Þjóðviljinn - 06.06.1986, Page 9
HEIMURINN
S-Afríka
Arás á Angóla
Fréttastofa Angólastjórnar sagði frá því að s-afrísk herskip hefðu gert
árás á hafnarborgina Namibe íAngóla
Lissabon — Fréttastofa Ang-
ólastjórnar, Angop, sagði frá
því í gær að S-Afríkumenn
hefðu gert herskipaárás á
hafnarborgina Namibe í dögun
í gær.
Fréttin var birt í gær í Lissabon
í Portúgal, í henni sagði að her-
skip S-Afríkumanna hefði skotið
Scorpion flugskeytum á þrjá elds-
neytistanka, eyðilagt tvo og
skemmt þann þriðja. Þá munu
froskmenn hafa komið djúp-
sprengjum fyrir á botni þriggja
skipa sem lágu í höfninni. Eitt
þeirra sökk en hin tvö skemmd-
ust alvarlega. Ekki var nefnt í
fréttinni hvort einhverjir hefðu
farist né gefið upp hver skipin
voru.
Namibe er ein stærsta hafnar-
borgin í Angóla og var áður
nefnd Mocamedes. í frétt Angop
var sagt að þessi árás væri enn eitt
dæmið um árásarstefnu S-
Afríkustjórnar sem beindist frek-
ar gegn almennum borgurum en
hernaðarlegum skotmörkum.
Talsmaður s-afríska varnarmála-
ráðsins sagði að hún hefði ekkert
að segja um „ásakanir þær sem
komið hafa frá Angóla á síðustu
mánuðum“.
Á síðasta ári hrundu angólskar
hersveitir árásum s-afrískra her-
sveita á bandaríska olíustöð í
landinu. Viðleitni vestrænna
ríkja til að fá S-Afríkustjórn til að
samþykkja sjálfstæði Namibíu
hefur ætíð strandað á kröfum S-
Afríku um að Kúbumenn fari
burt frá Angóla.
Bretland
Vamaðarorð á sígarettupakka
Lundúnum — Bretar hafa nú í merkja allla sígarettupakka í
hyggju að setja lög sem skylda bak og fyrir með varnaðarorð-
sígarettuframleiðendur til að um um hættuna af reykingum.
Tsjœkofskí keppnin
Metþátttaka
Moskvu — Á miðvikudaginn i
næstu viku hefst 8. alþjóðlega
Tsjækofskí tóniistarkeppnin
og hafa 440 tónlistarmenn frá
46 löndum sótt um að fá að
taka þátt í keppninni. Þetta er
metþátttaka í þessari virtustu
tónlistarkeppni sem haldin er í
heiminum.
Keppnin er haldin á fjögurra
ára fresti og siöast þegar hún var
haldin, 1982, voru 253 þátttak-
endur. Píanóleikarar, fiðlul-
eikarar, sellóleikarar og söngvar-
ar munu keppa í mánuð og flytja
verk sem þeir hafa sjálfir valið,
en einnig verk sem þeim er fyrir-
skipað að leika. Hinir hefð-
bundnu tónleikar allra vinnings-
hafa verða síðan 5. og 6. júlí í
Tónlistarhöllinni í Moskvu.
Samkvæmt samningi frá 1971
milli stjórnvalda og sígarettu-
framleiðenda eru nú þegar varn-
aðarorð á hliðunum. Það er þing-
maður Frjálslynda flokksins,
Archie Kirkwood, sem lagt hefur
tillöguna fram á þingi og hún er
studd af bresku læknasamtök-
unum sem eiga þessa dagana í
harðri baráttu við það sem þau
nefna „miljóna dollara auglýs-
ingaherferð tóbaksiðnaðarins".
I yfirlýsingu sem samtökin
sendu frá sér um þessi mál er m.a.
krafist raunsærri og heiðarlegri
varnaðarorða á sígarettupakka.
Eina setningu vilja þeir hafa svo:
„Hætta: Sígarettureykingar
valda hjartasjúkdómum, íungna-
krabbameini og bronkítis.“ Ekki
fer sögum að viðtökum á breska
þinginu.
Tutu biskup hvetur nú fólk til að virða tilskipanir yfirvalda að vettugi.
