Þjóðviljinn - 19.09.1986, Side 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
r
GLÆTAN
UM HELGINA
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
Opinberir starfsmenn
SOS í deiglunni
Hugmynd um stofnun nýrra samtaka opinberra starfsmanna rœdd meðal
áhrifamanna í BSRB. Haukur Helgason: Nauðsynlegt að opinberir starfsmenn hafi
samstarfsgrundvöll. Kristján Thorlacius: Athyglisverð hugmynd
Ólafsfjörður
Sæberg
hreppti Merkúr
Utgerðarfyrirtækið Sæberg á
Ólafsfirði hefur gengið frá samn-
ingum við Ríkisábyrgðarsjóð um
kaup á togaranum Merkúr sem
nú er verið að breyta í frystitog-
ara í Noregi. Kaupverðið er 281
miljón og þar af er útborgun um
20% eða tæpar 60 miljónir.
Sæberg átti fjórða hæsta til-
boðið í Merkúr þegar skipið var
boðið út í vor en þeir aðilar sem
buðu hærra gátu ekki uppfyllt
skilyrði ríkisábyrgðarsjóðs um
útborgun.
Ásgeir Ásgeirsson einn aðal-
eigenda Sæbergs sagði í gær að að
öllum líkindum kæmi togarinn
ekki fyrr en eftir áramótin en
upphaflega átti breytingum að
vera lokið nú um næstu mánaða-
mót.
Tilkoma Merkúrs til Ólafs-
fjarðar er mikil lyftistöng fyrir at-
vinnulíf í bænum en atvinnu-
ástand var með versta móti í
fyrravetur. -yk/Akureyri/-lg.
Hugmynd um stofnun nýrra
samtaka opinberra starfsmanna
er nú rædd meðal ýmissa áhrifa-
manna innan BSRB. Sú umræða
er þó ekki enn á félagslegum
grundvelli heldur fyrst og fremst í
einkaviðtölum.
Haukur Helgason, skólastjóri
og stjórnarmaður í BSRB er einn
þeirra sem telur mikla nauðsyn á
að skapa verði samstarfsvettvang
fyrir opinbera starfsmann. Segir
hann að félagar í BSRB, BHMR
og Bandalagi kennarafélaga eigi
mörg sameiginleg hagsmunamál
sem þeir þurfi að vinna sameigin-
lega að. Samtök þessi yrðu þá á
svipuðum nótum og ASÍ.
Pessir þrír aðilar hafa nú sam-
einast í samningsréttarmálunum
og segir Haukur að það undir-
striki þá brýnu nauðsyn að
bandalögin hafi einhvern sam-
eiginlegan vettvang til að stilla
strengi sína í baráttu sinni fyrir
bættum kjörum og auknum rétt-
indum opinberra starfsmanna, og
til að standa vörð um það sem
áunnist hefur.
Kristján Thorlacius segist ekki
kannast við þessa hugmynd en
telur hana athyglisverða. Var
hann sammála Hauki um að sam-
vinna bandalaganna í samnings-
réttarmálinu undirstriki nauðsyn
heildarsamtaka opinberra starfs-
manna til að koma fram fyrir
hönd opinberra starfsmanna.
21. og 22. nóvember verður
haldið aukaþing BSRB þar sem
ræða á skipulag samtakanna.
Upphaflega átti að ræða þar
svokallað starfsgreinaskipulag en
nú er útlit fyrir að sú hugmynd fái
lítinn hljómgrunn á þinginu.
Ekki er ólíklegt að á þinginu
skapist umræða um nauðsyn
nýrra heildarsamtaka opinberra
starfsmanna.
í Sunnudagsblaði Pjóðviljans
verður fj allað nánar um þetta mál
og annað sem tengist BSRB.
-Sáf
Líftœkniiðnaðurinn
Utlend
yfirráö
Wallenbergættin sœnska
œtlar að tryggja sér
yfirráð í nýju
líftœknifyrirtœki þrátt
fyrir meirihlutaeign
innlendra aðila
Útlendingar hyggja á miklar
fjárfestingar í íslenskum líftækni-
iðnaði og m.a. mun hið nýstofn-
aða fjárfestingarfyrirtæki Silfur-
berg hf vera að undirbúa stofnun
líftæknifyrirtækis á Reykjanesi.
