Þjóðviljinn - 29.08.1986, Side 15
LEIKUR AÐ LÆRA
Endurmenntun kennara
Föstudagur 29. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
SKÓLARITVÉLIN
OKKAR ALLRA
Magnea Hrönn Stefánsdóttir og Sigurlína Gísladóttir, Akureyri: Auk beins fróðleiks á námskeiðunum höfum við mikið
gagn af samræðum við aðra kennara. Ljósm. KGA
Anna Þorvarðsdóttir kennari í
Neskaupstað varð fyrst fyrir
svörum.
„Þetta er námskeið í stærð-
fræði fyrir 0-6 bekk. Við höfum
farið yfir það námsefni sem til er
á þessu stigi og þá setið fyrirlestra
og unnið saman í vinnuhópum.
Þetta hefur verið mjög gagnlegt,
við höfum útbúið námsgögn s.s.
spil og annað slíkt og einnig höf-
um við viðað að okkur ýmsum
hugmyndum og verkefnum sem
nota má í stærðfræði.“
- Hefurðu sótt oft endur-
menntunarnámskeið KHÍ?
„Já ég hef gert það og mér
finnst mjög gott að sækja þau og
fá þannig fleiri hugmyndir inn í
mína kennslu. Nú eru t.d. mörg
námskeið í gangi í Kennarahá-
skólanum."
- Nú ert þú kennari úti á landi,
hvernig hefur þér gengið að nýta
þér starfsemi Kennslumiðstöðv-
ar?
„Ég verð að játa það að þetta
er í annað sinn sem ég kem hér.
Vegna fjarlægðar get ég ekki nýtt
mér þjónustu hennar sem skyldi.
En hér vinnur mjög duglegt og
almennilegt fólk sem vill allt fyrir
mann gera. En hvað snertir hlið-
stæða þjónustu úti á landi, þá eru
í hverju fræðsluumdæmi náms-
stjórar í hverri grein sem sjá um
n.k. kynningarstarf 1-2 á ári, -
eru n.k. gangandi miðstöðvar.
En það jafnast náttúrlega alls
ekki á við þá aðstöðu sem kenn-
arar hafa hér.“
Magnea Hrönn Stefánsdóttir og
Sigurlína Gísiadóttir eru kennar-
arviðGlerárskólaáAkureyri. Ég
byrjaði á að spyrja þær hvort þær
væru ánægðar með námskeiðið.
„Já, við erum mjög ánægðar,
bæði með fyrirlestra og verklega
hluta. Þetta var mjög vel skipu-
lagt, fyrirlestrarnir mátulega
langir í bland við hið verklega."
- Eruð þið duglegar að scekia
endurmenntunarnámskeið KHI?
„Nei, ekki er nú hægt að segja
það. Hins vegar erum við
sannfærðar um ágæti þessara
námskeiða. Auk þess fróðleiks
sem í boði er af stjórnenda hálfu
fáum við oft ekki minni fróðleik
hvert af öðru yfir kaffibollunum.
Þar er oft miðlað ýmsum hug-
myndum sem gagnlegar geta ver-
ið í kennslu."
- Hvað finnst ykkur um starf-
semi Kennslumiðstöðvar?
„Við erum mjög hrifnar af
henni og finnst hún eiginlega
nauðsynleg. Hér er orðinn til
miðpunktur, sem kennarar geta
sótt til. Við kynntumst starfsemi
Kennslumiðstöðvar nokkuð á
meðan á námi stóð í KHÍ, en síð-
an hefur verið erfiðara að nota
sér hana. - Þó geta kennarar utan
af landi fengið að komast hér inn
um helgar og e.t.v. notar fólk sér
það of lítið.“
- Hvað með kennslumiðstöð á
Akureyri?
„Það er kominn vísir að henni
en hún á langt í land með að verða
eins góð og vel útbúin og þessi í
Reykjavík. Hún er aðallega enn í
kössum en það stendur til bóta.“
-G.H
BROTHER AX 10
er elktronisk ritvél
með körfuhjóli
Óskavél
nr. 1
á markaðinum
40 stafa leiöréttingaminni
staösetningarlykill
síbylja á öllum lyklum
hraðalykill til baka
gleiöletrun
auk annara kosta mun dýrari véla
þyngd 4,9 kg.
verö kr.
Staðgreiðsluafsláttur
BORGARFELL HF.
Skólavörðustíg 23 sími 11372
í
l Kennaraháskóla íslands fara
fram á hverju sumri endur-
menntunarnámskeið fyrir kenn-
ara í ýmsum greinum. Er við vor-
um á ferð um Kennslumiðstöðina
um daginn mátti sjá þar önnum
kafið fólk við að útbúa alls kyns
kennslugögn. Viðtókum nokkra
þátttakendur námskeiðsins tali
og spurðum um eitt og annað
varðandi þessi námskeið.
Anna Þorvarðsdóttir, Neskaupstað: Endurmenntunarnámskeiðin miöa aaan-
leg. Ljósm. KGA. j a a a
Nauðsynlegur þáttur
starfinu
Litið inn hjá kennurum í
stærðfræðinámskeiði í
Kennaraháskóla íslands