Þjóðviljinn - 19.09.1986, Síða 13
HEIMURINN
Púapúa
forsætisráðherra Túvalú í
Suður-Kyrrahafi sagði í gær að
hann hefði farið þess á leit við
ríkar þjóðir heims að settur'
yrði á stofn styrktarsjóður og
vextirnir notaðir til að borga
kostnaðinn af rekstri þessa
litla og fátæka lands. Tomasi
Púapúa skýrði fréttamönnum
frá því að hann hefði sett
þessa hugmynd fram á fundi
með embættismönnum frá
Bandaríkjunum, Ástralíu,
Nýja-Sjálandi, Kanada, Frakk-
landi, Bretlandi, Japan, Suður-
Kóreu og þróunarstofnun
Sameinuðu þjóðanna. Væri
hún í því fólgin að taka lán í
Ástralíu upp á 27 miljónir
ástralskra dollara, fjárfesta
það og fá 1,9 miljónir dollara í
vexti á ári. Þessu fé yrði síðan
varið í rekstur Túvalú, en í því
landi eru 8300 íbúar. Púapúa
sagði að hugmyndin hefði
fengið góðar undirtektir, en
engin ákvörðun yrði tekin fyrr
en á öðrum fundi í október.
Helstu tekjur Túvalúbúa koma
frá útflutningi á þurrkuðum
kókoshnetukjörnum, frímer-
kjaútgáfu og peningum sem
1400 Túvalúbúar sem starfa
erlendis, senda heim til sín.
Einnig leigja þeir Japönum og
Suður-Kóreubúum fiskveiðir-
éttindi fyrir 300000 dollara.
Ópíum-stríð
stendur nú yfir í Burma milli
skæruliða kommúnista og her-
sveita stríðsherrans Khun Sa,
að sögn tælenskrar lögreglu,
og eru úrslit enn óráðin, þótt
kommúnistar hafi unnið
nokkra skjóta sigra. Sagði lög-
reglan, að kommúnistar og
bandamenn þeirra, stíðsmenn
úr Wa-ættbálki, hefðu fellt
meira en 30 menn úr hersvei-
tum Khun Sa síðan 12. sept-
ember, rekið herinn burt úr Doi
Laem fjalli og náð á sitt vald
þremur heróín-gerðum. En
hersveitir Khun Sa hafa enn
þrjú fjöll á sínu valdi og ráða
þannig bæði yfir ópíum-ökrum
og smyglstarfsemi. Þetta er
nýjasti þátturinn i tuttugu ára
styrjöldum um yfirráðin yfir
hinum svonefnda „Gullna þrí-
hyrningi," sem nær yf ir svæði í
Burma, Tælandi og Laos, og
hefur að geyma einhverja
mestu ópíumframleiðslu í
heimi, en úr ópíum er framleitt
eitt hættulegasta eiturlyf sem
til er, heróín. Khun Sa stofnaði
her sinn 1964 og ræður nú yfir
70 af hundraði allrar eiturlyfj-
aframleiðslu á svæðunum.
Skæruliðar kommúnista þurfa
að sögn á þessum tekjum að
halda í uppreisn sinni gegn
Burma-stjórn, þar sem Kín-
verjar hættu allri fjárhagsað-
stoð við þá fyrir sjö árum.
Sérfræðingar
í byggingu vatnsorkuraf-
stöðva, sem vissu ekkert um
kjarnorkuver, hönnuðu
Tsérnobíl-kjarnorkuverið, að
sögn sovéska dagblaðsins
Prövdu, og var verki þeirra
ábótavant. Pravda gagnrýndi
verkfræðingana fyrir að hafa
ekki séð fyrir þau mistök og
bilanir, sem leiddu til versta
kjarnorkuslyss sem orðið hef-
ur. „Þeir sem hönnuðu bygg-
inguna fyrir kjarnorkuveríð
höfðu þekkingu á
vatnsorkurafstöðvum en þeir
þekktu ekki þær sérstöku kröf-
ur sem gera verður til kjarnork-
uvera,“ sagði blaðið. Pravda
bætti því við, að seint gengi að
fjarlægja geislavirkt lausagrjót
af þaki kjarnorkuversins, þar
sem erfitt væri að beita þar
fjarstýrðum vinnuvélum.
