Þjóðviljinn - 20.09.1986, Qupperneq 2
“SPURNINGIN"
Á að byggja dagvist við
Hamarinn í Hafnarfirði?
Esther Kláusdóttir
verslunarmaður:
Ég er algjörlega á móti því.
Fólk hér í Hafnarfirði vill fá að
hafa Hamarinn í friði. Maður
hefði haldið að það væru nægir
staðir fyrir dagvistarheimili ann-
ars staðar í bænum. Þess vegna
tel ég mikil mistök að fara að
raska öllu á þessu svæði.
Kristján Hauksson
tæknifræðingur:
Það er enn margt óljóst í þessu
máli. Mér finnst rétt að bíða álits
Skipulagsnefndar áður en ég
mynda mér eindregna skoðun.
Ingi Tómasson
slökkviliðsmaður:
Nei, þetta er friðað svæði og ég
er þeirrar skoðunar að þar eigi
ekki að byggja nokkurn skapað-
an hlut. Við Hafnfirðingar eigum
nóg af landi og það er sífellt verið
að þrengja að þessum vernduðu
svæðum. Þetta mál þarf að at-
huga betur.
Vilborg Helgadóttir
fyrrv. hjúkrunarfræð-
ingur:
Ég er alveg á móti því að
byggja þetta dagvistarheimili.
Helst vildi ég friða Hamarinn al-
gjörlega en ef skólinn þarf hús-
næði kæmi einhvers konar byggð
til greina. En núna og sem aílra
lengst eigum við að verja Hamar-
inn átroðningi.
FRÉTTIR
Fiskvinnsla
Starfsfræðslan af stað
Fyrsta námskeiðið í Vestmannaeyjum. Boðið uppá 10 námskeið sem standa í4 klst. hvert
Fyrsta starfsfræðslunámskeið-
ið fyrir starfsfólk í fiskvinnslu
sem Starfsfræðsluncfnd fisk-
vinnslunnar stendur fyrir og er
einn liður febrúarsamninganna
sl, vetur var haldið í Vestmanna-
eyjum í gær.
Atvinnuleysistryggingarsjóður
mun greiða laun fiskverkunar-
fólks meðan það situr náms-
keiðin en gert er ráð fyrir að yfir 2
þúsund manns víðsvegar af
landinu muni taka þátt í þessum
námskeiðum fyrsta árið en skil-
yrði fyrir rétti til þátttöku á þeim
eru þau að fiskvinnslufólkið hafi
undirritað fastráðningarsamning
sem standa nú til boða frá og með
síðustu mánaðamótum. Allir sem
hafa unnið lengur en 3 mánuði
við fiskvinnslu hafa rétt á fast-
ráðningarsamningi.
Námskeiðin verða haldin í
samvinnu verkalýðsfélaga og at-
vinnurekenda á hverjum stað en
alls verður boðið upp á 10 nám-
skeið sem hvert um sig er 4 klst.
Styrkur til listasafns
Menningarsjóður Sambands
íslenskra samvinnufélaga
hefur veitt Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í Reykjavík 150 þús.
kr. styrk til starfsemi safnsins en
það er til húsa í vinnustofu Sigur-
jóns heitins í Laugarnesi. Á
myndinni sjást starfsmenn kjöt-
iðnaðarstöðvar og afurðarsölu
sambandsins afhenta Birgittu
Spur ekkju Sigurjóns og for-
stöðumanni safnsins styrkinn.
Sigurjóns
Frá v. Úlfar Reynisson, Svala
Hjaltadóttir, Birgitta Spur, Guð-
björg Haraldsdóttir, Vilhjálmur
Þorbergsson og Hjálmar Bjarna-
son.
að lengd. Þegar fiskvinnslumað-
ur hefur unnið 12 mánuði sam-
fellt samkvæmt fastráðningar-
samningi og lokið þessum 10
námskeiðum auk tveggja vikna
starfsþjálfunar telst hann sér-
hæfður fiskvinnslumaður og fær
laun samkv. 20. launaflokki sem
eru í dag 18.919 kr. á mánuði.
Fatlaðir
Hver er
rétturinn?
Nýr upplýsinga-
bæklingur kominn út
Vissir þú að sækja má um
lækkun tekjuskatts vegna kostn-
aðar af völdum fötlunar? Vissir
þú að fatlaðir geta sótt um ókeyp-
is gistiaðstöðu hjá gistiheimili
Þroskahjálpar í Kópavogi? Vissir
þú að ýmsir styrktarsjóðir geta
veitt fötluðum aðstoð í sérstökum
tilvikum?
Þessi atriði og ótal mörg önnur
eru nákvæmlega tíunduð í nýjum
upplýsingabæklingi fyrir foreldra
fatlaðra barna og landssamtökin
Þroskahjálp hafa nýlega gefið út.
Bæklingurinn heitir „I hnot-
skurn“ og þar er að finna ítar-
legar upplýsingar um réttindi og
þjónustu við börn og ungmenni
sem búa við fötlun eða langvar-
andi veikindi.
Þessi bæklingur er sá fyrsti
sinnar tegundar hér á landi,
saminn af félagsráðgjöfunum
Hafdísi Hannesdóttur og Sævari
Berg Guðbergssyni. Ritið er
fáanlegt á skrifstofu Þroskahjálp-
ar, öllum aðildarfélögum lands-
samtakanna, á skrifstofum svæð-
isstjórna um málefni fatlaðra svo
og á flestum heilsugæslustöðv-
um.
