Þjóðviljinn - 22.10.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
b ÞJÚÐVHJINN
ÞJÓDMÁL
VIÐHORF
IÞROTTIR
HEIMURINN
Það er ekki hægt að segja annað en að þessir tveir sovétmenn, sem eru
skipverjar á rannsóknarskipi sem nú hefur viðdvöl í Sundahöfn, hafi góðar
gætur á næsta nágrenni. Sá einkennisklæddi gjóar augunum í átt að Höfða, en
félagi hans í brúnni horfir suður með sjó, þar sem fjölmargir bíða þess að næstu
skref verði stigið í samningaviðræðum við Sovétmenn um síldarkaup. Mynd
E.ÓI.
Fjárlög
Þróunaraðstoð
skorin niður
Ifyrsta skipti lœkkaframlög til þróunaraðstoðar og
hjálparstarfsemi í krónum talið. Hlutfall afvergri
þjóðarframleiðslu komið í 0,05%. Eitt og hálft ár síðan
samþykkt var á Alþingi að stefna að 0,7% á sjö árum. Útlit
, fyrir að þróunaraðstoðin hverfi á því tímabili
Ifyrsta skipti síðan 1978 lækka
framlög íslendinga til þróunar-
aðstoðar og alþjóðlegrar hjálpar-
starfsemi í krónutali. Jafnframt;
er þetta þriðja árið í röð sem hlut-
fallið af vergri þjóðarframleiðslu
sem varið er til þessarar starfsemi
lækkar. Þó er ekki nema eitt og
hálft ár síðan Alþingi samþykkti
samhljóða þingsályktunartillögu
um að á næstu sjö árum skyldi
stefnt að því að koma hlutfaliinu
upp í 0,7% einsog við höfum
skuldbundið okkur til á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna.
Á fjárlögum 1985 þegar þessi
tillaga var samþykkt var varið
0,087% af þjóðarframleiðslunni
til þróunarmála. Á fjárlögum
1986, þegar hefjast átti handa við
að ná 0,7% markmiðinu á sjö
árum, lækkaði hlutfallið í 0,063%
og í fjárlögum fyrir 1987 fer hlut-
fallið niður í 0,050%. Með þessu
áframhaldi tekst að útrýma
þróunaraðstoðinni á næstu sjö
árum.
Alls átti á fjárlögum 1986 að
verja rúmum 85 milljónum króna
til þróunarmála og alþjóðlegrar
hjálparstarfsemi. í fjárlögum
fyrir árið 1987 lækkar þessi tala
niður í 82,5 milljónir. í fjárlagafr-
umvarpinu er gert ráð fyrir að
verg þjóðarframleiðsla aukist um
tæp 8% á árinu. Hlutfall þeirrar
upphæðar sem veitt er til þróun-
armála lækkar því niður í 0,05%.
Hjörleifur Guttormsson hefur málanefnd og mun væntanlega
spurst fyrir um þetta í utanríkis- leggja fram fyrirspurn á Alþingi.
-Sáf
Asmundur
Lægstu taxtamir
smánarblettur
Asmundur Stefánsson íleiðara Vinnunnar:
Þurfum að þvo af okkur smánarblett lœgstu
kauptaxtanna
Hvernig sem að næstu samning-
um verður staðið virðast
meginverkefni samninganna Ijós,
afnám lægstu taxta og uppstokk-
un taxtakerfisins. Verkalýðs-
hreyfíngin ber ábyrgð á 19 þús-
und króna mánaðarkaupi, kaupi
sem ekki nægir til mannsæmandi
framfærslu. Þann blett verðum
við að þvo af okkur, segir Ás-
mundur Stefánsson forseti ASÍ
m.a. í leiðara nýjasta tbl. Vinn-
'unnar.
Ásmundur segir að hækka
verði lægsta kaupið og að þeir
sem náð hafa lengra verði að
veita því beinan stuðning að það
kaup hækki meira en þeirra eigið.
„Verkalýðshreyfingin ber ábyrgð
á kauptöxtunum sem atvinnurek-
endur hver fyrir sig hafa gert
ómerka með persónubundnum
yfirborgunum. Verkalýðshreyf-
ingin ber ábyrgð á því að þetta
úrelta taxtakerfi verði stokkað
upp þannig að umsaminn taxti og
greitt kaup séu í særrylegu sam-
ræmi.“
Forseti ASÍ segir jafnframt að
markmið næstu samninga hljóti
að vera að tryggja taxtafólkinu
sinn hlut í góðærinu og að í
skattamálum verði stefnt að rétt-
látu og einföldu staðgreiðslukerfi
skatta.
