Þjóðviljinn - 19.09.1986, Page 6
BORGARMÁL
Starfsmannaskortur
Borgin hefst ékkert að
Geysilegur vandi stofnana borgarinnar vegna manneklu. Minnihlutaflokkarnir: Stafar af lágum launum.
Hvað œtlar borgin að gera? Davíð Oddsson: Ekkert. Ekkertsamhengi milli manneklu og lágra launa
Davíð Oddsson borgarstjóri lýsti
yflr því á borgarstjórnarfundi í
gær að hann teldi ekkert sam-
hengi á milli lágra launa hjá borg-
inni og manneklu í þau störf sem
verst eru launuð. Var á honum að
skilja að borgin hyggðist ekkert
gera til að leysa þann vanda sem
margar stofnanir hennar eiga við
að etja vegna skorts á starfsfólki.
Borgarfulltrúar Abl. Kvenna-
lista, Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks lögðu í gær fram
sameiginlega fyrirspurn um
hvernig Sjálfstæðismenn hyggð-
ust bregðast við þessum vanda.
„Kjarni þessa máls er sá að fólk
fæst ekki til starfa á dagvistar-
stofnunum og víðar vegna þeirra
lágu launa sem þar eru í boði,“
sagði Kristín Á. Olafsdóttir borg-
arfulltrúi Alþýðubandalagsins
m.a. „Fjöldi fólks hefur áhuga á
að vinna þessi störf, en það verð-
ur líka að geta lifað af laununum.
Það getur það ekki og treystir sér
því ekki til þess að starfa hjá
borginni."
í fyrirspurninni kemur fram að
í byrjun september vantaði fólk í
61 stöðugildi á dagvistarheimil-
um, ekki er hægt að sinna bráða-
tilvikum hjá heimilishjálpinni
vegna skorts á starfsfólki og hjá
heimilisþjónustunni eru á fjórða
hundrað heimili aldraðra á bið-
lista.
Davíð sagði aðalástæðuna fyrir
manneklunni vera þá, að störf
væru fleiri en starfsfólk í borg-
inni. Hann taldi útilokað að
hækka laun verulega, m.a. vegna
þess að þá myndi verðbólga æða
áfram að nýju. Auk þess myndu
slíkar aðgerðir sprengja upp síð-
ustu kjarasamninga. Pá kom
fram í máli Davíðs að ástandið
væri nú mun skárra en fyrirspurn-
in gæfi til kynna.
„Ég vona bara að Davíð Odds-
son og aðrir í hans flokki fari að
átta sig á samhengi hlutanna og
taka á þessum málum eins og
menn,“ sagði Kristín Á. Ólafs-
dóttir í gær. -gg
Kvennaathvarfið
Hálfs
mánaðar
rekstur
Sjálfstœðisflokkurinn felldi tillögu minnihlut-
ans um 500þúsund króna styrk. Davíðþagði
þunnuhljóði. Arniskiptiumskoðun. Borgin
tryggirreksturíl5 daga. Aðsókn jókstgífur-
lega á fyrri hluta ársins
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins feildu tillögu fulltrúa
Abl., Kvennalista, Framsóknar-
flokks og Alþýðuflokks um að
veita Kvennaathvarfinu 500 þús-
und króna aukafjárveitingu enn á
ný á borgarstjórnarfundi í gær-
Skólamál
VÍÍja
hverfa-
skiptingu
Minnihlutaflokkarnir lögðu til á
borgarstjórnarfundinum í gær að
því yrði beint til alþingis að
breyta grunnskólalögunum á
þann veg að Reykjavík yrði skipt
upp í nokkur skólahverfi og fyrir
hvert þeirra yrði kosin skóla-
nefnd, en tillögunni var vísað til
skólamálaráðs og sá skilningur
minnihlutans bókaður að þar
væri átt við fræðsluráð/ skóla-
málaráð:
f greinargerð með tillögunni
segir að þar sem borgin telst að-
eins vera eitt skólahverfi þrátt
fyrir stærðina, séu samskipti milli
skóla þung í vöfum, fræðsluyfir-
völd séu fjarlæg hinu daglega
starfi skólans, jafnvel þótt þau
séu öll af vilja gerð til þess að
hamla gegn því.
„Það er skoðun flutnings-
manna tillögunnar að það sé
skólastarfi í borginni til hagsbóta
að skipta borginni niður í nokkur
skólahverfi," segir í tillögunni.
Par segir enn fremur að stofnun
nokkurra skólanefnda í borginni,
sem kosnar eru úr hópi íbúa við-
komandi hverfa sé réttlætismál í
anda lýðræðis og valddreifingar.
-gg
Katrín Fjeldsted hafði ekkert til málefna athvarfsins að leggja á fundinum í gær frekar en stallsystur hennar í flokknum.
Davíð þagði þunnu hljóði, en Árni var kominn á aðra skoðun. Mynd E.ÓI.
kvöldi. Þar með var staðfest sú
ákvörðun borgarráðsmanna
Sjálfstæðisflokksins að veita að-
eins 160 þúsund krónum til
starfseminnar.
„Ég tel að með þessari upphæð
auk þeirra 625 þúsund króna sem
þegar hafa verið greiddar, hafi
borgin veitt Kvennaathvarfinu
nægilegan stuðning í ár,“ sagði
Árni Sigfússon borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins á fundinum í
gær, en hann var sá eini í þeirra
hópi sem tjáði sig um málið í
löngum umræðum. Borgarstjóri,
sem vanur er að tala fyrir hönd
síns flokks, þagði þunnu hljóði
meðan á þessum umræðum stóð
og konur meðal borgarfulltrúa
flokksins höfðu ekkert til mál-
anna að leggja.
