Þjóðviljinn - 29.08.1986, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 29.08.1986, Blaðsíða 24
Egilsstaðir Stuömenn styðja UÍA Ekkert varð af Atlavíkurhátíð í suinar svo UÍA missti dávænan spón úr aski sínum að þessu sinni, en þó er ekki öll von úti með fjár- hag sambandsins, því Stuðmenn munu halda tónleika á Egilsstöð- um í kvöld til styrktar samband- inu. Stuðmannatónleikarnir verða í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Allur aðgangseyrir mun renna í fjárhirslur UÍA því Stuðmenn gefa alla sína vinnu og íþróttahús- ið hefur fengist endurgjaldslaust undir skemmtunina. Stuðmennirnir koma víðar við á ferð sinni um Austurland. Ann- að kvöld leika þeir í Neskaupstað og á laugardagskvöldið njóta þeir gestrisni Hornfirðinga. - gg. Fasteignamarkaðurinn Vemlegar hækkanir íbúðaverð hefur hœkkað um 20% fráþví í vor. Jónas Þorvaldsson fasteignasali: Lítið framboð afíbúðum og hœkkun lána aðalorsökin. Fasteignasalar ráða þar ekkiferðinni Velkomnir í slaginn! Nýja útvarpsstöðin, Bylgjan, hót útsendingar í gær- sem með þeim Ijúfmannlega hætti býður Einar Sigurðsson Bylgjustjóra og morgun, - og var auðvitað fylgt úr hlaði með heillaóskum og ýmsu tannfé. áhöfn hans velkomin í samkeppnisslaginn. (Mynd: E.ÓI.). Meðal sendinga var stóreflis blómvöndur og svolítill heillakarl, - frá Rás tvö, Verulegar hækkanir eru nú að eiga sér stað á fasteignamark- aðnum og hefur verð farið stöðugt hækkandi frá því í vor. Verð á stærri íbúðum 4ra og 5 herbergja íbúðum hefur hækkað um 20% frá því í vor og verðið heldur enn áfram að hækka. Því er haldið fram að fasteignasalar ráði hér ferðinni og séu þeir að spila inná þær hækkanir á hús- næðislánum, sem koma til fram- kvæmda 1. september. „Því fer víðs fjarri að fast- eignasalar ráði ferðinni í verðlagi á fasteignamarkaðnum. f>ar ræður lögmálið um framboð og eftirspurn nær eingöngu. Hitt er alveg rétt að auknir lánamögu- Ieikar ýta undir verðhækkanir. Ef fasteignasalar réðu ferðinni í verðlagningu fasteigna, þá hefði íbúðaverð ekki staðið í stað sl. 2 ár eins og það hefur gert og allir vita sem nálægt þessum málum hafa komið“, sagði Jónas Þor- valdsson fasteignasali í samtali við Þjóðviljann í gær. Jónas sagði að mikil eftirspurn væri nú eftir íbúðum, en framboð lítið. Ef til vill væru íbúðaeigend- ur að bíða með sölu, þar til nýja lánakerfið tæki gildi og minna framboð leiddi til hækkað verðs. Aftur á móti sagðist hann sannfærður um að verð myndi lækka aftur ef mikið framboð yrði á markaðnum í haust. Ef það yrði meira en eftirspurn, þá væri það alveg öruggt. Hjá Fasteignamati ríkisins hef- ur verið komið upp einskonar vísitölu fasteignaverðs. í október sl. haust var hún 92 en í apríl sl. var hún komin niður í 84, en var 87 í maí og júní og talið að hún verði 90 fyrir júlímánuð en engir sölusamningar eru komnir inn fyrir ágúst. S.dór. Akranes Síminn í skralli Bæjarráð Akraness hefur skorað á Póst- og símamálastofn- un að bæta án tafar símasamband íbúa á Vesturlandi við Reykjavík- ursvæðið. í áiyktun ráðsins segir að ástand símamála sé alls óvið- unandi. Ástand símamála á Akranesi og í nágrannabyggðum hefur um nokkurt skeið verið mjög slæmt og oft erfitt að ná sambandi til að mynda til Reykjavíkur. Á anna- tímum er nær' ógjörningur að ná sambandi út fyrir bæinn. - gg. Selfoss