Þjóðviljinn - 27.05.1986, Page 10
AKRANES
Jóhann Ársælsson
Snertir
mig meira
persónulega
Aðgerðir meirihlutans í
atvinnumálum tilviljanakenndar.
Verður að grynnka á skuldum
hitaveitunnar. Ríkið greiðir
orkuverðið niður. Leggjum allt í
sölurnar til að fá tvo inn
„Eg er nú í fyrsta sinn í bar-
áttusæti í bæjarstjórnarkosn-
ingum og mér finnst það mjög
spennandi. Hugsanleg úrslit
snerta mig meira persónulega
og það ýtir á mig að gera
jafnvel enn betur en áður,“
sagði Jóhann Ársælsson
skipasmiður og annar maður á
G-listanum á Akranesi í sam-
tali við Þjóðviljann.
Jóhann hefur setið í bæjar-
stjórn Akraness tvö kjörtímabil,
fyrir I-listann 1974-1978 og fyrir
G-listann 1978-1982. Þá dró hánn
sig nokkuð í hlé, en nú er hann
sem fyrr segir kominn í fremstu
víglínu á ný.
Hann hefur starfað mikið að
atvinnumálum á þessum árurn og
var spurður um stefnu Alþýðu-
bandalagsins í þeim efnum fyrir
næsta kjörtímabil.
Ný atvinnustefna
„Aðgerðir núverandi meiri-
hluta í atvinnumálum hafa verið
mjög tilviljanakenndar og í raun
og veru hefur ekki verið unnið
eftir neinni stefnu sem hægt er að
nefna svo. Eitt dæmi urn þessa
tilviijanastefnu meirihlutans er
fyrirgreiðsla gagnvart Henson
annars vegar og Iðngörðum hins
vegar. Henson voru gefin gatna-
gerðargjöld, en þegar Iðngarðar
sóttu um sömu fyrirgreiðslu
fengu þeir neitun.
Það er ljóst að það þarf að efla
atvinnulíf á Akranesi til muna ef
vel á að vera. Við bendum á leiðir
til þess í stefnuskrá okkar, og þar
vil ég nefna að það verður að ráða
atvinnumálafulltrúa, sem yrði
starfsmaður atvinnumálanefnd-
ar. Verkefni hans yrði margþætt
og ekki vafi á því að með tilkomu
hans myndi starf atvinnumála-
nefndar margeflast. Atvinnu-
málanefnd verður einnig að hafa
aðgang að fjármagni og við telj-
um nauðsynlegt að Fram-
kvæmdasjóði verði lagt til mun
meira fé en verið hefur. Öflugur
Framkvæmdasjóður er forsenda
þess að bærinn geti haft frum-
kvæði í atvinnumálum. Þannig er
hægt að styrkja og veita lánsfé til
aðila sem hafa áhuga á að stofna
til nýrrar atvinnustarfsemi. Það
gerist nefnilega ekkert nema
menn hafi fé milli handa, það ger-
ist ekkert af sjálfu sér.“
Niðurgreiðslur
fyrir alla
Hitaveita Akraness og Borgar-
fjarðar hefur átt í miklum rek-
strarcrfiðleikum og gjaldskrá
hennar hcfur verið með því hæsta
sem þekkist. Hvað er þar til ráða?
„Það verður að grynnka á
skuldunt hitaveitunnar og það
veröur ekki gert nema með því að
ríkið yfirtaki hluta þeirra. Ríkið
verður að koma til liðs við HAB
Feðginin Gerður Jóhanna og Jóhann, sem er annar maður á G-listanum og í baráttusæti. Mynd: gg.
og það er ekki nema eðlilegt að
það geri það. Það er engin von til
þess að fyrirtækið geti unnið sig
út úr þessum vanda öðruvísi.