-v.
HM-einvígið
Tvísýn biðstaða
Miklar sviptingar í 18. skákinni
Átjánda skákin í heimsmeistara-
einvíginu var tefld í gær og fór í bið
eftir 40 leiki. Karpoff lenti í nokkrum
erfiðleikum í byrjuninni en þrátt fyrir
góðar tilraunir tókst Kasparoff ekki
að yfirbuga hann. Kasparoff átti um
tíma kost á þrátefli, sem út af fyrir sig
væri honum hagfellt, en hann vildi
meira. Karpoff slapp úr þrengingun-
um í uppskiptalotu rétt fyrir bið og í
biðstöðunni eru færi hans heldur betri
þótt óljóst sé hvernig úr stöðunni
spinnst.
Hvítt: Kasparoff Svart: Karpoff
1. d4 - Rf6
2. c4 - e6
3. R£3 - b6
4. Rc3 - Bb4
5. Bg5 - Bb7
6. e3 - h6
7. Bh4 - Bxc3+
8. bxc3 - d6
9. Rd2 - ...
f sjöundu skák annars einvígis
þeirra félaga kom upp áþekk staða.
Þar lék Kasparoff þennan leik sem
undirbýr framrás e-peðsins (e4-e5),
framfásina c4-c5 og opnar drottning-
unni leið yfir á kóngsvæng. Þeirri
skák lyktaði með jafntefli. f næsta
leik upphefur svartur leppun riddar-
ans á fó og við það veikist staðan á
kóngsvæng.
9. ... - g5
10. Bg3 - De7
f næstu leikjum þreifar hvítur fyrir
sér á báðum vængjum og reynir að
gera hugsanleg griðlönd svarta
kóngsins ófýsileg.
11. a4-a5
12. h4 - Hg8
13. hxg5 - hxg5
14. Db3 - Ra6
Hér stendur riddarinn ekki vel því
peð hvíts varna honum leiðar fram á
borðið. Hins vegar gekk 14. ... Rb-d7
ekki vegna 15. c5 dxc5 16. Bxc7 og ef
svartur drepur ekki á c5 þá drepur
hvítur á d6, leikur c3-c4 og hefur var-
anlegan þrýsting á drottningarvæng
svarts. 14. ... Rc6 er heldur ekki gott
vegna 15. c5 og Bb5.
15. Hbl - Kf8
16. Ddl - ...
Drottningin hefur lokið hlutverki
sínu á drottningarvængnum og hyggst
nú áreita kóng svarts hinu megin á
borðinu.
16. ... - Bc6
17. Hh2 - Kg7
18. c5 - bxc5
E5 er lykilreitur í stöðunni og því
má svartur ekki taka á c5 með d-
peðinu (18. ... dxc5 19. Be5 með hót-
uninni Dh5-h6 mát eða Dh5xg5).
Þegar hvítur lék c-peðinu fram opn-
aðist lína biskupsins á fl þannig að
hrókurinn á a8 er bundinn við að
valda riddarann á a6 og getur ekki
beitt sér í vörninni.
19. Bb5 - Rb8
20. dxc5 - d5
Svartur neyðist til að gefa e5-
reitinn eftir en tekur um leið reiti af
riddara hvíts á d2. Næstu leikir Karp-
offs eru þvingaðir.
21. BeS - Kf8
22. Hh6 - Re8
23. Dh5 - f6
24. Hh7 - Rg7
25. Df3 - Kf7
26. Dh5+ - Kf8
27. Df3 - Kf7
Hér átti Kasparoff kost á þrátefli
en eins og góðum íþróttamanni sæmir
þá vill hann meira.
28. Hh6 - Re8
29. e4 - g4
Hvítur bjó sig undir að drepa á f6
með biskupi og leika e4-e5. Þá hefði
hann að minnsta kosti fengið betra
endatafl. Svarti tekst nú að trufla
samleik hvítu mannanna á kóngs-
væng.
30. Df4 - Bxb5
31. Hxb5 - Rd7
Loks komst riddarinn í leikinn.
32. Bxc7 - Rxc5
33. De3 - Rxe4
34. Rxe4 - dxe4
35. Bxa5 - f5
Svarta kóngsstaðan má nú teljast
alltrygg en staða hvíta kóngsins getur
orðið viðsjárverð. Eftir Re8-f6 gæti
svartur farið í aðgerðir á miðborðinu
(Hd8, Rd5).
36. Bb4 - Dd7
37. Dd4 - Ha7
Vitanlega ekki 37. ... Dxd4 38.
cxd4 Hxa4 39. Hb7+ og hvítur vinn-
ur.
38. Hh7+ - Rg7
39. a5 - Kg6
40. Dxd7 - Hxd7
Hér fór skákin í bið. Hvítur má
stórlega vara sig því eftir Hg-d8 og
f5-f4 (jafnvel Rf5) vofa máthótanir
yfir honum. Líklega er 41. Hh4 best
(til að koma í veg fyrir f4). Hugsan-
legt framhald væri 41.... Hg-d8 42. c4
Hdl+ 43. Ke2 Hcl 44. Hb6 (til að
binda riddarann við að valda e-peðið)
Hxc4. Þá á hvítur enn eftir að koma
kóngshróknum í samband við hina
mennina en hann getur sett mikið
traust á frípeðið á a-línunni.
Biðskákin verður tefld í dag.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. september 1986