Þjóðviljinn - 06.06.1986, Side 3
FRETTIR
Morgunblaðið staðfesti í gær
grun manna um að meirihluti
fræðsluráðs Reykjavíkur hefði
hafnað Rögnu Ólafsdóttur í starf
yfirkennara Melaskóla vegna
meintra óæskilegra skoðana
hennar. Orðrétt viðurkennir
Bessí Jóhannsdóttir fræðsluráðs-
fulltrúi: „Því er ekki að neita að
málið er pólitískt og teljum við
Rögnu ekki vera inni á þeirri línu
í skólamálapólitík sem við
erum.“ í samtali við Þjóðviljann
deginum áður hafði Bessí gefið í
skyn að afstaða hennar byggðist á
persónugöllum Rögnu og það
væri henni fyrir bestu að þeir
væru ekki skilgreindir. Annar
fræðsluráðsfulltrúi, Bragi Jóseps-
Melaskólamálið
gagnrýni á fræðsluráð
Framkoma frceðsluráðsmanna vekur andúð innan kennarastéttarinnar
son, viðurkenndi hins vegar að
skoðanir Rögnu hefðu ekki þótt
æskilegar.
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
nokkrum helstu forystumönnum
kennara í landinu. Heimir Páls-
son formaður Bandalags kenn-
arafélaga sagði að það alvarleg-
asta í þessu máli væri að fólk eins
og Ragna, sem tekur mjög virkan
þátt í verkalýðsbaráttu síns stétt-
arfélags, þurfi að liggja undir
rógi, dylgjum og ærumeiðingum
eins og þeim sem fram koma í
viðtali Þjóðviljans við Bessí Jó-
hannsdóttur s.l. miðvikudag.
Heimir kvað niðurstöðu meiri-
hluta fræðsluráðs með öllu óvið-
unandi. Hún væri ekki einungis
lítilsvirðing við Rögnu heldur
einnig allt það fólk sem starfar í
Melaskóla og hefur eindregið
mælt með Rögnu til starfans.
„Ég tel þetta forkastanlegt,“
sagði Guðmundur Árnason fram-
'kvæmdastjóri og varaformaður
Kennarsambands íslands. „Hér
er um öndvegis manneskju að
ræða og það hljóta allir að líta
þetta mjög alvarlegum augum.“
Hörður Zóphaníasson skóla-
stjóri, sem lengi hefur verið einn
af helstu forystumönnum kenn-
ara í verkalýðshreyfingunni,
kvað niðurstöðu fræðsluráðs frá-
leita. Það væri mjög mikilvægt
fyrir skólastjóra að geta valið sér
þann samstarfsmann sem hann
treysti best og ætti auðvelt að
vinna með. Þá væri það ekki síður
mikilvægt fyrir kennara að í starfi
yfirkennara sé maður sem þeir
treysti og geti átt gott samstarf
við. Hörður kvað það alveg frá-
leitt að hafna Rögnu á grundvelli
skoðana hennar.
Sigrún Ágústsdóttir formaður
Kennarafélags Reykjavíkur kvað
það mjög alvarlegt mál hvernig
Bessí Jóhannsdóttir hefði vegið
að Rögnu Ólafsdóttur í Þjóðvilj-
anum með ummælum sem hún
taldi ærumeiðandi. „Mér finnst
það óþolandi ef umsækjendur um
stöður þurfa að eiga það að hættu
að um þá sé dylgjað svona af op-
inberum fulltrúum í fræðslu-
ráði,“ sagði Sigrún og bætti við:
„Bessí Jóhannsdóttur ber skylda
til að rökstyðja þær hálfkveðnu
vísur sem hún fer með í Þjóðvilj-
anum.“
„Mér finnst alveg fráleitt að
menn í fræðsluráði skuli rök-
styðja niðurstöður sínar með
skírskotun til óæskilegra skoðana
þess sem um er fjallað,“ sagði
Haukur Helgason skólastjóri,
sem verið hefur í forystusveit
kennara um langt árabil. Haukur
kvaðst hafa starfað í mörg ár með
Rögnu Ólafsdóttur innan BSRB
og kennarasamtakanna og þar
færi gætin og raunsæ kona sem
enginn hefði reynt af öðru en
hinu besta. -g.sv.
Leiðrétting á rangri frásögn
Þrír íslensku keppendanna: Kristján Halldórsson og Kristján S. Guðmundsson
fyrir aftan, Eiríkur Pálsson sitjandi fremst.
