Þjóðviljinn - 06.06.1986, Blaðsíða 5
LISTAHÁTÍÐ
ÞaðvaræftstíftíHáskólabíóiígær. Kristján JóhannssonogGuðnýGuðmundsdóttirleika(syngja) listir sínar á mynd sig.
Tónlist
Kristján í skarðið
Syngur með Sinfóníunni í kvöld í stað Burchuladze
„Jú, það má kannski segja
það, en við flytjum efni sem
við kunnum mjög vel“, sagði
Kristján Jóhannsson tenór-
söngvari í gær þegar blaða-
maður spurði hvort það væri
ekki djarft að stökkva á síð-
ustu stundu í skarð rússans
Paata Burchuladze, sem ein-
hverra hluta kemur ekki til
landsins.
Kristján dró úr því að þetta
væri eitthvað umtalsvert.
„Auðvitað er fyrirvarinn
stuttur, en hér vinnur hæft
fólk sem kann vel sitt fag og
við keyrum á þetta núna í tvo
daga. Og þetta gengur vel.“
- Efnisskráin?
„Hún verður auðvitað valin
með tilliti til þessa stutta fyrir-
vara, og eins og ég sagði allt
efni sem við kunnum mjög
vel. Það má segja að þetta
verði svona týpískir óperutón-
leikar. Meðal verka verða arí-
ur úr Aidu og Carmen, og
einnig Cavallera Rusticana og
Tosca.“
Listvöm
eftir Níels Hafstein í tilefni greina
Halldórs B. Runólfssonar
Þann 8. apríl sl. flutti ég lítinn
formála -fyrir myndverki í þætti
mínum „Viðkvæmum farangri“
sem var sendur út á rás 1 í Ríkis-
útvarpinu, og dró þar saman
nokkur atriði til stuðnings full-
yrðingu um myndlistarskóla
landsins.
Halldór Björn Runólfsson,
gagnrýnandi Þjóðviljans m.m.,
ritar langt mál um þennan for-
mála í tveimur greinum: „Gigt og
gyllinæð í stað andarteppu." og
„Slefandi hundur." Svona fyrir-
sagnir hélt ég í sakleysi mínu að
sæjust aðeins í landbúnaðar- eða
læknaritum, og þá t.d. á lærðum
greinum um krufningar.
Nema hvað, í fyrri grein sinni
dregur gagnrýnandinn upp úr
pússi sínu Nóbelsskáldið okkar
sér til halds og trausts: „Svo
sláandi er skyldleikinn milli for-
mála Níelsar og hinnar nærfellt
sextíu ára gömlu ritgerðar Hall-
dórs, „Myndir“ (Alþýðubókin
bls. 92-113, skv. 3. útg. Helgaf-
ells 1947) að ekki getur annað
verið en Níels hafi haft hana til
hliðsjónar við samningu sína og
bergt af áhrifamættir hennar.“
Þar lágu Danir í því!
Nú má ætla að meiðyrðalög-
gjöfin hafi verið skoðuð í bak og
fyrir þegar þessi glannalega hugs-
un flaug út úr skýjaþykkninu, og
það er trúlegt að hjartað hafi
tekið heljarmikið trommusóló og
dælt adrenalíni útí æðakerfið, því
það þarf vissulega kjark til að
væna þann myndlistarmann um
ritstuld sem er kunnur að því að
vísa ávallt til heimilda í lok grein-
ar. En það má vel vera að þessi
„samanburðarfræði" gagnrýn-
andans eigi sér upptök í barna-
skap og fljótfærni, og ef við álykt-
un svo, þá er ljúft að fyrirgefa og
gleyma.
Það má svo í lokin minna á það
að heiðarlegir myndlistarmenn
með sjálfsvirðingu, óháðir mark-
aði auglýsingaskrums, eru orðnir
biðsárir eftir frumlegri og vís-
indalegri gagnrýni. Það er komið
nóg af ábyrgðarlausu hjali í dag-
blöðunum, sleggjudómum,
aulafyndni, móðgunum og at-
vinnurógi, - menn geta skemmt
sér við slíkt „í góðra vina hópi“.
Tónleikar Kristjáns Jó- hljómsveitar íslands verða í 20.30 og stjórnandi er Jean-
hannssonar og Sinfóníu- kvöld í Háskólabíói klukkan Pierre Jacquillat. -pv
Vegna gerð gangna undir Miklubraut norðan Nýja miðbæjarins (Kringlunnar) þarf
að breyta legu aðalæðar. Við þá framkvæmd verður vatnslaust í þeim hverfum
sem liggja vestan Kringlumýrarbrautar og norðan Suðurlandsbrautar, sjá þó
nánar skyggðu svæðin á meðfylgjandi uppdrætti. Lokun hefst strax eftir miðnætti
aðfararnótt næstkomandi laugardags þ. 7. júní. Ekki er vitað hve langan tíma
verkið tekur, en gera verður ráð fyrir vatnsleysi í flestum fyrrgreindum hverfum
fram eftir laugardeginum. Sú takmarkaða aðfærsla vatns sem fyrir hendi er eftir að
aðalæðinni hefur verið lokað mun þó halda uppi einhverjum þrýstingi á vatninu í
þeim hverfum sem lægst liggja í austustu hverfunum.
Föstudagur 30. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5