Þjóðviljinn - 06.06.1986, Blaðsíða 8
MANNLÍF
Marserað á Egilstöðum með fánabera og „sveiflugeiflu" í broddi fylkingar.
Ljósm. jis
Blásið og sungið
eystra
Björnsdóttur. Ljósm jis
Tónleikar
Sungið fyrir Héraðsbúa undir stjórn Þórunnar
GOÐUR?
FJÁRÖFLUN
5. OG 6. JÚNÍ 1986
til tækjakaupa fyrir endurhæfingardeild
hjartasjúklinga að Reykjalundi
LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKUNGA
Skólahljómsveit Kópavogs og kór Kársness-
og Þinghólsskóla héldu tónleika víða á
Austfjörðum við frábærar undirtektir
Það var mikið blásið og
sungið á Austfjörðum síðustu
vikuna í maí þegar Skólahljom-
sveit Kópavogs og Kór
Kársness- og Þinghólsskóla
voru þar á ferð með tonleika.
Var firna vel tekið á móti
krökkunum úr Kópavogi og
spiluðu þau ýmist innan eða
utan dyra.
Að sögn Björns Guðjónssonar
hljómsveitarstjóra var spilað á
Kirkjubæjarklaustri, Höfn í
Hornafirði, Breiðdalsvík, Nes-
kaupsstað, Eskifirði, Reyðar-
firði, Seyðisfirði og Egilstöðum.
Með í ferðinni voru 87 krakkar
undirstjórn3jafararstjóra. Ferð-
in var styrkt af Félagsheimila-
sjóði og Kópavogskaupstað en
einnig greiddu börnin dálitla
upphæð með sér.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við
höldum svona tónleikarispu hér
innanlands og það er greinilegt á
undirtektum að við getum haldið
þessu áfram. Við höfum oft farið
til útlanda í gegnum árin en nú
má búast við að framhald verði á
tónleikaferðum innanlands,"
sagði Björn Guðjónsson í samtali
við Þjóðviljann.
Á næsta ári á Skólahljómsveit
Kópavogs 20 ára afmæli og þá er
fyrirhuguð tónleikaferð til Fær-
eyja. Stjórnandi sveitarinnar frá
upphafi hefur verið Björn Guð-
jónsson en stjórnandi Kórs
Kársness- og Þinghólsskóla er
Þórunn Björnsdóttir.
Við látum nokkrar myndir tala
sínu máli, en þær voru teknar af
ljósmyndara Þjóðviljans eystra,
Jóni Inga Sigurbjörnssyni.
-v.
Og krakkarnir tóku nokkur létt dansspor við undirleik Skólahljómsveitarinnar.
Ljósm. jis
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. maí 1986