Þjóðviljinn - 25.07.1986, Page 13
HEIMURINN
Hassan-Peres
Engin niðurstaða
Peres er ánœgður eftir fund sinn með Hassan sem er
aftur heldur óánœgður og hefur nú boðað til fundar
Arababandalagsins
Jerúsalem - Shimon Peres, for-
sætisráðherra ísraels og
Hassan Marokkókonungur
sendu í gær frá sér sameigin-
lega yfiriýsingu þar sem sagði
að viðræðum þeirra hefði lokið
án árangurs varðandi frið í
Mið-Austurlöndum.
Peres sagði fundinn sögulegt
skref í átt að friði sem gæti leitt til
fleiri funda, Hassan virtist hins
vegar óhress yfir því að þetta
framtak hans skyldi fara út um
þúfur. í yfirlýsingu þeirra sagöi
að fundur þeirra hefði aðeins ver-
ið könnunarviðræður sem alls
ekki hefði átt að leiða til einhvers
samkomulags.
Hassan sagði í sjónvarpsávarpi
eftir lok fundarins í gær að hann
heðfi ákveðið að ljúka viðræðum
þegar ljóst varð að Peres væri
ekki tilbúinn til að ræða við
Frelsishreyfingu Palestínuaraba,
PLO, né að draga ísraelskt herlið
af herteknum svæðum araba.
í gær sendi Hassan skilaboð til
allra leiðtoga Arabaríkja um að
boða til ráðstefnu Arabaríkja
sem lengi hefur verið frestað.
Hassan vill ræða niðurstöður við-
ræðna sinna við Peres og skýra
ástæður sínar fyrir fundinum.
Hassan ráðfærði sig ekki við
neinn leiðtoga Arabaríkja fyrir
fundinn. PLO hefur beðið um
skyndifund Arababandalagsins,
FEZ. Hassan hefur tvívegis reynt
að koma á fundi með aðildar-
þjóðum en þær hafa ekki getað
komið sér saman um dagskrá.
Noregur S-Afríka
Efnahagslegar refsi-
aðgerðir í undirbúningi
Osló - Heimildarmenn Reuter
fréttastofunnar segja að stjórn
norska Verkamannaflokksins
hafi nú meirihluta á þingi til að
setja algjört bann á verslun við
S-Afríku, þará meðal umdeilda
olíuflutninga með norskum
skípum til landsins.
Harald Synnes, formaður
Kristilega Þjóðarflokksins sagði í
útvarpsviðtali í gær að flokkurinn
myndi styðja minnihiutastjórn
Verkamannaflokksins til að
leggja bann á verslun við S-
Afríku til að mótmæla stefnu
stjórnvalda þar. „Við getum
ekki lengur tekið sérstaka
hagsmuni Noregs fram yfir
stöðugt versnandi ástand í S-
Afríku,“ sagði Synnes.
Þar með hefur ríkisstjórnin
fengið meirihluta á þinginu sem
hefst aftur í haust til að beita S-
Afríkustjórn refsiaðgerðum.
Reglugerðir þar að lútandi eru nú
í smíðum. Leiðtogar íhalds-
tlokksins, stærsta stjórnarands-
töðuflokksins, sögðu í gær að
allsherjar viðskiptabann þjónaði
engum tilgangi nema Bretar,
Bandaríkjamenn og Vestur-
Þjóðverjar gerðu slíkt hið sama.
Javier Perez De Cuellar er nú á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð.
Sameinuðu Þjóðirnar
Aðalritarinn í aðgerð
Sameinuðu Þjóöunum - Aðalrit-
ari Sameinuðu Þjóðanna, Javi-
er Perez de Cuellar, gekkst í
gær undir hjartaaðgerð á Mo-
unt Sinai sjúkrahúsinu í New
York, að sögn talsmanns Per-
ezar.
Perez sem er 66 ára að aldri, fór
í fyrradag á sjúkrahús í hefð-
bundna rannsókn en læknar á
sjúkrahúsinu tóku þá ákvörðun
að Perez yrði að fara í aðgerð.
Perez kom til New York í síðustu
viku eftir tveggja vikna heimsókn
um fimm Evrópulönd. Perez ætl-
aði síðan aftur af stað í ferð um
nokkur Afríkulönd á síðasta
þriðjudag. Þeirri ferð var frestað
vegna kvartana Perezar um of-
þreytu og læknar hans ráðlögðu
honum að fara í rannsókn.
Frakkinn Jean Ripert, forstöðu-
maður þróunar- og efnahagss-
tofnunar SÞ veitir samtökunum
forstöðu í fjarveru Perezar ásamt
30 aðstoðaraðalriturum.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR /nrinco
HJÖRLEIFSSON R E Ui E R
Ýmsir valdamenn sem ekki vilja láta nafns síns getið virðast vilja meiri umbylt-
ingu en Corbatsjof.
Sovétríkin
Háttsettir menn
hvetja til umbyltingar
Hópur fólks sem nefnir sig „Hreyfingu um sósíaliska
endurnýjun “ og vill enn meiri endurnýjun en Gorbat-
sjof á sovéska kerfinu fœr skömm í hattinn hjá yfir-
völdum
Moskvu - Háttsettur sovéskur
embættismaður sagði í gær að
skjai það sem áður óþekkt
samtök sendu breskum og
bandarískum blaðamönnum í
síðustu viku um róttækar
breytingar á sovéska þjóðfé-
lagskerfinu, væri andsósíal-
ískt og ögrandi.