ERLENDAR
FRÉTTIR
jóNnAssonR/REU1ER
Tilrœðin í París
Bræður neita ásökunum
Kabbayat, Líbanon - Líbanon-
búi, sem sakaður hefur verið
um að eiga þátt í sprengjutil-
ræðunum í París, sagði í gær
að hann væri saklaus af þess-
um ákærum og hefði aldrei til
Frakklands komið. Maður
þessi, Emil Ibrahim Abdallah,
er bróðir Georges Ibrahim
Abdallah, sem situr í fangelsi í
Frakklandi og hryðjuverka-
menn heimta að látinn verði
laus.
Að sögn dagblaðsins „Le
Monde“ voru tveir menn, Emil
Ibrahim Abdallah og Salim E1
Khoury, grunaðir um að hafa
kastað sprengjunni á fataverslun-
ina Tati í fyrradag og var haft eftir
lögreglunni að sjónarvottar
hefðu borið kennsl á þá. Sprengj-
unni var kastað úr bifreið, sem ók
með miklum hraða og varð hún
fimm mönnum að bana. Áður
hafði frönsk lögregla hafið leit að
tveimur öðrum bræðrum Georg-
es Ibrahim Abdullah, Róbert og
Maurice, sem einnig voru bend-
laðir við tilræðin. Þessir tveir
menn hafa nú vísað öllum ásök-
unum á bug, og sagði Emil bróðir
þeirra í gær, að þeir þrír hefðu í
huga að kæra frönsk yfirvöld fyrir
rangar sakargiftir. Myndu þeir
fara til Frakklands og svara ás-
ökununum ef þeir fengju griðab-
réf.
Emil talaði við fréttamenn í
þorpi sínu 148 km frá Beirút og
voru þrír bræður hans með hon-
um. Þeir eru úr fjölskyldu Mar-
óníta, sem er kristinn trúflokkur.
Georg Ibrahim Abdallah með lögfræðingi sínum fyrir rétti í París.
Flóttamannastraumi settar skorður
Vegabréfsáritunþarftil að komast ígegnum Austur-Þýskaland
Austur-Berlín - Austur-þýsk
yfirvöld tilkynntu í gær, aö þau
myndu takmarka straum er-
lendra flóttamanna, sem koma
til Vestur-Berlínar og Vestur-
Þýskalands í gegnum
Schönefeld-flugvötl í Austur-
Berlín. Svo virðist sem þessi
ákvörðun hafi verið tekin eftir
viðræður vestur-þýskra sós-
íalista, sem nú eru í stjórnar-
andstöðu, og fulltrúa austur-
þýskra yfirvalda, og leysir hún
vandamál, sem hefur sett
skugga á samskipti þýsku ríkj-
anna.
kanslari í síðasta mánuði að
margir flóttamannanna kæmu til
Vestur-Berlínar í leit að bættum
lífskjörum og ekki vegna þess að
þeir hefðu orðið fyrir pólitískum
ofsóknum í heimalandi sínu. Var
flóttamannastraumurinn orðinn
að miklu pólitísku deilumáli og
óttuðust ýmsir stjórnmálamenn
að það yrði í miðdepli kosninga-
baráttunnar, sem fer nú í hönd.
Þegar þær reglur, sem austur-
þýsk yfirvöld hafa nú boðað,
ganga í gildi, verður engum
flóttamanni hleypt í gegnum
Austur-Þýskaland nema hann
hafi vegabréfsáritun til þess
lands, þar sem hann ætlar að
biðja um hæli sem pólitískur
flóttamaður.
