Þjóðviljinn - 19.09.1986, Síða 15
IÞROTTIR
Ísland-Sovétríkin
Sömu fimmtán
hjá Sigi Held
Óbreytt byrjunarlið, segir Held, og ekki ástæða til að bœta við
sextánda manni. Forsala byrjar í dag
Sigi Held heldur fast við 15 manna
hóp - segir þó að 15 sé engin sérstök
happatala.
UEFA-bikarinn
Tyrol
sigraði
Swarowski Tyrol frá Austur-
ríki sigraði Sredetz frá Búigaríu
3-0 í gærkvöidi í 1. umferð
UEFA-bikarsins í Innsbruck.
Liðin urðu að hætta leik sínum
eftir 33 mínútur í fyrrakvöld þeg-
ar ausandi vatnsveður skall á og
gerði völlinn ónothæfan. Þá var
Sredetz 1-0 yfir.
-VS/Reuter
Það verða sömu fímmtán leik-
mennirnir í iandsliðshópi íslands
fyrir leikinn gegn Sovétmönnum
á miðvikudaginn og voru gegn
Frökkum í síðustu viku. Sigi Heid
landsliðsþjálfari tilkynnti valið í
gærkvöldi og kvaðst ekki hafa séð
ástæðu til að bæta við sextánda
manni. Talan fímmtán væri samt
ekkert heilög fyrir sér, það gætu
allt eins verið 16 eða 17 valdir
fyrir næsta leik á eftir.
„Ég mun að öllu óbreyttu stilla
upp sama byrjunarliði og gegn
Frökkum. Aðeins meiðsli geta
komið í veg fyrir það,“ sagði Sigi
Held.
Lið íslands verður þá þannig
skipað, landsleikjafjöldi fylgir:
Markvörður:
Bjarni Sigurðsson, Brann..........13
Aðrir leikmenn:
GunnarGíslason.KR.................23
ÁgústMár Jónsson, KR...............6
Sævar Jónsson, Brann..............30
Sigurður Jónsson, Sheff.Wed........8
ÓmarTorfason, Luzern..............22
Atli Eðvaldsson, Uerdingen........40
Ragnar Margeirsson, Waterschei....21
ÁsgeirSigurvinsson, Stuttgart.....36
ArnórGuðjohnsen, Anderlecht.......21
PéturPétursson, lA................29
„Ég sá sovéska liðið gera 0-0
Varamenn:
WSSSSS&XX^ jafn'erii vi« Svía i Oaataborg
Guðni Bergsson, Vai..8 fynr skommu. Það er geysisterkt
Ólafur Þórðarson, Ia.7 og er sérlega hættulegt í skyndi-
Lið Sovétmanna verður mjög
svipað því sem þeir stilltu upp í
heimsmeistarakeppninni í Mex-
íkó. f þeim 20 manna hópi sem
þeir hafa tilkynnt eru 10 leik-
menn frá Evrópubikarmeistur-
unum Dinamo Kiev, og þeir
verða án efa flestir í hinum end-
anlega 16 manna hópi. Þjálfari
sovéska landsliðsins er sem kunn-
ugt er þjálfari Kiev, Valeri Lo-
banovski.
sóknum. Ef menn sofna á verðin-
um eitt andartak er voðinn vís,“
sagði Sigi Held.
Forsala fyrir leikinn verður í
Austurstræti í dag, föstudag,
milli kl. 12 og 18. Henni verður
fram haldið á sama tíma á mánu-
dag. f Keflavík er selt í Sport-
vöruverslun Óskars og á Akra-
nesi í versluninni Óðni. Leikur-
inn fer fram kl. 17.30 á miðviku-
daginn.
-VS
21-árs landsliðið
Viftar Þorkelsson leikur með 21-
árs liðinu gegn Tékkum. Hann átti að
leika í Finnlandi en varð að hætta við
°g síðan var hann til taks í A-hópinn
fynr Frakkaleikinn ef forföll yrðu.