Skólaböm í Allaballahúsið Selfossbœr kemur upp skóladagheimili og ráðgerir byggingu nýs dagheimilis. FélagsheimiliAB lagt undir börnin Eitt af kosningaloforðum okkar fyrir kosningarnar í vor var að koma upp skóladagheimili og okkur fannst félagsheimilinu al- veg fórnandi til þess að geta efnt það loforð, sagði Þorvarður Hjaltason bæjarfulltrúi AB á Sel- fossi í samtali við blaðið í gær. Selfossbær hefur ákveðið að koma upp skóladagheimili á staðnum og var ekki í annað hús að venda en félagsheimili Al- þýðubandalagsins, sem félagið lét fúslega af hendi undir starf- semina. „Það hefur lengi verið brýn þörf fyrir skóladagheimilið og þessi ráðstöfun er aðeins hugsuð til bráðabirgða. Þarna munu rúmast 15 börn, en við ráðgerum að byggja nýtt dagheimili sem fyrst og þar mun verða rekið skóladagheimili fyrir 20 börn. Alls verða 60 pláss í nýja heimil- inu“, sagði Þorvarður. Og þá munu allaballar væntan- lega komast í húsið sitt aftur. Skóladagheimili eru nú sem óð- ast að ryðja sér til rúms og víða er þörfin fyrir slíka starfsemi orðin mjög knýjandi. -gg- Trjárœktarnefnd Mótmælin réttmæt Helga Jónsdóttir: Fjárbeiðni neitað. Starf nefndarinnar illa skilgreint Eins og fram kom í Þjóðviljan- um í gær hefur Hjörleifur Guttormsson sagt sig úr trjárækt- arnefnd sein forsætisráðherra skipaði á 40 ára afmæli lýðveldis- ins. Jafnframt mótmælir hann þcim vinnubrögðum að engu fé hefur vcrið veitt til nefndarinnar og ekki haldinn þar fundur síðan í apríl í fyrra. Haft var samband við formann nefndarinnar, Helgu Jónsdóttur og hún spurð hvort mótmæli Hjörleifs væru réttmæt. „Já, nefndin hefur enga fjárveitingu fengið og eru nokkrar skýringar á því. Hlutverk hennar er að vinna að samhæfingu trjáræktarmála í landinu og vekja fólk til umhugs- unar um gildi trjáræktar. Miðað var við að starf hennar yrði kostn- aðarlítið, en það kom á daginn að það krafðist fjárútláta, m.a. vegna auglýsinga- og áróðurs- herferðar sem átti að setja í gang. Þá var sótt um fjárveitingu til fjárveitinganefndar, en hún ekki tekin til greina á þeim forsendum að margar beiðnir hefðu komið um fjárveitingar til trjáræktar og því verið ákveðið að veita þeim í einn farveg. - Er nefndin þá dauð? „Nei, ekki lít ég svo á. f sumar hefur verið mikil vakning í trjá- ræktarmálum og æskilegt væri að geta fylgt henni eftir. 1 skipun- arbréfi nefndarinnar er starf hennar ekki tímabundið og hef ég fullan hug á að setja kraft í starf- semi hennar. Hins vegar er það ekkert launungarmál að starf nefndarinnar var í upphafi mjög ómótað og henni ætlað mjög vítt hlutverk. M.a. þess vegna hefur starf hennar farið hægt af stað“, sagði Helga Jónsdóttir, aðstoðar- maður forsætisráðherra. _ G.H. Hlaupið Skaðlaust gas Drepur smáfugla en skaðlaust mönnum „Það kemur alltaf vcruleg jökla- fýla með Skeiðarárhlaupum en þetta gas er hættulaust mönnum“, sagði Guðmundur Sigvaldason hjá Norrænu eldf- jallastöðnni þcgar hann var spurður að því hvort hætta væri á ferðum vegna eiturgufa frá Skeiðarárhlaupi sem nú er spáð. „Þetta er gas sem kemur alltaf með hlaupinu en veðrátta hér- lendis er þannig að það safnast aldrei fyrir en drepur þó oft smá- fugla“, sagði Guðmundur. „Þetta hefur aldrei skaðað fólk en er óþægilegt fyrir lyktarfærin.“- vd.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.