Háttsettir menn í stjórnar-
flokkunum í Vestur-Þýskalandi
gagnrýndu Austur-Þjóðverja
fyrir að ræða um þetta mál við
sósíalista og gáfu þeim að sök að
reyna þannig að hafa áhrif á
kosningarnar.
Franskur herfulltmi
Samkvæmt vestur-þýskum
heimildum hafa 70000 menn beð-
ið um hæli í Vestur-Þýskalandi
sem pólitískir flóttamenn það
sem af er þessu ári, og hefur
meira en helmingur þeirra komið
til landsins í gegnum Schönefeld-
flugvöll með austur-þýska vega-
bréfsáritun til að fara í gegnum
landið. Flestir þeirra eru frá
Austurlöndum nær. Vestur-þýsk
yfirvöld hafa lengi viljað tak-
marka þennan flóttamanna-
straum, sem hefur enn aukist í
sumar, og sagði Helmut Kohl
myrtur í Líbanon
Beirút - Franskur herfulltrúi,
Christian Dutierre, var skotinn
til bana í hverfi kristinna
manna í Austur-Beirút í gær,
og lýsti áður óþekktur hermd-
arverkamannaflokkur yfir
ábyrgð sinni á víginu.
Hópur þessi nefndi sig
„Réttlætis- og hefndarfylking-
una,“ og sagði talsmaður hans í
samtali við fréttastofu að Chirac,
forsætisráðherra Frakklands,
skildi vita að næstu aðgerðirnar
yrðu ennþá hrikalegri. Þetta
morð fylgir í kjölfar sprengjutil-
ræðanna í París, sem orðið hafa
átta mönnum að bana og sært yfir
hundrað og fimmtíu á tíu dögum.
Var það mikið áfall fyrir erlenda
sendimenn í Líbanon, sem hafa
hingað til talið að Austur-Beirút
væri nokkuð öruggur staður fyrir
mannræningjum og byssu-
mönnum.
Stjóm Sýrlands fordæmdi
morðið á franska herfulltrúanum
mjög harðlega í gær og sagði að
það þjónaði ekki málstað Líba-
nons.
Noregur
Menguðum hreindýrum slátrað
Osló - Slátrun hófst í Noregi í
gær á þeim hreindýrum, sem
urðu fyrir geislun, þegar
geislavirk ský frá Tsérnóbíl-
kjarnorkuverinu bárust yfir
Norðurlönd í apríl.
Hreindýraveiðar eru eina
atvinna um 200 Samafjölskyldna
á því svæði sem varð fyrir
geislamenguninni og hafa verið
settir á stofn sérstakir sjóðir til að
bæta þeim upp missi árstekna.
Geislavirkni sem nemur 40000
bekkereleiningum í kílói hefur
mælst í hreindýrum sem vom á
beit á þeim svæðum, sem meng-
uðust af hinu banvæna efni ceras-
ium 137 af völdum Tsérnóbíl-
slyssins. Telja heilbrigðisyfir-
völd, að kjöt með geislavirkni
yfir 600 slíkar einingar sé óhæft til
manneldis, og hafa embættis-
menn sagt að kasta verði skrokk-
um af 25-40000 tömdum
hreindýrum í ár. Kjöt af villtum
hreindýrum verður selt, en menn
hafa verið varaðir við að borða of
mikið af því. Ekki hefur en verið
ákveðið hvað gert verður við allt
það kjöt sem hent verður. Fyrst
var talað um að grafa það, en um-
hverfisverndarmenn hafa mót-
mælt þeim ákvörðunum, þar sem
slíkt gæti mengað grunnvatn.
Hreindýr verða mjög auðveld-
lega fyrir mengun af völdum
geislavirkni í lofti, þar sem þau
nærast á skófum, sem vinna öll
nauðsynleg efni úr lofti og safna í
sig cerasium.
Föstudagur 19. september 1986 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 13