Þjóðviljinn - 06.06.1986, Page 6
Skólamál
Veikmenntun
bættvið
skólaskyld-
una
Breytingar á sovésku skólakerfi
„Ef þú spyrðir mig um helstu
breytingar sem orðið hafa í skól-
unum í tengslum við langtíma
endurbætur á almennings-
fræðslu,“ sagði Ivan Sergeyev,
sögukennari í framhaldsskóla í
Hvíta-Rússlandi, „myndi ég segja
að það væri eitthvað ósýnilegt á
yfirborðinu en sem hægt væri að
fínna fyrir. Mín skoðun er sú að
^jRARIK
HL. ^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-86009: Þrífasa dreifispennar 800-
1600 kVA.
Opnunardagur: Fimmtudagur 10. júlí 1986,
k. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykja-
vík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á
sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum
er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavík, frá og með fimmtudegi 5. júní
1986 og kosta kr. 300.- hvert eintak.
Reykjavík 3. júní 1986.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS.
SUMARBÚSTAÐUR
við Elliðavatn (Vatnsendavatn) til sölu. 1/2 hektari
kjarrivaxið land. Húsið er steypt og er ca 50m2.
Fagurt útsýni og friðsæll reitur í nálægð borgar-
innar. Tilvalið land til trjáræktar. Uppl. á
augl.deild Þjóðviljans (Sigríður) sími 681310/
heimasími 18054.
Nemendur skoða forrit.
skólinn hafí nú tekið upp nýja leið
til að nálgast viðfangsefnin, frír
af öllum ytri áhrifum og um-
stangi. Nú er greinilega meiri agi,
en þægilegur agi.“
En hvers vegna var raunveru-
lega þörf fyrir endurbætur?
Stysta svarið við þessari spurn-
ingu væri „tímarnir krefjast
þeirra“ og að einkennandi fyrir
okkar tíma er hraðaaukning vís-
indalegra og tæknilegra fram-
fara, sjálfvirkni framleiðslunnar
með tiíkomu tölva og þróun so-
vésks efnahagslífs; breytingar á
menningarlegum og þjóðfélags-
legum viðhorfum.
Skólagangan hefst
hjá sex ára börnum
Sérfræðingar leggja áherslu á
þrjú meginatriði í endurbótum á
menntakerfinu: skólaganga mun
hefjast hjá 6 ára börnum, - tengsl
námsins og framleiðslustarfa - og
þjálfun starfsfólks.
Við í Sovétríkjunum gerum
okkur grein fyrir að skólaganga 6
ára barna er ekkert nýnæmi fyrir
þróuð lönd. Sovéska ríkið hefur
að venju starfrækt forskóla þar
sem ung börn hafa fengið grund-
vallarkennslu. Þannig var staðan
þangað til nýlega. Vandamálið
var samt sem áður að það not-
færðu sér ekki allir foreldrar for-
skólakennslu fyrir börnin. Þess-
vegna höfðu aðeins um 70%
þeirra barna sem hófu nám í
barnaskóla, stundað nám í for-
skóla. Þarna þótti ástæða til að
kynna betur forskólamenntun
sem er skyldunám fyrir alla.
Hægt að velja á
milli 760 iðngreina
Þetta er nákvæmlega sá fjöldi
iðngreina sem eru á lista yfir
starfsnám eldri nemenda í venju-
legum grunnskólum. Fjórar
stundir á viku fara í starfsnámið.
Einhverjir kynnu að spyrja:
hversvegna þarf skólinn að
mennta táninga í iðngreinum? En
skólinn sem slíkur kennir ekki
iðnina, heldur veitir nemendun-
um tækifæri til að læra iðn meðan
þeir stunda nám í skóla. í starfs-
náminu fara nemendurnir í sér-
stakar kennslustöðvar iðnaðar-
ins, verksmiðjur, rannsóknar-
stofur og heilsugæslustöðvar, á
bændabýli og matsölustaði.
Iðnin sem nemandi kynnir sér í
skóla þarf ekki endilega að verða
starfsvettvangur hans alla ævi;
fremur ber að líta á þetta sem
fyrstu skref hans til sjálfstæðis. í
Sovétríkjunum hefur 10 ára
skyldunám verið við lýði undan-
farinn áratug, sem þýðir að ungt
fólk er í skóla þar til það er 17 eða
18 ára. Það er mikilvægt að láta
sér ekki yfirsjást siðferðilega þró-
un og þá um leið vinnu unga
fólksins á þessum árum þegar
unglingarnir eru hvað áhrifa-
gjarnastir.
16 ára frændi minn, Anton
Danilov, sem er í 10. bekk í Mos-
kvu skóla nr. 70, fór í 25 daga
verknám í verksmiðju í höfuð-
borginni í fyrrasumar. Hann
vann sem rennismiður (gerði
auðvitað einföldustu verkin) í
fjórar klukkustundir á dag.
