Þjóðviljinn - 04.07.1986, Page 2
Landsmótið
Lögregla
með
viðbúnað
Um miðjan dag í gær var talið
að um 6000 manns væru komin á
Gaddstaðaflatir við Hellu og var
stöðugur straumur fólks á svæðið
allan daginn í gær. Veður var
mjög gott og hefur allt farið vel
fram.
Kristján Guömundsson
lögregluþjónn á Hellu sagði í
samtali við blaðið í gær að
ferðahraði væri skikkanlegur og
umferðarþungi ekki mjög mikill.
„Umferðin er mjög jöfn og góð
og engin vandræði hafa orðið“,
sagði Kristján.
Lögregla hefur talsverðan
viðbúnað á Hellu meðan á
mótinu stendur. Að sögn
Kristjáns kemur lið frá
Reykjavík, Selfossi ogvíðar til að
halda uppi lögum og reglu og
verða fjölmennar vaktir allan
sólarhringinn. „Þetta ætlar að
verða mikill fjöldi gesta og við
erum við öllu búnir“, sagði
Kristján.
Það verður mikið um að vera á
Hellu í dag, þótt sunnudagurinn
sé óumdeilanlega hápunktur
mótsins. Alhliða gæðingar verða
dæmdir, stóðhestar sömuleiðis,
unglingar 12 ára og yngri keppa,
Félag hrossabænda kynnir
söluhross eftir hádegið,
töltkeppni kl. 16.00 og kl. 19.00
verður sameiginlegur útreiðartúr
um svæðið. Þá kemur hestalestin
fræga úr kaupstaðarferð og um
kvöldið verður dansleikur í
Njálsbúð.________—gg
Alþýðuflokkurinn
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Jón Baldur Lorange hefur ver-
ið ráðinn framkvæmdastjóri Al-
þýðuflokksins.
Jón starfaði áður sem skrif-
stofustjóri fslensku hljómsveitar-
innar og hefur kennt tölvufræði.
Hann er 22ja ára gamall.
FRETTIR
Jóhannes Ragnarsson ásamt dætrum sínum, Ásdísi Helgu t.v. og Þuríði Rögnu.
Ólafsvík
Lágmark 30.000 krónur
Jóhannes Ragnarsson, formaður Alþýðubandalagsins í Ólafsvík: Skylda okkar
sem Alþýðubandalagsmanna að leggja áherslu á þetta mál
„Þetta er í fyrsta sinn í sögu
Ólafsvíkur sem íhald og Fram-
sókn missa meirihluta sinn, þeir
eru náttúrulega alveg brjálaðir.“
Það er Jóhannes Ragnarsson,
formaður Alþýðubandalagsins í
Ólafsvík, sem talar. Jóhannes
mun vera einn af arkitektum nýja
meirihlutans í bæjarstjórninni á
staðnum, Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og Lýðræðissinna.
„Þetta er meirihluti félagshyggju
og var víst kominn tími til“, held-
ur Jóhannes áfram. „Og það segir
náttúrulega sitt um æsing fráfar-
andi meirihluta að nýlega var
helgistund í Staksteinum Morg-
unblaðsins um þessa niðurstöðu
kosninganna hjá okkur."
Þegar Jóhannes er spurður að
því hvað honum finnist mark-
verðast í nýjum málefnasamningi
meirihlutans, nefnir hann strax
ályktun um að sú almenna regla
gildi að laun fyrir dagvinnu verði
ekki lægri en 30.000 kr. á mán-
uði. „Þetta var stór þáttur hjá
okkur Alþýðubandalags-
mönnum í kosningabaráttunni.
Það er auðvitað skylda okkar sem
Alþýðubandalagsmanna að
leggja áherslu á framgang þessa
máls. Það gekk vel fyrir sig að ná
samkomulagi um málið í meiri-
hlutanum, enda ekki nema sjálf-
sagt. Þetta er nú engin ofrausn,
30.000 kr. á mánuði."
„Annað mál úr. atvinnulífinu
sem við lögðum mikla áherslu á
varðandi atvinnulífið á staðnum
er varðandi atvinnumál aldraðs
fólks. Það er nú svo með staði úti
á Iandi sem byggja á fiskvinnslu
og fiskveiðum að fólk ræður
eiginlega ekki við þessi störf
nema á besta aldri, svona á
heildina litið. Það er mikið um
það að fólk sem gengur ekki heilt
til skógar, eða er farið að reskj-
ast, á ekki völ á annars konar
vinnu og lætur sig því hafa það.
