Þjóðviljinn - 19.09.1986, Blaðsíða 3
Skák
Margeir efstur
Fjórða umferð
Skákþings íslands
tefld ígœrkvöldi
Fjórða umferð á Skákþingi ís-
lands var tefld í gærkvöldi, en
eins og kunnugt er tefla menn nú í
Grundarfirði af því tílcfni að 200
ár eru frá fengnum réttindum
kaupstaðar.
Sú fjórða tefldist þannig að
Karl Þorsteins vann Jóhann
Hjartarson og Dan Hansson
vann Björgvin Jónsson, jafnir
skildu Guðmundur Sigurjónsson
og Jón L. Árnason, og Davíð Ól-
afsson og Sævar Bjarnason. Tvær
skákir fóru í bið: Margeir Péturs-
son hefur rýmra tafl gegn Þresti
Árnasyni en skák Hannesar Hlíf-
ars Stefánssonar og Þrastar Þór-
hallssonar er jafnteflisleg.
Fyrir fjórðu umferð hafði
Margeir forystu með 3 vinninga
en Þröstur Þórhallsson hafði tvo
og hálfan. ~PV
SÍS verðlaunar
Þráin
Starfsfólk Iðnaðardeildar Sam-
bandsins á Akureyri afhenti í gær
Þráni Karlssyni leikara 75.000 krónur
styrk frá stjórn Menningarsjóðs SÍS.
Þráinn Karlsson á 30 ára leikafmæli
um þessar mundir og er að undirbúa
sýningu á tveimur einþáttungum eftir
Böðvar Guðmundsson.
Foreldrasamtökin
Vímulaus æska
Stofnfundur Foreldrasamtakanna
Vímulaus æska verður haldinn í
Háskólabíói nk. laugardag. Húsið
verður opnað kl. 13.00 en gert er ráð
fyrir að fundinum ljúki um kl. 16.
Þorskalýsisþykknið
Omega-3
Lýsi h.f. hefur hafið framleiðslu á
nýrri afurð, Omega-3 þorskalýsis-
þykkni. Hér er um að ræða venjulegt
þorskalýsi sem inniheldur mun meira
af fjölmettuðum fitusýrum af Omega-
3 flokknum, en sýnt hefur verið fram
á þær draga úr blóðflögumyndun og
eru taldar veita vörn gegn kransæð-
asjúkdómum.
Þessi framleiðsla á nýja lýsinu er
árangur af rannsóknar- og samstarfs-
samingi Lýsis við prófessor Sigmund
Guðbjarnarson núverandi háskóla-
rektor og Raunvísindastofnun há-
skólans.
Grunaður í gæslu
Hinn þrítugi karlmaður sem grun-
aður er um að vera valdur að dauða
fatlaðrar konu í Hátúni um helgiha
var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald
að beiðni rannsóknarlögreglu.
Doktorsvörn
um legrúmmál
Reynir Tómas Geirsson læknir, ver
á laugardag doktorsritgerð sína sem
fjailar um breytingar á rúmmáli legs á
meðgöngu mælt með sónartæki.
Doktorsvörnin fer fram í stofu 101 í
Odda og hefst kl. 14.00. Hún er öllum
opin.
FRETTIR
r Uppsagnir u *
Fostrur af stað
Fjórar afhverjumfimmfóstrum íReykjavík reiðubúnar í hópuppsagnir 1. nóvember,
Nœr allar telja þörfá aðgerðum vegna lágra launa. Skortur áfóstrum og
ófaglærðum á dagvistarheimili sjaldan meiri
Skoðanakönnun meðal fóstra í
Reykjavík sýnir að fjórar af
hverjum fimm eru reiðubúnar að
taka þátt í hópuppsögnum þegar
1. nóvember. Nær allar þeirra
sem tóku þátt í könnuninni
sögðust reiðubúnar til einhvers
konar aðgerða, hópuppsagna eða
skæruaðgerða af einhverju tagi
Úrval
Sumaiþotp
í Húsafelli
Byggt í samvinnu við aðila á
Vesturlandi
i
I byrjun næsta árs verða risin
sumarhús í Húsafelli í Borgar-
Hrði.
Það er ferðaskrifstofan Úrval
ásamt ýmsum aðilum á Vestur-
landi sem hafa látið hanna sumar-
húsaþorp og fyrsta húsið verður
tilbúið í janúar á næsta ári. Hvert
slíkt hús er hringlaga áttstrend-
ingur með 15 íbúðum í og sam-
eiginlegum garði sem verður yfir-
byggður og upphitaður. Þetta er
40 mil|jóna króna framkvæmd og
f henni felst bygging tveggja húsa
auk þjónustumiðstöðvar.
