Þjóðviljinn - 06.06.1986, Qupperneq 2
EGILSSTAÐIR
Góðir kennarar!
Nú er tækifæriö aö bæta bág laun.
Aldrei þessu vant eru lausar þrjár almennar
kennarastööur við Egilsstaöaskóla á næsta
skólaári auk þess sem sérkennara vantar aö sér-
deild.
Flutningsstyrkur greiddur og ódýrt húsnæði í
boði.
Áhugasamur kennara- og nemendahópur mun
taka vel á móti Þér.
Frekari upplýsingar gefur Ólafur eða Helgi í síma
97-1146 (heimasímar: Ólafur 97-1217, Helgi 97-
1632).
Skólanefnd Egilsstaðaskólahverfis
fgf Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
gatnamálastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboð-
um í „göng undir Reykjanesbraut sunnan Álfa-
bakka".
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10 þús. skila-
tryggingu.
Tilboðin veröa opnuö á sama stað, fimmutdaginn
19. júní nk. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYK JA VIKURBORGAR
Frikirkjuvogi 3 Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
gatnamálastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboö-
um í gerö stíga á nokkrum stööum í borgar-
landinu.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10 þús. skilt-
ryggingu.
Tilboöin veröa opnuð á sama stað, miðvikudag-
inn 18. júní nk. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
F11k11k|iivcgi 3 Simi 25800
DALVÍKURSKOLI
Kennarar - kennarar
Aö Dalvíkurskóla vantar kennara í eftirtaldar
kennslugreinar:
íþróttir, tungumál, stæröfræöi og almenna
kennslu. Þá vill skólinn ráöa sérkennara fyrir
næsta skólaár.
Dalvíkurskóli er grunnskóli og viö skólann er
starfrækt skipstjórnarbraut sem útskrifar ne-
mendur með fyrsta stigs skipstjórnarpróf. I skóla-
num eru 300 nemendur.
Kennurum verður útvegaö ódýrt leiguhúsnæði.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma (96)61380/
(96)61491.
Skólanefnd Dalvíkur
FRÉTTIR
Gróður
illa sarottið
Víða
r
AVestfjörðum, Norðurlandi og
N-Austurlandi er gróður afar
lítið farinn að taka við sér. Þar
hefur verið mjög kalt það sem af
er sumri. Víða eru tún aðeins far-
in að taka á sig græna slikju, en
engin nái er komin enn. Úthagar
eru aftur á móti ennþá gulir yfir
að líta. Nú er aftur á móti farið að
hlýna nokkuð og batnar ástandið
þá væntanlega fljótt.
Óttar Björnsson hjá Búnaö-
arfélaginu sagði að menn ættu
ekki von á kali í túnum víða, þó
það væri til eins og í Þistilfirði og
Köldukinn. Hann sagði að yfir-
leitt væri lítill sem enginn klaki í
jörðu og því myndi gróður taka
fljótt við sér þegar hlýnar og væt-
ir.
Sunnan fjalla tók gróður lítið
við sér í maí vegna þurrka og
kulda. Nú hefur alveg skipt um,
hlýindi og úrkoma undanfarinna
daga hafa bætt úr þannig að
gróður er kominn vel af stað bæði
sunnan og vestanlands og horfur
hjá bændum frekar góðar á þess-
um svæðum.
-S.dór
Þau hafa haft veg og vanda af uppsetningu sýningarinnar í Sjóminjasafninu, Gyða Gunnarsdóttir safnvörður, Gils
Guðmundsson formaður stjórnar og Páll V. Bjarnason arkitekt. Ljósm. Sig.
Sjóminjasafnið
Syning
Nú stendur yfir sýning í Sjó-
minjasafni íslands í Bryde-
pakkhúsinu í Hafnarfirði á safn-
munum tengdum gufuskipatíma-
bilinu á íslandi, þ.e. siglingum,
togaraútgerð og saltfiskverkun.
Þar er að finna líkön, málverk,
Ijósmyndir og teikningar af fjöl-
mörgum gufuskipum og einnig ít-
arleg úttekt á Coot GK 310, fyrsta
á gufuskipum
togara í eigu íslendinga.
