Þjóðviljinn - 29.08.1986, Qupperneq 10
LEIKUR AÐ LÆRA
Skrifstofustörf
Starfsnám
í Versló
Miklir möguleikar í nýju húsnæði
Skólaganga
10.000
fyrir barnið
Skólataska og innihaldið kostar 3000 krónur
Allir leitast við að búa börn sín
vel út er að því kemur að þau
hefja skólagöngu sína. Við
grennsluðumst fyrir um hjá
nokkrum aðilum hversu mikil
fjárútlát það kostar að koma
barninu sínu í skólann. Það
kemur á daginn að sú upphæð
getur orðið allhá, en mun þó
nokkuð fara eftir þeim verslunum
sem verslað er í.
Svo við athugum fyrst hvað
skólataskan og innihald hennar
kostar, má gera ráð fyrir að verð
á skólatöskum sé á bilinu 2000-
2500 kr. Pennaveski kosta frá 300
kr. upp í 900 kr. og er þá innifalið
oftast nauðsynlegir fylgihlutir
eins og blýantar, strokleður,
yddari og túss- og trélitir svo
eitthvað sé nefnt. Einnig má gera
ráð fyrir að barnið þurfi 2 stfla-
bækur og eina reikningsbók og
samanlagt verð þeirra er 40-50
kr. Alls kostar því skólataskan og
innihald hennar gróflega áætlað
um 3000 kr.
En hvað kosta skólafötin?
Flest börn þurfa nýja úlpu a.m.k.
annað hvert haust og sé gert ráð
fyrir því að skólabarnið þurfi allt
nýtt lítur dæmið svona út:
Verð á úlpum í haust verður á
bilinu 3500-4000 kr. en getur ef-
laust verið mun lægra ef fólk
kaupir úlpur á útsölum sem nú
eru sem óðast í gangi. Nú er t.d.
hægt að fá buxur á 900 kr. og
peysur á 500-600 kr. en verð á
slíkum flíkum í haust verður lík-
lega um 800 á peysum og 1500 á
buxum. Fái barnið einnig húfu og
trefil má þar gera ráð fyrir 700 kr.
og ef keyptir eru jogginggallar
má áætla 1700 kr. í þá. Og hvað
snertir fótabúnaðinn, má áætla
að til kaupa á skóm þurfi 1000-
1500 kr.
Sé dæmið lagt saman má var-
lega áætla að til kaupa á skóla-
fatnaði þurfi 7000 kr. og er þá
aðeins gert ráð fyrir að keyptur sé
einn alklæðnaður. Það er því ljóst
að fjárútlát á barnmörgum
heimilum eru allmikil á hverju
hausti, og eflaust þungur baggi
hjá mörgum.
-GH
þeir sem áhuga hafa innritað sig á
hvora brautina um sig og sótt sér
þá þekkingu sem krafist er af
vinnumarkaðnum í bókhalds-
eða skrifstofustörfum. Þannig er
reynt að veita eins hagnýta
menntun á þessu sviði og kostur
er við núverandi aðstæður. Til að
útskýra uppbyggingu náms-
brautanna tveggja fylgir mynd
hér að neðan. Brautirnar eru á-
fangakerfi og er hægt að ljúka
náminu á einum til einum og hálf-
um vetri. Svo er áfangakerfið
byggt þannig upp að þeir sem
vilja geta fengið brautarnámið
metið til verslunar- eða stúd-
entsprófs í öldungadeild.“
- G.H.
Helgi Baldursson: Bjóðum í vetur upp á hagnýtt starfsnám fyrir skrifstofufólk.
Ljósm. KEA
Við Verslunarskóla íslands hefj-
ast námskeið á tveimur nýjum
námsbrautum í starfsnámi í
næsta mánuði. Helgi Baldursson
gaf okkur upplýsingar um þessar
námsbrautir
„Neð tilkomu nýja verslunar-
skólahússins að Ofanleiti 1 verð-
ur skólinn einsetinn í fyrsta sinn í
vetur. Það opnar möguleika á að
bjóða upp á námskeið seinni
hluta dags fyrir fólk sem vill
stunda nám samhliða vinnu. Við
hefjum starfsemi tveggja nýrra
námsbrauta 15. september sem
gera fólki kleift að stunda sérhæft
nám á sviði viðskiptalífsins. Geta
LIKAMSRÆKT
þú finnur örugglega flokk við þitt hæfi hjá okkur!
Haustnámskeið hefjast 1. sept.
KERFI
LIKAMSRÆKT OG MEGRUN
fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum
FRA MHA LDSFL OKKA R
Þyngri tímar, aöeins fyrir vanar.
KERFI
KERFI
JT RÓLEGIR TÍMAR
fyrir eldri konur eða þær sem þurfa að fara varlega.
MEGRUNARFLOKKAR
4x í viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakílóin núna.
AEROBIC J.S.B.
Okkar utfærsla af þrektímum með góðum teygjum. Hörku púl- og svitatímar
fyrir ungar og hressar.
Ný og glæsileg adstaða
Suðurver
83730
INNRITUN
HAFIN
Hraunberg
79988
Ath. vetrar-
námskeið hefst
29. september
Lokaðir og framhaldsflokkar.
Staðfestið pantanir fyrir veturinn.
LIKAMSRÆKT
JAZZBALLETTSKÓLA
BÁRU