Nú á að leggja áherslu á að þetta
mál komist á það stig að eitthvað
verði gert til úrbóta. Eins og á-
standið er nú leitar fólk mikið
suður á Stór-Reykjavíkursvæðið
þar sem meiri fjölbreytni ríkir.
Þessu máli hefur ekki verið sinnt
af neinni alvöru en nú er kominn
rétti tíminn til þess“, sagði Jó-
hannes að lokum.
1H
DÆMI
SEM VERT ER AÐ ATHUGA
í HÚSGAGNADEILDlll - '*■
15°/<
STAÐGREIÐSLU-
O AFSLÁTTUR
SERSTAKT SUMARTILBOÐ
Engir vextir í 4 mánuði
Ath. Aðeins í húsgagnadeild
Lokað á laugardögum í sumar.
Dæmi 1:
Húsgagnakaup fyrir kr. 25.000, kr. 5000 út og kr.
5000 pr. mánuð í 4 mánuði. VAXTALAUST.
Dæmi 2:
Húsgagnakaup fyrir kr. 50.000, kr. 10.000 út og
kr. 10.000 pr. mánuð í 4 mánuði. VAXTALAUST.
ATH. Einnig skuldabréf í allt að 8 mánuði með
20% útborgun.
JIS
KORT
Ji
Jón Loftsson hf.
Miii A A
Hringbraut 121 Sími 10600
Húsgagnadeild - Sími 28601
i zi Uiji]3
: uaqQaqrrí
iuudc),-
Ætli eitthvað hafi verið útí kaff-
inu á Húsavík?
Kópavogur
Stór-
markaðurinn
lægstur
Töluverður verðmunur
áýmsum vörutegundum
íkönnun
Neytendasamtakanna
og verkalýðsfélaga í 9
verslunum í Kópavogi
Stórmarkaðurinn í Kópavogi
sker sig úr sem ódýrust þeirra
níu verslana sem nýjasta verð-
könnun Neytendafélags Reykja-
víkur og aðildarfélaga ASÍ og
BSRB náði til á ýmsum algengum
neysluvörum. Verð á matvörum
var í langflestum tilfellum lægst í
Stórmarkaðnum eða í 15 tilfellum
af 20.
Töluverður verðmunur var á
milli verslana á einstökum vöru-
tegundum. Þannig kostaði 1 kg af
lauk 49 kr. í Kaupgarði Engi-
hjalla en 82.60 í Sækjöri við
Kársnesbraut. Er þessi verðmun-
ur rakinn að hluta til mismunandi
verðs hjá innflytjendum. Einnig
má nefna að 550 gr. af íva þvotta-
dufti kostaði 57,95 kr. hjá Stór-
markaðnum en 73,40 þar sem
það var dýrast í Matvali við Þing-
holtsbraut.
-Ig-
Landbúnaður
Að nýta land
Landbúnaðarráðuneytið hefur
gefið út á bók skýrslu sem
heitir: Landnýting á íslandi ogfor-
sendur fyrir landnýtingaráœtlun.
Þessi skýrsla er niðurstaða nefnd-
ar sem unnið hefur frá árinu 1984
að því að kanna þessi mál.
f skýrslunni er dregið saman
mikið af upplýsingum um land-
nýtingu á fslandi, sem ekki hafa
verið áður tiltækar á einum stað í
svo aðgengilegu formi. í skýrsl-
unni er einnig fjöldi korta og
skýringarmynda um hina ýmsu
þætti er tengjast landnýtingu.
í niðurstöðum kemur fram að
nefndin telur æskilegt að Skipu-
lagi ríkisins verði falið í framtíð-
inni að vinna að gerð landnýting-
aráætlunar. Lagt er til að tvær
fastanefndir verði skipaðar til að
fylgjast með og vera til ráðgjafar í
því efni, önnur skipuð fulltrúum
Alþingis en hin fulltrúum þeirra
ráðuneyta, ríkisstofnana og ann-
arra aðila sem mestra hagsmuna
hafa að gæta við gerð slíkrar áætl-
unar.
Skýrslan „Landnýting á íslandi
og forsendur fyrir landnýtingar-
áætlun" er 105 tölusettar blaðsíð-
ur, gefin út í 1500 eintökum og er
seld í bókaverslunum.
-'g-