Þjóðviljinn - 29.08.1986, Side 21
Margaret
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, verður stöðugt
óvinsælli meðal landsmanna
sinna, ef marka má skoðana-
könnun sem gerð var nýlega af
Mori stofnuninni fyrir enska
dagblaðið London Standard.
Hins vegar gefur könnunin
einnig til kynna að íhaldsflokk-
urinn sé að ná aftur svipuðu
fylgi og Verkamannaflokkur-
inn, er það í fyrsta skipti á
þessu ári sem nokkuð slíkt
gerist í skoðanakönnunum þar
í landi. Samkvæmt könnuninni
er Thatcher næstum komin
niður í það fylgi sem hún hafði
1981, aðeins 27 % aðspurðra
eru ánægðir með hana. Það er
aðeins tveimur prósentustig-
um meira en var fyrir fimm
árum. Þá hafði enginn forsæt-
isráðherra eftir stríð notið jafn
lítilla vinsælda. Nú eru 65 %
aðspurðra óánægðir með
frammistöðu hennar. Verka-
mannaflokkurinn og íhalds-
flokkurinn njóta nú, sam-
kvæmt skoðanakönnuninni,
37 % fylgis hvor, bandalag
sósiai-demókrata og frjáls-
lyndra nýtur nú fylgis 24 %
kjósenda. Ef þetta yrðu úrslit
kosninga (sem búist er við að
verði í júní 1988), gæti því eng-
inn flokkur myndað eins flokks
stjórn.
Vefarar
í íran eru nú að Ijúka við að vefa
tvö persnesk teppi sem búið er
að selja fyrir 108 milljónir ís-
lenskra króna. Vefararnir sem
eru búsettir í þorpum nálægt
borginni Isfahan, hafa unnið í
fimm ár að vefnaðinum og
annað teppið er orðið 1,200
fermetrar. Það er úr ull og silki,
hitt teppið er 400 fermetrar.
Ekki er vitað hver kaupandinn
er, né hvað í ósköpunum hann
ætlar að gera við slík teppi.
Fangar
í Orange héraði, í útjaðri Los
Angeles, verða sendir heim á
næstunni. Ekki vegna þess að
þeir hafi verið náðaðir eða
vegna þess að fangelsistími
þeirra er útrunninn. Þeir verða
sendir til heimila sinna og
skipað að halda sig þar.
Ástæðan er einfaldlega sú að
fangelsin eru yfirfull. Þetta
mun vera ný áætiun sem ráða-
menn í fylkinu samþykktu í
gær. Samkvæmt henni verða
25 fangar sem sagðir eru
„áhættulitlir“ og hafa afplánað
fangelsisdóma sína um helgar
í fangelsi héraðsins, sendir til
síns heima. Eina eftirlitið með
þeim er verður að þeir eiga að
svara hringingu fangelsisyfir-
valda á hvaða tíma sem er.
Eina skiptið sem þeir mega yf-
irgefa heimili sitt, verður þegar
þeir fara til vinnu sem fangels-
isyfirvöld hafa skipulagt fyrir
fanga.
Herforingi
í Perú verður bráðlega leiddur
fyrir rétt þar sem kollegar hans
dæma hann fyrir þátt hans í að
kæfa fangauppreisnina í Lur-
igancho fangelsinu þar sem
124 fangar voru myrtir í júní-
mánuði. Það hefur sem sagt
verið ákveðið að hershöfðing-
inn, Jorge Rabanal, verði
dæmdur af herdómstól. Talið
er að allt að 400 fangar hafi lát-
ist í uppreisnum sem áttu sér
stað í fjórum fangelsum. Tals-
maður
dómsmálaráðuneytisins í
Perú tilkynnti þessa ákvörðun
Hæstaréttar í gær, saksóknari í
landinu hafði hins vegar farið
fram á að fá að ákæra hers-
höfðingjann fyrir morð, fyrir al-
mennum dómstól. Slíkur dóm-
ur felur í sér þyngstu refsingu í
landinu, 25 ár í fangelsi.
HEIMURINN
Kamerún
Hætta á smitsjúkdómum
Umfangsmikið hjálparstarfernú hafið í Kamerún vegna náttúruhamfaranna fyrir nokkrum
dögum síðan þegar að minnsta kosti 1500 manns létust. Mikil hœtta er talin á að smitsjúkdómar
fariað berastút
Yaounde - Umfangsmikið
hjálparstarf er nú hafið í Kam-
erún til að aðstoða þá sem
lifðu af náttúruhamfarirnar í
landinu þegar eitraðar gasteg-
undir bárust út í andrúmsioftið
með þeim afleiðingum að
minnsta kosti 1500 manns lét-
ust. Nú er talin mikil hætta á
drepsóttum á svæðinu.