Sjóminjasafnið er eins og áður
sagði í Bryde-pakkhúsinu í hjarta
Hafnarfjarðar, en það hús var
byggt um 1865 en endurbyggt
fyrir nokkrum árum. Hefur það
nú verið sniðið að nútíma kröfum
um safnahús. Þar er að finna
minjar um lífsbaráttu íslendinga
tengda sjónum langt aftur í aldir
og eftir megni reynt að setja upp
sérstakar sýningar eins og þá sem
nú stendur yfir,
Forstöðumaður Sjóminja-
safnsins er Gyða Gunnarsdóttir
en formaður stjórnar þess er Gils
Guðmundsson. Það er opið frá
og með 7. júní alla daga vikunnar
nema mánudaga frá kl. 14.00-
18.00.
Fyrirtœki
Námskeið fyrir konur
Rekstrartæknideild Iðntækni-
stofnunar efnir í næstu viku til
námskeiðs um stofnun og rekstur
fyrirtækja, sem sérstaklega er
ætlað konum. Kcnnslustunda-
Ijöldi og námsefni er hið sama og
á fyrri námskeiðum deildarinnar
um fyrirtækjastofnun, en bætt
verður við þáttum, sem snerta
konur sérstaklega og samkvæmt
ábendingum kvenna kennt utan
hefðbundins vinnutíma, þrjú
kvöld og einn laugardag. Nám-
skeiðið verður haldið í húsnæði
Iðntæknistofnunar á Keldnaholti
10., 11. og 12.júníkl. 19-22 og 14.
júníkl. 9-16. Nánari upplýsingar í
síma 68-7000.
Meðal efnisþátta á nám-
skeiðinu eru: Frumkvæði, við-
skiptahugmynd þátttakenda,
skipulag og stjórnun, markaðs-
greining, vöruþróun, fjármögn-
un og fleira og auk þess sérstakur
þáttur um konur í fyrirtækjarek-
stri.
Aðdragandann að sérstöku
námskeiði fyrir konur á þessu
sviði má rekja til fundar, sem ný-
lega var haldinn hjá Iðntækni-
stofnun af hópi áhugafólks um
„þróunarverkefni um stofnun
smáfyrirtækja, ætlað konum".
Þar sögðu tvær konur frá Norður-
löndum, Ellen Sjödin frá Statens
Teknologisk Institut í Noregi og
Margareta Bergmark frá Utveck-
lingsfonden í Svíþjóð, frá starf-
semi, sem farið hefur fram í þeim
löndum og miðar að því að örva
hlutdeild kvenna í fyrirtækja-
rekstri. Þar hafði komið í ljós, að
fáar konur nýttu sér almenna
fræðslu um stofnun fyrirtækja,
sem í boði var, og var því farið út
á þá braut að sníða námskeið sér-
staklega að þörfum kvenna. Mik-
ill áhugi hefur verið á þeim nám-
skeiðum og árangur skilað sér í
því, að fleiri konur hafa lagt út í
að reka eigin fyrirtæki.
Sauðárkrókur
Slæmt
atvinnuastand
Atvinnuástand á Sauðárkóki er
með bágara móti um þessar
mundir vegna þess að tveir af
þremur togurum staðarins eru í
lamasessi. Ekki er þó um mikið
atvinnuleysi að ræða á meðal
fuUvinnandi manna en útlit fyrir
að stór hluti unglinga sem treystu
á sumarvinnu, fái hana ekki.
Drangey SK 1 er í lengingu úti í
Þýskalandi og kemur í fyrsta lagi
til heimahafnar eftir mánuð eða
þar um bil. Skafti SK 3 bræddi úr
aðalvél í síðasta mánuði og er því
úr leik fram eftir sumri. Hegranes
SK 2 er því einn togara staðarins
að veiðum og því ekki svo mikill
afli sem berst á land að hægt verði
að útvega öllum vinnu.
BSF Kópavogs
Aðalfundur
Aðalfundur Byggingasamvinnufélags Kópavogs verður haldinn föstudag-
inn 13. júní 1986 kl. 20.30 í Þinghól Hamraborg 11 í Kópavogi.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Stjórnarkjör.
3. Önnur mál.
Stjórnin.