Viðar í stað Marks
Annars óbreytt lið gegn Tékkum á Akureyri
Sviss
Danskur í bann
Danski landsliðsmaðurinn
Kim Christofte var settur í ótíma-
bundið bann af félagi sínu, Wett-
ingen í Sviss, í fyrradag. Hann
neitaði að borga sekt fyrir ó-
prúðmannlega framkomu í leik í
svissnesku 1. deildinni í knatt-
Ásgeir Elíasson.
Framarar
Asgeir
endur-
ráðinn
Ásgeir Elíasson hefur verið
endurráðinn þjálfari íslands-
meistara Fram í knattspyrnu
fyrir árið 1987. Hann hefur nú
stýrt liðinu í tvö ár og undir hans
stjórn varð Fram bikarmeistari
1985 og íslandsmeistari 1986, auk
sigra í Reykjavíkurmóti og
Meistarakeppni. Ásgeir lék með
Framliðinu sjálfur 1985 en lagði
skóna á hilluna eftir það keppnis-
tímabil. -VS
spyrnu um síðustu helgi. f sömu
andrá rak Wettingen svissneska
landsliðsmanninn Hansgunter
Zwicker og sektaði júgóslavneska
leikmanninn Zlatko Dupovac og
setti hann á sölulista.
-VS/Reuter
Innanhússknattspyrna
Firmakeppni
hjá HK
HK heldur innanhússknattspyrnu-
mót fyrir fyrirtæki og félagahópa í
íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi
3.-5. október. Fjórir leikmenn eru í
hverju liði, fyrir utan varamenn og
leikið verður í fimm liða riðlum. Hver
leikur er 2x7 mínútur. Tekið verður á
móti þátttökutilkynningum og allar
frekari upplýsingar veittar á kvöldin í
símum 656044 (Geir), 52832 (Albert)
og 656455 (Jón Gunnar). Þátttöku-
gjald er 3,000 krónur og þátttöku skal
tilkynna í síðasta lagi 26. september.
Viðar Þorkelsson úr Fram hef-
ur verið valinn annar eldri leik-
maður 21-árs landsliðsins í knatt-
spyrnu sem mætir Tékkum á Ak-
ureyri næsta fímmtudag - í stað
Marks Duffíelds úr Víði sem lék
gegn Finnum fyrr í mánuðinum.
Að öðru leyti er Guðni Kjartans-
son þjálfari liðsins með óbreyttan
hóp úr þeirri ferð. Hann er þann-
ig skipaður, fjöldi 21-árs lands-
leikja fylgir:
Markverðlr:
Hermann Haraldsson, Næstved.........1
ÞorsteinnGunnarsson, (BV.............0
Aðrir leikmenn:
Andri Marteinsson Víkingi............4
Ólafur Þórðarson, Ia.................6
Jón Sveinsson, Fram.............3
ViðarÞorkelsson, Fram...........0
Loftur og Viðar eru eldri leik-
menn í liðinu. Ólafur Þórðarson
A-landsliðshópnum fyrir
JúliusTryggvason.Þór". ......3 leikinn við Sovétmenn kvöldið
HlynurBirgisson, Þór...................1 áður en það á engu að breyta, að
Siguróli Kristjánsson, Þór.............3 sögn Quðna. ísland tapaði 2-0
ÓlafurKristjánsson, FH.................0 fynr Ftnnum ytra fyrr 1 þessum
Kristján Gislason, FH..................1 mánuði í fyrsta ieik Evrópu-
Jón ÞórirJónsson, Breiðabliki..........1 keppninnar en auk Tékka eru
Loftj?Ólafsr^nfKRlndSSOn.Brei^abliki...7 Danir f3óröa Þíóðin >' nðlinum.
Gauti Laxdal, Fram......................1
-VS
Knattspyrna
Hættir Zico?
