Þjóðviljinn - 29.08.1986, Page 3
ÍÞRÓTTIR
Framsóknarflokkurinn
Gamaldags tækifærissinnar
Skoðanakönnun SUFog Félagsvísindastofnunar: Framsóknarflokkurinn gamaldags dreifbýlisflokkur.
Sjálfstœðisflokkurinn hagsmunaflokkur atvinnurekenda. SÍS og olíufélögin óvinsæl
egar rætt er um „gamaldags“
flokka kemur flestum Fram-
sóknarflokkurinn í hug. 22,3
prósent aðspurðra í skoðana-
könnun töldu þann flokk gamald-
ags, 10,3% nefndu Sjálfstæðis-
flokkinn, 3% Alþýðubandalagið,
1% Alþýðuflokkinn, og innan við
eitt prósent Kvennalista og BJ.
Þetta er meðal niðurstaðna í
skoðanakönnun sem Félagsvís-
indadeild háskólans gerði fyrir
unga Framsóknarmenn sem nú
halda þing sitt í Eyjafirði.
I könnuninni, sem er mjögyfir-
gripsmikil, er einnig spurt hvaða
flokkar séu tækifærissinnaðir. í
svörunum er Framsókn aftur efst
á blaði með 15,3%, Alþýðu-
flokkurinn fær 9,1%, Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðubandalag rúm
4%.
Um 46% aðspurðra telja
Framsóknarflokkinn fyrst og
fremst dreifbýlisflokk, um 36%
eru því ósammála. Um 58% að-
spurðra eru frekar eða alveg sam-
mála um að Sjálfstæðisflokkur-
inn gæti fyrst og fremst hagsmuna
atvinnurekenda og ekki launa-
fólks, um 32% eru þessu ósam-
mála.
í könnuninni var fólk beðið að
nefna tvo þingmenn (ekki ráð-
herra) úr Framsóknarflokknum.
Flestir nefndu Pál Pétursson
(27,5%), fæstir Stefán Guð-
mundsson (4,2%). Jón Kristjáns-
son var aldrei nefndur, en Sjálf-
stæðismaðurinn Pálmi Jónsson
einusinni. Einnig var beðið um
þrjá þingmenn Sjálfstæðisflokks,
og var Árni J ohnsen oftast nefnd-
ur (16,4%), þá Salóme Þorkels-
dóttir, sjaldnast Valdimar Ind-
riðason (1,4%) og Björn Dag-
bjartsson (1,6%).
Þá var spurt um jákvætt eða
neikvætt viðhorf til nokkurra
samtaka og stofnana. 53,9% hafa
jákvæða afstöðu til ASÍ, 15,9
neikvæða. 43,7% höfðu jákvæða
afstöðu til VSÍ, 20,2% neikvæða.
SÍS fékk 34,4% já, 37,5% nei.
Bankarnir eru ekki vinsælir: já
28%, nei 44,8%, en sýnu verst
fara olíufélögin útúr þessum vin-
sældalista: 21% jákvæði, 47,1%
neikvæði.
- m
Vestmannaeyjar
Fundinn
bæjarstjóri
Arnaldur Björnsson heitir nýr
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
eftir bæjarstjórnarfund í fyrra-
kvöld og tckur hann við störfum
1. október. Páll Zóphóníasson
hefur verið bæjarstjóri til bráða-
birgða frá því Sjálfstæðismenn
misstu meirihlutann þar í vor.
Eyjamönnum hefur gengið
stirðlega að ráða bæjarstjóra.
Tveir sóttu um í fyrstu og dró
annar sig til baka. Umsóknar-
frestur var síðan framlengdur og
reyndist þá nánast offramboð á
bæjarstjórum, ellefu sóttu um.
Arnaldur er 42 ára og hefur
verið sveitarstjóri í Mývatnssveit
frá 1980. -m
Kópavogur
Skjalafáls
Forstöðumaður Vélamið-
stöðvar Kópavogs, sem hefur
umsjón með rekstri Strætisvagna
Kópavogs hefur vikið úr starfi að
eigin ósk eftir að hann varð upp-
vís að skjalafalsi.
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur málið nú til meðferðar og
gegnir stjórnarformaður fyrir-
tækisins forstöðu meðan rann-
sókn á bókhaldi nokkur ár aftur í
tímann fer fram. Talsmenn Kóp-
avogskaupstaðar vörðust allra
frétta er þeir voru inntir álits á
nánari tildrögum þessa máls. -|g
Vestnorrœnn fundur
Mótmæla
kjamaveri
í dag heldur áfram fundur
Vestnorræna þingmannaráðsins
á Selfossi en honum átti að Ijúka í
gær. í dag verður tekin til um-
ræðu tillaga frá Grænlendingum
þess efnis að Grænland, Færeyjar
og ísland verði kjarnorkuvopna-
laus svæði en við hana hafa þegar
komið fram tvær breytingartil-
lögur, þar af önnur frá Eiði
Guðnasyni þar sem hann leggur
til að svæðið nái austur að Ural-
fjöllum.
Að sögn Páls Péturssonar for-
seta ráðsins hafa farið fram mikl-
ar og gagnlegar umræður um
samstarf landanna þriggja og til-
lögur samþykktar þar að lútandi.
