Þjóðviljinn - 19.09.1986, Blaðsíða 8
GLÆTAN
eysku strákarnir eru miklu ljótari
en Frónbúarnir.
Hvernig var skemmtanalífið í
Fuglafirði?
„Skemmtanalífið var mjög
heft. Þarna búa ekki nema 1500
manns og því lítið um að vera.
Fólkið er útlullað í guðstrú, það
hefur hvort sem er ekkert annað
að gera. Þarna eru kirkjur fyrir 3
mismunandi trúflokka og það er
verið að byggja fjórðu kirkjuna.
Þegar unglingarnir eru ekki á trú-
arsamkomu hanga þeir fyrir utan
sjoppuna eða rúnta um á bílum.
Það á hver kjaftur bíl í Fær-
eyjum.“
„í Fuglafirði var ekkert bíó og
ekkert félagsheimili. Eins og
margir vita er vínskömmtun í
Færeyjum. Fólk verður að panta
vín og bjór frá Danmörku. Það er
ákveðinn kvóti á mann. En þeir
sem ekki eru búnir að borga
skattinn sinn fá ekkert vín. Þegar
vínsendingin kemur á pósthúsið
er mikið pukrast með þetta. Samt
eru dagdrykkjumenn í Fær-
eyjum. T.d. var einn sjötugur
karl sem við kölluðum „Red
Svona lýtur Ölklúbburinn út, eini samkomustaðurinn í Fuglafirði sem ekki er á vegum trúarsöfnuða.
Ljósm. Helena.
nose“, því hann var alltaf svo
rauður og fyndinn í framan; hann
innbyrti alltaf einn bjórkassa á
dag.“
Ölklúbburinn
„Ef menn viidu hittast og
drekka vín saman þá urðu þeir að
ganga í Ölklúbbinn, og afhenda
mánaðarlega helminginn af
sprúttskammtinum. Meðlimirnir
voru 90 karlmenn og ein útlensk
kona. Það þótti skömm fyrir þær
færeysku að vera í Ölklúbbnum.
Þess vegna fóru þær ekki inn í
þennan litla bragga sem kallaðist
Ölklúbburinn nema þegar
skammdegið var skollið á og eng-
inn sá þær læðast þangað í myrkr-
inu. Við vinkonurnar vorum
náttúrlega ekkert inni í þessum
málum fyrst í stað. Ákveðnar í að
skemmta okkur æddum við inn í
Ölklúbbinn. Það varð uppi fótur
og fit. Mennirnir þarna voru á
aldrinum svona 60 ára og uppúr.
En þeir buðu okkur nú samt í
glas. Við fórum svo stundum
þangað á kvöldin. Einu sinni
komu þangað strákar á okkar
aldri sem við þekktum. Þeir ætl-
uðu að tala við okkur en voru
reknir út af gömlu körlunum,
sem hvæstu að þeir hefðu sest hjá,
okkur fyrst. Þetta var mjög
spaugilegt."
Kántrý í Fugfafirði
„Það var frábært hve lítil am-
eríkansering hefur átt sér stað í
Færeyjum. En það kom okkur á
óvart hvernig tónlist Færeyingar
hlusta á. Það er nær eingöngu
færeysk tónlist og amerískt
kántrý.“
Eruð þið ekki ríkar og altalandi
fœreysku eftir sumarið?
„Það er nú erfiðara að komast
inn í málið en maður heldur í
fyrstu. Því talmálið er allt öðru
vísi en stafsetningin. Færeyskum
börnum gengur yfirleitt mjög illa
að læra stafsetningu. Þannig að
við náðum ekki valdi á málinu
fyrr en eftir nokkurn tíma. Svo
uppgötvaði maður það allt í einu
að maður kunni færeysku. En í
sambandi við peningahliðina þá
vitum við ekki alveg í hvað pen-
ingarnir hafa farið. Við þurftum
að vísu að sjá í fyrsta sinn einar
um matarkaupin. Og peningarnir
voru fljótir að fjúka. Þó að við
höfum haft svona gott tímakaup
þá kemur 50% skattur á kaupið
eftir að þú hefur unnið þér inn 75
þúsund íslenskar kr.. Upp að því
marki ertu skattlaus. Einnig
þurftum við að borga húsaleigu.
Það eru engar verbúðir í Fær-
eyjum og fólk kemst upp með að
okra, því húsnæðisskortur er svo
mikill. En maður hafði samt
meira upp úr sumrinu þarna en í
fiskvinnu á íslandi."
Vita Fœreyingar mikið um ís-
land?
„Já, margir gömlu karlanna
höfðu komið hingað í gamla daga
til að vinna í fiski, meðan litla
vinnu var að fá í Færeyjum. Þeir
tala með mikilli hlýju um ísland
og íslendinga.“
Ætlið þið aftur í Fuglafjörðinn
nœsta sumar?
„Það væri gaman að skreppa.
En við viljum ekki vera þar aftur í
heilt sumar. En það væri vissu-
lega gaman að heilsa upp á Fær-
eyingana, þeir eru svo æðislega
almennilegir.“ SA
Það var ekki mjög margt um að vera í Fuglafirði og því tók Helena það bara til bragðs
aö laga til, létt í skapi.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Bylgjan
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
La Isla Bonita - Madonna
Holiday Rap - MC Miker G & Deejay Sven
Dancing on the Ceiling - Lionel Richie
Braggablús - Bubbi Mortens
Með vaxandi þrá - Geirmundur og Erna
Human - Human League
The Lady in Red - Chris de Burgh
So Macho -Sinitta
Venus - Bananarama
Papa don’t preach - Madonna
Grammió
1. ( 2)
2. ( 1)
3. ( 4)
4. ( 3)
5. ( 6)
6. ( 9)
7. ( 5)
8. ( ~)
9. ( 8)
10. ( 7)
Blús fyrir Rikka - Bubbi Morthens
Panic - Smiths
The Queen is dead - Smiths
London 0 - Hull 4 - Housemartins
Especially for you - Smithereens
Life’s so cool - Tex and the
Horseheads
Flaunt it - Siuge Siuge Sputnik
Three imaginary boys -The Cure
A date with Elvis - Cramps
Knocked out louded - Bob Dylan
Rás 2
1. ( V
2. ( 3)
3. ( 2)
4. (10)
5. ( 7)
6. ( 6)
7. ( 8)
8. ( ~)
9. ( 5)
10. ( 4)
La Isla Bonita - Madonna
Ég vil fá hana strax - Greifarnir
Braggablús - Bubbi Morthens
Thorn in my side - Eurythmics
Stuck With You - Huey Lewis
And The News
I Wanna Wake Up With You
-Boris Gardiner
Lady in Red - Chris DeBurgh
Holiday Rap - M.C. Miker G
Dreamtime - Daryl Hall And DJ Sven
Hesturinn - Skriðjöklar
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. september 1986'