Fulltrúar frá Sameinuðu þjóð-
unum sögðu frá því í gær að lækn-
ar og jarðeðlisfræðingar jafnt
sem tjöld, teppi, rúm, lyf, öndu-
nartæki, sótthreinsunarefni og
matvæli væru nú komin á svæðið
við Nios vatnið. Þeir sögðu að nú
væri mesta hættan á að smitsjúk-
dómar brytust út vegna rotnandi
dýra og gruggugs vatnsins eftir
eldgosið sem varð á botni
vatnsins fyrir viku síðan. Fulltrúi
hjá Barnahjálp Sameinuðu Þjóð-
anna (UNICEF), sagði við frétta-
menn í gær að hamfarirnar
myndu hafa mikil áhrif á 30.000
manns í Kamerún. Þarna eru
meðal annarra börn án foreldra,
særðir og fólk sem þarf að flytj a á
brott.
í gær var verið að grafa hina
látnu þar sem óttast var að líkin
gætu komið af stað sjúkdómum.
Þá veldur það einnig miklum
vandræðum að fólk sem flúði
heimaþorp sín er nú á leið heim
til sín á ný í leit að eigum sínum og
ættingjum. Sérfræðingar eru ekki
enn sammála um það hvaða gas-
tegund olli dauða svo margra á
svo stuttum tíma og er talið að
það líði margir mánuðir þar til
það mál skýrist.
S-Ameríka
Umsátursástand í Bólhnu
La Paz - Ríkisstjórn Bólivíu
lýsti í gær yfir umsátursást-
andi í landinu og fyrirskipaði
hernum að stöðva mótmælag-
öngu námaverkamanna sem
voru að mótmæla aðhaldsað-
gerðum stjórnvalda.
Talsmaður innanríkisráðu-
neytisins í Bólivíu, Rolando
Vizcarra, sagði í gær við frétta-
menn að umsátursástandið væri
til komið vegna mikillar ólgu sem
skapast hefði vegna vikulangra
mótmælaaðgerða námuverka-
manna. í síðustu viku hófu 5000
námaverkamenn göngu frá nám-
ahéraðinu Oruro sem er í 184
kílómetra fjarlægð frá höfuð-
borginni La Paz. Aætlunin var að
ganga til La Paz og hefja þar
hungurverkfall í skólum og kirkj-
um borgarinnar. Búist var við að
gangan kæmi til La Paz í dag.
Þetta er í annað sinn sem lýst er
yfir umsátursástandi og hernum
skipað að stöðva mótmæli verka-
lýðsfélags námuverkamanna. í
aðhaldsaðgerðunum felst m.a. að
dregið er mjög úr starfsemi við
tinnámurnar í landinu með þeim
afleiðingum að fjöldi námaverka-
manna missir vinnu sína.
S-Afríka
Sökuð um blekkingar
S-Afríkistjórn viðurkenndi ígœrað þeirsem létust ífjöldamorðunum á
þriðjudaginn íSoweto vœrufleirien áður vargefið upp eða21, leiðtogarsvartra
segja stjórnina hins vegarfara með blekkingar, látnirséu munfleiri og
öryggissveitirnar hefðu hafið átökin án tilefnis
Jóhannesarborg - Yfirvöld í S-
Afríku tilkynntu í gær að 21
svertingi hefðu látið lífið í
átökum í Soweto á þriðjudag-
inn var, þar af hefðu 20 látið
lifið fyrir byssukúium öryggis-
sveitanna sem gerðu innrás í
White City á þriðjudaginn.
Tvennar sögur fara af því
hvernig átökin hófust.
í fyrradag héldu yfirvöld því
fram að 13 manns hefðu látist og
65 særst. Þessar tölur hafa hækk-
að og segja yfirvöld nú að 273 hafi
særst í átökunum. Sameinaða
lýðræðisfylkingin (UDF), stærstu
samtökin í S-Afríku sem berjast
gegn kynþáttamisrétti, hélt því
hins vegar fram að minnsta kosti
30 hefðu látist og 200 manns
hefðu særst. Ljóst er að þetta eru
mestu átökin í S-Afríku frá því
neyðarástandslögin tóku gildi í
júní síðstliðnum.