Fréttaritari The Guardian í
Moskvu, Martin Walker sagði að
skjalið kæmi frá háttsettum
mönnum í sovéska embættis-
mannakerfinu. í skjalinu segir
m.a. að ef komast eigi hjá frekari
hnignun í landinu verði að gera
róttækar breytingar á efnahags-
kerfinu og pólitísku munstri
stjórnkerfisins. Skjalið er 24
síðna langt og hópurinn sem
stendur að baki því, nefnir sig
Hreyfingu um sósíaliska endur-
nýjun og heldur til í Leningrad,
eftir því sem Walker segir. Hann
segir það ekki ólíklegt að í þess-
um hópi sé að finna KGB menn.
Walker segir einnig að skjalið
sé afurð undirbúnings undir 27.
þing sovéska kommúnistaflokks-
ins sem haldið var í mars síð-
astliðnum. Þar hafi því hins vegar
verið hafnað. í nóvember á síð-
asta ári hafi hópurinn sent skjalið
til sovéskra fjölmiðla. Samkvæmt
Walker hefðu þeir komið fram í
sjónvarpi og rökrætt það ef það
hefði fengist birt. Þar sem slíkt
hafi ekki gerst, hafi verið ákveðið
að koma ekki fram opinberlega.
Reuter fréttastofan hafði eftir
háttsettum vestrænum dipló-
mötum að þeir efuðust um gildi
þessa skjals.
0g
þetta
líka...
Genf - Sendinefndir Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna héldu í
gær fund um Salt-2 samkomu-
lagið frá 1979 um takmörkun
kjarnorkuflauga.
Brussel - George Schultz, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að mögulegt væri að
Bandaríkjamenn gipu til ein-
hverra aðgerða gegn S-
Afríkustjórn en slíkt yrði alltaf að
framkvæma í samráði við banda-
menn Bandaríkjanna.
Khartoum - Súdanski herinn
stöðvaði í gær framsókn súd-
anskra skæruliðasveita og
hröktu þá af hæð sem stendur við
Juba flugvöllinn. Tryggði herinn
þannig að nýju örugg tök sín á
höfuðborginni.
París - Franska ríkisstjórnin
stöðvaði í gær umræður á þingi
um þingsályktunartillögu sem
setur ákveðin skilyrði fyrir sölu 65
ríkisfyrirtækja.
Varsjá - Pólsk yfirvöld leystu í
gær úr haldi fyrstu pólitísku fang-
ana samkvæmt lögum sem
gengu í gildi í fyrradag. Sam-
kvæmt þeim má búast við að allt
að 350 samviskufangar verði
látnir lausir.
París - Karlmaður sem talinn er
vopnaður sprengiefnum flýði í
gær úr banka einum í miðborg
Parísar með konu sem gísl og
krafðist 10 milljarða franka fyrir
hana.
Edinborg - Samveldisleikarnir í
Edinborg voru settir í gær. í frétt-
askeyti Reuters sagði aö börnum
hefði með mikilli fjöldasýningu
tekist að létta nokkuð á því þunga
andrúmslofti sem ríkt hefur við
undirbúning leikanna.
Bonn - Fyrrverandi fjármálaráð-
herra V-Þýskalands, Otto
Lambsdorff, sagði í gær að hann
væri himinlifandi yfir því sem
hann nefndi algjöra sýknu í spill-
ingarmáli hans sem verið hefur
fyrir dómstólum að undanförnu.
Hann taldi ekki ólíklegt að hann
yrði beðinn að taka sæti í ríkis-
stjórninni að nýju.
Ítalía
Craxi aftur forsætisráðherra
Haft var eftir heimildum í gær að Bettino Craxi muni aftur taka að sér
forsœtisráðherraembœttið, lausn í deilu sósíalista og kristilegra dem-
ókrata sé í sjónmáli
Róm - Nú virðist sem ein
versta ríkisstjórnarkreppan
eftir stríð sé brátt á enda og
Bettino Craxi endurlífgi stjórn
sína sem forsætisráðherra
fram á næsta vor, þá taki
Kristilegur demókrati við í
fimm flokka stjórninni.
Bjartsýni virðist hafa aukist
eftir að Craxi lauk viðræðum við
leiðtoga þeirra fjögurra flokka
sem voru með sósíalistum í stjórn
þegar Craxi sagði af sér sem for-
sætisráðherra fyrir 28 dögum.
Renato Altissimo, formaður
Frjálslynda flokksins og ráðherra
í stjórn Craxi sagði í gær við
fréttamenn að þeir væru nú á
góðri leið með að endurlífga sam-
steypustjórnina og koma sér sam-
an um nýtt stjórnarsamkomulag
sem gildi fram til næstu kosninga,
1988. Allt þar til í fyrradag áttu
Kristilegir demókratar og sósíal-
istar í miklum deilum sem virtust
fyrst og fremst snúast um forsæt-
isráðherraembættið. Kristilegir
demókratar vilja fá það nú strax,
því hafa sósíalistar neitað.
Nú virðast deiluaðilar hafa
komist að því að ekki er um ann-
að stjórnarfyrirkomulag að ræða
og neyðast því til að ná
samkomulagi. Reuter fréttastof-
an hefur eftir heimildarmönnum
sínum að Craxi hafi samþykkt að
hætta sem forsætisráðherra næsta
vor. Hann muni þá aftur hverfa
til formennskustarfa í flokki sín-
um, en þar mun nú sótt að honum
af valdamiklum mönnum í
flokknum.
Ekki þarf að koma til nýrrar
stjórnarmyundunar þar sem Cos-
siga forseti nýtti sér þann rétt sinn
að gefa ekki svar við því strax
hvort hann samþykkti afsögn
Craxi.
Föstudagur 25. júli 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13