Þjóðviljinn - 06.06.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
6
júní
1986
föstud-
dagur
125. tölublað 51. örgangur
DJOÐVIUINN
LISTAHATIÐ
MANNLÍF
HEIMURINN
HELGIN
Melaskólamálið
Einróma fbrdæming
Almenn reiði innan kennarastéttarinnar. Kennarasamband Islands
ályktar gegn frœðsluráði. Forystumenn kennara lýsa andúð sinni
Sú ákvörðun meirihluta
fræðsiuráðs Reykjavíkur að
hafna Rögnu Ólafsdóttur í starf
yfirkennara við Melaskóla mætir
nú vaxandi andúð innan kennara-
stéttarinnar, ekki síst eftir þær yf-
irlýsingar sem fræðsluráðsfull-
trúar hafa gefið í Þjóðviljanum og
Morgunblaðinu. í þessum yfirlýs-
ingum kemur berlega fram að
vegna skoðana sinna og
sannfæringar er Rögnu Ólafs-
dóttur ekki treyst til að gegna
starfl yfirkennara. Þá er mikil
reiði vegna þeirra grófu ummæla
sem þau Bragi Jósepsson og Bessí
Jóhannsdóttir létu sér um munn
fara í viðtali við Þjóðviljann sl.
miðvikudag.
Stjórn Kennarasambands ís-
lands kom saman í gær til að ræða
afgreiðslu fræðsluráðs og þau
ummæli sem framangreindir aðil-
ar hafa viðhaft máli sínu til skýr-
ingar. í ályktun sem samþykkt
var í lok fundarins segir stjórn
Kennarasambandsins það „með
öllu óþolandi að umsækjendur
um stöður innan skólakerfisins
verði fyrir slíkum atvinnurógi og
ærumeiðandi ummælum“. Enn-
fremur vekur stjórn Kennara-
Angóla
S-Afríka
gerir árás
Herskip S-
Afríkumanna gerðu í
gœrmorgun árás á
hafnarborg í A ngóla
ogsökktu meðal
annars tveimur
skipum, eftirþvísem
fréttastofa
Angólastjórnar
tilkynnti ígœr
Lissabon - Fréttastofa Angóla-
stjórnar tilkynnti í gær að S-
Afríkumenn hefðu gert árás á
skip í höfn í bænum Namibe í
suðvestur Angola í dögun í
gær.
Eftir því sem fréttastofan sagði
í fréttatilkynningu sem komið var
á framfæri í Lissabon síðdegis í
gær, komu froskmenn fyrir
sprengjum á þremur skipum. Eitt
þeirra sökk og tvö skemmdust.
Þá var flugskeytum skotið á elds-
neytistanka í landi, einn eyði-
lagðist og tveir skemmdust.Ekki
var minnst á mannfall eða meiðsl.
Namibe er ein af stærstu hafn-
arborgunum í Angóla, í 250 km
fjarlægð frá Namibíu. Angop
fréttastofan sagði að árásin væri
enn eitt dæmið um árásarstefnu
S-Afríkumanna sem beindist
frekar gegn óbreyttum almenn-
ingi en hernaðarlegum skot-
mörkum.
sambandsins athygli á hvernig
unnið er gegn ákvæðum laga um
embættisgengi kennara og skóla-
stjóra, en þar er skýrt kveðið á
að taka beri tillit til
um
menntunar, starfsaldurs, starfs-
reynslu og umsagna um starfs-
hæfni umsækjenda. Öll þessi at-
riði voru hins vegar fótum troðin í
meðförum fræðsluráðs . Krefst
Kennarasambandið þess að fjall-
að sé um umsóknir í samræmi við
lög og reglur.
Sjá bls. 3
V-Pýskaland
Miljón orma málið
Köln - Arið 1981 skreiddust
miljón ormar á brott úr al-
menningsgarði í Köln.