Pess ber að geta að Árni sam-
þykkti beiðni Samtaka um
kvennaathvarf um 500 þúsund
króna styrk í félagsmálaráði, en á
Það er augljóst að þessi
innkeyrsla mun stofna umferðar-
öryggi stórlega í hættu og það er í
raun og veru fáránlegt að ein-
hverjum skyldi hafa dottið þetta í
hug, sagði Sigurjón Pétursson
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins m.a. þegar hann mælti fyrir
tillögu sinni um að horfið yrði frá
því að leggja innkeyrslu af
Reykjanesbraut að veitinga-
staðnum Sprengisandi.
borgarstjórnarfundinum í gær
var hann á allt öðru máli.
Samkvæmt upplýsingum Álf-
heiðar Ingadóttur gjaldkera sam-
takanna kostar rekstur athvarfs-
ins 300-350 þúsund krónur á
mánuði og er þó öllu stillt þar í
hóf. Samkvæmt því hefur borgin
lagt fram rekstrarfé til rúmlega
tveggja mánaða af 12 á þessu ári
og kemur þó lang mestur fjöldi
þeirra kvenna sem njóta þjón-
ustu athvarfsins frá Reykjavík,
eða 64% þeirra sem komu fyrstu
mánuði þessa árs. 160 þúsund
krónur nægja til að halda uppi
rekstri í e.t.v. 15 daga.Eins og
áður hefur komið fram er fjár-
þörf samtakanna um 2 miljónir
króna það sem eftir lifir þessu ári.
Borgarfulltrúar minnihluta-
flokkanna, Guðrún Ágústsdóttir,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Tillagan var felld með at-
kvæðum borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins og Bjarna P.
Magnússonar, en fulltrúar Al-
þýðubandalags, Kvennalista og
Framsóknarflokks voru með.
Það er því ljóst að Tómas Tómas-
son fær götuna sína í a.m.k. eitt
ár.
Bæði Sigurjón og Össur Skarp-
héðinsson bentu á að allir helstu
umferðarsérfræðingar borgar-
Bjarni P. Magnússon og fleiri
mæltu eindregið með styrkveit-
ingu upp á hálfa miljón. Ingi-
björg benti á að kvennaathvarfs-
konur hafi alltaf lagt metnað sinn
í að hafa reksturinn sem hag-
kvæmastan svo að á stundum
jaðraði það við nirfilshátt, en
þessar 160 þúsund krónur væru
hvorki til að lifa né deyja fyrir
eins og hún orðaði það.
Guðrún Ágústsdóttir skoraði á
konur í hópi borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins að styðja tillögu
minnihlutans. Hún sagði aðsókn í
athvarfið hafa aukist verulega á
fyrri hluta þessa árs, einkanlega
hvað börn varðar og því væri fjár-
þörfin mikil.
Fyrstu sex mánuði þessa árs
komu 72 konur og 76 börn í
kvennaathvarfið úr 15 sveitarfé-
lögum, þar af nær 80% af höfuð-
innar hefðu lagst gegn því að
þarna yrði gerð innkeyrsla, enda
stríddi það gegn öllum venjum og
stefndi öryggi þeirra sem um
Reykjanesbrautina aka í hættu.
Það var Katrín Fjcldsted sem
upphaflega lagði til að þarna yrði
innkeyrsla og sagðist hún á borg-
arstjórnarfundinum í gær hafa
gert það í þeirri trú að af þessu
myndi engin hætta stafa.
-gg
borgarsvæðinu. Mest álagið var í
apríl en þá dvöldu að meðaltali
18.3 íbúar í athvarfinu en mestur
varð fjöldinn 25 íbúar. -gg
Fellaskóli
Asbest
í loftinu
Vinnueftirlitið
lagði bann við
kennslu
Enda þótt nú séu um þrjú ár liðin
síðan notkun asbests var bönnuð
er enn loftklæðning úr þessu
krabbameinsvaldandi efni í Fella-
skóla og hugsanlega fleiri bygg-
ingum.
Þetta kom fram í máli Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur á
borgarstjórnarfundi í gær. Hún
lagði fram tillögu á fundinum um
að fela byggingardeild borgar-
verkfræðings að taka saman yfir-
lit yfir notkun asbests í bygging-
um borgarinnar og var tillagan
samþykkt samhljóða.
Ingibjörg rifjaði upp að Vinnu-
eftirlitið gerði athugasemd við
notkun asbests í Fellaskóla
skömmu eftir að notkun efnisins
var bönnuð, en þrátt fyrir það
væru enn asbestplötur í lofti
skólans. í júní sl. lagði Vinnueft-
irlitið bann við kennslu í skólan-
um af þessum sökum, en nú hefur
verið samþykkt að mála yfir
plöturnar og fjarlægja síðan þeg-
ar þessu skólaári lýkur.
Ékki er vitað um hugsanlega
mengunarhættu í Fellaskóla og
liggur grunur á að engar mæling-
ar hafi farið fram á því þrátt fyrir
loforð þar um. -gg
Reykjanesbraut
Tommi fær sitt
Sjálfstæðisflokkurinn og Bjarni P. Magnússon útvega Sprengisandi
innkeyrslu af Reykjanesbraut. Sigurjón Pétursson: Fáránleg hug-
. mynd og stórhœttuleg
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. september 1986