UDF hefur ákært yfirvöld um
að reyna að falsa frásagnir af því
sem raunverulega gerðist. Yfir-
völd hafa dregið úr frásögnum
vitna um að átökin hafi hafist
þegar öryggissveitirnar hófu að
flytja burtu fólk sem tók þátt í að
neita að borga leigu fyrir hýbýli
sín. Þau hafa tilkynnt að átökin
hafi hafist í White City með því
að handsprengju var kastað að
félögum öryggissveitanna. Leið-
togar UDF og Frank Chikane,
vinsæll leiðtogi í Soweto, héldu
því hins vegar fram í gær að fé-
lagar í öryggissveitunum hefðu
fyrirvaralaust hafið skothríð að
fólki sem var á fundi til þess að
ræða leigugreiðslubannið. Chik-
ane sagði á blaðamannafundi í
gær að liðsmenn öryggis-
sveitanna hefðu gerst mjög
hrokafullir. „Ég hef það eftir
vitnum", sagði Chikane, „að ör-
yggissveitirnar hafi sett upp sterk
ljós ogskotið síðan áhvern þann í
götunni sem hreyfði sig." „Einn
íbúi sagði að öryggissveitirnar
hefðu gert innrás í White City,
líkt og þeir væru að koma inn á
svæði óvinarins í stríði, skjótandi
af byssum.“
Chikane sagði skothríðina vera
„fjöldamorð með köldu blóði" og
að ofbeldið hefði hafist tveimur
klukkustundum áður en hand-
sprengju var kastað að öryggis-
sveitunum.
Danmörk
Afturhalds-
seggurinn
Stallone
Sylvester Stallone kom
nýlega til Danmerkur og
tóku þá einhverjir sig til
og sprautuðu málningu á
einkaþotu hans
Kaupmannahöfn - Bandaríski
leikarinn Sylvester „Rambo“
Stailone er þessa dagana í
heimsókn í Danmörku ásamt
eiginkonu sinni Birgitte Niels-
en sem er dönsk. Hann kom til
Danmerkur i einkaþotu sinni
en einhverjir í Danmörku virð-
ast lítið hrifnir af þeirri heim-
sókn þar sem þotan var í gær
orðin útkrotuð í pólitískum
slagorðum.
í gærmorgun höfðu fánalitir
Víetnam verið sprautaðir á Bo-
eing 727 þotu Stallone, einnig
orðin, „Ho Chi Minh Air“ eða
„Ho Chi Minh flugfélagið", er
þar auðvitað vísað til fyrrum leið-
toga Vietnam sem barðist gegn
bandarískri heimsvaldastefnu í
heimalandi sínu hérfyrr á árum. í
„Rambo“ lék Stallone
byssubrjálæðing og fyrrverandi
hermann í Vietnam sem snýr
þangað aftur til að frelsa landa
sína.
Ekki er vitað hverjir tóku að
sér að skreyta flugvél kvik-
myndaleikarans, en í gær fékk
danska blaðið Ekstra Bladet
skilaboð þar sem sagði að
skrautmálningin hefði farið fram
þar sem Stallone væri afturhalds-
seggur og Kaldastríðshermaður.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR , . _ _ _
HJÖRLEIFSSON R fc U I E K
S-Afríka
Prestur píndur af lögreglu
Pretoríu - Kaþólskur prestur í
S-Afríku sem verið hefur í haldi
í krafti neyðarástandslaganna,
hélt því fram í gær að hann
hefði verið pyntaður grimmi-
lega af lögreglumönnum, með-
al annars hafi hann verið látinn
standa með bundið fyrir
augun, handjárnaður og hálf
nakinn í 30 klukkustundir sam-
fleytt meðan hann var yfir-
heyrður.
Presturinn, Smangaliso
Mkhatshwa, er aðalritari ka-
þólska biskuparáðsins í S-Afríku
(SACBC). Hann var handtekinn
12. júní, á fyrsta degi neyðarást-
andslaganna. Hann segir frá
reynslu sinni í eiðfestri yfirlýs-
ingu sem var lögð fyrir Hæstarétt
Pretoríu í gær. SACBC er nú að
reyna að fá fram úrskurð Hæsta-
réttar um að lögreglunni verði
bannað að pynta prestinn.
Hann segir í yfirlýsingunni að
hann hafi verið fluttur úr fangels-
inu á afvikinn stað til yfirheyrslu
á miðvikudaginn fyrir rúmri viku
síðan. Hann hafi fyrst verið
klæddur úr að neðan og bundið
hafi verið fyrir augu hans og hann
handjárnaður. Síðan hafi dunið á
honum spurningar. Hann segir
ennfremur að hleypt hafi verið af
byssu nálægt honum nokkrum
sinnum. Einnig hafi einhverju
kvikindi verið sleppt á fætur
hans, það hafi á endanum bitið í
kynfæri hans.
Öryggismálaráðherra lands-
ins, Louis Le Grange, tilkynnti í
gær að hann hefði skipað lög-
regluyfirvöldum að Mkhatshwa
skyldi ekki gert mein.
Lögreglan í S-Afríku
öryggismálaráðherra
liggur nú undir ámæli um pyntingar á kirkjuleiðtoga,
landsins hefur óbeint viðurkennt athaefið.
Föstudagur 29. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21