Ormarnir voru í eigu Luzie
Wilms sem ræktar orma. Hún
lánaði forstöðumönnum almenn-
ingsgarða í borginni hluta af
ormasafni sínu til tilraunastarf-
semi en segir nú að þeir hafi allir
haldið á brott vegna þess að þeir
fengju ekki nægilegt fæði. Hún
fer nú fram á rúmar sjö miljónir í
skaðabætur. Borgaryfirvöld af-
neita ákærunum og hafa boðið
Wils tvo miða í dýragarðinn.Reuter
Það þarf mörg orð
til a ð lýsa Kína
Það er enginn vegur að ætla að lýsa öllu því sem fyrir augun bar og allri upplifuninni, en ég get svo sem reynt að segja þér frá
einhverju. En það getur enginn skilið tilfinninguna nema sá sem hefur komið til Kína. Já ég ætla sko aftur, einhvern tíma. Sjá
viðtal við Egil Ólafsson í næsta sunnudagsblaði.
Órói
Kosningar í haust?
Erfiðleikar viðfjárlagagerð - vaxandi verðbólga í haust og nœsta vetur
-fyrirsjáanlegarskattahœkkanir-nýir kjarasamningar um áramót.
Alltþetta veldurþvíað menn ístjórnarflokkunum eru íalvörufarnir
að tala um þingkosningar seint íhaust
r
Ikjölfar sveitarstjórnarkosning-
anna hafa menn velt því fyrir
sér hvort stjórnarflokkarnir
muni rjúfa þing og boða til AI-
þingiskosninga seint í haust.
Fyrirliðar stjórnarflokkanna
höfnuðu þessari kenningu daginn
eftir sveitarstjórnarkosningarn-
ar. Nú er aftur á móti mikið um
fundahöld hjá æðstu mönnum
flokkanna þar sem þetta er rætt í
fullri alvöru. Þeim vex nú fylgi
innan stjórnarflokkanna sem
hafa viljað rjúfa þing í haust
vegna fyrirsjáanlegra erfiðleika
hjá ríkisstjórninni og efna til
þingkosninga.
Fjölmargir aðilar, þar á meðal
áhrifamenn innan stjórnarflokk-
anna, sem Þjóðviljinn hefur rætt
við, benda á að auknar líkur séu á
haustkosningum. Þeir benda á að
ríkisstjórnin standi frammi fyrir
óleysanlegum vanda varðandi
fjárlagagerðina. Fjárlagagatið
verði á bilinu 3-4 miljarðar og
engin leið sé til að leysa það nema
auka skatta eða taka erlend lán.
Skuld ríkissjóðs við Seðlabank-
ann, sem var 4 miljarðar um síð-
ustu áramót hefur vaxið mjög.
Þá benda hinir sömu á að sú
verðbólga sem reiknuð var niður
við gerð síðustu kjarasamninga
muni óhjákvæmilega fara aftur
uppá við strax í haust, jafnvel
þótt allar ytri aðstæður hafi batn-
að. Og loks er því haldið fram að
ríkisstjórnin óttist afleiðingar
komandi kjarasamninga, fyrir
sig. Hún verði síðan að standa
frammi fyrir kjósendum að öllu
þessu loknu og gerðu næsta vor,
ef hún situr út kjörtímabilið.
Loks er á það bent að lands-
byggðarþingmenn stjórnarflokk-
anna muni þrýsta mjög á um
aukið fjármagn til ýmissa fram-
kvæmda við hafnir og flugvelli úti
á landi o.fl. Sá niðurskurður sem
ríkisstjórnin hefur staðið fyrir
varðandi opinberar framkvæmd-
ir úti á landi og til sveitarfélag-
anna séu svo óvinsælar að úr
verði að bæta. Þetta fé sem þing-
mennirnir munu fara fram á er
ekki til og verður því að koma til
lántaka erlendis eða aukin skatt-
heimta.
Þegar allt þetta sé lagt saman
liggi í augum uppi að líkur á þing-
kosningum í haust hafi aukist til
mikilla muna.
-S.dór