Eðlisfrœði
Ólympíuleikar í eðlisfræði
17. Ólympíuleikarnir í eðlis-
fræði verða haldnir í Harrow í
London dagana 13.-20. júlí n.k.
og fara þrírIslendingar til keppni
þangað. Þetta er í þriðja sinn sem
Islendingar taka þátt í Ólympíu-
leikunum í eðlisfræði, en á
leikunum keppa nemendur á
menntaskólastigi frá 23 löndum,
Keppnislið hvers lands eru valin í
forkeppni í heimalandinu. Á
leikunum sjálfum er keppt bæði í
skriflegri og verklegri eðlisfræði.
Sem keppendur fyrir Islands
hönd fara þeir Davíð Aðalsteins-
son frá MK, Eiríkur Pálsson frá
MH, Kristján S. Guðmundsson
frá MR og Kristján Halldórsson
frá MR. Fararstjórar verða þeir
Einar Júlíusson og Viðar Ágústs-
son.
-Ing.
Að undanförnu hafa verið
nokkrir flokkadrættir í okkar
ágæta flokki. Það er ekkert nýtt,
að deilt sé í flokknum, en að
þessu sinni hafa deilurnar tekið á
sig nokkuð skrýtna mynd, t.d.
þegar Þjóðviljaforystan mót-
mælti formanni flokksins sem
ræðumanni á kosningafundinum
í Reykjavík og hafnaði Sigurjóni
Péturssyni, efsta manni listans í
Reykjavík sem talsmanni flokks-
ins kvöldið fyrir kosningar, með
alkunnum afleiðingum.
Á fundi útgáfufélags Þjóðvilj-
ans í fyrrakvöld var ljóst, að báðir
málsaðilar höfðu smalað dug-
lega, ekki aðeins annar eins og
blaðið gefur í skyn. Var mörgum
heitt í hamsi. Það er rétt, að við
Ólafur Ragnar Grímsson rædd-
um saman um það hvort hugsan-
legt væri að setja fram tillögu sem
sættir gætu náðst um. Við rædd-
um einnig hvor um sig við ýmsa
Það er rangt hjá Ásmundi Stef-
ánssyni að ég hafi á aðalfundi Út-
gáfufélags Þjóðviljans verið við-
staddur eða tekið þátt í viðræðum
hans og Ólafs Ragnars Gríms-
sonar um sáttatillögu, þar sem
gert var ráð fyrir Álfheiði Inga-
dóttur sem aðalmanni í stjórn fél-
agsins í stað Kjartans Ólafssonar
fyrrverandi ritstjóra Þjóðviljans.
Hins vegar var ég viðstaddur,
aðra fundarmenn til að kanna al-
menn viðhorf og eftir þá könnun
tilkynnti ég Ólafi að ég væri
reiðubúinn til þess að standa að
tillögu um það að Álfheiður Inga-
dóttir kæmi inn í stjórn útgáfufé-
lagsins í stað Kjartans Ólafs-
sonar, en aðalstjórn yrði að öðru
leyti óbreytt. Ólafur tók að sér að
kanna viðhorf nokkurra fundar-
manna til þeirrar hugmyndar.
Ritstjóri Þjóðviljans stóð við hlið
Ólafs er þetta gerðist og er hon-
um því fullkomlega kunnugt um
hvað okkur fór á milli. Ég vænti
þess einnig að honum hafi verið
kunnugt um það að Ólafur til-
kynnti mér stuttu síðar, að ekki
væri forsenda fyrir sameiginlegri
tillögu. Það er því rangt, að sam-
komulag hafi verið okkar í milli
um tillögugerð í málinu.
Ég vil ekki gera lítið úr sátta-
vilja mínum, Ölafs Ragnars eða
Svavars Gestssonar en ég tel
þar sem rætt var um tillögu með
Ragnari Arnalds formanni þing-
flokks Alþýðubandalagsins sem
aðalmanni í stað Kjartans Ólafs-
sonar og Álfheiði Ingadóttur og
Ásmundi Hilmarssyni sem 1. og
2. varamanni. Ekki fékkst stuðn-
ingur við þá tillögu eins og kunn-
ugt er.
Össur Skarphéðinsson,
ritstjóri.
óþarft að Þjóðviljinn segi rangt
frá atburðum sem ritstjóra blaðs-
ins eru vel kunnir. Mér þykir
einnig miður að blaðinu skuli
misbeitt til að ala á tortryggni í
garð Álfheiðar Ingadóttur, sem
um árabil hefur unnið vel og
dyggilega fyrir Þjóðviljann.
