Þjóðviljinn - 04.07.1986, Page 21

Þjóðviljinn - 04.07.1986, Page 21
HEIMURINN Norðmenn Hætta hvalveiðum í ágóðaskyni Norska ríkisstjórnin ákvað ígœr að hœtta hvalveiðum íágóðaskynifrá ogmeð nœstu áramótum, fyrir þrýstingfrá Bandaríkjamönnum, eftir þvísem Reuter fréttastofan segisthafa heimildir fyrir. Norðmenn œtla sérhins vegarað veiða hval í vísindaskyni Osló — Norðmenn hafa látið undan alþjóðlegum þrýstingi og tilkynntu í gær að þeir hefðu ákveðið að hætta hval- veiðum í ágóðaskyni frá og með næstu áramótum. Knud Frydenlund utanríkis- ráðherra landsins tilkynnti á fréttamannafundi í gær að hval- veiðar Norðmanna í ágóðaskyni myndu héðan í frá minnka smátt og smátt og ljúka alveg í lok næsta árs. Hins vegar myndu Norðmenn halda áfram hval- veiðum eftir þann tíma í vísinda- skyni. Norðmenn eru síðasta þjóðin innan vébanda Alþjóða- hvalveiðiráðsins sem ákveða að hætta hvalveiðum í ágóðaskyni. Samkvæmt heimildum Reuter fréttastofunnar úr herbúðum norsku ríkisstjórnarinnar mun þessi ákvörðun hafa verið tekin eftir þrýsting Bandaríkjastjórnar sem hótaði að banna innflutning á norskum fiskafurðum til Bandaríkjanna ef Norðmenn hættu ekki hvalveiðum. Fréttamaður Reuter fréttastof- unnar ræddi við talsmann Green- peace samtakanna um borð í skipi þeirra Moby Dick sem verið hefur við Noregsstrendur til að trufla hvalveiðar Norðmanna. Hann sagðist telja að þessi niður- staða væri mikill sigur fyrir um- hverfisverndarsinna. Hann sagði einnig að þeir myndu nú hverfa aftur til hafnar í Osló. Áhöfn skipsins hefur þrívegis verið handtekin fyrir að vera með ólög- legum hætti í landhelgi Noregs. Þegar haft var samband við höf- uðstöðvar Greenpeace í Eng- landi sagði David McTaggart, formaður samtakanna, að þessi ákvörðun væri aðeins fals. Norð- menn ætluðu að halda áfram að veiða og drepa hval, nú undir yf- irskyni vísinda. Ríkisstjórn Noregs tilkynnti í gær að hún myndi setja á stofn óháða nefnd til að rannsaka mis- munandi niðurstöður vísinda- manna um það hversu stór hrefnustofninn er. Ákvarðanir verða síðan teknar um framhald- Moby Dick, skip Greenpeace-manna. ið í ljósi þeirra niðurstaðna sem nefndin kemst að ásamt viðhorf- um Alþjóðahvalveiðiráðsins til þessa máls. Norðmenn hafa smátt og smátt minnkað hrefnuk- vóta sinn, úr 2000 hrefnum snemma á þessum áratug, niður í 400 hrefnur á þessu ári. Þrátt fyrir það hafa hvalveiðar Norðmanna valdið hinni 7 vikna gömlu ríkis- stjórn Verkamannaflokkksins nokkrum vandræðum en fulltrúi Norðmanna er formaður nefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna um umhverfisvernd. Bjarne Moerk, sjávarútvegs- ráðherra Norðmanna sem er á- kveðinn fylgismaður norskra hvalveiða, sagði á fréttamanna- fundi í gær, að eining væri innan ríkisstjórnarinnar um þetta mál en lagði áherslu á að Norðmenn myndu halda áfram hvalveiðum ef sérfræðingar kæmust að þeirri niðurstöðu að hrefnustofninn væri nógu stór fyrir þær. Norð- menn hættu hvalveiðum í stórum stíl árið 1967, nú eru þar aðeins veiddar hrefnur við norður strönd Noregs á 55 litlum bátum. Þetta tlkSimmm París — Ef marka má skoðana- kannanir hefur Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands, fall- ið í áliti hjá Frðkkum um 8%. Samkvæmt skoðanakönnun franska blaðsins LÉxpresse voru aðeins 38% aðspurðra ánægðir með frammistöðu Chirac í emb- ætti í júní miðað við 46% í maí, óánægðir voru 48% miðað við 39% í maí. Mitterrand, forseti er hins vegar vinsæll meðal að- spurðra, 59% voru ánægðir með störf hans í maí, hafði sú tala minnkað um aðeins eitt prósent frá fyrri mánuði. Lausanne—Talsmaður Alþjóða ól- ympiunefndarinnar sagði í gær að Norður- og Suður-Kóreumenn hefðu „brugðist mjög jákvætt“ við tiliögu um að þjóðirnar skipti með sér umsjón með næstu Ólympíu- lelkum. Tel Aviv — Utanríkisráðherra ísra- els neitaði í gær í blaðaviðtali að hann hefði átt þátt í að hylma yfir morð