-lg-
Reykjavíkurkratar
Jón Sig. í framboð
Sterkar líkur eru á því að for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, Jón
Sigurðsson, fallist á að fara í
framboð fyrir Alþýðuflokkinn í
Reykjavík. Háttsettur maður
innan Alþýðuflokksins hermdi
Þjóðviljanum í gær, að yrði af
framboði Jóns myndi hann að lík-
indum fara rakleiðis í fyrsta sætið
- án prófkjörs - en Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður flokks-
ins, setjast í þriðja sætið á eftir
Jóhönnu Sigurðardóttur og
freista þess að vinna það. Þeir
nafnarnir hittust í hádeginu í gær
til að ræða málið.
Jón Baldvin var í gær spurður
af Þjóðviljanum hvort hann
myndi fallast á að taka þriðja sæt-
ið og svaraði stutt og laggott:
„Já“. Hann staðfesti að viðræður
hefðu verið í gangi í nokkurn
langan tíma við nafna sinn Sig-
urðsson, en ekki væri enn fengið
lokasvar frá honum. Þess má geta
að samkvæmt heimildum Þjöð-
viljans hefur Jón Sigurðsson
raun afráðið framboð sitt, en
mun ekki tilkynna það formlega
fyrr en síðar.
Þegar Jón Sigurðsson var
spurður svaraði hann: „Þið á
Þjóðviljanum urðuð víst fyrstir til
að nefna þetta opinberlega. Ég
get staðfest að mjög margir innan
Alþýðuflokksins hafa skorað á
mig að taka, eða sækjast eftir,
sæti á lista Alþýðuflokksins í
Reykjavík. Og ég er að hugsa um
Síldarsöltun
Vika eftir af síldarsöltun
Hálfnað við að salta síld á Skandinavíumarkaðinn. Hver söltunarstöð má salta í
300 tunnur á dag
eftir að salta í 21.000 tunnur sem
tekur um eina viku. Flök verða
unnin í 10.000 tunnur þannig að
alls kaupa Svíar og Finnar 51.000
tunnur af íslendingum.
Tólf bátar eru nú á miðunum
Samkvæmt ákvörðun sfldarút-
vegsnefndar mega sfldarsölt-
unarstöðvar á Austfjörðum salta
300 tunnur af sfld dag hvern, eða
um 40 tonn. Nú þegar hefur verið
saltað f 20.000 tunnur og er þá
og höfðu tíu þeirra tilkynnt um
afla í fyrrinótt, alls um 700 tonn.
Saltað er í flestum stöðvum frá
Seyðisfirði til Hornafjarðar og
hafa 25-30 manns atvinnu af síld-
arsöltuninni í hverri stöð.
þetta í mikilli alvöru en er ekki
búinn að taka ákvörðun, meðal
annars af því að mér leikur hugur
á að vita hvernig þeir hugsi sér að
velja mennina á listann." Þess má
geta að Jón er ekki flokksbund-
inn í dag.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans innan Alþýðuflokksins
mun Jóni ekki hugnast að fara í
prófkjörsslag, og svar hans virtist
ýta undir að hann hefði sett fram
það skilyrði að ekki yrði próf-
kjör, einsog er altalað innan
flokksins. Aðspurður neitaði
hann hins vegar að hafa sett
nokkur slík skilyrði og Jón Bald-
vin staðfesti það.
Jón Baldvin kvað hins vegar
ekki víst að neitt prófkjör yrði
viðhaft. „Samkvæmt lögum
flokksins frá 1984 þarf þess ekki,
nema sérstök ákvörðun verði um
það tekin.“
- Jón Baldvin, muntu beita þér
fyrir prófkjöri?
„Það liggur ekki ljóst fyrir á
þessu stigi.“ -ÖS
Geislavirkni
Fiskislóð
í hæthi?
Utanríkisráðuneytið hefur ekki
aflað neinna upplýsinga enn
um fyrirhugaða stækkun kjarn-
orkuversins i Dounreay í Skot-
landi, sem sjómenn jafnt og um-
hverfisverndarmenn hafa miklar
áhyggjur af.
Þetta kom fram í fyrirspurnar-
tíma á alþingi í gær og sagði Matt-
hías Á. Mathiesen að í tilefni
fyrirspurnar frá Sigríði Dúnu
Kristmundsdóttur hefði hann
óskað upplýsinga m.a. frá geisla-
vörnum ríkisins, Hafrannsókna-
stofnun og Siglingamálastofnun.
Þegar þær bærust myndi hann
taka málið fyrir á alþingi.
Fyrirhuguð stækkun kjarnorku-
versins og þau áform eigenda að
endurvinna þar £ stórum stíl úr-
gangsefni frá öðrum kjarnorku-
verum í Bretlandi hafa valdið
miklum áhyggjum og kallað fram
mótmæli víða að. Guðmundur J.
Guðmundsson upplýsti að fær-
eyska sjómannasambandið og
sjómenn í Danmörku, Skotlandi
og Bretlandi hefðu sent hörð
mótmæli • -ÁI