Þjóðviljinn - 06.06.1986, Side 15
ÍÞRÓTTIR
C-riðill:
Sovétríkin-Frakkland 1-1 (0-0)
Iraputao, 5. júní
Dómari: Arppi (Brasilíu)
Áhorfendur 36,540
1-0 Rats (54.), Fernandez (62.)
Sovétríkin: Dasayev, Larionov, Bess'
onov, Kuznetsov, Demyanenko, Yaremc-
huk, Aleinikov, Yakovenko (Rodionov 69,),
Rats, Belanov, Zavarov (Blokhin 59.)
Frakkland: Bats, Ayache, Battiston,
Bossis, Amoros, Fernandez, Tigana, Gir-
esse (Vercruysse 82.), Platini, Stopyra,
Papin (Bellone 76.)
Staðan i C-riðli:
Sovétríkin...............2 110 7-13
Frakkland................2 1 1 0 2-13
Kanada...................1 0 0 10-1 0
Ungverjaland.............1 0 0 10-60
Markahæstir i keppninni:
Sandro Altobelli, Italíu..............2
Jorge Valdano, Argentínu.............2
Leikir í dag
C-riðill: Kanada-Ungverjaland
D-riðill: Brasilía-Alsír
F-riðill: Marokkó-England
Mexíkó
Sovétríkin-FrakklancL
Leikirnir á HM í gær, marka-
skorarar og iiðsuppstilling-
ar:
A-riðill
(talía-Argentína 1-1 (1-1)
Puebla, 5. júní
Dómari: Keizer (Hollandi)
Áhorfendur 30,000
1-0 Altobelli (7. víti), 1-1 Maradona (34.)
(talía: Galli, Bergomi, Cabrini, Scirea,
Vierchowod, Bagni, De Napoli (Baresi
87.), Di Gennaro, Conti (Vialli 64.), Alto-
belli, Galderisi.
Argentina: Pumpido, Cuciuffo, Brown,
Ruggeri, Garre, Giusti, Batista (Olarticoec-
hea 58.), Maradona, Burruchaga, Borghi
(Enrique 74.), Valdano.
Búlgaría-S.Kórea 1-1 (1-0)
Olimpico, Mexíkóborg, 5. júní
Dómari: Al-Shanar (Saudi-Arabíu)
Áhorfendur 20,000
1-0 Getov (11.), 1-1 JB.Kim (70.)
Búlgaria: Mikhailov, Zdravkov, Arabov,
Petrov, Dimitrov, Sirakov, Sadkov, Mla-
denov, Gospodinov, Getov (Yeliaskov
57.), Iskrenov (Kostadinov 46.).
S.Kórea: Oh, KH.Park, Huh, YJ.Cho,
Jung, KR.Cho, CS.Park, No (JB.Kim 46.),
Byun, JS.Kim, Cha.
Staðan í A-riðli:
Argentína................2 110 4-23
Búlgaría.................2 0 2 0 2-2 2
ftalia...................2 0 2 0 2-2 2
S.Kórea..................2 0 112-41
Sanngjamt jafntefli
Bœði mörk snemma íseinni hálfleik. Platini með stangarskot
Evrópumeistarar Frakka náðu
að standast spútnikliði Sovét-
manna snúning í stórleiknum í C-
riðlinum í gær. Úrslitin í Iraputao
urðu jafntefli, 1-1, og geta bæði
lið nokkuð vel við unað. Ef
eitthvað þá voru Frakkar nær
sigri í hörkuspennandi leik. Báðir
þjálfarar lýstu yfir ánægju með
úrslitin og bæði lið mega heita ör-
ugg með sæti í 16-liða úrslitun-
um.
Sovétmenn hófu leikinn á stór-
sókn og fengu hornspyrnu eftir
aðeins 15 sekúndur en Frakkar
fengu þó fyrsta færið. Yannick
Stopyra skallaði yfir mark Sovét-
manna eftir sendingu frá Michel
Platini. Á 15. mín. skaut Sergei
Aleinikov á mark Frakka, úr
svipuðu færi og hann skoraði
glæsimark gegn Ungverjum, en
nú fór boltinn rétt yfir slána.
Liðin sóttu til skiptis og mikið
fjör var í leiknum síðasta korter
fyrri hálfleiks. Rats hjá Sovét-
ríkjunum og þeir Fernandez og
Amoros hjá Frakklandi fengu að
líta gula spjaldið.
Þegar tvær mínutur voru til
hálfleiks fengu Frakkar auka-
spyrnu 25 m frá sovéska markinu.
Platini hafði átt tvær slíkar aðeins
nær og skotið rétt framhjá en nú
þrumaði hann boltanum beint í
stöngina og út.
Sovétmenn tóku forystuna
þegar níu mínútur voru liðnar af
seinni hálfleik. Bakvörðurinn
Larionov geystist upp kantinn og
sendi á Belanov. Hann renndi
boltanum út á Rats sem skoraði
með hrikalega föstu vinstrifótar
skoti, gersamlega óverjandi fyrir
Bats í franska markinu, 1-0.
Það tók Frakka aðeins 8 mínút-
ur að jafna. Alain Giresse slapp
laus á vallarhelmingi Sovét-
manna og renndi boltanum
innfyrir vörnina. Þar kom hinn
sívinnandi Luiz Fernandez 'á
fleygiferð og hamraði knöttinn í
netið, 1-1.
Það sem eftir var leiks var
jafnræði með liðunum. Rinat
Dasayev markvörður Sovét-
manna varði glæsilega með fót-
unum þegar Papin skallaði á
markið og hinum megin renndi
Rats boltanum framhjá Bats en
einnig rétt framhjá stönginni.
Frökkum tókst að stöðva hinar
skæðu sóknarlotur Sovétmanna
með því að leika stíft maður gegn
manni og koma í veg fyrir að þeir
gætu brunað upp kantana eins og
þeir gerðu á svo áhrifaríkan hátt
gegn Ungverjum í fyrsta
leiknum. Leikur Frakka var allt
annar og betri en þegar þeir
mörðu sigur á Kanadabúum.
„Ég er ánægður með • leik
minna manna, þeir sýndu miklar
framfarir,“ sagði Henri Michel
þjálfari Frakka. Valery Loban-
ovsky, hinn sovéski kollegi hans,
sagði að hann væri sáttur við úr-
slitin og að bæði lið hefðu verið
mjög taugaóstyrk í leiknum.
—VS/Reuter
Italía-A rgentína
Italir hengu á jöfnu
Fengu víti í byrjun. Maradona með stórleik og jafnaði
Síðasta hálftímann gegn Arg-
entínu í gær töfðu ítölsku
heimsmeistararnir leikinn sem
mest þeir máttu, sýnilega sáttir
við sitt annað 1-1 jafntefli í Mex-
Nicholas
úr leik
Charlie Nicholas, framherjinn
snjalli frá Arsenal, leikur ekki
meira með Skotum í
heimsmeistarakeppninni í Mex-
íkó. Eins og sjónvarpsáhorfendur
sáu var hann borinn af leikvelli
eftir gróft brot dansks varnar-
manns í leik þjóðanna í fyrra-
kvöld og í Ijós kom að liðbönd
voru illa tognuð. Sem betur fer
eiga Skotar skæða sóknarmenn til
taks, svo sem Frank McAvennie
og Steve Archibald sem voru ekki
í byrjunarliðinu gegn Dönum.
—VS/Reuter
Diego Maradona sýndi
snilli sína þrátt fyrir
stranga gæslu í leiknum
við ítali.
íkó. Þeir höfðu sitt fram og
treysta nú á að sigra Suður-
Kóreu og tryggja sér þannig ör-
ugglega sæti í 16-liða úrslitum
keppninnar.
Argentínumenn hófu leikinn
af miklum krafti en það voru ítal-
ir sem skoruðu. A 7. mínútu
hrökk boltinn í hendi Jorge Burr-
uchaga þegar Bruno Conti reyndi
að leika á hann í argentínska víta-
teignum. Nokkuð saklaust, en
vítaspyrna samt þrátt fyrir gífur-
leg mótmæli Argentínumanna.
Sandro Altobelli skoraði úr
henni, sitt annað mark í keppn-
inni, 1-0.
Mínútu síðar skallaði Giu-
seppe Galderisi naumlega fram-
hjá argentínska markinu en síðan
tóku þeir suður-amerísku völdin.
Diego Maradona var þar í aðal-
hlutverki, hann reif sig lausan úr
gæslu félaga síns frá Napoli, Sal-
vatore Bagni, og olli miklum usla
í ítölsku vörninni.
Maiadona lék tvo varnarmenn
grátt á 18. mín. og skaut en bolt-
inn hrökk af ítala í horn. Jose
Luis Brown átti skalla á 22. mín.
sem ítalir björguðu á línu, með
hendi vildu margir meina.
Argentína verðskuldaði mark
og það kom á 34. mín. Ricardo
Giusti lyfti boltanum skemmti-
lega innfyrir vörn ítala, Mara-
dona laumaði sér óvænt í gegn og
skoraði af öryggi, 1-1. Óöryggið í
vörn ítala jókst til muna og engu
munaði að Maradona skoraði
aftur eftir að hafa hirt boltann af
mótherja við vítateig.
ítalir brutu oft illa af sér til að
stöðva sóknarmenn Argentínu
og gulu spjöldin tóku aö fara á
loft. Bergomi fékk eitt þeirra,
hans annað í keppninni. Hann
verður því í leikbanni gegn
Suður-Kóreu.
Argentína sótti látlaust en eftir
skyndisókn ítala á 57. mín. skaut
Conti í stöng. Pumpido í marki
Argentínu varði síðan vel lang-
skot frá Cabrini. Maradona var
rétt búinn að leggja upp mark
fyrir Ruggieri en síðan náði ítal-
ska vörnin öllum völdum og
heimsmeistararnir héngu á öðru,
stiginu.
Þjálfarar liðanna voru sam-
mála um að þrátt fyrir hörkuna
hefði leikurinn ekki verið grófur,
hann hefði verið leikinn af sann-
girni. „Ég tel að Maradona hafi
verið valdaður á heiðarlegan
hátt, ekkert í líkingu við hvernig
Suður-Kóreubúar fóru með
hann. Það var slæmt að fá á sig
mark svona snemma en það var
gott að ná sér á strik eftir það og
jafna,“ sagði Carlos Bilardo,
þjálfari Argentínu. „Maradona
lék frábærlega, sérstaklega í fyrri
hálfleik, en Bagni stóð sig líka vel
við að gæta hans. Lið mitt lék vel í
fyrri hálfleik en hraðinn þá kom
niður á leik þess í seinni hálfleik,“
sagði Enzo Bearzot, þjálfari ít-
ala. —VS/Reuter
Búlgaría-S-Kórea
Kórea nær sigri
Búlgarir enn aldrei unnið á HM
íslandsmótið
Heil umferð
leikin í kvöld
Heil umferð verður leikin í 1. dcildinni í knattspyrnu í kvöld,
eða 5 leikir. Þetta er 5. umferð, en á þriðjudagskvöld verða
leiknir þeir tveir leikir sem frestað var um daginn, Breiðablik-
Fram og Þór-ÍBV.
ÍA og FH leika á Akranesi og botnliðin, ÍBK og ÍBV í
Keflavík. Báðir þessir leikir hefjast kl. 19. Kl. 20 hefjast svo
hinir þrír, Breiðablik-Víðir í Kópavogi, Valur-Fram að Hlíðar-
enda og Þór-KR á Akureyri.
í 2. deild eru tveir leikir í kvöld. KS og ÍBÍ leika á Siglufirði og
Völsungar mæta UMFN á Húsavík.
—VS
Búlgörum ætlar ekki að takast
að vinna leik í úrslitakeppni HM í
knattspyrnu. Þeir gerðu sína 14.
tilraun, frá upphafí til þess í gær-
kvöldi, en máttu þakka fyrir að
sleppa með 1-1 jafntefli gegn
Suður-Kóreu í gær.
Suður-Kórea var mun betri
aðilinn allan tímann. Búlgarir
fengu hinsvegar hættuleg færi
framanaf og Plamen Getov
skoraði eftir slæm mistök Oh
markvarðar á 11. mínútu.
Þrumuveður og ausandi rigning
skall á og völlurinn varð þungur
og erfiður yfirferðar en það
hindraði ekki Kóreubúana í að
sækja stíft í seinni hálfleik. Joo-
Sung Kim átti þrumuskot í stöng
og síðan varði Borislav Mikhail-
ov naumlega frá honum. Jong-
Boo Kim jafnaði síðan með ó-
verjandi hörkuskoti 20 mín. fyrir
leikslok og 1-1 urðu lokatölurn-
—VS/Reuter
ar.
V-Pýskaland
Stuttgart
kaupir
Stuttgart, félag Ásgeirs Sigur-
vinssonar, keypti í gær ntark-
vörðinn Eike Immel frá Dort-
mund fyrir 1,7 miljónir marka,
sem er vestur-þýskt met fyrir
knattspyrnumarkvörð. Immel er
í landsliðshópi V.Þjóðverja í
Mexíkó.
—VS/Reuter
Mexíkó
Zico enn úr leik
Rummenigge vill ekki spila gegn Skotum
Brasilíumenn verða enn að
leika án snillingsins Zico í
heimsmeistarakeppninni í Mex-
íkó. Hann varð fyrir meiðslum á
æfíngu í fyrradag og ljóst er að
hann getur ekki leikið gegn Alsír í
dag, verður ekki einu sinni á
varamannabekknum.
Fyrirliði Vestur-Þjóðverja,
Karl-Heinz Rummenigge, lýsti
því yfir í gær að hann hefði lítinn
áhuga á að leika gegn Skotum á
sunnudaginn þar sem hann ætti
enn við meiðsli að stríða. Rum-
menigge kom inná gegn Uruguay
20 mín. fyrir leikslok á miðviku-
daginn og átti drjúgan þátt í að
Vestur-Þjóðverjar náðu að jafna.
Hann er ekki sáttur við þetta
hlutverk sitt, vill helst ekki leika
nema hann geti beitt sér á fullu.
—VS/Reuter
Föstudagur
'AðvILJINN - SÍÐA 15