á tveimur Palestínuaröbum árið 1984 sem þá voru í haldi í Isra- el fyrir að ræna strætisvagni. Varsjá — Wojcieck Jaruzelski, hershöfðingi, var í gær einróma endurkjörinn leiðtogi kommún- istaflokks Póllands á síðasta degi fyrsta þings kommúnistaflokksins frá Samstöðudeilunum 1981. París — Frakkland ætlar að nema úr gildi svo til að allar takmarkanir sem eru á erlendum gjaldeyrisvið- skiptum í tengslum við viðskipta- lífið í landinu. I tilkynningu franska fjármálaráðuneytisins frá því í gær var sagt að reyna ætti með þessu að bæta stjórn þess á verslun með almennan gjaldeyri. ERLENDAR FRÉTTIR hjörleifsson'R EUIER Mexíkó Fylgst með Chihuahua ✓ A sunnudaginn verða kosningar til fylkisstjórnar í Chihuahua, stœrsta fylki Mexíkó, oggagnrýnendur stjórnarinnarsegja hana munu hagrœða úrslitum kosninganna. Slíkgagnrýni á mexíkönskstjórnvöld er ekki ný afnálinni í Mexíkó Mexfkóborg — Kjósendur í stærsta fylki Mexíkó, Chihua- hua, því fylki landsins þar sem pólitískt litróf er hvað fjöl- breytilegast, ganga á sunnu- daginn til kosninga á sama tíma og gagnrýni á stjórn landsins fer stöðugt vaxandi. Chihuahua var vagga mexík- önsku byltingarinnar í upphafi aldarinnar og gagnrýnendur stjórnarinnar fylgjast nú grannt með því hvort stjórnvöld eru til- búin að breyta út af hefðbundinni hagræðingu kosningaúrslita og leyfa lýðræðinu að njóta sín. Gagnrýnendur segja að nú sé kominn tími á stjórnina til að leyfa kröfum níunda áratugarins, um eitthvað annað en það eins flokks kerfi sem hefur verið í Mexíkó síðustu 58 árin, að koma fram. De la Madrid. Ýmsir bankastjórar í landinu hafa lýst því yfir að þetta sé skil- yrði þess að mögulegt verði að ráða bót á bágbornu efnahagsá- standi landsins. Þeir segja að eng- in leið sé að koma á þessum breytingum nema núverandi kerfi flokksræðis og spillingar verði afnumið. Hinn hægrisinnaði Þjóðar- hreyfingarflokkur (PAN) sem hefur meirihluta í sjö stærstu borgum fylkisins hefur lýst því yfir að stjórnarflokkurinn, PRI, sé að undirbúa stórfellt kosninga- svindl. Fulltrúar um það bil 200.000 kjósenda í 94 samtökum sem slegið hafa saman í „Lýðræð- islegu kosningahreyfinguna" segjast munu iama gervallt fylkið ef í ljós kemur að slíkt hefur gerst. Margir búast við að slík þróun mála muni leiða til ofbeld- is, sérstaklega í Ciudad Juarez sem er í norðurhluta landsins, rétt við landamæri Bandaríkj- anna. Það segir sjálfsagt sitt að PRI hefur aldrei tapað fylkis- stjóraembætti í neinu af 31 fylki landsins og fáir fréttaskýrendur telja líklegt að flokkurinn sé neitt sérstaklega viljugur til að missa þau yfirráð sín í stærsta og efnað- asta fylki landsins. Ef PRI grípur til kosningasvindls — og eitthvað í líkingu við það stórfellda kosn- ingasvindl sem PAN hélt fram að hefði átt sér stað í fylkinu Sonora fyrir ári síðan — þá kemur óhjá- kvæmilega fram mikill þrýstingur á stjórnvöld um lýðræðislegri vinnubrögð. Fulltrúar PRI blása á slíkar staðhæfingar, segja aða ekkert frammi og flokkurinn muni kosningasvindl hafi verið haft í endast í önnur 100 ár. Málningarvinna Tilboö óskast í aö mála aö utan húseignina Háaleitisbraut 68 (Austurver). Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu Lands- virkjunar Háaleitisbraut 68, til 9. júlí n.k.. Stjórn húsfélagsins C LANDSVIRKJUN Vinnubúðir til sölu Landsvirkjun áformar að selja, ef viðunandi til- boð fást, vinnubúðir við Búrfellsstöð. Um er að ræða eftirtalin hús: 4 íbúðarhús stærð 100 m2 1 mötuneytishús stærð 260 m2 1 íbúðarhús stærð 50 m2 1 svefnskáli stærð 260 m2 Dagana 4.-5. þessa mánaöar munu starfsmenn Landsvirkjunar sýna væntanlegum bjóðendum húsin frá kl. 10-18. Nánari upplýsíngar veitir innkaupastjóri Lands- virkjunar. Tilboð þurfa að berast Landsvirkjun, innkaupadeild, Háaleitisbraut 68,108 Reykjavík, eigi síðar en 8. þessa mánaðar. Föstudagur 4. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.