S-Afríkal Fundahöld
Tutu gefur fordæmi
Desmond Tutu, biskup í S-Afríku og
Nóbelsverðlaunahafi, tilkynnti ígœr að hann myndi
efna til kirkjusamkomu í tilefni þess að 10 ár eru liðin
frá harmleiknum íSowetoþegarfjöldisvartra lét lífið
íátökum við lögreglu. Yfirvöld hafa bannað allar
samkomur í tilefni Soweto atburðanna 16. júní
nœstkomandi
Jóhannesarborg - Desmond
Tutu, biskup í S-Afríku til-
kynnti í gær að hann myndi
virða að vettugi bann yfirvalda
við fundarhöldum.
Yfirvöld tilkynntu í fyrradag
bann við öllum fundum sem
halda á í tilefni þess að 16. júní
verða liðin 10 ár frá fjöldamorð-
unum í Soweto. Tutu sagði í gær
að hann myndi hvetja presta sína
til að efna til messu í tilefni at-
burðarins fyrir 10 árum en þá lét-
ust 575 manns víða um landið.
Með ákvörðun yfirvalda er nú
búist við að átök milli öryggis-
sveita lögreglunnar og svartra
manna aukist að mun. 1600
Haiti
Borgarastyrjöld yfírvofandi
manns hafa látist í S-Afríku á
undanförnum 27 mánuðum.
Tutu sagði orðrétt:„Ég mun
skipa mínum klerkum að efna iil
samkoma hinn 16. júní ogég mun
svo sannarlega taka þátt í slíkum
samkomum. Ég vona að aðrir
söfnuðir víðs vegar um landið
bregðist við á sama hátt og efni til
minningarsamkoma."
Búist hafði verið við að mikill
fjöldi svartra manna myndi minn-
ast atburðanna í Soweto í Jó-
hannesarborg þegar spenna
vegna aðskilnaðarstefnunnar
kom upp á yfirborðið og endaði
með miklum átökum milli svartra
og lögreglu. Aðalritari S-Afríska
kirkjuráðsins, Beyers Naude,
sagði í gær að hann vonaðist til að
innanríkisráðherrann gerði sér
grein fyrir þeirri hættu sem vofði
nú yfir og að kirkjan gæti orðið
miðpunktur þeirra.
Namphy hershöfðingi. Óttast borg-
arastyrjöld.
Port Au Prince — Miklar óeirðir
hafa nú verið í þrjá daga í höf-
uðborg Haiti, Port Au Prince,
og segir forystumaður í hinni
nýju stjórn landsins að borg-
arastyrjöld sé nú á næsta leyti
ef ekkert verður gert.
í gær var liðsforingi skotinn til
bana og vitni sögðu frá því að
hópur manna með sveðjur hefði
eyðilagt bíla í nokkrum fínni
hverfum höfuðborgarinnar í
fyrrinótt. Þessir menn kröfðust
peninga af vegfarendum og
höfðu í hótunum.
Hópur fólks sem krafðist af-
sagnar þriggja ráðherra í stjórn
landsins byggði vígi á götum fá-
tækrahverfanna og eyðilögðu
bíla. Leiðtogi stjórnarinnar, her-
foringinn Henry Namphy, kom
fram í sjónvarpi í gær og sagði:
„Fólk er farið að reisa götuvígi og
kveikja elda,...landið er á barmi
borgarastyrj aldar, stjórnleysis. “
Namphy sem er í forsvari fyrir
þjóðarráðið svonefnda sem nú
stjórnar landinu, kenndi ónefnd-
um stjórnmálamönnum með
„neikvæða hugmyndafræði“ um
þann óróa sem nú er í landinu.
Sjö manns komu á sjúkrahús í
gær með sár eftir haglabyssur en
ekki var vitað hvort stjórnarher-
menn áttu þar hlut að máli.
Innanríkisráðherrann, Wil-
liams Regala, kom einnig fram í
sjónvarpi og lýsti óeirðunum sem
villimannslegum. Hann sagði að
hernum hefði verið skipað að
bregðast hart og ákveðið við ó-
löglegum mótmælum. Hópar
fólks sem mótmæla stjórninni og
Bandaríkjamönnum (sem hafa
mikil ítök í landinu) hafa krafist
afsagnar Regala, upplýsinga-
ráðherrans Jolicoeur og fjár-
málaráðherrans Delatour.
Stjórnarandstöðuleiðtogar hafa
hvað eftir annað krafist þess að
fram fari kosningar í landinu og
bent á að margir núverandi ráð-
herra voru háttsettir í stjórnkerfi
Duvalierættarinnar.