Ásmundur Stefánsson
5. júní 1986
Borgarstjórn
Adda Bára og
Guðmundur
Þ. hætt
í gær var síðasti fundur gömlu
borgarstjórnarinnar í Reykjavík.
Á meðal þeirra borgarfulltrúa
sem nú láta af störfum eru þau
Adda Bára Sigfúsdóttir og Guð-
mundur Þ. Jónsson, fulltrúar Al-
þýðubandalagsins.
Adda Bára hefur setið í borg-
arstjórn í 20 ár og nýtur al-
mennrar virðingar fyrir störf sín,
sem nær langt út fyrir raðir Al-
þýðubandalagsins. Guðmundur
Þ. Jónsson, sem var erlendis og
sat því ekki fundinn í gær, kom
inn í borgarstjórn sem 5. rnaður
Alþýðubandalagsins í frægri
kosningu 1978, þegar kjör hans
varð ti! þess að meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins féll.
Athugasemd ritstjóra
Hverju spá gömlu Skagamennirnir?
Heimsmeistarakeppnin 1986
Það fer víst ekki framhjá neinum að Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu er hafin. Þúsundir landsmanna sitja límdar við skjáinn og rýna í
hin smæstu atvik í þessum feikivinsæla eltingaleik tveggja liða við
uppblásinn knöttinn. Þjóðviljinn hafði í gær samband við þrjár gamlar
kempur úr gullaldarliði Skagamanna í knattspyrnu, menn sem stóðu á
hátindi knattspyrnuferils síns á árunum milli 1950 og 1960. Þetta eru
þeir Sveinn Teitsson, Ríkharður Jónsson og Þórður Þórðarson.
Sveinn Teitsson:
Tippa á Dani
„Af því sem komið er finnst
mér Danir skemmtilegastir,"
sagði Sveinn Teitsson. „Mér
fannst leikur þeirra gegn Skot-
landi mjög skemmtilegur, meiri
spenna og meiri hraði en til dæm-
is í leik Brasilíumanna og Spán-
verja sem léku seinvirkari knatt-
spyrnu, einskonar göngufótbolta
eins og við köllum það.“
Þjóðviljinn bað Svein að spá
um úrslit keppninnar og vildi
hann fúslega gera það, með þeim
fyrirvara þó að ekki hefði hann
enn séð öll liðin. „Ég tippa á
Dani, þeir eru virkilega góðir,“
sagði Sveinn en röð hans er þessi:
1. Danmörk, 2. Brasilía og 3.
Frakkland.
-g.sv.
Pórður Pórðarson:
Gaman ef
Danir sigruöu
Þórður Þórðarson sagðist ekki
hafa haft tök á að fylgjast nógu
vel með öllum þeim leikjum sem
leiknir hafa verið, þannig að erf-
itt væri að leggja mat á styrkleika
liðanna. „Það væri óneitanlega
gaman ef Danir sigruðu þó ég
hafi nú ekki beint trú á því,“ sagði
Þórður. „Danir unnu mjög verð-
skuldaðan sigur á Skotum og
eiginlega fannst mér þeir hefðu
átt að skora 2-3 mörk í leiknum.“
Þórði fannst sárt að Englend-
ingar skyldu tapa fyrir Portúg-
ölum þar sem leikur þeirra hefði
verið mun betri. Hann var tregur
til að spá um úrslit heimsmeist-
arakeppninnar, en þar sem fast
var sótt að honum lét hann til
leiðast og röðin varð þessi: 1.
Brasilía, 2. Rússland og 3. Eng-
land.
-g.sv.
Ríkharður Jónsson:
Veðja á Brasilíu
„Mér sýnist mennirnir ekki
geta lagt neitt á sig hitans vegna,“
sagði Ríkharður Jónsson. „Það
eru einkum Evrópuþjóðirnar
sem mér finnst leika þarna á hálf-
um hraða, en hitinn bitnar eðli-
lega mest á þeim.“
Ríkharður sagði að fram til
þessa fyndist sér leikur Spánar og
Brasilíu sá besti, en mjög erfitt
væri að gera upp á milli liðanna í
keppninni. Aðspurður vildi Rík-
harður helst ekki spá um úrslit
keppninnar en lét þó til leiðast.
Spá hans var þessi: 1. Brasilía, 2.
Argentína og 3. Danmörk.
-g.sv.