Að sögn Matthíasar Kjartans-
sonar hjá Úrvali er sumarhúsa-
þorpið einn liðurinn í að auka við
fjölda erlendra ferðamanna jafn-
framt því sem þjónusta og fram-
boð á ferðamöguleikum fyrir ís-
lendinga er aukið. Húsafell sé
k j örið fyrir þorp af þessu tagi, þar
sé jarðhiti og í tengslum við þorp-
in verði komið á ýmsri þjónustu.
Húsin eru hönnuð af Róbert
Péturssyni arkitekt en hugmynd-
in er sótt til meginlands Evrópu.
-GH
Umferðarslys
Slysum
fjölgar
Ágúst er slysaflesti mánuður
ársins fram að þessu. Alls urðu 69
slys með meiðslum í mánuðinum
og 2 dauðslys. í sama mánuði í
fyrra urðu 52 slys með meiðslum
en ekkert dauðaslys.
Pjóðviljinn
Nýr fréttastjóri
Lúðvík Geirsson blaðamaður
hefur verið ráðinn fréttastjóri
Þjóðviljans.
Lúðvík er lesendum Þjóðvilj-
ans að góðu kunnur, en hann hóf
störf á blaðinu vorið 1979 og hef-
ur starfað þar nær samfellt síðan.
Fyrir utan að vera bakara-
sveinn að mennt hefur Lúðvík
stúdentspróf frá Flensborgar-
skóla og BA-próf í íslensku og
bókmenntum frá Háskóla ís-
lands. Hann hefur starfað mikið
að félagsmálum og er nú varafor-
maður Blaðamannafélags ís-
lands.
Þjóðviljinn býður Lúðvík
Geirsson velkominn til starfa á
nýjum vettvangi.
Jafnframt vill Þjóðviljinn
þakka Valþóri Hlöðverssyni fyrir
vel unnin störf, en hann hefur
verið fréttastjóri blaðsins frá
1984. Valþór mun starfa áfram
sem blaðamaður við Þjóðviljann,
en auk þess er hann bæjarfulltrúi
fyrir Alþýðubandalagið í Kópa-
vogi.
- Ritstj.
Matthías
Kjartansson við
líkan af
sumarhúsinu
sem reisa á í
Húsafelli.
Áætlaðeraðtvö
slík hús verði
risinþaránæsta
vori. Ljósm. Sig.
til þess að freista þess að ná fram
leiðréttingu á launum sínum.
Skoðanakönnunin var að sögn
Margrétar Pálu Ólafsdóttur trún-
aðarmanns fóstra hjá Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar
gerð í síðustu viku og var farið
með spurningalista inn á hvert
einasta dagvistarheimili í borg-
inni.
Mikil ólga ríkir nú meðal fóstra
og er ekki talið ólíklegt að þær
grípi til aðgerða innan tíðar. Mar-
grét sagði í gær að fundur yrði
haldinn um málið í næstu viku og
yrði þar fjallað um hugsanlegar
aðgerðir.
Fóstrur eru geysilega óánægð-
ar með laun sín og birtist sú óá-
nægja m.a. í því að fóstruskortur í
borginni er jafnvel meiri nú en í
fyrra. Þetta á reyndar ekki aðeins
við um fóstrur, því ekki er síður
erfitt að fá ófaglært starfsfólk til
starfa á dagvistarstofnanir. í
byrjun september voru aðeins 16
heimili af 58 fullmönnuð starfs-
fólki og vantaði þá starfsfólk í 61
stöðugildi.
-gg
FORELDRAR!
Við stofnum
FORELDRASAMTOKIN
VIMULAUS
ÆSKA
laugardaginn 20. september 1986 kl. 13.30-16.00 í Háskólabíói.
Dagskrá:
1. Formaður undirbúningsnefndar sstur
fundinn.
2. Fundarstjóri tekur við stjórn fundarins.
3. Skýrsla undirbúningsnefndar.
4. Kveðjur frá SÁÁ og Lions.
5. Tillaga að lögum samtakanna lögð fram.
6. Stjórnarkjör.
7. Ákveðið félagsgjald fyrir árið 1987.
8. Ávörp foreldris, unglings og læknis.
Tónlistarmenn flytja nokkur lög af hljóm-
plötunni „Vímulaus æska" sem kemur út í haust
til styrktar samtökunum.
FUNDARSTJÓRI: MAGNÚS BJARNFREÐSSON.
TÖKUM Á ÞESSU
VANDAMÁLI
í SAMEININGU.
Verndum börnin okkar fyrir vímuefnunum.
Undirbúningsnefndin.