Þjóðviljinn - 27.05.1986, Blaðsíða 7
Umsjón:
Garðar
Guðjónsson
Á flótta undan réttvísinni? Varla, en kapp káerringsins er mikið.
Afríkuhlaupið
Fegurðardrottningar létu sig ekki vanta í hlaupið og tóku greinilega þátt af mikilli innlifun.
Þátttakendur höfðu sína hentisemi um hvort þeir hlupu, gengu eða hjóluðu, en
þessi er greinilega í miklu stuði og leggur sig allan fram.
Miljónir tóku
sprettinn
Söfnunarféð frá íslandi rennurtil reksturs
barnaheimilis fyrir munaðarlaus börn
Umfangsmesti íþróttavið-
burður fram til þessa, segja
sumir um Afríkuhlaup manna
um allan heim. Talið er að um
20 miljónir manns hafi hlaupið
til að sýna bræðrum sínum og
systrum í Afríku samstöðu og
upphæðirnar sem söfnuðust
eru geysilegar.
íslendingar létu ekki sitt eftir
liggja og skokkuðu grimmt um
allt land. Að sögn Guðmundar
Einarssonar hjá Hjálparstofnun
kirkjunnar var hlaupið á yfir 40
stöðum um landið og talið að 15-
20 þúsund manns hafi dregið
fram hlaupaskóna. Þær fimm
miljónir króna sem talið er að
hafi safnast hér á landi, munu
renna til reksturs barnaheimilis
fyrir munaðarlaus börn í Haik í
því hrjáða landi Eþíópíu. Hjálp-
arstofnun kirkjunnar hefur feng-
ið leyfi til að byggja þar heimili
fyrir þessi börn, en sem stendur
er starfsemin rekin við harla
frumstæðar aðstæður.
f Reykjavík brá ljósmyndari
Þjóðviljans vélinni á loft á sunnu-
daginn og hér á síðunni getur að
líta nokkrar myndir eftir E.Ól.
-gg-
Þrlðjudagur 27. maí 1986 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 7