Á það að bera nafnið Silfurgen hf
og verður undir yfírráðum Wall-
enbergQöIskyldunnar í Svíþjóð.
Eins og fram hefur komið í
fréttum á Wallenbergættin 60% í
hinu nýja fjárfestingarfyrirtæki
en Þróunarfélag íslands og þrír
aðrir aðilar afganginn. Ætlunin
er að stofna líftæknifyrirtækið
innan skamms og tryggir eignar-
aðild Svíanna í Silfurbergi yfir-
ráð þeirra í því fyrirtæki enda
þótt þeir ættu aðeins rúmlega
þriðjung hlutafjárins þar.
í fréttaskýringu í Þjóðviljanum
í dag eru þessi mál rakin og skýrt
frá ættarveldi Wallenberganna.
Hjörleifur Guttormsson fyrrum
iðnaðarráðherra segir að Alþingi
verði að setja lög sem taki af öll
tvímæli um að útlendingar geti
ekki í krafti fjármagns náð ó-
skorðuðum yfirráðum yfir vaxt-
arbroddinum í íslensku atvinnu-
lífi- "v- Sjá bls. 2
Ekkert
gert
Davíð Oddsson sagði á borgar-
stjórnarfundi í gær að borgin
hyggðist ekkert gera til þess að
mæta þeim vanda sem margar
stofnanir eiga nú við að etja vegna
manneklu, sem talið er að stafí af
lágum launum. Sagði Davíð ekk-
ert samhengi vera milli mannekl-
unnar og lágra launa, en minni -
hlutinn var á öðru máli.
Sjáborgarfréttirbls. 6
Viðar og Bubbi á borgarstjórnarfundi í gær: Styrkjum athvarfið (mynd: E.ÓI.)
Kvennaathvarf
Bubbi ætti að fá orðu
Tónleikar til styrktar athvarfinu víða um land. Borgin tryggir
rekstur í hálfan mánuð. Endanlega afgreitt í gær
Við erum ofboðslega hressar
með Bubba Morthens og strák-
ana, svo hressar að þú skalt sko
skrifa það með risavöxnu letri.
Mér fínnst að Vigdís forseti ætti
að sæma hann riddarakrossinum
fyrir frammistöðuna, sagði Guð-
rún Jóhannsdóttir hjá Kvennaat-
hvarfínu i gær, en Bubbi Mort-
hens og Viðar Arnarson hafa sem
kunnugt er lagt drög að tónleika-
haldi víða um landið til styrktar
athvarfínu.
Borgarráð samþykkti í víkunni
að veita Kvennaathvarfinu 160
þúsund króna aukafjárveitingu
en Kvennaathvarfið hafði farið
fram á hálfa milljón. Rekstur at-
hvarfsins kostar um 350 þúsund
krónur á mánuði, og fjárvöntun
frá júlí til áramóta var um tvær
milljónir, 1100 þúsund til rekstr-
ar, 900 þúsund til viðhalds.
Viðar Arnarson umboðsmað-
ur Bubba Morthens sagði í sam-
tali við blaðið í gær að þegar hefði
verið ákveðið að halda tónleika í
Háskóiabíói 11. október, á Akur-
eyri 9. október og á Selfossi 3.
eða 10. október. Meðal
skemmtikrafta sem þar munu
koma fram eru Edda Þórarins-
dóttir og fleiri leikkonur, Diddú,
Kristinn Sigmundsson, Ragnar
Bjarnason, Karl Ágúst Ulfsson og
fleiri grínarar, Gunnar Þórðar-
son að ógleymdum Bubba sjálf-
um og mörgum fleiri. Viðar er nú
í óða önn að skipuleggja
skemmtanahaldið.
„Húsið hjá okkur er illa farið
en það er verið að gera við það
fyrir fé sem einstaklingar og fyrir-
tæki hafa sent okkur. Nú eru hjá
okkur fimm konur og tíu böm,“
sagði Guðrún Jóhannsdóttir í
gær.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins felldu í gær tillögu
minnihlutaflokkanna um að veita
athvarfinu 500 þúsund króna
fjárveitingu og stendur því
óhögguð ákvörðun borgarráðs-
manna íhaldsins um að styrkja
það aðeins með 160 þúsund
króna framlagi. Það kemur til
með að standa undir rekstrinum í
svo sem hálfan mánuð.
-ÖS/gg