Þjóðviljinn - 09.08.1986, Síða 7

Þjóðviljinn - 09.08.1986, Síða 7
Umsjón: Páll Valsson Uridirbúningsnefnd Þióðfræðiþingsins: Dr. Jón Hnefill Aðalsteinsson, Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, Hallgerður Gísladóttir og Hallfreður Örn Eiríksson. (Ljómynd Ari). Fræði Þjóðfræóingar þinga Norrænir þjóðfræðingar halda viku þing á fslandi í næstu viku Norrænir þjóðfræðingar munu í næstu viku halda sitt 24. þing og stendur það frá 10.-16. ágúst. Þjóðfræðingaþing sem þessi eiga sér yfir hálfrar aldar sögu en þetta er í fyrsta sinn sem slíkt er á Islandi haldið. En hvað er þjóðfræði og hvað ræða menn á slíkum þingum? kann einhver að spyrja. Þjóð- fræði er grein sem spannar hinar ýmsu fræðigreinar, um margt ó- líkar, svo sem mannfræði, samfé- lagsfræði, bókmenntafræði, sálarfræði, textafræði og trú- fræði. Þjóðfræði er eins konar samheiti rannsókna sem einkum beinast í þrjár áttir (til einföldun- ar): Þjóðsagnafræði þar sem rannsakaðar eru þjóðsögur og kvæði, gátur og leikir sem varð- veist hafa í munnlegri geymd með þjóðinni, þjóðhættir sem taka á verkmenningu þjóða, vinnu- bragða og hvers kyns iðnaðar og þjóðlíf þar sem félagslegur vett- vangur, samskipti og siðir manna eru í brennidepli. Tími til kominn Tiltölulega hljótt hefur verið um þjóðfræðirannsóknir á ís- landi og sögðu þau Jón Hnefill Aðalsteinsson, Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, Hallgerður Gísla- dóttir og Hallfreður Örn Eiríks- son sem skipuðu undirbúnings- nefnd þingsins, að það væru von- um seinna að halda þjóðfræði- þing hérlendis. íslendingar væru aftarlega á merinni varðandi rannsóknir í þjóðfræði, þótt sennilega væri hvergi jafn mikið af óleystum þjóðfræðirannsókn- um og hér. Það væri vonandi að þing sem þetta verkaði sem hvati á auknar rannsóknir sögðu þau. Á sínum tíma sátu Sigurður Nordal og Einar Ólafur Sveins- son þessi norrænu þing, og nú á allra síðustu árum hefur þátttaka íslendinga aukist og geta má þess ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 að nú er þjóðfræði kennd sem aukagrein til 30 eininga við Fé- lagsvísindadeild Háskóla íslands, en einnig eru námskeið í þjóð- fræðum kennd í Heimspekideild. Þetta ásamt öðru vekur vonir manna um að betri tímar séu að renna upp fyrir þjóðfræðinga. Hallfreður Örn Eiríksson hefur á vegum Stofnunar Árna Magnús- sonar safnað miklu efni af alls kyns sögum síðastliðin tuttugu ár; menn segja að spólusafn Hallfreðar sé orðið svo mikið að það taki á annað ár bara að hlusta. Og nýlega kom Hallfreð- ur að norðan með nýjar fréttir af Þorgeirsbola, þeim margfræga bændahrelli til margra alda. Að sögn Hallfreðar virðist sem Þor- geirsboli hafi í seinni tíð verið að gerast aðsópsmeiri í Skagafirði. Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns- ins hefur einnig undanfarna tvo áratugi verið með spurningalista í gangi þar sem eldra fólk er spurt um ýmsa verklega starfshætti og lifnaðar, sem og þjóðhætti al- mennt. Bíldraugur og rottur En þau leggja öll áherslu á að þjóðfræðin fáist ekki einungis við hið liðna. Jón Hnefill segir þjóð- fræðinga útií heimi hafa á tímabili verið mjög upptekna af því að færa þjóðfræðina nær samtíman- um. Þannig hafi menn farið að skrifa bækur um svokallaðar rott- umatreiðslusögur sem gangi út um allan heim. Það eru sögur um að veitingahús noti rottur til matreiðslu í stað annars og geðs- legra kjöts og oft hafi þessar sögur náð svo makalausri út- breiðslu að ýmis veitingahús hafi þurft að loka. Þá má nefna bíl- draugana sem miklar sögur ganga af, m.a. hér á íslandi, eða svo- kallaða Hafnarfjarðarbrandara sem mestan part væru innfluttar sögur. Ragnheiður minntist líka á að til dæmis væri þjóðhátíðin í Eyjum mjög álitlegt rannsóknar- efni fyrir þjóðfræðinga. Þjóðfræðiþingið, sem verður sett á mánudagsmorgun kl. tíu á Hótel Esju og mun allt fara þar fram, sækja um fimmtíu þjóð- fræðingar frá öllum Norðurlönd- unum. Meðal íslenskra fyrirles- ara má nefna Árna Björnsson, sem talar um íslenska óráðþægni, Jón Hnefil um sagnir í fornbók- menntum, Guðrúnu Bjartmars- dóttur um huldufólkssögur, Hall- freð Örn um íslenska þjóðtrú nú- tímans, Ögmund Helgason um norræna guði á 19. öld, Helgu Jó- hannsdóttur, um söfnun þjóð- laga, Gísla Pálsson um hugmynd- ir um fisk í íslensku þjóðfélagi, Davíð Erlingsson, um grundvall- arhugtök, Sólveigu Georgsdóttur um ýmis minni í skólakerfi og Þór Magnússon um íslensk torfhús. „Nœr kvikunni" Af erlendu fyrirlesurunum bentu menn sérstaklega á Finn- ann Lauri Honko, „einn af heimsoddvitum þjóðfræðinnar" sagði Jón Hnefill, og annan Finna, en þeir hafa löngum verið þjóða og ekki bara Norðurlanda- þjóða fremstir í þjóðfræði, Juha Pcntikaincn. Lauri Honko ætlar að tala um ýmsa grundvallarþætti þjóðsagnarannsókna en Juha Pentikainen um þjóðháttafræði og trú. Hér að framan var getið um skyldleika þjóðfræðinnar við aðr- ar greinar og við má bæta að hún beitir svipaðri aðferðafræði og yf- irleitt er beitt í húmanískum greinum. En hver er þá sérstaða þjóðfræðinnar? Jón Hnefill er ekki í vandræðum með að svara því - „Þjóðfræðin gengur nær kviku mannlífsins". ”Pv Menning Djassað í Djúpinu Djassað verður í Djúpinu næstkomandi mánudagskvöld. Að venju verða jasstónleikar þessir í beinni útsendingu frá kjallara Hornsins við Hafnar- stræti. Að þessu sinni leikur Kvintett Sigurðar Flosasonar. Kvintettinn skipa auk Sigurðar, sem leikur á altosaxófón: Eyþór Gunnarsson á hljómborð, Gunn- laugur Briem á trommur, Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Friðrik Karlsson á gítar. Sigurður Flosason hefur undanfarin ár stundað músíknám í Bandaríkj- unum og lýkur þaðan masters- gráðu áður en langt um líður, þetta er því einstakt tækifæri til að hlýða á leik hans áður en hann hverhir aftur til náms. Þrír með- limir Kvintettsins eru meira en svo vel kunnugir hér heima og um víða veröld. Það eru þeir: Eyþór, Friðrik og Gunnlaugur úr Mezzo- forte. Tómas R. Einafsson er mönnum að góðu kunnur fyrir lipran kontrabassaleik. Öllum er heimill aðgangur á meðan hús- rúm leyfir. Frá vinstri: Tómas Einarsson, Sigurður Flosason, Friðrik Karlsson, Eyþór Gunnarsson og Gunnlaugur Briem.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.