Lœknismeðferð í Bandaríkjunum
Zico - ferillinn á enda?
Zico, sá frægi brasilíski knatt-
spyrnumaður, er farinn til
Bandaríkjanna til að leita sér
lækninga á hnjámeiðslum sínum.
„Eg er tilbúinn að gangast undir
uppskurð á ný en aðeins ef tryggt
er að ég geti haldið áfram að leika
knattspyrnu. Annars mun ég
leggja skóna á hilluna,“ sagði
Zico áður en hann fór.
Zico slasaðist illa í leik í Brasil-
íu í lok ágúst á síðasta ári og
gekkst undir aðgerð á vinstra
hné. Hann gat ekkert leikið fyrr
Kvennaknattspyrna
en í febrúar á þessu ári, þá
skoraði hann 3 mörk í sínum
fyrsta leik og hóf síðan æfingar
með brasilíska landsliðinu fyrir
heimsmeistarakeppnina í Mex-
íkó.
Þá fór hnéð að gefa sig á ný og
hann gat lítið leikið í Mexíkó.
Eftir heimkomuna þaðan hafði
hann aðeins leikið í 7 mínútur í
leik með Flamengo þegar hann
tognaði enn á sama hnénu. Það
ætti að skýrast nú á næstu dögum
hvort þessi snjalli leikmaður sem
nú er 33 ára gamall getur leikið
áfram knattspyrnu eða hvort
hann hefur sagt sitt síðasta orð á
þeim vettvangi.
-VS/Reuter
Valur vann alla leikina
Það fór heldur hljótt um loka-
umferð 1. deildar kvenna sem
leikin var fyrr í þessum mánuði.
Þá voru úrslit deildarinnar líka
ráðin, á toppi og botni.
Meistarar Vals unnu fráfarandi
meistara ÍA 5-1 á Akranesi og
sigruðu því í öllum leikjum sínum
í 1. deild. Til viðbótar unnu
Valsstúlkurnar alla leiki sína í
Reykjavíkurmóti og bikar-
keppni. Vanda Sigurgeirsdóttir
skoraði fyrir ÍA en Ingibjörg
Jónsdóttir 2, Bryndís Valsdóttir 2
og Guðrún Sæmundsdóttir fyrir
Val.
ÍBK vann Þór 1-0 á Akureyri.
Það var Svandís Gylfadóttir sem
skoraði sigurmarkið.
KR vann Hauka 3-0 í Vestur-
bænum. Helena Ólafsdóttir 2 og
Kristrún Heimisdóttir gerðu
mörkin. Haukastúlkurnar
skoruðu því ekki mark í sumar.
Lokastaðan varð þessi:
Valur........12 12 0 0 54-4 36
Breiðablik...12 10 0 2 42-12 30
lA........
KR........
IBK............12
Þór A..........12
Haukar.........12
12 8
12 6
4
2
0
0 4 34-16 24
0 6 21-22 18
0 8 21-28 12
0 10 13-34 6
0 12 0-70 0
Markahæstar:
Kristín Amþórsdóttir, Val........21
Karltas Jónsdóttir, (A...........18
Ingibjörg Jónsdóttir, Val.........13
Ásta M. Reynisdóttir, Breiðabliki..9
Haukar falla í 2. deild, ásamt
Víkingi sem hætti við þátttöku.
Stjaman og KA taka sæti þeirra í
L detld. -MHM/K&H/VS
Frjálsar
Heimsmet
í Tashkent
Marina Stepanova frá Sovét-
ríkjunum bætti í fyrradag heims-
met sitt í 400 m grindahlaupi
kvenna á móti í Tashkent. Hún
hljóp vegalengdina á 52,94 sek-
úndum en fyrra metið, 53,32
sek., setti hún á Evrópumeistara-
mótinu í Stuttgart í lok ágúst.
-VS/Reuter
Föstudagur 19. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15