Þjóðviljinn - 29.08.1986, Blaðsíða 14
LEIKUR AÐ LÆRA
Öryggisgæsla sjómanna
Viljum
hugar-
fars-
breytingu
Þórir Gunnarsson í viötali við Þjóð-
viljann: Gott andrúmsloft í varð-
skipinu Þór
Þórir Gunnarsson um borð í Saebjörgu, skólaskipi Slysavarnafélagsins.
Slysavarnafélag íslands
stendur fyrir námskeiöum í
öryggisgæslu fyrir sjómenn og til
að fá upplýsingar um þau hittum
við að máli Þóri Gunnarsson hjá
Slysavarnafélagi íslands, en
hann ásamt Þorvaldi Axelssyni
hefur staðið fyrir námskeiðunum.
„Námskeiðið stendur yfir í 3-4
daga og er bæði verklegt og bók-
legt. Þar veitum við fræðslu um
skyndihjálp, s.s. hjartahnoð,
blástursaðferð, ofkælingu og
endurlífgun og atriði varðandi
slökkvistarf s.s. meðferð slökkvi-
tækja og reykkófun. Nú einnig er
í námskeiðinu kennsla björgunar
með þyrlu og notkun gúmmíbáta
og flotgalla svo eitthvað sé nefnt.
Við byrjuðum með þessi nám-
skeið í maí ’85 og á þessu ári hafa
verið haldin 21 námskeið og 430
sjómenn hafa tekið þátt í þeim.
Þau eru haldin víðs vegar um
landið og í framtíðinni er ætlað að
haida þau um borð í Sæbjörgu
eða gamla varðskipinu Þór. Við
höfum haldið nokkur námskeið
um borð í skipinu og það hefur
gefið mjög góða raun, og menn
verið mjög ánægðir með þá að-
stöðu sem þar er. Hún á þó enn
eftir að batna, en samt er eins og
Verzlunarskóli
íslands
Ofanleiti 1, 108 Reykjavík.
INNRITUN í STARFSNÁM
Tvær nýjar námsbrautir
Bókhaldsbraut Skrifstofubraut
1) Verslunarreixningur Skjalameöferð 401. 3 ein. 5) Bókfærsla IIA+B Bók 405 601. 5ein. 1) Vélritun 1 405A 401. 3ein. 5) Vélritun 11 405B 401. 3ein.
2) Bókfærsla I Bók 205 601. 5 ein. 6) Bókfærsla III Bók 813 401. 4 ein. 2) Bókfærsla 1 Bók 205 601. 5 ein. 6) Ritvinnsla 401. 3 ein.
3) Rekstrarhagfræöi Rek 203 40 t. 3 ein. 7) Tölvubókhald 40 t. 3) Verslunarreikningur 401. 7) Viðskiptaskjöl Skjalavarsla Tímastjórnun 401.
4) Tölvur 203 + 403 60 t. 6 ein. 8) Kostnaöarbókhald Kos 21 3 401. 3 ein. 4) íslenska 4013 ein. 8) Viðskiptaenska 401.
Tilgangur með brautum þessum er að bjóða upp á sérhæft nám fyrir fólk í atvinnulífinu og aðra
þá sem leggja vilja stund á sérhæft og hagnýtt nám sem tengist þeirra áhugasviði.
Hægt verður að Ijúka brautarnáminu á einum vetri en lengst á þremur misserum.
Námsbrautirnar eru sjálfstætt áfangakerfi sem tengjast einnig öldungadeild að hluta til.
Frekari upplýsingar ásamt innritun er á skrifstofu skólans í síma 688400
og 688597.
Skólinn verður settur miðvikudaginn 10. september kl. 14.00.
andrúmsloft í skipinu sé mun
betra en í landi."
- Hafa sjómenn sýnt námskeið-
unum áhuga?
„Já, þátttaka hefur verið mjög
góð, og þess eru meira að segja
dæmi að menn hafi lagt niður
róðra til að sækja námskeið.
Dæmi eru um að útgerðarfélög
sendi allar áhafnir sínar á nám-
skeið og best er að fá heilar
áhafnir í einu. Það ýtir undir betri
móral gagnvart öryggisgæslunni,
jafnframt því sem menn sem eru
nýkomnir af námskeiðum um
borð í skip sín þurfa síður að vera
hræddir um að vera álitnir skræf-
ur fyrir þær sakir einar að vilja
sinna öryggisgæslu. Þannig
reynum við að ýta undir hugar-
farsbreytingu á meðal þeirra og
er þar sannarlega ekki vanþörf á.
- Það eru dæmi um, að hingað
komi sjómenn sem ekki hafa
fengið neina öryggisfræðslu,
samt hafa þeir tæki eins og
gúmmíbáta fyrir augunum dag-
lega, en hirða ekki um að spyrja
um hvernig á að nota þá. En hér á
námskeiðunum er það verklegi
þátturinn sem sjómennirnir eru
ánægðastir með þ.e. að fá að taka
á þeim tækjum sem nota þarf.
Hér prófa þeir allt slíkt, því með
tilkomu skólaskipsins er nú góð
aðstaða fyrir hendi til að æfa t.d.
reykköfun um borð í skipi, notk-
un flotgalla og björgunarbáta svo
dæmi séu tekin. Að hafa prófað
hlutina veitir aukna öryggistil-
finningu og auknar lfkur á að rétt
sé brugðist við er hætta steðjar
að. Þeir hafa jú enga á að treysta
nema sjálfa sig, þegar út á rúmsjó
er komið.“
- Og hvenœr verða nœstu nám-
skeið?
„Þau verða í september um
borð í Sæbjörgu og eru þátttak-
endum að kostnaðarlausu.“
-G.H.
Verzlunarskóli
íslands
Öldungadeild
Öldungadeild veröur starfrækt við Verzlunar-
skóla Islands frá og meö haustinu 1986. Kennt
verður mánudaga-föstudaga kl. 17.30-22.00.
Boðið verður upp á nám til verslunarprófs og
stúdentsprófs og geta þeir sem lokið hafa versl-
unarprófi fengið það viðurkennt og innritað sig til
stúdentsprófs. Innritun fer fram á skrifstofu
skólans vikuna 25.-29. ágúst kl. 13.00-18.00.
Skólinn verður settur 10. sept. kl. 14.00 og
kennsla hefst 11. sept.
Stundatöflur hafa þegar verið sendar til þeirra
nemenda sem þegar hafa innritað sig.
ErC „
að Sera
lið
fidi
lcrifa
DIÚÐVIUINN
?
Sími 681333
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. ágúst 1986