Drengurinn þroskaðist ótrúlega
við þetta. Hann fór að nota orð
eins og áætlun, vinnukvóti,
stöðluð framleiðsla, - og það
jafnvel í símtölum við vini sína en
þeir höfðu áður aðallega rætt
saman um íþróttir og jazz. Þegar
verknáminu var lokið afhenti
hann foreldrum sínum fyrstu
launin, með stolti.
Á þessu skólaári munu nem-
endur í 10. bekk í skóla nr. 70
halda áfram að læra algengar iðn-
greinar (rennismíði, vélsmíði,
vélritun, fatahönnun o.s.frv.) í
starfssmiðju hverfisins. Sumir
þeirra hafa ákveðið að halda
áfram í greininni sem þeir kynna
sér nú, en aðrir ætla að halda
áfram námi í framhaldsskólum.
Anton ætlar t.d. að stefna á nám
við eðlisfræðideild Moskvuhá-
skóla. Ef hann fellur á
inntökuprófunum verða það ekki
endalok alls hjá honum; hann
getur þá alltaf snúið sér að renn-
ismíðinni.
Samkvæmt kröfum um endur-
skoðun menntunarinnar verður
almennri verkmenntun bætt við
almenna grunnskólamenntun í
öllu landinu.
Nýtt námsefni
Nemendur í 10. bekk munu
hefja nám í nýrri námsgrein:
Fræðilegur grundvöllur um upp-
lýsingar og tölvufræði. Það skal
tekið með í reikninginn að við
erum dálítið á eftir í notkun
tölva, en erum ákveðin í að ná
okkur á strik á eins skömmum
tíma og mögulegt er. Málið verð-
ur leyst á ýmsan máta, m.a. með
því að þjálfa nýja kynslóð sem
mun stjórna tölvum. Það eru
nægar ástæður fyrir þvf að frasinn
„Forritun er jafn mikilvæg og
stafrófið" hefur orðið landlægur.
Ný kennslubók um tölvur og
forritun hefur verið samin sér-
staklega fyrir nýja námskeiðið.
Kennarar eru eðlisfræðingar og
stærðfræðikennarar sem voru á
tölvukennaranámskeiðum í fyrr-
asumar. Þess hefur verið á leit við
háskóla ,'tölvumiðstöðvar og aðr-
ar stofnanir sem hafa yfir tölvum
að ráða, að aðstoða við skóla-
starfið eftir megni.
Annað nýtt námsefni er Siða-
kerfi og sálfræði fj ölskyldulífs.
Námskeiðið var kynnt í eldri
bekkjum um mitt síðasta skólaár.
Sem þýðir að við getum nú þegar I
séð einhvern árangur.
Ekki er rétt að segja að áður en
þetta námskeið hófst hafi engin
kynfræðsla verið í skólum. Að
einhverju leyti var komið inn á
þetta efni í bókmennta- og sögu-
tímum og í bekkjum með sér-
stöku námsefni. Námsefninu er
ætlað að vekja athygli nemend-
anna á því að fjölskyldan er
þjóðfélagsleg stofnun, og að upp-
lýsa þá um fjölskyldutengsl og
uppeldi barna. Fjallað er um sið-
ferðileg og réttarfarsleg atriði
varðandi hjónabandið.
200 þúsund
sérfræðingar á ári
Þetta er sá fjöldi kennara með
sérfræðimenntun sem útskrifast
frá menntastofnunum árlega í So-
vétríkjunum. Þetta er talan í dag,
en hún mun hækka töluvert á
næstu árum. Það eru nokkrar
ástæður helstar fyrir því að
nauðsynlegt er að auka fjölda
sérfræðinga í uppeldismálum og
kennslu. Ifyrsta lagi erþess kraf-
ist í endurmótunar áætlununum
að nemendur verði færri í hverj-
um bekk, sem þýðir fleiri bekki
og þörf á fleiri kennurum. í öðru
lagi þurfa sex ára börnin líka
kennara. í þriðja lagi verður
haldið áfram að kynna nýtt náms-
efni sem þýðir sérfræðinga á nýj-
um sviðum. í fjórða lagi hafa
vinsældir framlengds skóladags
fyrir börnin aukist um land allt;
þ.e. að börnin séu í skólanum þar
til foreldrarnir koma heim frá
vinnu. Þessi aukna starfsemi í
skólum kallar líka á aukið starfs-
lið.
Valeria Pruit (APN)
Eiginmaður minn og faðir okkar
Brynjar Guðmundsson
Selvogsgötu 7 Hafnarfirði
lést á St.Jósefsspítala þann 4. júní.
Hólmfríður Ragnarsdóttir og börn.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN