Þjóðviljinn - 06.06.1986, Síða 16
ÞJOÐVIIJINN Mff firirt JWÁRA
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Fðstudagur 6. júní 1986 125. tölublað 51. árgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Stéttasambandið
Fundurá
Hvanneyri
Aðalfundur Stéttasamband
bænda verður að þessu sinni
haldinn að Hvanneyri í Borgar-
firði. Hefst hann að morgni
ménudags 9. júní n.k. en fundar-
slit eru áætluð á miðvikudags-
kvöld. Undanfarin ár hefur aðal-
fundurinn verið haldinn síðla
sumars en af ýmsum ástæðum
þykir rétt að vera fyrr á ferð með
hann nú.
Fyrsta dag fundarins flytur for-
maður Stéttasambandsins, Ingi
Tryggvason skýrslu sína, lagðir
verða fram reikningar Stéttasam-
bandsins og Bændahallarinnar,
landbúnaðarráðherra flytur ræðu
og gestir ávarpa fundinn. Þá fara
fram umræður um skýrslu for-
manns og reikninga, kosið verður
í nefndir og málum vísað til
þeirra. Annar dagur fundarins
mun að venju fara í nefndastörf.
Á miðvikudag fer svo fram af-
greiðsla mála en hátt á annað
hundrað ályktanir frá bænda-
fundum víðsvegar um land liggja
fyrir fundinum.
Fundurinn verður nú fjöl-
mennari en áður því 10 búgreina-
sambönd hafa gerst aðilar að
Stéttasambandinu. Þau eru: Fé-
lag hrossabænda, Svínaræktarfé-
lag íslands, Félag kjúklinga-
bænda, Samband eggjaframleið-
enda, Landssamtök sauðfjár-
bænda, Landssamtök kúabænda,
Landssamband kartöfluframleið-
enda, Félag garðyrkjubænda,
Æðarræktarfélag íslands og Fé-
lag ferðaþjónustubænda. Öll
munu þau senda fulltrúa á aðal-
fundinn. -mhg
Herbie Hancock djassleikari spilaði í gærkveldi fyrir fullu húsi á Broadway.
Prógram hans einkenndist af rólegri tónlist og vakti leikur hans mikla hrifningu
viðstaddra. Hancockdreifði blómum meðal áhorfenda í lok tónleikanna. Ljósm.
Ari. :
Blönduhlíð
Grímsvötn
Búist við hlaupi
Sigurjón Rist vatnamœlingamaður: Efmiðað er viðþað munstur sem
var á Grímsvatnahlaupumfrá 1938 til 1982 má búast við hlaupi í
sumar eða haust. Óreglulegar skvettur úr Grímsvötnum sl. 3 árgeta
settstrik í reikninginn varðandi þessa spá
Irúm 44 ár eða frá 1938 til 1982
var sama munstur á Gríms-
vatnahlaupi og það svo að maður
gat orðið spáð nákvæmlega um
það hvenær hlaup yrði. Sam-
kvæmt því munstri má gera ráð
fyrir hlaupi í Grímsvötnum í sum-
ar eða haust og hugsanlega gæti
það dregist eitthvað fram á vetur-
inn. Það styður auk þess þessa
spá að vart hefur orðið við há-
hitavatn meira en venjulega, sem
bendir til þess að eitthvað leki úr
Grímsvötnum, sagði Sigurjón
Rist vatnamælingamaður í gær.
Sigurjón bætti því við að sú ó-
regla sem verið hefði á skvettum
úr Grímsvötnum síðan 1983 gæti
sett strik í þennan reikning. Þar
var um að ræða, sagði Sigurjón,
allt annað hegðunarmunstur en
verið hafði næstu 44 ár á undan.
Þó sagði hann það ljóst miðað við
það sem gerst hefur síðustu árin,
að mikil fylla er nú í Gríms-
vötnum.
Menn kalla Grímsvatnahlaup
líka Skeiðarárhlaup vegna þess
að mest af vatninu fellur fram í
þeirri á. En Sigurjón benti á að
hlaup úr Grímsvötnum færi í
fleiri ár og menn kviðu miklu
hlaupi vegna brúnna á Skeiðar-
ársandi. Þó sagðist hann ekki
eiga von á neitt sérstaklega stóru
hlaupi nú ef af verður.
Loks bendi Sigurjón á að um
miðjan þennan mánuð myndi
leiðangur gerður út til að kanna
ástand mála á svæðinu og yrði
betur hægt að spá í stöðuna að
þeim rannsóknum loknum.
-S.dór
Stór-
bmni
í fyrradag
Stórtjón varð í bruna á bænum
Alfgeirsvöllum í Blönduhlíð í
fyrradag. Þá brunnu útihús til
kaldra kola og geryðilögðust m.a.
tvær dráttarvélar, önnur spáný.
Það var um kl. 18.25 sem til-
kynnt var um eldinn til lögregl-
unnar á Sauðárkróki. Þegar að
var komið loguðu hús stafna á
milli og var engu hægt að bjarga.
Það sem brann voru 100 kinda
fjárhús, vélgeymsla vel búin
tækjum, hesthús og hlaða.
Svíþjóð
Söngleikur eftir Atómstööinni
Hasse Alfredsson, einn vinsælasti leikstjóri Svíþjóðar, hefurgert söngleik eftirsögu Laxness.
Frumsýnd á Dramaten nœsta vor. Lena Nyman leikur Uglu
Hans Alfredsson var um árabil
þekktastur sem helmingurinn af
skemmtidúettinum Hasse og Tage
en á undanförnum árum hefur hann
haslað sér völl sem sjálfstæður
kvikmyndaleikstjóri með meiru.
Aftonbladet sænska skýrir frá
því í gær að einn þekktasti
leikstjóri og skemmtikraftur svía
um langt árabil, Hans Alfreds-
son, hafi gert söngleik eftir bók
Halldórs Laxness, Atómstöðinni.
Verður hann settur upp á Dra-
maten í Stokkhólmi næsta vor en í
hlutverki Uglu verður hin þekkta
leikkona Lena Nyman.
í viðtali við Aftonbladet segir
Hasse eins og hann er oftast
nefndur frá því að hann hafi feng-
ið hugmyndina að gerð söngleiks-
ins árið 1980. Bar hann málið
undir samstarfsmann sinn í gegn-
um tíðina, Tage Danielsson, en
honum leist ekkert á blikuna. Þá
hringdi Hasse í Halldór Laxness
og bar hugmyndina undir hann.
Að sögn Hasse rak Laxness fyrst í
rogastans en sagði svo að ef hann
treysti sér til að gera söngleik
eftir Atómstöðinni skyldi hann
bara gera það. „Það er sjálfsagt
hægt fyrst hægt er að gera ballett
um saltfisk,“ sagði Halldór og átti
þar við ballett sem finnar gerðu
eftir Sölku Völku.
Það var þó ekki fyrr en eftir
andlát Tage á síðasta hausti sem
Hasse dró hugmyndina upp úr
skúffu. Söngleikurinn ber heitið
Lítil eyja í hafinu og er mestöll
tónlistin eftir sænsku hljóm-
sveitina Jazz Doctors. Tvö ís-
lensk lög verða flutt í sýningunni,
Á Sprengisandi og Móðir mín í
kví kví.
Eins og áður sagði hefur Hasse
notið mikilla vinsælda í Svíþjóð
um langt árabil. Hann stofnaði
fyrirtækið Sænsk orð hf. í félagi
við Tage og saman áttu þeir óslit-
inn frægðarferil á flestum sviðum
skemmtanalífsins, þeir sömdu re-
víur, gamanþætti, bækur og
gerðu kvikmyndir og er Ævintýri
Picassos sennilega þekktust
þeirra.
Á undanförnum árum hefur
Hasse getið sér gott orð sem sjálf-
stæður kvikmyndaleikstjóri.
Amk. ein mynda hans hefur verið
sýnd hér á landi, Einfaldi morð-
inginn, og í fyrra fékk hann æðstu
kvikmyndaverðlaun svía fyrir
mynd sína Falskur eins og vatn. 1
sumar hyggst Hasse hefja tökur á
bamamynd eftir eigin handriti.
Hún á að heita Jim og sjóræningj-
arnir Blum og er að hans sögn
kómedía, uppfull af tæknibrell-
um. Þar segir frá viðbrögðum
ungs drengs við dauðanum og
hafa menn sett fram þá kenningu
að Hasse vilji með þessari mynd
heiðra Tage látinn.
Auk þess að vera
skemmtikraftur hefur Hasse alla
tíð verið virkur þátttakandi í
sænskri þjóðfélagsumræðu og
ma. beitt sér töluvert í baráttunni
gegn byggingu kjarnorkuvera í
Svíþjóð.
—ÞH