Orkunotendur á þessu svæði
eru meðal þeirra 20 þúsund sem
ekki njóta niðurgreiðslna á orku-
verði, en önnur 60 þúsund njóta
verulegra niðurgreiðslna. Þaðerí
okkar augum mikið réttlætismál
að þessar niðurgreiðslur renni til
allra. Þeir sem kaupa orku frá
RARIK fá árlega rúmlega 20
þúsund krónur greiddar frá rík-
inu, en til þess að viðskiptamenn
HAB njóti sömu kjara þarf ekki
að greiða með þeim nema um 11
þúsund krónur. Þessar tölur eru
miðaðar við sömu forsendur og
gefa nokkuð rétta mynd af þeirri
mismunun sem þarna er um að
ræða. Bæjaryfirvöld verða þegar
á næsta kjörtímabili að beita
ríkisvaldið þrýstingi til að fá þess-
ar niðurgreiðslur.
Þetta er vissulega hægt og ég
get nefnt það hér sem dæmi, að
þegar orkujöfnunargjaldið var
lagt niður í vetur, hélt ríkið áfram
að greiða þeim sem þess nutu í
gildi orkujöfnunargjalds beint úr
ríkissjóði."
Svikin kosningaloforð
„Meirihlutinn hefur staðið sig
alveg sérstaklega illa í holræsa-
málum. Þau eru enn í mesta ó-
lestri þrátt fyrir að hafa verið
mikið áhugamál allra flokka fyrir
síðustu kosningar. Það er
reyndar að finna í málefnasamn-
ingi þessa meirihluta grein þar
sem segir að gert skuli átak í þess-
um efnum, en það hefur sama og
ekkert verið gert. Þetta er eitt af
mörgum sviknum kosningalof-
orðum meirihlutans og fólk sem
leggur leið sína um fjörur bæjar-
ins getur ekki annað en rekið
augun í þetta.
Við munum beita okkur fyrir
því á næsta kjörtímabili að unnið
verði að því samkvæmt sex ára
áætlun að koma öllum skolpút-
hlaupum bæjarins út fyrir stór-
straumsfjöruborð. “
Sæti í tvísýnu
Þú situr í öðru sæti listans og
samkvæmt skoðanakönnunum
ertu ýmist úti eða inni. Hvernig
heldurðu að þetta endi?
„Samkvæmt skoðanakönnun-
um er ég nú yfirleitt öfugum
megin við takmarkið, en við
munum leggja allt í sölurnar til að
fá tvo menn inn í bæjarstjórn. Þá
verður líka öllu ti! skila haldið.
Annars tekur maður svona
könnunum alltaf með ákveðnum
fyrirvara. Við höfum farið á fjöl-
marga vinnustaði í þessari kosn-
ingabaráttu og móttökurnar hafa
verið mjög góðar. Við gerum
okkar besta,“ sagði Jóhann.
- gg-
Ragnheiður Þorgrímsdóttir
Meirihlutann skortir frumkvæði
Umtalsverð launahækkun mun skapa gottfordæmi. Leggjum sérstaka áherslu á fjölgun dagheimila.
Meirihlutinn erfiður þröskuldur í húsnæðismálum skólanna
Það hefur ýmislegu verið
abotavant hér í bænum á
þessu kjörtímabili og má þar
t.d. nefna að bærinn hefur ekki
gegnt þeirri skyldu sinni að
hafa frumkvæði að því að
kanna þörf fyrir ný atvinnufyr-
irtæki og möguleika á upp-
byggingu atvinnulífsins
næstu árin, sagði Ragn-
heiöur Þorgrímsdóttir
bæjarfulltrúi og 3. maður á G-
listanum í samtali við Þjóðvilj-
ann. Ragnheiður gaf ekki kost
á sér ofar en í þriðja sæti í for-
vali sem háð var í vetur, en hún
hefur setið eitt ár í bæjarstjórn.