Meðal annars var samþykkt að
mótmæla uppbyggingu kjarnork-
uvers í Caithness í Skotlandi og
fyrirætlunum Skota um að losa
kjarnorkuúrgang í sjó sem gæti
haft afdrifaríkar afleiðingara
fyrir þjóðir á norðurslóðum. Þá
voru einnig samþykktar tillögur
um samstarf í sjónvarpsmálum.
-vd
Seglskip í miðbænum. Þýska seglskipið Gorch Fock verður í heimsókn í um borð 160 sjóliðar til þjálfunar, en nauðsynlegt er talið að þeir fái þjálfun í
Reykjavík fram á mánudagsmorgun og liggur í gömlu höfninni, rétt við Hafnar- seglskipum.
húsið. Skipið er æfingaskip á vegum þýska sjóhersins og er þetta þriðja SkipiðkomhingaðfráGautaborgogtóksiglingintværvikur. Héðanferþaðtil
heimsókn þess hingað til lands. Áhöfn skipsins er 76 manns en auk þess eru Kiel. Skipið verður opið almenningi um helgina, frá kl. 14.30-16.30.
Krœklingarœkt
Þeir synda ekki burt
Hákon Óskarsson: Þurfum að kanna lífshætti krœklinga betur og prófa veiðarfæri
Það hefur sýnt sig að flestar
lirfur settust á hengjurnar í ágúst
en fullri stærð ná þær ekki fyrr en
eftir 2-3 ár. Við þurfum einnig að
kanna hvenær gotið er og hvernig
þetta tengist sjávarhita og birtu í
sjónum. Þetta er mikil vinna en
skemmtileg og kostir við krækl-
ingarækt eru margir umfram aðra
fiskirrækt því hvorki þarf að fæða
þá né óttast að þeir syndi burtu.
Hins vegar vitum við ekki
hvernig vetrarveðrin geta farið
með hengjuútbúnaðinn, hann
gæti flækst saman eða slitnað.
Allt þetta skiptir máli til þess að
komast að því hvort þetta á eftir
að verða arðbær atvinnugrein hér
á landi en við vonumst til þess að
íslendingar geti fengið að
smakka góðan ræktaðan kræk-
ling efit 2-3 ár“ saðgði Hákon
Óskarsson líffræðingur að síð-
ustu. _vd
Vestfirðir
Einar ákveður framboð
Sjálfstœðismenn ífyrstaprófkjör írúman áratug. Einar K. ákveður
framboð. Sigurlaug: Sjáum hvaðsetur
Eg hef gengið með þessa hug-
mynd í maganum í mörg ár og
í fyrra stofnuðum við fimm sama
fyrirtæki um þetta sem heitir
Napi hf. sagði Hákon Oskarsson
líffræðingur í samtali við Þjóð-
viljann en hann hefur nú hafið
kræklingarækt við Hvítanes-
bryggju í Hvalfirði.
„Eg fór til Færeyja í fyrra og
kynnti mér hvernig þeir fara að
þessu þar og síðan gerðum við
nokkrar hengjur að þeirra fyrir-
mynd úr loðnunót. Hengjurnar
hanga niður í sjó milli lands og
bryggju af burðarlínu sem er
haldið á floti með flotholtum og
síðan setjast lirfurnar á þræðina
sem eru upp í 8 metra langir. Á
þær hengjur sem við settum upp í
fyrra er komið talsvert magn af
kræklingi og nú höfum við sett
upp um 1,5 kílómetra af hengjum
af ýmsum gerðum til þess að
finna út á hvaða efni lirfurnar
setjast helst, og á hvaða dýpi.
Við tökum einnig sýni og at-
hugum hve mörg milligrömm eru
af þörungi í hverjuni lítra af sjó
og hvaða tegundir af þörungum
er helst að finna.
Framboðsfrestur í prófkjöri
Sjálfstæðismanna á Vest-
tjörðum rennur út 13. september,
en prófkjörið sjálft fcr fram mán-
uði síðar, helgina 11.-12. októ-
ber. Einar K. Guðfinnsson í Bol-
ungarvík sagði Þjóðviljanum í
gær að hann hefði ákveðið að
gefa kost á sér í eitt fjögurra efstu
sæta listans.
Ekki er annað vitað en að nú-
verandi þingmenn flokksins í
kjördæminu, þeir Matthías
Bjarnason og Þorvaldur Garðar
Kristjánsson ætli sér að halda
áfram. Sigurlaug Bjarnadóttir,
fyrrverandi þingmaður flokksins
í kjördæminu, svaraði fram-
boðsspurningu Þjóðviljans þann-
ig í gær að nokkuð væri í að fram-
boðsfretur rynni út: „Látum það
koma á daginn".
Sigurlaug var efst á T-lista
óháðra kjósenda í kosningunum
1983 og fékk sá listi 11,6% at-
kvæða en náði ekki kjörnum
manni. D-listinn fékk þá 27,5%
atkvæða.
f prófkjöri vestfirskra íhalds-
manna er kosið í fjögur efstu sæt-
in, og rétt til þátttöku hafa
flokksmenn og þeir sem skrifa
undir stuðningsyfirlýsingu við
flokkinn.
-m