja atlögu að
stjórnendum blaðsins.“
Að öðru leyti er ekki fremur en
venjulega fjölyrt í Morgunblað-
inu um þau átök sem stríðust
standa í borgarstjórnarkosning-
unum, um einræði eða lýðræði,
frjálshyggju Sjálfstæðisflokksins
eða félagshyggju vinstri manna.
Hvert er Alþýöu-
flokkurinn að fara
Mikla athygli hefur vakið á síð-
asta skeiði kosningaslagsins hve
Alþýðuflokkurinn er fljótandi.
Ekki nóg með að oddvitar fram-
boðslistans geti ekki kveðið upp-
úr með hverjum þeir vilji mynda
meirihluta í Reykjavík, - heldur
segja skoðanakannanir að helm-
ingur þeirra sem ætli að kjósa A-
listann í borgarstjórnarkosning-
um ætli að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn í þingkosningum. Helmingur
kjósenda Alþýðuflokksins styður
ríkisstjórnina - og svona mætti
fleira telja sem gefur vísbendingu
um það að flokkurinn sé mjög
„óáþreifanlegt" fyrirbæri í póli-
tíkinni.
í áróðrinum feta kratar meira
og minna ótroðnar slóðir, sem
hljóta að kosta gífurlegt fé.
Auglýsingar flóa yfir alla bakka,
- og með tilheyrandi blóma-
skrúði og blikkeríi er höfðað til
kjósenda með all sérstæðum
hætti og ekki alltof pólitískum.
Allt þetta leiðir til þess að menn
spyrja hvort Alþýðuflokkurinn
sé á leið í kosningar - eða
skemmtibátahöfn?
-óg
DJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: öarðarGuðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), lng-t
ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H.
Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, SigurðurÁ. Frið- '
þjófsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkaiestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglysingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgrelðslustjóri: Hörður Jónsson.
Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Siðumúla 6, Reykjavík, síml 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6 símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 40 kr.
Helgarblöð: 45 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 450 kr.
4 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Þriðjudagur 27. mai 1986