Alþýðubandalagið leggur
mikla áherslu á atvinnumál í
þessari kosningabaráttu og hefur
m.a. lýst sig reiðubúið til að beita
sér fyrir því strax að loknum
kosningum að lágmarkslaun
bæjarstarfsmanna verði 30 þús-
und krónur.
Akranes er
láglaunasvæði
„Ef bærinn hefur frumkvæði
að því að hækka laun starfs-
manna sinna er ég sannfærð um
að það mun skapa gott fordæmi
hér í bænum. Þetta kostar bæjar-
sjóð ekki mikið, en þýðir hins
vegar grundvallaruppstokkun á
samningum við bæjarstarfs-
menn,“ segir Ragnheiður þegar
spurt er um þetta atriði.
„Það er engin spurning að
Akranes er láglaunasvæði, sér-
staklega hvað konur snertir. Af
þeim 83 bæjarstarfsmönnum sem
hafa dagvinnulaun undir 30 þús-
und krónum eru 60 konur. Auk
þess er það þekkt staðreynd að
þegar samdráttur verður í
atvinnulífi hér, bitnar það fyrst
og fremst á konum.“
Áhersla á
dagheimili
„Eitt mesta jafnréttismálið hér
í bæ er að auka dagvistarrými
fyrir börn og þar verður að leggja
sérstaka áherslu á fjölgun dag-
heimila. Eina afrek núverandi
meirihluta bæjarstjórnar í þeim
efnum var að ljúka við byggingu
dagheimilisins við Skarðsbraut,
sem var langt komin í upphafi
kjörtímabilsins. Þegar því var
lokið heyrðust þær raddir frá
meirihlutanum að nú væri þörf-
inni fyrir dagheimili fullnægt í bili
og var þar vitnað í könnun sem
hafði verið gerð á vegum félags-
málastjóra.
Önnur könnun sem iðjudeild
verkalýðsfélagsins gerði sýnir
hins vegar allt annan raunveru-
leika og leiðir í Ijós að biðlistar
hjá bænum segja ekki nema brot
af sögunni. Þörfin er mun meiri
en menn hafa haldið og í raun og
veru er þörf á stórátaki í byggingu
dagheimila hér.“
Skólamál
í ólestri
„Staðan í húsnæðismálum
grunnskólanna á Akranesi er ein
sú versta á landinu. Akranes á
alla möguleika á að vera þekktur
skólabær, en til þess að svo megi
verða þarf að sinna undirstöðu-
námi mun betur en gert hefur
verið.
Skólanefnd grunnskólanna
hefur á þessu kjörtímabili og því
síðasta haft það hlutverk fyrst og
fremst að berjast fyrir því að
húsnæðiskostur skólanna verði
bættur. Um það hefur verið sam-
staða í nefndinni, hvar í flokki
sem menn standa, að þrýsta á bæ
og ríki að gera með sér samning
um uppbyggingu skólanna, og nú
blasir þessi samningur loks við.
Þar ber að þakka samstöðu í
skólanefnd, en erfiðasti þrösk-
uldurinn hefur ekki verið ríkið
heldur meirihluti bæjarstjórnar.
Þeir sem þar fara með völdin hafa
staðið þessum málum fyrir
þrifum og það var ekki fyrr en nú í
vetur að þeir fóru að átta sig á
mikilvægi málsins. En seinagang-
urinn hefur orðið til þess að
Grunnskóli getur ekki hýst alla
sína nemendur næsta vetur,
þannig að skaðinn er að nokkru
skeður."
Ragnheiður sagðist að lokurn
vona að Alþýðubandalaginu tæk-
ist að koma tveimur mönnum inn
í bæjarstjórn. „Ef bæjarbúar á
annað borð meta störf bæjarfull-
trúa einhvers vil ég skora á þá að
koma Jóhanni Arsælssyni inn
ásamt Guðbjarti. Jóhann hefur
sýnt og sannað að hann á vel
heima í bæjarstjórn,“ sagði hún
að lokum.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 27. maí 1986