ERLENDAR
FRÉTTIR
HJÖRLEIFSSON' R EUIER
Svíþjóð
Ráðherrar vaða geislavirka mjólk
Stokkhólmi — Bændur í norður
hluta Svíþjóðar dreifðu geisla-
virkri mjólk og illa lyktandi,
geislavirku heyi utan við skrif-
stofur Ingvars Karlssons, for-
sætisráðherra Svíþjóðar í gær
þannig að ráðherrar urðu að
vaða geislavirkt hey og mjólk
til að komast á ríkisstjórnar-
fund.
Mikil ólga og spenna er nú víða
í Skandinavíu vegna þeirrar
óvissu sem nú virðist ríkja varð-
andi geislavirkni í kjölfar Tsjern-
óbílslyssins. Bændur og umhverf-
isverndarsinnar frá ýmsum
hlutum Norður-Svíþjóðar sem
verst hafa orðið úti vegna geisla-
virkni, skoruðu á ráðherra sem
voru að koma á ríkistjórnarfund,
að „hoppa í heyinu“, til að sanna
að geislavirknimörk væru í lagi.
Þá hellti fólkið einnig geislavirkri
mjólk á gangstéttina þannig að
ráðherrar, Carlsson þar á meðal,
urðu að vaða í mjólk til að kom-
ast inn á ríkisstjórnarfundinn.
Talsmaður mótmælenda sagði
að þau væru óánægð með hversu
lítið upplýsingastreymi hefði ver-
ið frá Geislavörnum ríkisins
varðandi hættuna af geislavirku
úrfelli. „Stjórnin hefur ekki verið
heiðarleg við bændur. Það er
kominn tími til að hún gefi okkur
ákveðnar staðreyndir um geisla-
virknimörk. Við vitum ekki
hverju við eigum að trúa,“ sagði
hann.
Geislavarnir ríkisins hafa gefið
út tilkynningar um að ekkert sé
að óttast en læknar í norðurhluta
Svíþjóðar hafa ekki verið því
sammála að öllu leyti. f Gavle í
Austur-Svfþjóð þar sem geislun
hefur mælst einna mest hafa fjöl-
skyldur jafnvel flust á brott og
neita að koma aftur þrátt fyrir
opinberar yfirlýsingar um að
þeim sé óhætt að vera um kyrrt.
Foreldrar í bænum hafa ekki
hleypt börnum sínum út til að
leika sér.
í Finnlandi hafa yfirvöld sett á
stofn upplýsingaþjónustu fyrir al-
menning um það hvernig á að
bregðast við mikilli geislun og
hafa lofað að koma á kennslu í
skólum varðandi hið sama. Enn
hefur kúm ekki verið hleypt út í
N-Svíþjóð vegna geislunar í jarð-
vegi og fæðusérfræðingar hafa
lýst því yfir að grænmeti frá þess-
um svæðum sé ekki hæft til mark-
aðssetningar.
Ríkisstjórnin hefur nú lofað að
bæta bændum það tjón sem þeir
hafa orðið fyrir vegna geislunar.
Italía
Óvæntur
þingstuðningur
við PLO
Róm — Neðri deild ítalska
þingsins hefur samþykkt um-
deilda tillögu stjórnarand-
stöðuflokkanna um að viður-
kenna PLO, Þjóðfrelsishreyf-
ingu Palestínuaraba sem rétt-
mæta fulltrúa palestínsku
þjóðarinnar.
-Tillagan var samþykkt með 13
atkvæða meirihluta í fyrrakvöld,
fjölmargir fulltrúar stjórnarinnar
voru hins vegar fjarverandi. Þeir
voru á samkomu forsetans þar
sem fagnað var 40 ára afmæli
ítalska lýðveldisins. Samþykkt
neðri deildarinnar hefur valdið
nokkru uppnámi á Ítalíu, talið er
víst að hún hefði ekki verið sam-
þykkt ef allir stjórnarþingmenn
hefðu verið viðstaddir. Þá er
einnig talið víst að tillagan verði
felld í efri deild þingsins.
Giulio Andreotti hafði áður
sagt í ræðu í neðri deildinni að
stjórnin viðurkenndi sjálfsá-
kvörðunarrétt PLO en styddi
hins vegar þá hugmynd að
deilurnar fyrir botni Miðjarðar-
hafsins yrðu leystar á alþjóð-
legum vettvangi og þá yrði tilver-
uréttur fsraelsríkis tryggður.
Föstudagur 30. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9